Morgunblaðið - 18.11.1995, Síða 1
fKmrgtuiMafeifr
Albee í endurliti/4
Caritas á Islandi/4
Enga minnimáttarkennd/8
MENNING
LISTIR
BLAðC
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
LAUGARDAGUR 18. NOVEMBER 1995
í UNDIRBÚNINGI er frumvarp til breytinga á kvikmyndalögum.
Tæplega hundrað um-
sóknir í Kvikmyndasjóð
Jóhann Smári Sævarsson bassasöngvari
Semur við óperu-
húsið í Köln
UMSÓKNARFRESTUR um styrki
í Kvikmyndasjóð íslands rann út
á miðvikudag. Að þessu sinni sóttu
95 um og þar af 25 um styrki til
framleiðslu á leiknum kvikmynd-
um í fullri lengd. Aðrar umsóknir
eru um styrki til vinnslu á heim-
ildamyndum og öðrum verkefnum.
Þetta eru ívið fleiri umsóknir en í
fyrra en þá voru þær 86. Bryndís
Schram, framkvæmdastjóri sjóðs-
ins, segir að samkvæmt
tillögum í fjárlagafrum-
varpi sé gert ráð fyrir
92,3 milljónum króna í
úthlutunarfé en vonast sé
til að sú upphæð hækki.
„í fyrra voru tillögurnar
lægri en nú en fjárveitingin var
svo hækkuð upp í 100 milljónir
króna. Þannig að nú vonar maður
að ráðamenn sjái að sér.“
Bryndís segir ennfremur að
þegar hafi verið ráðstafað 40 millj-
ónum af þeirri upphæð sem sjóður-
inn hefur til umráða nú í svokölluð
vilyrði um styrk til kvikmynda-
gerðarmanna. „Menn hafa fengið
loforð um peninga hjá okkur, en
fá þá ekki afhenta fyrr en þeir
hafa uppfyllt ákveðin skilyrði og
fjármagnað myndina að fullu. Með
þessu móti fá menn meiri frest til
að útvega fjármagn í myndir sínar
auk þess sem þetta vilyrði hjálpar
til við að sækja um styrki frá er-
lendum aðilum sem gera iðulega
kröfu um að tiltekin mynd sé
styrkt af heimalandi sínu áður en
þeir leggja fé í hana. Þetta er
nýtt fyrirkomulag sem komið var
á í fyrra.“
Unnið að breytingum á
kvikmyndalögum
Vilhjálmur Egilsson, alþingis-
maður, og Knútur Hallsson, lög-
maður, hafa haft til undirbúnings
drög að frumvarpi til breytinga á
kvikmyndalögum. Meðal tillagna
í þeim er að breyta Kvikmynda-
sjóði í Kvikmyndamiðstöð íslands
þar sem starfsemi hans og hlut-
verk sé orðið mun meira en sjóðs-
nafnið gefi til kynna. Vilhjálmur
Egilsson sagði í samtali við blaða-
mann að aðrar meginbreytingar
sem lagðar hafa verið til séu að
flytja til ábyrgðina í stofnuninni,
„þannig að stjórnin
yrði ekki samsett af
hagsmunaaðilum eins
og hún er í dag. Hags-
munaaðilar myndu til-
nefna í stjórnina aðila
sem væru ekki tengdir
kvikmyndaiðnaðinum með sama
hætti. Og síðan er lagt til að
stjórnin beri meiri ábyrgð á úthlut-
Sjóðnum
breytt í Kvik-
myndamið-
stöð íslands
unum úr sjóðnum." Einnig hafa
verið gerðar tillögur um að tekju-
stofn verði útvíkkaður sem gæti
þýtt að viðmiðunin um árlegt
framlag til Kvikmyndamið-
stöðvarinnar hækkaði úr um 110
milljónum króna í um 360 milljón-
ir króna.
í samtali við blaðamann sagði
Björn Bjarnason, menntamálaráð-
herra, að undirbúningsvinnu að
frumvarpinu væri enn ekki lokið.
„Það er ljóst að ákvæðum um við-
miðanir um framlag til Kvik-
myndasjóðs verður breytt. Stefnan
er sú að binda ekki slíkar viðmið-
anir í lögum, heldur ákveða fram-
lög í fjárlögum á hveijum tíma.“
Björn sagði að ekki væri fyrirséð
hvort frumvarpið yrði lagt fram á
haustþinginu.
