Morgunblaðið - 28.11.1995, Side 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Valsmenn bestir!
„VALSMENN eru með besta
liðið í deildinni, það er engin
spurning," sagði Alfreð Gísla-
son, þjálfari KA, eftir að lið
hans hafði tapað fyrsta leikn-
um á tímabilinu, gegn Vals-
mönnum, 25:22, að Hlíðar-
enda á laugardaginn. „Það er
enginn heimsendir þó við töp-
uðum þessum leik, gerir mót-
ið bara meira spennandi.
Skytturnar okkar náðu sér
ekki á strik og voru að hnoða
boltanum allt of mikið inn á
línuna og hentu þannig mörg-
um sóknum út í buskann,"
sagði Alfreð.
Valsmenn byrjuðu leikinn af
miklum krafti og komust í 3:0
og 6:2 eftir 10 mínútna leik. KA-
menn voru ekki á því að fara út
■■■■■■ af sporinu og náðu
ValurB. að saxa á forskotið
Jónatansson 0g minnka muninn
í eitt mark áður en
flautað var til hálfleiks, 14:13. Það
var fyrst og fremst góð markvarsla
Guðmundar A. Jónssonar í marki
KA sem kom Norðanmönnum aftur
inn á rétta sporið. Hann varði 10
skot í fyrri hálfleik á meðan landsl-
iðsmarkvörðurinn, Guðmundur
Hrafnkelsson, varði sex.
Leo Öm gerði fyrsta markið af
línunni eftir hlé og jafnaði leikinn
í fyrsta sinn, 14:14. Síðan var KA
með frumkvæðið og þegar staðan
var 18:19 og hálfleikurinn hálfnað-
ur tóku Valsmenn leikhlé. Varnar-
leikurinn var endurskipulagður og
bar þann árangur að KA-menn
gerðu ekki eitt einasta mark utan
af velli — aðeins þrjú mörk og öll
úr vítaköstum. Valsmenn fóru hins
vegar á kostum í sókninni og var
Ólafur Stefánsson þar fremstur í
flokki.
Valsmenn léku vörnina mjög vel
lengst af. Komu vel út á móti skytt-
unum Duranona og Patreki, sem
gerðu aðeins samtals þrjú mörk
utan af velli. KA átti í hinu mesta
basli með að skapa færi og það sem
fór í gegn í síðari hálfleik sá Guð-
mundur Hrafnkelsson um að veija.
Valsmenn verða að teljst líklegir
til að vetja meistaratitilinn enn eitt
árið ef þeir halda áfram að leika
eins og í þessum leik. KA var hins
vegar að leika illa á köflum.
„Við vorum ákveðnir í að vinna
KA-menn hér að Hlíðarenda til að
missa þá ekki of langt frá okkur.
Ég er mjög ánægður með leik okk-
ar,“ sagði Jón Kristjánsson, þjálf-
ari og leikmaður Vals. „Við ákváð-
um að leika varnarleikinn framar-
lega og trufla þannig skytturnar
þeirra og það gekk eftir,“ sagði
þjálfarinn.
Ómar
Jóhannsson
skrifar
Valdimar fór fyrir sínum mönn-
um í fyrsta sigurleiknum
Selfyssingar unnu langþráðan
sigur er þeir mættu lánlausum
Víkingum í Víkinni og unnu 28:25
í skemmtilegum leik.
Valdimar Grímsson,
þjálfari Selfyssinga,
fór fyrir sínum
mönnum og sýndi að
hann er óðum að ná fyrri styrk,
skoraði sjálfur 13 mörk, mörg eftir
glæsilegt einstaklingsframtak, og
hvatti lærisveina sína vel þannig að
Selfyssingar náðu upp góðri
stemmningu í varnarleiknum sem
fyrst og fremst skóp sigur liðsins.
Fyrri hálfleikur var mjög jafn.
Selfyssingar höfðu þó undirtökin og
leiddu í hálfleik 14:13. í síðari hálf-
leik spiluðu Selfyssingar mjög
grimma vörn, unnu vel saman, náðu
að veija mörg skot Víkinga og ná
hraðaupphlaupum og bættu jafnt og
þétt við. En Víkingar neituðu að
gefast upp og minnkuðu muninn í
eitt mark, 22:21, en þá gerðu Sel-
fyssingar þijú mörk í röð og staðan
orðin 25:21. Sá munur var Víkingum
einfaldlega of mikill og sanngjarn
sigur Selfyssinga í höfn.
Hjá Víkingurh áttu Guðmundur
Pálsson og Birgir Sigurðsson góðan
leik. Eins og áður sagði lék Valdi-
mar mjög vel hjá Selfyssingum og
háði þjálfarahlutverkið honum ekki.
Einar Guðmundsson og Einar Gunn-
ar Sigurðsson léku einnig vel en sig-
urinn var liðsheildarinnar, liðið barð-
ist vel og átti sigurinn fyllilega skilið.
„Loksins, loksins," voru fyrstu orð
Valdimars, þjálfara, í leikslok.
