Morgunblaðið - 28.11.1995, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1995 C 5
HANDKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Þorkell
iður Stjörnunnar, átti góðan leik gegn Fram á laugardaginn. Hér er hún
ijá Sigurbjörgu Kristjánsdóttur og Þuríði Hjartardóttur.
ið/Bjarni
ér er
isyni.
Stórsigur
Stjörnunnar
„VANDAMÁLIÐ er að ef ein er
tekin úr umferð geta hinar ekki
leyst málin. Ætli ég verði ekki
að fá enn fleiri ungar stelpur í
Hðið til að leysa
Stefán þetta," sagði Guð-
Stefánsson ríður Guðjónsdótt-
skrifar ir þjálfari, leik-
maður og burðarás
1. deildarliðs Fram, eftir 22:14
tap gegn Stjörnunni á laugardag-
inn en hún var tekin úr umferð
allan leikinn. Tíu mínútna kafli,
þegar Garðbæingar gerðu 6
mörk í röð, gerði útslagið.
Leikmenn fóru varlega af stað
enda þekkja þeir vel hver til ann-
ars. Fram lék flata vörn sem las
sóknartilburði Stjörnustúlkna vel
út og hinum megin tóku Garðbæ-
ingar Guðríði úr umferð. Eftir
10 mínútur var staðan 3:3 en þá
var Guðnýju Gunnsteinsdóttur,
fyrirliða og varnarjaxl úr Stjörn-
unni, vikið útaf í tvær mínútur
en í stað þess að gestirnir kæm-
ust yfir skoruðu Garðbæingar 3
mörk í röð. Önnur þrjú fylgdu í
kjölfarið og staðan í leikhléi var
12:5.
Gestirnir úr Safamýri bættu
vörnina eftir hlé og náðu með
góðri baráttu að minnka muninn
í þrjú mörk um miðjan hálflcik-
inn. Þijú herfileg mistök þeirra
og jafnmörg mörk Stjörnunnar
slökktu vonarneistann. Eftirleik-
urinn var auðveldur og í lokin fór
leikurinn að leysast upp.
„Við byijuðum að skora fyrir
utan, sem setti þær útaf laginu,“
sagði Guðný fyrirliði. „Annars
var þetta erfiður leikur þrátt fyr-
ir þessar lokatölur því Fram er
erfiðasti andstæðingurinn í deild-
inni, með bestu vörnina og Kol-
brúnu markvörð fyrir aftan,“
bætti hún við. Með sigrinum
skaust Stjarnan í efsta sæti deild-
arinnar og kemur það lítið á
óvart. Liðið er n\jög heilsteypt í
vörn og sókn en lykilatriðið er
að á meðan önnur lið eiga dapra
kafla í leik halda Stjörnustúlkur
sínu striki og vinna oft á því. í
þessum leik voru Guðný og Mar-
grét Theódórsdóttir góðar í vörn-
inni en liðið átti oft í basli í sókn-
inni þar til Nína K. Björnsdóttir
tók af skarið.
Vörn Fram hélt yfirleitt vel en
sóknin var mjög brothætt. Sem
fyrr segir var Guðríður tekin úr
umferð svo að liðið var sem höf-
uðlaus her. Hún var þó marka-
hæst með 5 mörk; þar af 3 úr
vítum. Berglind Omarsdóttir var
drjúg á línunni og nýliðarnir
Þuríður Hjartardóttir og Hekla
Daðadóttir gerðu nokkrar heið-
arlegar tilraunir með ágætum
árangri.
IMewcastle með
100% árangur heima
Newcastle er með 100% árang-
ur á heimavelli á tímabilinu
en liðið vann Leeds 2:1 um helgina
og var það áttundi heimasigurinn
i röð. Newcastle tapaði síðast
heima gegn Leeds og útlit var fyr-
ir að gestirnir ætluðu að endurtaka
leikinn frá síðasta tímabili en Ro-
bert Lee og Peter Beardsley komu
í veg fyrir það, skoruðu með 90
sekúndna millibili 20 mínútum fyr-
ir leikslok. Svíinn Tomas Brolin
kom inná hjá Newcastle þegar átta
mínútur voru til leiksloka.
Kevin Keegan, yfirþjálfari New-
castle, var ánægður með sína menn
og hrósaði miðjumanninum Robert
Lee sérstaklega. „Þegar síðasti
landsliðshópur Englands var til-
kynntur kom fram í fjölmiðlum að
Rob Lee væri ekki nógu góður en
ég held að hann sé besti leikmaður-
inn í öllu landinu um þessar mund-
ir. Enginn varnarmaður leikur bet-
ur, ekki heldur miðjumaður og ég
hef ekki séð miðheija sem hefur
eins mikil áhrif í leik eftir leik.