JOHANN Smári
Sævarsson bassa-
söngvari mun á
næstu dögum
skrifa undir
tveggja ára ein-
söngvarasamning
við óperuhúsið í
Köln. „Þetta er
stórkostlegt og
nánast gulltrygg-
ing á fastri vinnu
næstu árin,“ segir
Jóhann,„enda er
óperuhúsið í Köln
í hæsta gæða-
flokki og eitt af
þeim virtustu í
Þýskalandi.“
Jóhann hefur
starfað við óperu-
stúdíó óperunnar
í Köln frá því
hann lauk prófi
frá Royal College
of Music í London síðastliðið
sumar. „Þegar ég fór í prufu
hjá óperustúdíóinu hlýddi
óperustjórinn á mig en kváðst
ekki geta dæmt um það strax
hvort ég væri tilbúinn að ganga
til liðs við óperuna. Var mér
því boðinn tveggja ára samn-
ingur við stúdíóið en jafnframt
lofað að ég fengi að spreyta
mig í óperunni í vetur.“
Fyrstu verkefni Jóhanns voru
hlutverk í Madame Butterfly
eftir Puccini og Seldu brúðinni
eftir Smetana og eftir að hafa
fylgst með frammistöðu hans í
þeim sýningum er óperustjórinn
sem sagt tilbúin að bjóða honum
samning. „Onnur óperuhús vóru
farin að grennslast fyrir um það
hvort ég væri á lausu og það
Jóhann Smári
Sævarsson
gæti hafa flýtt fyr-
ir samningum,"
segir Jóhann.
Þakkar Sverri
konungi
Söngvarinn
bætir við að hon-
um hafi einnig
verið vel tekið á
opnunartónleikum
starfsársins en þar
flutti hann Sverri
konung eftir
Sveinbjörn Svein-
björnsson. „Þessir
tónleikar hafa ör-
ugglega ekki
skemmt fyrir,
þannig að ég á
Sverri konungi
mikið að þakka.“
Jóhann hefur í
mörg horn að líta
á þessu fyrsta
starfsári I Köln. Þegar hafa tvær
óperur verið nefndar og í næstu
viku verður Evgeni Onegin eftir
Tsjajkovsky frumsýnd. I desem-
ber tekur Töfraflautan eftir
Mozart við og í mars mun Jó-
hann syngja í Othello eftir Verdi
og Cosi fan tutte eftir Mozart.
„Það er meira en nóg að gera
og alltaf að bætast við verkefna-
listann."
Jóhann bætist í hóp þriggja
íslenskra listamanna sem starfa
við óperuhúsið í Köln: Erlings
Vigfússonar söngvara, Gerðar
Gunnarsdóttur fiðluleikara og
Katrínar Hall ballettdansara.
Þá hefur Olafur Arni Bjarnason
tenórsöngvari verið þar í gesta-
hlutverki í Madame Butterfly
síðasta kastið.
Barbara Auer í íslenskri mynd
EIN eftirsóttasta og umtalaðasta
leikkona Þýskalands, Barbara
Auer, hefur undirritað samning
um að taka að sér aðalhlutverkið
í nýrri kvikmynd Einars Heimis-
sonar, sem ber yinnuheitið „Mar-
ía“ og fyrirhugað er að tökur hefj-
ist næsta sumar. Kvikmyndin er
þýsk-íslenskt samvinnuverkefni
Blue Screen í Múnchen og íslensku
kvikmyndasamsteypunnar.
Myndin gerist á árunum
1945-55 og fiallar um unga konu
frá Slesíu, sem verður að flýja
undan Rauða hernum í lok síðari
heimsstyijaldarinnar og hefst við
í flóttamannabúðum í Lubeck, uns
hún ræður sig til starfa á íslensk-
um bóndabæ.
Barbara Auer hefur á undan-
förnum árum leikið aðalhlutverk
í ýmsum þekktum myndum í
Þýskalandi hjá leikstjórum á borð
við Alexander Kluge, Hark Bohm,
Sönke Wortmann og Sherry Hor-
man. „Súddeutsche Zeitung hefur
skrifað að hún gæti orðið fyrsta
þýska leikkonan, sem næði alþjóð-
legum frama, síðan Hanna Schy-
gulla náði svo langt,“ segir í frétt
frá íslensku kvikmyndasamsteyp-
unni.
Hörzu, þýskt sjónvarpsblað,
sagði í forsíðugrein nýlega, að hún
væri „sú fagra í fílabeinsturnin-
um“, leikkona sem hafni hlutverk-
um þótt „tilboðin skorti ekki“. Hún
segist ekki geta horft framhjá
innihaldi þeirra verkefna sem
henni bjóðist. „Ég vil ekki vinna
BARBARA Auer
með leikstjórum, sem em þekktir
fyrir að kvelja leikara á töku-
stað,“ segir Auer.
Einar Heimisson, leikstjóri og
handritshöfundur „Maríu“, er
sagnfræðingur og rithöfundur,
menntaður í nútímasögu og þýsk-
um bókmenntum frá háskólanum
í Freiburg. Hann hefur lokið prófi
í handritsgerð og leikstjórn kvik-
mynda við Kvikmyndaakademíuna
í Múnchen. Einar hefur gert heim-
ildamyndir fyri sjónvarp, þ.ám.
Gyðingar á íslandi, Innflytjendur á
íslandi, Olafur Jóhann Sigurðsson,
íslenska íþróttavorið og Hvíti dauð-
inn, sem var leikin sjónvarpsmynd.
Meðal bóka Einars Heimissonar
eru skáldsögurnar Götuvísa gyð-
ingsins og Villikettir í Búdapest.