„Þetta var langþráður sigur _og tvö
mjög dýrmæt stig í hús. Ég hef
verið að breyta áherslum í varnar-
leiknum og það hefur tekið sinn tíma
en það heppnaðist að þessu sinni.
Við náðum þeim niður í 25 mörk
og ætlum að gera enn betur á næst-
unni. Strákarnir sýndu mikinn kar-
akter og mikinn baráttuvilja, lögðu
sig alla fram og uppskáru sam-
kvæmt því. Ég er mjög ánægður
með þá og vil þakka þeim fyrir góð-
an leik."
Eyjalið komst inn í leikinn og hinn
síungi Sigmar Þröstur Óskarsson
hrökk í þvílíkt stuð að hann varði
allt sem á markið kom á tíu mín.
kafla. Eyjamenn breyttu stöðunni
úr 12:9 í 12:16 en leikmenn Gróttu
klóruðu í bakkann á síðustu andar-
tökum leikhlutans og voru þremur
mörkum undir í hálfleik 13:16.
Síðari háifleikurinn var keimlíkur
þeim fyrri mikill hraði og fjölmörg
mistök. „Þetta var kannski ekki besti
leikur timabilsins, en það var fjör
og spenna og skemmtun fyrir áhorf-
endur,“ sagði Gauti Grétarsson,
þjálfari Gróttu. Leikmenn beggja
liða reyndu að hressa upp á varnar-
leikinn, en gekk illa. Sóknarmenn
gegnu í gegnum varnir án vandræða
en voru í vandræðum með að hitta
inn í markrammann.
Eyjamenn leiddu framan af en
með baráttu tókst Gróttu að jafna
leikinn 21:21 á 43. mínútu og eftir
það var jafnt á öllum tölum til enda.
Sóknarleikur beggja var slakur, og
einstaklingsframlag ráðandi.
Seinni hálfleikur var að hálfu leyti
eins illa spilaður, og var það hluti
ÍR. Afturelding náði hins vegar að
rífa sig upp og með Bjarka Sigurðs-
son og Gunnar Andrésson í farar-
broddi juku þeir muninn jafnt og
þétt. Vandræðalegur sóknarleikur
IR-inga og slök vörnin voru ekki
hindrun fyrir Aftureldingu og að
endingu var munurinn órðinn 8
mörk 29:21.
í liði Aftureldingar var Bjarki Sig-
urðsson góður og Róbert Sighvats-
son spilaði vel í seinni hálfleik og
Alexej Trúfan var sterkur í vörn-
inni. í slöku liði ÍR stóð Einar Einars-
son helst upp úr og Frosti Guðlaugs-
son var góður í seinni hálfleik.
Leiðindi í Garðabæ
Jafntefli í mistakaleik
Auðvelt hjá Aftureldingu
Ivar
Benediktsson
skrifar
ikill hraði, íjöldi mistaka og
spenna einkenndu leik
Gróttu og ÍBV á Seltjarnarnesi og
niðurstaðan þegar
flautað var til leiks-
loka var jafntefli
27:27. Verður það
að teijast sanngjörn
niðurstaða en eflaust naga leikmenn
beggja liða sig í handarbökin yfir
þeim færum sem þeim gáfust, eink-
um á lokakaflanum, en var sóað oft
á hroðvirknislegan hátt.
Leikmenn Gróttu byijuðu leikinn
af miklum krafti og skoruðu úr sex
af fyrstu sjö sóknum sínum á sama
tíma og gestirnir gerðu aðeins eitt
mark. Varnir beggja liða voru hrip-
lekar og ef ekki hefði komið til góð
markvarsla Sigtryggs Albertssonar
í marki Gróttu hefði staðan verið
jöfn. En Seltirningar spiluðu illa úr
spilum sínum í framhaldinu og
hleyptu Eyjapeyjum inn í leikinn.
„Við flýttum okkur of mikið og þeir
gripu tækifærið," sagði Gauti Grét-
arsson, þjálfari Gróttu. Og hið unga
Sindri
Bergmann
Eiösson
skrifar
Afturelding átti í litlum vandræð-
um með slaka ÍR-inga í Mos-
fellsbæ á sunnudagskvöld og sigraði
örugglega með 8
marka mun 29:21.
„Ég er ánægður
með sigurinn, við
þurftum stigin. Ann-
ars gerðum við mikið af mistökum
og spiluðum ekki vel. Ég hafði samt
áhyggjur af þessum leik enda erum
við nýkomnir úr Evrópuleikjum, og
spennufall kannski dálítið," sagði
Einar Þorvarðarson, þjálfari Aftur-
eldingar.
Leikmenn Aftureldingar komu
ákveðnir til leiks og náðu strax 3
marka forskoti. Næstu 2 mörk gerðu
ÍR-ingar og flest leit út fyrir jafnan
leik. Afturelding jók muninn aftur
og náði mest 5 marka forystu 10:5.
