Morgunblaðið - 30.11.1995, Qupperneq 1
BÆKUR
Prentun úr
landi? /3
ELPSNEYTI
Etanól úr
lúpínu /4
HÖNNUN
Nýjar víddir
í sókn /8
fHmgftitiIMbiMfr
Vörumerki
Breska verslunarkeðjan „Iceland
Frozen Foods“ hefur fallið frá
umsókn sinni um skrásetningu á
vörumerkinu „Iceland" í Banda-
ríkjunum vegna mótmæla ís-
lenskra aðila. Umrætt vörumerki
hefur þegar verið skráð í Bret-
landi og tilraunir til að hnekkja
þeirri skráningu hafa reynst ár-
angurslausar.
Lánasýslan
Alls var tekið tilboðum í ríkis-
víxla fyrir um 2.767 milljónir
króna hjá Lánasýslu ríkisins í
gær. Þar af keypti Seðlabankinn
víxla fyrir 922 milljónir á meðal-
verði samþykktra tilboða. Meðal-
ávöxtun 3ja mánaða ríkisvíxla
hækkaði um 0,03 punkta, í 7,10%
en meðalávöxtun 6 mánaða víxla
lækkaði um 0,02 punkta, í 7,26%.
Meðalávöxtun 12 mánaða var
óbreytt, 7,51%.
Námstefna
Rúmlega 200 manns sóttu nám-
stefnu Stjórnunarfélags íslands
með dr. Edward de Bono, sem
fjallaði um skapandi liugsun og
virkjun hugvits. Þetta var fjöl-
mennasta námstefna Sljórnunar-
félagsins í nokkur ár.
SÖLUGENGI DOLLARS
% Hagvöxtur Verðbólga Launaþróun Meðalgengi Atvinnuleysi
'91 '92 '93 '94 '95 '91 '92 '93 '94 '95 '91 '92 '93 '94 '95 '91 '92 '93 '94 '95 '91 '92 '93 '94 '95
Rauntölur ----------Spástefna Stjórnunarfélags íslands Spá Þjóðhagsstofnunar
UNDANFARIN ár hefur
Stjómunarfélag íslands efnt til
spástefnu þar sem forsvarsmenn í
atvinnulífinu hafa spáð fyrir um
efnahagsþróun næsta árs. Þegar
litið er yfir spár síðustu ára sést að
þær hafa verið nokkm svartsýnni en
raun varð á og hið sama á einnig
við um spár Þjóðhagsstofnunar.
Þetta á einkum við um spár síðustu
þriggja ára en þá áætluðu menn að
hagvöxtur yrði lítill og jafnvel
neikvæður. Hann varð hins vegar
mun meiri en þeir spáðu. Þá var
meiri verðbólgu spáð en raun varð
á. Spá um launaþróun hefur verið
nær lagi og atvinnuleysisspár hafa
verið nálægt raunvemleikanum.
Sjá bis. 2.
Jólahrinan í sölu hlutabréfa fer óvenju snemma af stað þetta árið
Bjartsýni og
meiri fjárráð
hjá fjárfestum
HLUTABRÉFASALAN fyrir þessi
jól virðist ætla að fara óvenju
snemma af stað. Hjá þeim verð-
bréfafyrirtækjum sem Morgun-
blaðið ræddi við kom fram að þessi
sala væri þegar farin að aukast
talsvert og fólk virtist vera farið
að huga að þessum málum mun
fyiT en á undanförnum árum.
Astæða þessa er meðal annars
sögð vera aukin bjartsýni og betri
íjárhagsstaða. Algengast virðist
vera að einstaklingar fjárfesti í
hlutabréfasjóðum verðbréfafyrir-
tækjanna.
Ásgeir Þórðarson, forstöðumað-
ur verðbréfamiðlunar VÍB, segir
að þar sé þegar farið að gæta
aukningar í hlutabréfasölu. „Við
sjáum að fleiri eru farnir að af-
greiða þessi kaup miklu fyrr og
eru jafnvel löngu búnir að því,“
segir Ásgeir. „Við höfum líka ráð-
lagt fólki að bíða ekki of lengi með
þessi kaup því bréfin hækka yfir-
leitt eitthvað í verði þegar kemur
fram í desember, og því betra að
vera fyrr á ferðinni."