Ef menn vilja fá að vita hvað hann
leikur vel er best að spyija mót-
heija hans á tímabilinu.“
Keegan sagði að árangurinn í
nóvember sýndi styrk liðsins og
öryggi þess. „Við höfum leikið
§óra erfiða leiki í nóvember, gegn
Liverpool, Blackburn, Villa og Le-
eds en við höfum sýnt mikinn styrk
$em er aðal okkar í mánuðinum.“
Neil Cox skoraði eftir aðeins
tvær mínútur og gaf tóninn í 2:1
sigri Middlesbrough gegn Liverpo-
ol en þetta var fyrsti sigurinn síðan
Brasilíumaðurinn Juninho bættist
í hópinn. Neil Ruddock jafnaði með
skalla um miðjan seinni hálfleik
en Nicky Barmby svaraði að
bragði.
Coventry missti tvo menn út af
með rautt spjald en tókst að gera
3:3 jafntefli við Wimbledon. Gest-
irnir komust í 3:1 en miðheijinn
Dion Dublin minnkaði muninn á
67. mínútu og David Rennie jafn-
aði sjö mínútum fyrir leikslok.
Georgíumaðurinn Georgi Kink-
ladze tryggði Manchester City 1:0
sigur gegn Aston villa en hann
skoraði fimm mínútum fyrir leiks-
lok. Um miðjan fyrri hálfleik var
brotið á honum og dæmd víta-
spyrna en fyrirliðinn Keith Curle
missti marks.
West Ham vann QPR 1:0 qg
gerði Tony Cottee markið sex mín-
útum áður en flautað var til leiks-
loka.
Sheffield Wednesday komst í 2:0
með mörkum frá Mark Bright en
Everton tókst að jafna. Andrei
Kanchelskis gerði fyrra markið og
Daniel Amokachi sem kom inná
sem varamaður það seinna.
Guðni Bergsson og samheijar í
Bolton máttu sætta sig við enn
eitt tapið á útivelli, að þessu sinni
1:0 í Southampton.
Blackburn náði markalausu
jafntefli við Arsenal og er þetta
annað stigið sem lið fær á útivelli.
Loks bik-
artil
Aberdeen
ABERDEEN varð skoskur
deildarbikarmeistari á
sunnudaginn eftir 2:0 sigur
á Dundee. Þetta er fyrsti bik-
ar Aberdeen eftir fimm mög-
ur ár í skosku knattspyrn-
unni en síðast fögnuðu leik-
menn liðsins sigri á móti
1990, er þeir sigruðu í bikar-
keppninni. Billy Dodds, sem
lék í sex ár með Dundee, og
Duncan Shearer gerðu
mörkin á Hampden Park og
tryggðu sæti liðsins í Evró-
upukeppni félagsiiða (UEFA-
keppninni) að ári. Sigur
Aberdeen var sanngjarn í 50.
úrslitaleiknum um skoska
deildarbikarinn. „Við lékum
vel og höfðu undirtökin í
leiknum alla tímaim. Félag
eins og Aberdeen þarf á bik-
urum að halda og þessi sigur *
er vissulega skref í rétta átt,“
sagði Roy Aitken, fram-
kvæmdastjóri Aberdeen.
Hann hefur náð að rétta fé-
lagið úr kútnum því í vor
munaði minnstu að það félli
niður um deild í fyrsta skipti
í 92 ára sögu félagsins.
Milan á kunnug
legum slóðum
AC Milan komst á toppinn í ít-
ölsku 1. deildinni með auð-
veldum 3:0 sigri á Piacenza á
sunnudaginn. Mörkin gerðu Júgó-
slavinn Dejan Savicevic, Christian
Panucci og Paolo Maldini og voru
þau öll gerð með kollspyrnum. Rob-
erto Baggio lagði upp tvö fyrstu
mörkin og Savicevic það þriðja.
Kólumbíski framheijinn snjalli
Faustino Asprilla, sem var með
Parma í fyrsta skipti í vetur í deild-
inni, gerði jöfnunarmark liðsins á
lokamínútu fyrri hálfleiks í 1:1
jafntefli gegn Juventus. Ciro Ferr-
ara hafði komið Juventus yfir á
níundu mínútu með skallamarki
eftir aukaspyrnu Alessandro del
Piero. Juventus lék án Fabrizio
Ravanelli sem er meiddur.
Inter, sem vann fyrsta sigur sinn
í síðustu viku undir stjórn hins
nýja þjálfara Roy Hodgson, gerði
jafntefli við Fiorentina 1:1.
Maurizio Ganz náði forystunni fyr-
ir Inter á 17. mínútu en Argentínu-
maðurinn Gabriel Batistuta jafnaði
í síðari hálfleik.
Lazíó, sem er í þriðja sæti, tap-
aði óvænt fyrir Vicenza 1:0 með
marki Giampifero Maini, sem bætti
upp misheppnaða vítaspyrnu í síð-
asta leik liðsins gegn Napólí.
