Morgunblaðið - 28.11.1995, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1995 C 3
KÖRFUKIMATTLEIKUR
Endurtek
iðefni
Haukar unnu Njarðvíkinga aftur
með einu stigi, nú 85:84
Haukar sýndu það og sönnuðu
að þeir eru besta lið á ís-
landi í dag. Að leggja íslandsmeist-
ara Njarðvíkinga tvisvar með
HBH stuttu millibili er
Hörður eitthvað sem aðeins
Magnússon þeir bestu geta.
skrifar Það var ekkert
sem benti til þess í
fyrri hálfleik að Haukamir færu
með sigur. Liðið virkaði áhuga-
laust og þreytt og það var aðeins
Ivar Asgrímsson sem náði að stríða
meisturunum, en fór útaf með
fimm villur í upphafi síðari hálf-
leiks. Gestimir sigu þá framúr og
náðu 8 stiga forystu 51:59. A
Haukana rann nú mikið æði og
settu þeir 19 stig í röð.á undrandi
gestina. Á þessum tíma gerðu
meistaramir þvílík byijendamistök
að annað eins hefur vart sést til
þeirra. Ráðleysið algert og ekkert
gert af þjálfaranum til að breyta
þróun mála.
„Við vorum seinir í gang,
virkuðum þungir. Með frábærri
vöm í síðari hálfleik náðum við að
snúa leiknum okkur í hag og vinna
tiltölulega ömggan sigur í lokin,
þrátt fyrir aðeins eitt stig í rest-
ina,“ sagði frábær leikmaður
Hauka í leiknum, Sigfús Gizurar-
son, sem hreinlega „grillaði“ Teit
Örlygsson í leiknum.
Ásamt Sigfúsi var Pétur Ing-
varsson magnaður, ótrúlegur bar-
áttujaxl sem dreif félaga sína
áfram og Jason Williford var dijúg-
ur á lokakaflanum. Annars virðist
mottóið hjá Haukunum vera allir
fyrir einn, einn fyrir alla.
Meistaramir vilja eflaust gleyma
þessum sorgardögum í Hafnar-
firði. Rondey Robinson var sá eini
sem sýndi sitt rétta andlit og þá
var Gunnar Örlygsson dijúgur.
Sætur sigur ÍA
í nágrannaslag
Þetta var góður sigur og eðlilegt
framhald af því sem við höf-
um verið að gera. Eg þakka sigur-
inn frábærri liðsheild og baráttu í
vörninni," sagði
Hreinn Þorkelsson,
þjálfari Skaga-
manna, eftir sætan
sigur á erkiíjendun-
um í Skallagrími. Sigurinn réðst í
Gunnlaugur
Jónsson
skrifar frá
Akranesi
blálokin og lokatölur, 83:81.
í báðum liðum voru forföll.
Borgnesingar voru án Sigmars
Egilssonar, Sveinbjörns Sigurðs-
sonar og Grétars Guðlaugssonar
en heimamenn án Elvars Þórólfs-
sonar og Haraldar Leifssonar.
Bæði lið keyrðu því á sömu leik-
mönnum sem kom niður á gæðum
leiksins.
Gestimir vom ívið sterkari í fyrri
hálfleik og leiddu með tíu stigum
í upphafi þess síðari. En náðu þó
ekki að hrista heimamenn af sér
og í þeim síðari læstu heimamenn
hreinlega vörninni og náðu komast
yfir. Tómas Holton setti niður
þriggja stiga körfu, 80:81, er 23
sek., vom eftir. Heimamaðurinn
Jón Þ. Þórðarson hitti síðan úr
þriggja stiga skoti og kom ÍA í
83:81. Borgnesingar misstu bolt-
ann þegar 8 sekúndur voru eftir
en Bragi Magnússon náði boltan-
um á ný af Skagamönnum en
þriggja stiga skot hans rataði ekki
rétta leið.
Þetta var mjög sterkur og „mór-
alskur“ sigur hjá Skagamönnum
og nær ótrúlegt að þeir hafi sigrað
með byijunarlið sitt inná nær allan
leikinn. Gestirnir hafa oft spilað
betur, en bestur var Alexander
Ermolinskij, sem átti stórleik.
