Morgunblaðið - 28.11.1995, Síða 8

Morgunblaðið - 28.11.1995, Síða 8
Broddi og Árni Þór í 70. sæti á heims- listanum SUND / BIKARKEPPNIN „Samstadan fleytti okkur áfram“ ÍSLENSKU keppendurnir á opna skoska meistaramótinu í badminton eru úHeik. Elsa Nielsen og Vigdís Asgeirs- dóttir léku við par frá Hvíta- Rússlandi og töpuðu 6:15 og 6:15. Árni Þór Hallgrímsson og Broddi Kristjánsson léku gegn pari frá Mauritius í fyrstu umferð og unnu 15:2 og 15:11. í annari umferð mættu þreir Pólveijum og töpuðu 15:3, 5:15 og 13:15. Árni Þór og Broddi eru nú í 70. sæti á heimslistanum I tvíliðaleik karla, en þær Elsa og Vigdís eru í 90. sæti í tví- liðaleik kvenna. SH rauf um helgina þriggja ára sigurgöngu Ægis erfélagið sigraði í bikarkeppninni ífyrsta sinn Ivar Benediktsson skrifar „VIÐ erum að sjálfsögðu í sjö- unda himni með sigurinn. Óll sund míns fólks hér um helgina voru eins góð og þau frekast geta orðið enda kom það vel undirbúið til leiks og var ein- faldlega betra en Ægissveitin,11 sagði sigurreifur þjálfari SH, Klaus Jiirgen Ohk, eftir að fé- lagið hafði sigraði ífyrsta sinn í 1. deildarkeppni SSÍ sem fram fór í Sundhöll Reykjavíkur um helgina. Ægir hafnaði í öðru sæti og Keflvíkingar í því þriðja. „Ég held að þetta sé stærsti dagur í fimmtíu ára sögu félagsins. Hingaðtil hefur SH aldrei hafnað ofar en í þriðja sæti svo sigurinn er mjög góð æfmælisgjöf. Við vissum fyrir keppnina að sveit- in er sterk og okkur tókst að staðfesta þá trú. Sigurinn er niðurstaða langra og strangra æfinga hjá hópnum og ég er stoltur af þeim,“ bætti Ohk við. Það var ljóst strax í upphafi móts- ins að keppnin yrði einvígi á milli bikarmeistara síðasta árs, Ægis, og Sundfélags Hafnarfjarðar og þegar líða tók á keppnina á laugar- daginn tók SH for- ýstuna og gaf aldrei tommu eftir þar til yfir lauk á sunnudag og tæp- lega átta hundruð stiga sigur var í höfn. „Ég bjóst ekki við sigri, en vissi að keppnin yrði jöfn. Það var samstaðan sem fleytti okkur áfram til sigurs," sagði Hjalti Guðmunds- son, SH, en hann setti íslandsmet flokki fullorðinna er hann synti 100 m bringusund á 1:03,83 mín., en það er jafnframt piltamet. Gamla ís- landsmetið átti Eðvarð Þór Eðvarðs- son og var það orðið átta ára gam- alt. Piltametið átti Hjalti sjálfur. Þá setti hann einnig piltamet í 200 m bringusundi er hann fór vegalengd- ina á 2:20,79 mín. og bætti met Magnúsar Konráðssonar um rúma sekúndu. „Mér líkar að sjálfsögðu illa að tapa, en þetta er fjórða árið sem ég er með Ægissveitina og fyrsta skipti sem við höfnum í öðru sæti, hin árin höfum við sigrað,“ sagði Pett- eri Laine, þjálfari Ægis er úrslit lágu fyrir. „Þannig að þegar litið er á síðastliðin fjögur ár þá er ekki hægt að vera óánægður. Aðalástæðuna fyrir tapi okkar tel ég vera þá að bringusundsmenn þeirra náðu topp- sundi á sama tíma og okkar menn náðu sér ekki á strik, þar munaði jnestu. Annað sætið er í lagi, en fyrsta sætið hefði verið betra. Við komum grimm til leiks að ári og sækjum bikarinn," sagði Laine. Auk Hjalta setti Eydís Konráðs- dóttir sundkona úr Keflavík tvö ís- landsmet um helgina. Hún bætti eig- ið met í 100 m flugsundi um rúma Morgunblaðið/Jón Svavarsson ÞAU höfðu ástæðu tll að gleðjast að loklnnl keppnl ð sunnudaginn enda sigurlnn í höfn, Hjaltl Guðmundsson, Klaus Jurgen Ohk, þjálfari SH, með blkarlnn og Blrna Björnsdóttlr. faérn FOLK ■ MICHAEL Finley, nýliði hjá Phoenix í NBA-deildinni í körfu- knattleik tryggði liði sínu 114:113 sigur gegn Los Angeles Lakers sl. laugardagskvöld, skoraði um leið og flautan gall. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég tryggi iiði sigur með því að skora á síðustu sekúndu,“ sagði hann. ■ ÞEGAR 10 mínútur voru til leiksloka var Lakers með 16 stiga forystu, níu stiga munur var þegar mínúta var eftir og fjögur stig skildu liðin af þegar 35 sekúndur voru eft- ir. „Ég hef aldrei séð annað eins,“ sagði Paul Westphal, þjálfari Pho- enix. „Leikurinn síðustu mínútuna var sá furðulegasti sem ég hef orðið vitni að.