ÍR-ingar, sem fram að þessu höfðu
gert hver mistökin á fætur öðrum,
sneru blaðinu við og skoruðu 4 mörk
gegn 1 og staðan í hálfleik var 11:9.
Bæði liðin gerðu mikið af mistökum
í fyrri hálfleik og gekk illa að skora.
Höröur
Magnússon
skrifar
Stjarnan sigraði KR-inga 26:21
í Garðabæ á sunnudagskvöldið
i óhemju leiðinlegum leik. KR-ingar
léku einhvern leiðin-
legasta handbolta
sem undirritaður
hefur séð. Langar
sóknir þeirra virtust
vara að eilífu og náðu þeir að svæfa
Stjörnuna í fyrri hálfleik, því staðan
var jöfn í hléi, 11:11.
Stjörnumenn spiluðu framar í
vörninni í síðari hálfleik og náðu
með því að halda sjálfum sér vak-
andi. Mörg marka þeirra komu eftir
hraðaupphlaup og það í raun gerði
útslagið, því Stjömumenn komust
nánast aldrei í sókn í leiknum. Dóm-
arar leiksins létu leikinn aldrei
ganga og því varð þessi seta fyrir
örfáa áhorfendur hreinasta pína.
Enginn skar sig úr í Stjörnunni
nema ef vera skyldi Konráð Olavson
sem gerði ágætis mörk en fór illa
með tvo hraðaupphlaup undir lokin.
Stjörnumenn mega eiga það að
þeir voru ótrúlega þolinmóðir í vörn-
inni því að þessar löngu sóknir KR-
inga voru að gera hvern mann bijál-
aðan.
Það er ljóst af þessum leik að
KR-ingar eiga ekki erindi í fyrstu
deild.
NINA K. Björnsdóttir, leikma
sloppin framl
Nágrannaslagur FH og Hauka í
Hafnarfirði meira en handboltaleikur
Núhöfðu
Haukar betur
FYRIR mánuði slógu FH-ingar lið
Hauka út úr bikarkeppninni en
á sunnudagur voru það Hauk-
arnir sem höfðu betur, 26:22, í
sannkölluðum nágrannaslag
þar sem baráttan var í fyrir-
rúmi, oft á kostnað handbolt-
ans.
SkúH Unnar
Sveinsson
skrifar
Það var mikið fum og fát á okkur
í byijun og við áttum í erfið-
leikum með að ná taktinum. En ég
er ánægður með bar-
áttuna hjá strák-
unum,“ sagði Gunn-
ar Gunnarsson,
þjálfari Hauka, eftir
sigurinn. „Maður er að komast að
því að það er eitthvað talvert meira
en handboltaleikur þegar þessi lið
mætast, þetta er hálfgert stríð, og
hafðu stríð innan gæsalappa," bætti
Gunnar við, en hann lék ekki með,
var slæmur í baki.
Mikið var tekið á í þessu „stríði"
og kom það nokkuð niður á hand-
knattleiknum. Það komu nokkrir
kaflar í leiknum þar sem bæði liðin
virtust ætla að gera nokkur mörk í
hverri sókn. í síðari hálfleik áttu
Haukar til dæmis fimm sóknir í röð
sem misfórust og FH-ingar sjö á
sama tíma. Á þessum kafla var leik-
urinn hreint rugl.
Flatar varnir liðanna voru ágætar
þegar þau náðu að stilla upp, en
bæði Iið gerðu sig sek um gríðarlega
mörg mistök, örugglega vegna þess
að þetta var nágrannaslagur. FH-
ingar breyttu vörninni í 5-1 undir
lok leiksins en án sýnilegs árangurs.
Þegar Haukar voru einum færri,
tóku FH-ingar tvo úr umferð en það
kom ekki að sök fyrir Hauka því
þeir héldu að minnsta kosti alltaf í
horfinu þegar þeir voru færri.
Það var skarð fyrir skildí að tvo
leikmenn vantaði í lið FH. Sigurjón
Sigurðsson og Sigurður Sveinsson
voru báðir veikir og munar um
minna en að missa hægri vænginn
eins og hann leggur sig. „Sóknar-
leikurinn varð hægari fyrir vikið hjá
okkur og þar sem við gerðum mikið
af mistökum fengum við hraðaupp-
hlaupin frá þeim í bakið,“ sagði
Guðjón Árnason, fyrirliði FH-inga.
Haukar höfðu undirtökin nær all-
an tímann og sigur þeirra í rauninni
aldrei í hættu. Þorkell Magnússon
var sterkur í vinstra horninu og
ungur leikmaður, Einar Gunnarsson,
vakti athygli fyrir mjög skynsaman
leik. Hann er stór og stæðilegur og
ógnaði vel auk þess sem hann var
öruggur. Annars geta fiestir leik-
menn liðanna betur.
Þorkell góður
Morgunblaði
ÞORKELL Magnússon átti góðan leik í horninu hjá Haukum. H
hann kominn í gegn, óáreittur, og skorar framhjá Magnúsi Árna