Hann skoraði 32 stig og hélt Mil-
ton Bell undir 20 stigum. Guðjón
K. Þórisson, sem hefur lítið fengið
að spreyta sig, átti sterka innkomu
og skoraði 5 þriggja stiga körfur.
Öruggur
Grindavíkursigur
Grindvíkingar sigruðu Þór
nokkuð ömgglega, 104:77, en
gestimir voru þó erfiðir í fyrri
■■■■■■ hálfleiknum og það
Frímann Var ekki fyrr en í
Ojafsson þejm sí(jari að
Qlsntar tm L
Grindavík heimamenn náðu að
hrista gestina af
sér. Þórsarar léku oft á tíðum
ágætlega í fyrri hálfleik og gekk
vel að stöðva skyttur Grindvíkinga
en réðu illa við Herman Myers
undir körfunni.
Herman Myers var gríðarlega
sterkur en annars áttu þeir Helgi,
Hjörtur, Marel og Guðmundur
ágætis leik. Þórsarar söknuðu
þjálfara síns, Jóns Guðmundsson-
ar, sem varð eftir fyrir norðan með
40 stiga hita. Fred Williams spilaði
af krafti allan leikinn og Kristján
Guðlaugsson átti góða spretti í
fyrri hálfleik.
„Við vissum að þeir yrðu erfíðir
án Kidda [Kristins Friðrikssonar]
og með þjálfarann veikan fyrir
norðan. Þeir seldu sig dýrt í fyrri
hálfleik en eftir að leikgleðin náði
yfirhöndinni hjá okkur gekk þetta
upp. Okkar bíður erfið útileikja-
hrina því við höfum verið að leika
marga heimaleiki," sagði Friðrik
Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga.
„Við náðum ekki að stoppa
skytturnar hjá þeim í seinni hálf-
leik. Um leið og þær komust inn
í leikinn réðum við ekki við_ liðið
og því fór sem fór,“ sagði Ágúst
Guðmundsson sem stjórnaði Þórs-
urum.
Bikarmeistararnir
leika gegn Haukum
BIKARMEISTARAR Grindvíkinga drógust gegn Haukum í
8-liða úrslitum í bikarkeppni Körfuknattleikssambandsins og
fer leikurinn fram á heimavelli Hauka, í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði. Dregið var í ieikhléi í viðureign
Hauka og Njarðvíkinga á sunnudag. Aðrir leikir í keppninni
eru; Breiðablik - í A, Þór Akureyri - Selfoss og KR - Valur.
Morgunblaðið/Ásdís
RONALD Bayless fann ekkl þrlggja stiga fjöllna sína gegn
KR á sunnudaginn enda var hans vandlega gætt. Hér reynlr
hann að komast framhjá KR-ingnum Jonathan Bow, sem sjálf-
ur áttl góðan leik, og Ingvar Ormarsson fylgist grannt með.
skrifar frá
Keflavík
Léttursigur
hjá Keflvíkingum
Leikur okkar var sveiflukenndur
en það sem skipti máli var
að sigra og ég vona að við séum
nú aftur komnir á rétta braut eftir
§■■■■■ slakt gengi undanf-
Björn arið,“ sagði Jón Kr.
Blöndal Gíslason, þjálfari
Keflvíkinga, eftir
léttan sigur á
Tindastóli 87:76 í Keflavík.
Keflvíkingar hófu leikinn með
krafti og náðu fljótlega afgerandi
forystu. Mestur var munurinn 15
stig í fyrri hálfleik, en það sýndi
sig að þrátt fyrir þennan mun voru
norðanmenn aðeins sýnd veiði -
en ekki gefin. Þeir settu 10 síðustu
stigin í hálfleiknum og með góðri
baráttu í upphafi þess síðari kom-
ust þeir yfir 52:51. En þá sögðu
Keflvíkingar hingað og ekki lengra
— tóku völdin og þrátt fyrir góða
baráttu norðanmanna náðu þeir
aldrei að ógna sigri heimamanna.