Napólí átti hins vegar möguleika
á að færast upp í þriðja sæti með
sigri á Cagliari, en Aldo Firicano
sá um að svo varð ekki er hann
skoraði mark í sitt hvorum hálf-
leiknum fyrir Cagliari.
Roma sigraði Bari 2:1 á
Olympíuleikvanginum í Róm eftir
markalausan fyrri hálfleik. Þetta
var sjötta tap Bari í röð á útivelli
og er liðið nú í neðri hluta deildar-
innar með aðeins átta sig. Igor
Protti, markahæsti leikmaður
deildarinnar, gat ekki leikið með
Bari vegna meiðsla og má liðið illa
við því.
Atalanta, sem sigraði Sampdoria
um fyrri helgi, var heppið að sigra
í Tórínó því eina mark leiksins var
sjálfsmark Robertos Baccis.
Sampdoria náði að meija sigur 1:0
gegn Udinese og setti Króatinn
Sinisa Mihajlovic sigurmarkið á síð-
ustu mínútu leiksins og var þetta
fyrsta markið han$ á tímabilinu og
aðeins það fimmta síðan hann kom
til Ítalíu 1992.
Atletico aftur á toppinn
Atletico Madrid endurheimti
fyrsta sætið í spænsku deild-
inni með 3:0 sigri gegn Oviedo.
Miðjumaðurinn Juan Vizcaino skor-
aði um miðjan fyrri hálfleik, Diego
Simeone bætti öðru marki við rétt
eftir hlé og varnarmaðurinn Juan
Lopez innsiglaði sigurinn tveimur
mínútum fyrir leikslok.
Barcelona náði aðeins 1:1 jafn-
tefli gegn Real Sociedad og færðist
niður í annað sætið. Eftir leikinn var
Salvador Iriarte, þjálfari Real Soci-
edad, látinn hætta sem aðalþjálfari
en hann verður samt áfram hjá fé-
laginu.
Espanyol gerði 1:1 jafntefli við
Real Zaragoza. Espanyol hefur leik-
ið mun betur á útivelli en heima og
tókst ekki að nýta sér mörg mark-
tækifæri.
Predrag Mijatovic frá Svartfjalla-
landi gerði tvö mörk í 3:1 sigri Va-
lencia gegn Albacete og Brasilíu-
maðurinn Bebeto lék sama leik í 3:1
sigri Deportivo gegn Valladolid, en
John Toshack, þjálfari Deportivo,
sagði að lið sitt yrði að gera betur.
Betis sótti stíft en varð að sætta
sig við markalaust jafntefli við Rac-
ing Santander, sjöunda jafntefli Bet-'
is í 14 leikjum.
Króatinn Davcfr Suker tryggði
Sevilla 1:0 sigur gegn botnliði Rayo
Vallecano.
Meistarar Real Madrid gerðu
markalaust jafntefli við Sporting
Gijon. Real átti að fá nokkrar víta-
spyrnur en fékk aðeins eina og Ivan
Zamorano frá Chile missti marks.
Sporting fékk líka nokkur góð færi
en Paco Buyo var öruggur í markinu.
Enn sigrar Dortmund
Dortmund vann Uerdingen 2:0
og hefur leikið 12 leiki í röð
án taps í þýsku deildinni. Júrgen
Kohler gerði fyrra markið eftir auka-
spyrnu frá Andy Möller um miðjan
seinni hálfleik og fyrirliðinn Michael
Zorc innsiglaði sigurinn úr víta-
spyrnu fimm mínútum síðar. Uerd-
ingen var meira með boltann og var
óheppið að ná ekki að skora en
Dortmund var án þriggja fasta-
manna. Varnarmaðurinn Julio Cesar
var meiddur og Matthias Sammer
og Steffen Freund tóku út leikbann.
Karlsruhe vann Gladbach 4:0.
Sean Dundee frá Suður-Afríku gerði
tvö mörk i þessum fyrsta sigri
Karlsruhe í síðustu sex leikjum en
Gladbach hefur tapað þremur í röð.
Hansa Rostock vann Werder
Bremen 2:0 en Bremen hefur ekki
sigrað í síðustu níu ieikjum. Mario
Basler mætti ekki á æfingu á föstu-
dag og var því ekki í liði Bremen.
„Basler fer eftir eigin reglum en ef
hann brýtur þær verður að virða
ákvörðun þjálfarans,“ sagði sam-
heijinn Michael Schulz.
Bayern gerði markalaust jafntefli
við botnlið Kölnar og geta heima-
menn þakkað Bodo Illgner, mark-
verði, stigið. Hann varði vel auk
þess sem Júrgen Klinsmann og
Christian Nerlinger skutu í mark-
rammann.