Alþýðublaðið - 03.12.1920, Blaðsíða 2
ALÞYÐÖBLÁÐIÐ
2
Gummi gólfmottur.
Höfum fymJiggjandi hinar óviðjafnaniegu gumtni-
gólfmottur, sem nauðsynlegat’ eru hverju heimili.
Stærð 30X18" Verð kr. 15,00
Komið — skoðið — reynið.
Jön Hjartarson & Co.
Spor í áttina.
(Aðsent.)
Það er kunnugra en frá þurfi
að segja, að gangstéttirnar við að-
algötur borgarinnar eru alt of
mjóar, og verður fólk þar af leið
andi að ganga sjálfar göturnar,
sem er mjög óhentugt, og oft
kindrar umferð bifreiða og vagna.
Göturnar hafa ekki verið hafðar
nógu breiðar.f fyrstu, og héðan
af verða þær ekki breikkaðar
Þess vegna þurfa þeir sem umferð
eiga um göturnar að haga ferð
sinni á sem haganlegastan hátt,
og reyna að koma í veg fyrir hin-
ar leiðinlegu hindranir sem oft
eiga sér stað. Etn er sú leið sem
mikið getur bætt umferðina, og
er þar að auki mjög svo smekk-
leg, en það er að vegfarendur
gangi ætíð þá gangstétt sem er á
vinstri helmingi götunnar, t. d.
að þeir sem eiga leið upp Lauga-
veg gangi þá gangstétt sem er
norðanmegin götunnar, og þeir
sem eiga leið niður Laugaveg
gangi syðri gangstéttina. Hér er
eitt spor í áttina til að forðast
hinar leiðinlegu hindranir sem svo
oft eiga sér stað þá er fólk mæt-
ist. Eg efast ekki um að ef sú
leið sem bent hefir verið á verð-
ur farin, verði einungis ánægja að
ganga um hér í bæ, og stór mun-
ur að líta yfir götur bæjarins. Ef
Reykvíkingar hafa nokkra löng-
un, þá hijóta þeir að hafa löngun
til að bæta umferð um götur borg-
arinnar. Það mun síðar sjást hvort
svo er. s. S.
Jjólnseining.
Þegar þessi nýja sóttvarnarað-
ferð fór að tiðkast, þá risu margir
öndverðir upp á móti henní og
sögðu hana bæði hættuiega fyrir
líf rnanna, ósiðlega og óguðiega,
Það var einkum einn prestur, að
nafni Massey, sem prédikaði strang-
lega móti bólusetningu og fór um
hana gífurJegum orðum. í einni
ræðu sinni valdi hann ræðutext-
ann úr Jobsbók. Hann sagði að
bólusetning væri hættuleg og synd-
samleg og allir bólusetjarar væru
úrþvætti mest; þeir væru heJvítis
galdramenn, hreinir og beinir eit
urbyrlarar og óvinir mannkynsins,
og hann kvaðst vona það, að þeir
læknar, sem bólusettu, yrðu út-
skúfaðir og eigi i húsum hafðir,
og enginn maður eða læknir vildi
umgangast þá, þvi þeir væru sem
djöflar með.l guðs sona. Hann
sagði að bólusetningin væri afar
gömul og að sjálfur djöfullinn
hefði fyrstur allra bóluseit Job og
þannig borið inn í líkama hans
eitur, sem hefði komið slíkri ólgu
inn í b!óð hans, að hann hefði
allur steypzt út í kaunum frá
hvitfli til ilja.
(Lœkningabók dr. Jónassens).
1 dap og Teginn.
Kveikja ber á hjóireiða og
bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl
3:/4 í kvöld.
Bíóln. Gamla Bíó sýair „Nú
tímans Othello." Nýja Bíó sýnir
»Norma Talmadge f sjónleiknum
Ástar hylljngar."
15 ára árshátíð Vetkamanna
félagsins „Dagsbrún" verður hald-
in á morgun og sunnudaginn. Þar
verður margt til skemtunar, sem
sjá má af augl, á öðrum stað í
blaðinu. Vafalaust láta félagsmenn
ekki sitt eftir liggja að sækja
skemtunina.
Leiðrétting. í greininni .Lækn-
isvarðstöð" í 277 tbl hefir mis-
prentast í 5 J. að neðan, 3 dálki,
2. síðu: mælti í stað hugsaði.
YerðlagsnefndÍD. Stjórnarráðið
hefir nú skipað verðlagsnefndina,
sem áður hafðt aðeins vald í
Reykjavík, yfir aií landið Seint
er betra en aldreil
Barnaveikí gerir vart við sig
hér í bænum um þessar mundir.
Auk þess íiggja nokkrir í tauga
veiki og allmargir f skailatssótt.
Kottueitrunin. Fyrstu umferð-
inni er rú lokið fyrir rokkru, en
ekkt mun talið fullreynt fyr en
eitrað hefir verið þriivar sinnum.
Meðal annars sem spurt var að
um leið og manntahð fór fram
var það, hvort ekki væru rottur i
húsinu. Einn „teljari" segir svo
frá, að honum hafi í húsi sem
hann taidi í verið svarað neitandi,
en iitlu síðar fór húsráðandi að
tala um hvernig annars væri með
þessa eitrun, hvort húseigendur
þyrftu ekki að botga kostnaðinn
við eitrunina. T -ljarinn kvað það
ekki mundu vera, og áður en
hann fór var kornið allmikið af
e
rottum í húsið NefnarL
Af bæjarstjörnarfund'. Mal-
bikun Hveifisgötu upp jafnt Ing-
ólfsstræti og Ingólfsstræti milli
Hvg. og Bankastr, var samþykt
eftir tillögu Jóns Baldvinssonar á
fundi í gær
Baðhústð við barnaskólann var
samþykt með 8 : 6, sjálfstjórnar-
liðið á inóti.
Samþykt var að bjóða út sand-
eftirlitið.
Tillaga frá Sigurði Jónssyni um
að bæjarmenn greiði 4 kr. á dag
á Farsóttahúsinu samþykt með 8
atkv gegn 5 (Alþ.flokksmönnum).
Nýlega var búið að samþykkja,
að bæjarmenn þyrítu ekkert að
borga þó þeir yrðu að cota húsið.
Ttllaga Jóns Baldvinssonar um
vöruskýli við höfnina var feld með
7 atkv. (Sjálfstjórn) gegn 6.