„Við höfum verið að leika afar
illa að undanförnu og þrátt fyrir
tapið er þetta okkar besti leikur í
langan tíma. Við ætlum okkur að
leggja Hauka í næsta leik,“ sagði
Páll Kolbeinsson, þjálfari Tinda-
stóls. Bestu menn Keflvíkinga voru
Guðjón Skúlason, Burns, Sigurður
Ingimundarson og Albert. Hjá
Tindastóli voru Torrey John, Hin-
rik og Pétur Guðmundsson bestir.
Slök nýting kom Val í koll
Herfileg nýting Valsmanna á
þriggja stiga skotum kom
þeim í koll er þeir töpuðu 90:98
fyrir KR. Aðeins
eitt af 15 þriggja
stiga skotum þeirra
rataði-í körfuna fyr-
ir hlé.
Gestirnir náðu strax undirtökun-
um en undir lok fyrri hálfleiks tók
Ronald Bayless til sinna ráða, skor-
aði grimmt og átti góðar stoðsend-
ingar svo að saxaðist á forskotið.
Eftir hlé voru Valsmenn lengi vel
heillum horfnir í vörninni en óx
þó kjarkur undir lokin til að gera
betri atlögur að KR-körfunni með
þeim árangri að aðeins 5 stig skildu
liðin að, en KR átti síðasta orðið.
Bayless spilaði stóra rullu hjá
Val, gaf 9 af 18 stoðsendingum
liðsins og náði boltanum 7 sinnum.
Hins vegar nýtti hann aðeins þijú
af 12 þriggja stiga skotum sínum.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Ragnar Þór var drjúgur og bar-
áttujaxlinn Bjarki Guðmundsson
tók 12 fráköst.
KR-ingar hafa oft leikið betur
en sluppu með skrekkinn. Það var
aðallega að Bow gerði rósir. Það
munaði líka miklu að Óskar Krist-
jánsson gætti Bayless vandlega
lengst af. „Þetta var mikilvægur
sigur,“ sagði Bow. „Við vorum
ekki tilbúnir fyrir þennan leik en
við verðum að taka mark á liði
eins og Val. Við spilum við þá í
bikarnum næst og ætluðum að
sýna þeim að við getum auðveld-
lega unnið þá,“ sagði Bow eftir
leikinn.
Minnaum mistök
hjá ÍR-ingum
Margir hristu hausinn í hálf-
leik á viðureign ÍR-inga og
Blika í Seljaskólahúsinu, ekki síst
gamalreyndir leikmenn ÍR. Ástæð-
■■■■■■ an var sú að leikur-
Ágúst inn hafði einkennst
Ásgeirsson af mörgum mistök-
skrifar um £ báða bóga.
Eina afsökun IR-
inga var að Blikar klúðruðu meira.
Leikurinn lagaðist í seinni hálf-
leik hjá báðum, samspil betra og
meiri rækt lögð í að spila menn í
eða leita uppi færi. Brá þá oft fyr-
ir skemmtilegum tilþrifum, sér-
staklega hjá IR sem yfirspilaði lið
gestanna lengst af og komst um
20 stigum fram úr um miðjan hálf-
leik.
Eftir það var lítil spenna í leikn-
um og munaði 18 stigum, 83:65,
þegar hálf önnur mínúta var eftir.
Tókst Blikum að laga stöðuna með
átta síðustu stigum leiksins.
Einna bestur á vellinum var Ei-
ríkur Önundarson, ÍR. Miklu mun-
aði um góðan leik Herberts hjá ÍR
í seinni hálfleik. John Rhodes var
kóngur í ríki sínu í vörninni og tók
yfir 30 fráköst í vörn og sókn en
hittnin var slök. Hann var úr leik
er átta mínútur voru eftir vegna
villuvandræða. Márus gerði oft
góða hluti.
Blikar ógnuðu ÍR eiginlega aldr-
ei. Breiddin var mun minni hjá
þeim. Einna best skiluðu 16 ára
strákur, Daði Sigurþórsson, og
Einar Hannesson hlutverki sínu.
Michael Thoele og Birgir Mikaels
máttu sín ekki mikils í sókninni
meðan Rhodes naut við.
■ ÍVAR Webster lék ekki með
Val gegn KR í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik á sunnudaginn og
munar um minna. Hann er meiddur
á fæti, fékk blóð á milli liða, og
verður að öllum líkindum frá um
tíma. Meðalaldur liðsins er því sá
lægsti í deildinni.