“ ■ CHARLES Barkley var ánægður með sigurinn en sagði að svo virtist sem Phoenix gæti ekki skorað og gæti ekki komið í veg fyrir að aðrir skoruðu en liðinu hefur ekki gengið vel. ■ PENNY Hardaway hefur verið frábær með Orlando í vetur og er maðurinn á bak við gott gengi liðs- ins. Hann gerði 30 stig í 114:112 sigri í Washington um helgina. ■ DON Nelson er að gera góða hluti með New York sem vann Houston 103:88. Patrick Ewing var með 27 stig, tók 11 fráköst og varði fjögur skot. ■ HAKEEM Olajuwon gerði að- eins níu stig fyrir Houston og var þetta í fyrsta sinn í 258 leikjum sem hann skorar ekki 10 stig eða fleiri í leik. eina sekúndu er hún synti á 1:02,48 mín. Síðari daginn synti Eydís 200 m flugsund á 2:21,04 mín og sló rúmléga þriggja ára gamalt met Ingibjargar Arnardóttur, Ægi, um 35/100 úr sekúndu. Bæði met Eydísar eru jafnframt íslandsmet í stúlkna- flokki því hún er sautján ára og færist ekki upp í fullorðinsflokk fyrr en á næsta ári. Þá voru sett nokkur met í pilta-, drengja- og meyjaflokkum. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA, bætti eigið met í meyjaflokki í 100 m baksundi er hún synti á 1:12,55 mín og þessi unga sundkona þeirra Skagamanna lét ekki þar við sitja því hún bætti tveimur metum til viðbótar í safn sitt áður en keppnin var yfirstaðin. Fyrst sló hún tveggja ára gamalt met Láru Hrundar Bjargardóttur í 100 m skriðsundi, synti á 1:04,17 mín., og nokkru síðar bætti Kolbrún annað met Láru Hrundar er hún fór 200 m á baksundi á 2:33,50 mín. Örn_ Arnarson, SH, sópaði einnig að sér íslandsmetum um helgina og það í drengjaflokki en Örn er 14 ára gamall. Á föstudagskvöldið synti Orn 800 m skriðsund á 8:46,87 mín. og bætti fyrra met sem var í eigu Tómasar Sturlaugssonar, Ægi, um rúmar sautján sekúndur. Daginn eftir gerði Örn sér lítið fyrir og sló met Eðvarðs Þórs Eðvarðssonar í 100 m baksundi, synti á 1:01,73 mín., en gamla metið var 1:02,40 mín. Seinna um daginn bætti Örn síðan met sitt er hann fór fyrsta sprett, 100 m flugsund, fyrir SH sveitina í 4x100 m fjórsundi. Þá fór Örn rnetrana eitthundrað á 1:01,16 tnín. Á lokadegi keppninnar fauk eitt met Eðvars Þórs til viðbótar er Örn stakk sér til sund í 200 m bak- Sundi og kom fyrstur í mark á 2:12,19 mín. og bætti met Eðvarðs um 2,19 sekúndur. Reyndar má til gamans geta að Eðvarð varð í öðru sæti í þessu sundi á 2:16,50 mín., en Eðvarð hefur dregið fram sund- skýluna að nýju eftir að hafa gefið henni frí um tíma. Áður var getið meta Hjalta Guðmundssonar, SH, er hann setti á mótinu í flokki full- orðinna og pilta. UMSK sigraði í 2. de SVEIT UMSK sigraði í 2. deild bikarkeppninnar eftir hörku- baráttu við Ármenninga. Sundfélagið Óðinn frá Akureyri hafnaði síðan í þriðja sæti. „í fyrri hluta keppninnar skiptumst við og Ármenningar á um forystu en síðan náðum við frum- kvæðinu um miðjan dag í gær og gáfum aldrei eftir,“ sagði Arnþór Ragnarsson, einn þjálfara UMSK liðsins, er sigurinn var vís. „Heildar- árangurinn var eins og reiknað var með en margir bættu sig verulega," bætti Brynjólfur Bjarnason við, en hann var einnig þjálfari UMSK liðs- ins fyrir keppnina. UMSK féll úr 2. deild í fyrra og hefur síðastliðin ár verið á flakki milli deilda. „Það er góður efniviður í liðinu en framtíðin verður að leiða í ljós hvort okkur tekst að halda sæti okkar í fyrstu deild að ári eða ekki,“ sagði Arnþór ennfremur. „Við erum sátt við okkar hlut og erum yfir þeirri áætlun sem gerð var fyrir keppnina. Ég gerði mér samt vonir um að tími okkar væri kominn og við færum upp,“ sagði Hafþór Birgir Guðmundsson, yfirþjálfari Ármanns, en Ármenningar sátu eftir í 2. deild. Við erum með reynt karla- lið en stúlkurnar vantar meiri reynslu og meðalaldur þeirra er í kringum fjórtán ár. Þau stóðu sig öll vel og bættu sig flest og víst er að við kom- um sterkari og reynslunni ríkari til leiks að ári,“ bætti Hafþór við. „Mitt lið hvíldi ekkert fyrir mótið því við áttum ekki von á að vera í baráttunni um efsta sætið. Ég er með góða einstaklinga en vantar meiri breidd auk þess sem veikindi hafa verið að hrjá okkur síðustu daga. Okkar markmið er að vera á toppnum á EMI í mars í Vestmanna- eyjum,“ sagði Ragnheiður Runólfs- dóttir, þjálfari Óðins, en hennar lið hafnaði í þriðja sæti. ENGLAND: 11X 11X X11 21XX ITALIA: X 11 211 111 X112

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.