Morgunblaðið - 28.11.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.11.1995, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR NBA leikmenn nú eldri og þyngri að meðaltali ALDUR Sæli UD Fjöldl leikm. áskrá Meðal- aldur, ár Lelkm. eldríen 1 Chicago '-m - 14 29,86 8\> 2 Houston * 13 29,59 6 3 New York 12 29,41 6 4 San Antonio 13 29,27 7 5 Utah 14 29,26 5 6 Seattle 13 29,25 5 7 Indiana 15 28,91 5 8 Charlotte 15 28,68 6 9 Miiwaukee 13 28,26 4 10 Atlanta 14 28,21 4 20 Toronto 15 26,77 3 21 Oenver 14 26,74 2 22 Cleveland 15 26,60 3 23 Sacramento 14 26,53 4 24 Philadelphia 12 26,28 3 25 Minnesota 13 26,24 2 26 Boston 13 26,03 0 27 Washington 13 25,71 2 28 Dallas 13 25,54 1 29 LA Clippers 13 25,37 0 en nokkru sinni fyrr NBA deildin í heild, alls 29 lið: Meöalaldur 27,56 ár Meðalþyngd 101,45 kg Meðalltæð 201,3 sm Meðal leikreynsla 4,42 ár Heimildir: Leikmannaskrár liðanna í byrjun leiktímabilsins 1995-96/NBA NEWS MNGD UD Fjöldi leikm. Leikm. Meöal- þyngri en \, 113,4 kg þyngd, m ChicagoHB- 14 106,8 5 2 Utah “ 14 105,0 5 3 Vancouver 15 104,0 4 4 Dallas 13 103,9 6 5 Orlando 14 103,5 3 6 Washington 13 103,5 4 7 Portland 14 103,2 3 8 Milwaukee 13 102,8 4 9 Cleveland 15 102,7 2 10 Toronto 15 102,5 3 20 LA Lakers 13 100,1 4 21 Golden State 13 99,7 2 22 Minnesota 13 99,5 1 23 Miami 14 99,4 2 24 Charlotte 15 99,3 4 25 Sacramento 13 99,2 3 26 Denver 14 99,0 3 27 Philadelphia 12 98,8 1 28 Houston 13 98,1 1 29 Atlanta 14 98,0 3 ■ HÉÐINN Gilsson, landsliðs- maður í handknattleik, hefur lengi verið meiddur en kom inná í fyrsta sinn í vetur er FH og Haukar mættust í 1. deiidinni. Fyrst kom hann í vörnina um miðjan fyrri hálfleikinn, við mikinn fögnuð FH- inga. Fimm sekúndum síðar var hann rekinn útaf í tvær mínútur, við mikinn fögnuð Haukamanna. Það var raunar strangur dómur. ■ NIKOLAI Drozdetsky, fyrrum landsliðsmaður Rússa í íshokkí, lést á föstudag aðeins 38 ára að aldri. Tass fréttastofan skýrði frá þessu um helgina en dánarorsök hans er ókunn. ■ STEPHEN Hendry, heims- meistari í snóker frá Skotlandi, varð á laugardaginn fyrstur til að ná þrisvar sinnum 147 í einu stuði á sama móti. Hann náði þessu af- reki á breska meistaramótinu í Preston er hann lék gegn Gary Wilkins frá Bretlandi. ■ DAN Marino hjá Miami Dolph- ins jafnaði met í NFL-deildinni í fótbolta um helgina þegar sending hans gaf snertimark og bætti metið síðar í leiknum. Nú hefur verið skor- að eftir 346 sendingar frá honum ÉNÓBR FOLX en Fran Tarkenton átti fyrra met- ið, 343 sendingar hans gáfu snerti- mark. ■ TARKENTON sendi boltann samtals 47.003 stikur á ferlinum og átti metið þar til fyrir hálfum mánuði þegar Marino sló það. Tarkenton átti 6.467 góðar send- ingar en Marino vantar aðeins 82 til að jafna metin. ■ MARINO átti 20 met og hafði jafnað sex til viðbótar þegar tíma- bilið hófst en hann sagði að nýjasta metið væri það mikilvægasta. Hann er þriðji besti kastarinn í sögu deild- arinnar og kemur á eftir Steve Young og Joe Montana. ■ GREG Norman varð sigurveg- ari á Opna ástralska mótinu í golfi sem lauk um helgina. Þetta var fyrsti sigur hans_ í Ástralíu síðan í Meistarakeppni Ástralíu 1990 en í íjórða sinn sem hann sigrar á Opna ástralska. ■ NORMAN varð síðast meistari í þessu móti fyrir 10 árum en hann sagðist ætla að jafna árangur Gary Players frá Suður-Afríku sem varð sjö sinnum meistari. ■ ORN Arnarson sundmaður úr SH fékk aflientan Stigabikarinn að lokinni Bikarkeppni SSÍ á sunnu- daginn. Hann er veittur árlega þeim sundmanni sem sýnir mestar fram- farir