■ BRYNJAR KARL Sigurðsson
er enn ekki löglegur með Val og
mun missa af 5 leikjum. Fyrsti leik-
ur hans verður gegn fyrri félögum
af Akranesi.
■ ÓLAFUR JÓN Ormsson,
þriggja stiga skytta úr KR, á við
bakmeiðsli að stríða og verður frá
fram yfir áramót.
■ SEINKA þurfti leik Hauka og
Njarðvíkur í úrvalsdeildinni á
sunnudaginn um átta mínútur þar
sem beðið eftir dagskrárliður á Stöð
2 kláraðist því leikurinn var sýndur
í beinni útsendingu þar á bæ.
■ GUÐMUNDUR Hrafnkelsson,
markvörður Vals, og Jón Krist-
jánsson voru með flensu á föstudag
en léku þó með Valsliðinu gegn
KA í toppslag 1. deildar karla í
handbolta á laugardag. Guðmund-
ur átti stórleik í markinu, varði 19
skot og þar af tvö vítaköst.
■ KA-MENN fengu tíu vítaköst í
leiknum gegn Val. Þeir skoruðu úr
átta en Guðmundur varði tvö.
Valsmenn fengu hins vegar ekki
eitt einasta víti.
■ KA-MENN gerðu fimm mörk
úr síðustu 17 sóknum sínum, öll
úr vítaköstum. Sóknarnýting Vals
í leiknum var 50%, en KA 43%.
■ ÞAÐ má segja að sunnudagur-
inn hafí verið hálfgerður Hauka-
dagur því meistaraflokkar félags-
ins léku þijá leiki í íþróttahúsinu
við Strangötu. Fyrst vann körfu-
knattleiksliðið Njarðvík öðru sinni
á fjórum dögum. Um kvöldið unnu
Haukar síðan FH tvívegis í hand-
bolta, fýrst í 1. deild kvenna og
síðan í 1. deild karla.
■ ARON Kristjánsson, leikmaður
Hauka, fékk mikið högg á milli
augnanna og sprakk fyrir þannig
að hann þurfti að fara á slysavarðs-
stofuna eftir leik til að láta sauma
skurðinn.
■ GUÐJÓN Árnason lék sinn
500. leik gegn Haukum á sunnu-
daginn og var þokkalega ánægður
með mörkin sín átta og blómvönd-
inn sem hann fékk fyrir leik. „Það
versta er að þegar ég hef verið að
skora mikið í vetur höfum við tap-
að,“ sagði Guðjón.
■ GUNNAR Beinteinsson fékk
einnig blóm en hann var að leika
sinn 400. leik fyrir FH.
■ HAUKAR nýttu sínar sóknir
heldur betur en gestirnir, gerðu 26
mörk í 57 sóknum og var nýtingin
því 45,6% en hjá FH var nýtingin
38,5%. 22 mörk í 57 sóknum.
■ LANDSLIÐSMENNIRNIR og
fyrrum Valsmenn, Geir Sveinsson
og Júlíus Jónasson fylgdust með
tveimur leikjum á sunnudaginn.
Byijuðu í Víkinni þar sem þeir sáu
Selfyssinga hafa 13:14 yfir. Þeir
fylgdust síðan með síðari hálfleik í
leik Hauka og FH.
■ ÞEIR urðu vonsviknir þegar
þeim var tjáð að Selfoss hefði tap-
að vegna þess að þeir töldu sig
vera að veita fyrrum félaga sínum
og þjálfara Selfyssinga, Valdimar
Grímssyni sálrænan stuðning með
því að sjá fyrri hálfleikinn og
kenndu sér um tapið. Þeim félögum
létti er þeir heyrðu að félagi þeirra
hefði leitt lið sitt til sigurs.
■ NÍNA K. Björnsdóttir úr
Stjörnunni var valin best úr sínu
liði á laugardaginn, af handknatt-
leiksráði Sljörnunnar, og fékk veg-
legan snyrtivörukassa að launum.
■ BERGLIND Ómarsdóttir var
valin best úr liði Fram og fékk
samskonar viðurkenningu.