Morgunblaðið - 14.11.1995, Page 1

Morgunblaðið - 14.11.1995, Page 1
KNATTSPYRNA: LÍTIL SKEMMTUN í BÚDAPEST / C8 JHttgpmliliifeifc 1995 KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER BLAÐ Fyrsta verkefni Loga Ólafssonar með landsliðið verður á Kýpur Morgunblaðið/Sigmundur 0. Steinarsson LANDSLIÐSMENN á göngu í Búdapest fyrir landsleikinn gegn Ungverjum. Bjarki og Arnar Gunnlaugssynir, Sigursteinn Gíslason, Arnar Grétarsson og Þorvaldur Örlygsson. Krist- inn í Stjöm- una KRISTINN Lárusson hef- ur gengið í raðir Stjörnu- mannaáný eftir að hafa leikið með Valsmönnum undanfarin þtjú ár. Krist- inn er þriðji maðurinn sem hefur bæst í hóp Stjörn- unnar að und- anförnu en hinir eru Reynir Björnsson úr HK og Helgi Björgvinsson úr Keflavík. „Kristinn er sterkur leik- maður sem kemur til með að styrlqa okkur,“ sagði Þórður Lárus- son, þjáifari Stjörnunnar. Þjóðvevjar, Frakkar og IMorðmenn á leið til íslands ÞAÐ verður Ijóst 12. desember í París, þegar dregið verður í undankeppni HM, hvaða verk- ef ni bíður landsliðsins í knatt- spyrnu. Fyrsta verkefni Loga Ólafssonar sem landsliðsþjálf- ara er mót á Möltu í byrjun febrúar, þar sem leikið verður gegn landsliðum Möltu, Rúss- lands og Slóveníu. Eggert Magnússon, fonnaður Knattspymusambands íslands, sagði að það væri ljóst að leiknir verða tveir eða þrír leikir í undan- keppni HM á næsta keppnistímabili. „Við höfum verið að ræða við ýmsar þjóðir um að koma til íslands og leika. Það er ekkert fastákveðið, en það eru góðar líkur á að við fáum þjóð heim sem er á leiðinni til Englands til að taka þátt í úrslitakeppni Evrópu- keppni landsliða í júní. Það verður ekki fyrr en eftir heims- meistaradráttinn í París, sem við getum sest niður og ákveðið endan- legt landsleikjaplan. Kýpurbúar skulda okkur einn landsleik á íslandi næsta ár og þá er búið að semja við Norðmenn um tvo landsleiki - fyrst í Noregi 2. ágúst 1996 og síðan kæmu Norðmenn heim á fimmtíu ára afmælisári KSÍ 1997, eins og Þjóð- verjar. Frakkar taka ekki þátt í und- ankeppni HM 1998, þar sem þeir halda keppnina. Við munum leika tvo leiki gegn þeim - heima og heiman. Haustið 1996 á íslandi og síðan í Frakklandi 1997 eða 1998. Það er ýmislegt á prjónunum og ég hef verið að vinna að því í langan tíma að fá góða landsleiki heim.“ Menn hafa oft kvartað yfir að- JÚLIUS stöðuleysi á Laugardalsvellinum fyrir áhorfendur - að völlurinn sé ekki boðlegur. Sérðu fram á breytingar þar til bóta? „Það er engin spuming, það verður að bæta aðstöðuna fyrir áhorfendur á Laugardalsvellinum. Ég get fullyrt, 'að það verður gert fljótlega. Mér sýnist vilji borgaryfirvalda augljós. Það er verið að reyna að fá ríkið inn í þær breytingar. Mér finnst umræð- umar hafa verið þannig að undan- fömu að málið verði klárað með reisn. Með réttu hefur Reykjavíkurborg bent á að Laugardalsvöllurinn er þjóðarleikvangur og þess vegna sé eðlilegt að ríkið taki þátt í uppbygg- ingu á nýrri stúku. Ég tek heilshugar undir það, að Reykjavikurborg eigi ekki ein að bera ábyrgð á Laugardals- vellinum," sagði Eggert Magnússon. Júlíus handar- brotnaði JÚLÍUS Jónasson handarbrotnaði í leik Gumm- ersbach og Bad Schwartau í þýsku deildinni í fyrradag og er ljóst að hann verður frá æfingum og keppni næstu vikurnar. Júlíus hefur staðið sig vel með Gumm- ersbach og íslenska landsliðinu að undan- f örnu og er þetta mikið áfall. „Eg veit eiginlega ekki hvað gerðist, en snemma í leiknum hras- aði ég á varnarmann og vinstri hendin böglaðist einhvern vegin undir mér. Eftir á að hyggja gæti ég trúað að þetta hafi farið þá að liluta til, en ég hélt samt áfram að spila en skömmu síðar lenti ég aftur í árekstri í vörn- inni og þá fann ég svo mikið til að ég fór útaf,“ sagði Júlíus í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi, en þá lá hann á sjúkrahúsi í Þýskalandi þar sem hann mun verða fram á fimmtudag eða föstudag. Júlíus sagði að langatöngin á vinstri hendi væri brotin og bein í handarbakinu hefði farið I sundur. „Læknarnir töldu best að skera þetta og skrúfa saman þannig að ég er með einar fjór- ar skrúfur £ hendinni núna og verð ekkert nagl- hreinsaður fyrr en eftir um það bil ár. Ég verð með hendina í umbúðum í þrjár vikur og lækn- arnir segja að ég ætti að geta byrjað að æfa eftir sex til átta vikur en ég er að vona að ég geti byijað að spila þá. Það er bölvanlegt að lenda í þessu núna. Mér hafði gengið vel með liðinu og svo missir maður líka af leikjunum gegn Pólveijum.“ Július hafði gert þijú mörk þegar atvikið gerðist eftir 20 minútna leik, en Gummersbach vann 30:23. Júlíus sagði að það hefði vart verið bætandi á meiðslin hjá Gummersbach því leik- stjómandinn væri líka meiddur og yrði frá fram í febrúar. Geir meiddist og Montpelli- er tapaði GEIR Sveinsson og samherjar í Montpellier máttu sætta sig við fjögurra marka tap, 27:23, gegn Winterthur I Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik um helgina. Leikurinn fór fram í Sviss og gat Geir ekki leikið með í sókninni - meiðsl í hægri öxl tóku sig upp og verður hann í sérstakri meðferð þar til á morgun. „Við höfum ekki fengið svona mörg mörk á okkur í einum leik á tímabilinu,“ sagði Geir við Morgunblaðið. „Til þessa höfum við fengið 17 mörk á okkur að meðal- tali í deildinni en Kóreubú- arair tveir í svissneska liðinu reyndust okkur erfiðir.“ Hann sagði að möguleikamir á að komast áfram væru ekki svo slæmir en liðin mætast aftur á laugar- dag. „Þetta svissneska lið sigraði Redbergslied með átta mörkum á heimavelli í 1. umferð en tapaði síðan úti með sex mörkum sem segir okk- ur að það er brothætt.“ Geir meiddist í París sl. miðvikudagskvöld þegar Montpellier sótti Creitel heim í frönsku deildinni og tapaði í fyrsta sinn á tímabilinu, 24:23. Hann reyndi ekki á öxlina fram að Evrópu- leiknum en fann strax til eftir 10 mínútna leik og sagðist hafa orðið að fara varlega eftir það. Að 10 umferðum loknum er Marseille í fyrsta sæti en síðan koma Geir og félagar þremur stig- GEIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.