á milli bíkarmóta. Örn fékk bikafinn að þessu sinni fyrir að bæta sig um 256 stig í 200 m bringusundi. ■ BRYNDÍS Ólafsdóttir keppti ekki í Bikarkeppni SSI að þessu sinni en mætti eigi að síður og fékk afhentan Sundhallarbikarinn fyrir besta árangur í Bikarkeppninni í fyrra. Þá hlaut hún flest stig allra keppenda í einstökum greinum eða 851 stig fyrir 100 m skriðsund. ■ HALLDÓR Kristiansen sund- maður úr UMSK var elsti keppand- inn í Bikarkeppni SSÍ um helgina. Halldór er 39 ára og gaf þeim yngri ekkert eftir og sótti ófá stig fyrir UMSK í harðri keppni við Ármenn- inga um sigurinn í 2. deild. STUÐNINGUR Islenska landsliðið í handknatt- leik á fyrir höndum tvo leiki gegn Pólverjum í Evrópukeppn- inni. Þetta eru ekki venjulegir leikir sem slíkir heldur þvert á móti með þeim þýðing- armestu þegar ís- lenska landsliðið hefur átt hlut að máli. Málið er ósköp einfalt. ísland verður að sigra Kapiakrika annað kvöld og ná a.m.k. einu stigi í seinni leiknum í Póllandi um helgina til að komast í úrslita- keppnina sem getur gefið sæti á Olympíuleikunum í Atlanta næsta sumar og í Heimsmeist- arakeppninni 1997. Landsliðið hefur verið með á Ólympíuleikum síðan 1984 og í úrslitakeppni Heimsmeistara- mótsins síðan 1986. Bestu landslið miða allt starf við þessi tvö stórmót enda skiptir þau miklu máli að vera þar sem at- hyglin er mest, ekki síst með framgang og vöxt íþróttarinnar í huga. Lið sem ekki er i úrslita- keppni umræddra móta stendur höllum fæti og rekstur viðkom- andi sambands verður erfiðari fyrir vikið. Frammistaða íslenska lands- liðsins síðan á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984 hefur vakið þjóðarathygli. Liðið varð í sjötta sæti í LA og endurtók leikinn í Heimsmeistarakeppninni í Sviss tveimur árum síðar. Liðið féll úr hópi þeirra bestu eftir Ólymp- íuleikana í Seoul í Suður-Kóreu haustið 1988 en sneri vöm i sókn og sigraði í B-keppninni í Frakklandi snemma árs 1989. Liðið stóð ekki undir væntingum á HM í Tékkoslóvakíu 1990 en keppti um verðlaunasæti á Ólympíuleikunum S Barcelona 1992 og varð í fjórða sæti. Dæmið gekk ekki upp á HM í Svíþjóð 1993 og þvi síður á HM á íslandi í vor sem ieið en fyrir vikið er liðið á ákveðnum kross- götum. Ekki fer á milli mála að lanásliðsstrákarnir mæta ávallt til leiks með því hugarfari að gera sitt besta. Stundum nægir það, stundum ekki. Það hefur nægt á heimavelii í keppninni til þessa hvað stigin varðar en ekki í sambandi við samanlagða markatölu. því skiptir síðasta hindrunin öllu máli. Áhugamenn um íslenskan handknattleik hafa oft stutt vel við bakið á landsliðinu. Reyndar það vel að umtalað er í alþjóða handboltaheiminum. Lið hafa óttast að leika á íslandi, fýrst og fremst vegna stuðnings áhorfenda við ísienska liðið hverju sinni. Sá stuðningur hef- ur verið metinn til nokkurra marka en það verður að segjast eins og er að liðið fékk ekki stuðning á heimaleikjunum gegn Rúmenum og Rússum í réttu hiutfaili við kröfumar sem gerðar eru til liðsins. íslendingar hafa ekki beint verið að sópa að sér verðlaunum á alþjóða íþróttamótum. I fiest- um tilfellum á við hið gamla og góða að vera með en stundum er möguleiki á að gera aðeins betur. Það á við um handboita- landsliðið að þessu sinni og það treystir á góðan stuðning í Kaplakrika annað kvöld. Áhorf- endur geta gert gæfumuninn. Steinþór Guðbjartsson Landslidið í hand- knattleik treystir á studning í Kaplakrika Stefnir Keflvíkingurínn EYPÍS KOMRÁÐSPÓTTIR á næstu Ólympíuleika? Sunddrottning og sellóleikari EYDÍS