Ásgeir segist allt eins reikna
með því að salan verði í við meiri
í ár en á undanförnum árum og
þeir sem Morgunblaðið ræddi við
taka undir það sjónarmið. Hann
bendir á að tiltrú fólks á markaðn-
um sé greinilega að aukast, enda
hafi fólk verið að horfa upp á
mjög góða ávöxtun hlutabréfa á
undanförnum tveimur árum. Þá
segir hann að betri fjárhagsstaða
einstaklinga nú skili sér í aukinni
sölu.
Þeir sem Morgunblaðið ræddi
við eru þó almennt sammála um
að það sem mestu máli skipti sé
meiri bjartsýni meðal fólks. Svo
virðist sem fólk hafi trú á því að
afkoma fyrirtækjanna muni fara
batnandi á næsta ári og því sé
meiri eftirspurn eftir bréfum nú
en oft áður.
Mest keypt í
hlutabréfasjóðunum
Almennt virðist sem einstakling-
ar leiti fyrst og fremst í hlutabréfa-
sjóðina en kaupi minna af hluta-
bréfum í einstökum fyrirtækjum.
Talsmenn verðbréfafyrirtækjanna
benda á að meiri áhættudreifing
sé við kaup slíkra bréfa, en Anna
Heiðdal, hjá fjárfestingarfélaginu
Skandia, bendir einnig á að boðið
sé upp á greiðsludreifingu við kaup
á þeim bréfum og það kunni að
hafa áhrif.
Hins vegar virðist hluti fólks
frekar kjósa kaup á hlutabréfum
í einstokum fyrirtækjum. Þar virð-
ast stærri fyrirtæki svo sem Flug-
leiðir og Eimskip ásamt útgerðar-
fyrirtækjunum verða einna helst
fyrir valinu.
Sú regla að fólk þurfi að eiga
hlutabréfin í minnst 3 ár til þess
að fá skattafrádrátt, virðist heldur
ekki hafa leitt til samdráttar í sölu
hlutabréfa. Kristján Guðmunds-
son, markaðsstjóri hjá Landsbréf-
um, segir að þessi breyting sé frek-
ar af hinu góða, því hún venji fólk
við þá hugsun að fjárfesting í
hlutabréfum sé langtímafjárfest-
ing. Hann segir það því vera æski-
legt að viðhalda þessari reglu í
stað þess að afnema hana í áföng-
um líkt og ætlunin sé að gera.
H1HLUTABREFA
HJ SJOÐURINN
Skattfrádráttur með fjölmennasta hlutabréfasjóði landsins
lægri kostnaður — hærri ávöxtun
Nokkrar góðar ástæ.ður til að Ijárfesta I
f I lutabréfasjóðmt m fi í.:
• Lægri kostnaður - hærri ávöxtun.
• Stærsti hlutabréfasjódur landsins.
• Góö eignadreifing.
• Markviss fjárlestíngarstefna.
• Allt að 90.000 kr. skattfrádráttur.
Með kaupum li hlutabréfum í H!uta-\
bréfasjóðnum hf. getttr |xi tryggt þér allt
að 45.000 kr. frádrátt frá tekjuskatti
fvrir árið 1995, Hjá hjónum gctur þessi
upphæð numíð allt aö 90.000 kr.
I llutnbréf í hllutabréfa$jó<)num lij. rru seld i nfgmAslu VlH ú
Kirkjusaiuli, i útibúum Islmulslutnbii um ullt Ltiiciogá
Shóltwmjusrif' 12 jmrsm lilutabnjasjóthtrinn b\. var til húsa,
Eitl sítttíal er nóg tíl að fjanga frá kaupum ef þú t’ill:
•láta taka ttt aj tékkareikningi í íslanthbanka
•fá smdan gírósttóil
Pér býðst eínnig ad ganga frá kauputn með baðgrelðslum.
FORYSTA í FJÁRMÁLUM!
VlB
VFRÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili ad Verðbréfaþingi íslands •
Kirkjusandi, 155 Reykjavik. Sími: 560-8900, myndsendir: 560-8910.