Konráðsdóttir frá Keflavík hefur undanfarin ár verið ein skærasta stjarna sundsins hérá landi. í Bikarkeppni Sundssambandsins um nýliðna helgi setti húntvö íslandsmet og sigraði í öllum einstaklingssundum sem hún tók þátt í. Eydfs er sautján ára og býr íforeldrahúsum og stundar nám á þriðju önn náttúrufræðibrautar Fjölbrautarskóla Suður- nesja. Foreldarar hennar eru Konráð Lúðvíksson kvensjúkdó- malæknir og Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir líffræðingur. Magnús bróðir Eydísar er þekktur sundmaður og er í landslið- inu og systir þeirra Hanna Björg sem er þrettán ára er á góðri leið með að feta ífótspor systkina sinna og um helgina ávann hún sér rétt til að keppa á unglingamóti í Lúxemborg. Eydís segir að hún hafi byrjað að æfa sund sjö ára gömul og hafi stundað það sleitulaust síð- an. Hún hafi aðeins Eftir æft fimleika um ivar tíma um það leyti Benediktsson og hún byrjað í sundinu en fljót- lega gefið þá upp á bátinn. Hún setti sitt fyrsta aldursflokkamet níu ára gömul í 200 m baksundi og fimmtán ára setti hún sitt fyrsta met í flokki fullorðina í 100 m baksundi. Þess má geta að Eydís er enn í stúlknaflokki og færist ekki upp í fullorðinsflokk fyrr en á næsta ári. Eydís og Magnús bróðir hennar eru bæði í landsliði íslands og í Ólympíuhóp SSÍ. Var það stefna þín fyrir mótið að setja íslandsmet? „Ég veit ekki, hafði ekkert leitt hugann að þvi. Ég vissi hvar ég stóð og auðvitað er það stefna hvers sundmanns að bæta sig.“ En nú léttir þú ekkert æfingar þínar fyrir mótið eins flestir sund- menn gerðu, hvers vegna? „Það er rétt, ég hvíldi ekki fyrir Bikarkeppnina og ástæðan er sú að æfingaátælun mín er stíluð inn á Ólympíuleikana á næsta ári og að vera þá á toppnum.“ Þú stefnir á Ólympíuleikana í Atlanta en hefur ekki náð Óiymp- íulágmarkinu, hverja telur þú vera möguleika þína á ná því? „Þá tel ég vera nokkuð góða en tii þess að ná lágmarki þarf ég að fara erlendis til að keppa. Það er reglur að lágmarki skal ná í fimm- tíu metra laug og hún er ekki tii hér á landi. Ég fer á mót í Þýska- iandi í byijun febrúar og þar stefni ég að því að ná lágmarkinu í eitt hundrað metra flugsundi. Ef ekki stefni ég á mót í Cannes og Món- akó í maí.“ Fer ekki mikill tími í sundið? Ég æfi sund tíu sinnum í viku, tvo til fimm tíma í senn. Auk þess er ég á lyftingaæfingum þrisvar í viku og hver æfing tekur rúmlega klukkutíma.“ Hvernig gengur að samræma skólann og sundið, verða ekki árekstrar? „Ekki ennþá, mér hefur tekist að sinna hvorutveggja með því að skipuleggja mig vel.“ Hvaða kostir þurfa að prýða góðan sundmann? „Hann þarf að vera ósérhlífinn og vera tilbúin að leggja mikið á sig og hafa sjálfsaga. Þá þarf hann að vera reglusamur, einnig með það sem hann borðar. Til að geta stundað erfiðar æfingar og upp- skera árangur þarf að borða hollan mat og hafa reglulegan svefn. Þá má heldur ekki taka íþróttina of alvarlega og hafa ekkert annað fyrir stafni.“ Hvað gerir þú annað en að æfa og stunda skóla? „Ég leik á selló og hef stundað nám á selló síðan ég var fimm ára og geri enn, hef reyndar fijálsa mætingu í vetur en sinni því með.“ Að lokum, yrði það mikið áfall fyrir þig ef þú kæmist ekki á Olympíuleikana á næsta sumri? Morgunblaðið/ívar „Nei, það yrði ekki mikið áfall. EYDÍS Konráösdóttir slakar hér á aö lokinnl keppni um helg- Ef það tekst ekki set ég markið á ina. Keflavíkursveitinni gekk ágætlega og náði þriðja sæti leikana í Sidney árið 2000.“ sem er einu sæti ofar en í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.