Morgunblaðið - 11.01.1996, Síða 7

Morgunblaðið - 11.01.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1996 B 7 VIÐSKIPTI Ljósmyndarar heimsækja Hasselblad HÓPUR íslenskra ljósmyndara heimsótti á dögunum Hasselblad myndavélaverksmiðjurnar í Gautaborg, á vegum fyrirtækis- ins Beco, umboðsaðila Hassel- blad á íslandi. Hópurinn var staddur í borginni á svokallaðri Foto-messu, fagstefnu i ljós- myndun, sem haldin er í Gauta- borg annað hvert ár og af því tilefni bauð Beco íslensku ljós- myndurunum að njóta dags í verksmiðjunum, segir í frétt frá umboðsaðilanum Beco hf. Fylgst var með framleiðslu- ferlinu frá upphafi til enda; frá hráefnislager allt þar til öllu hafði verið raðað saman eftir kúnstarinnar reglum og fullbún- ar myndavélarnar blöstu við. Síðan var hópnum boðið á lit- skyggnusýningu á breiðljaldi, þar sem saga Hasselblad var rakin og einnig sýndar myndir þekktra ljósmyndara víðs vegar að úr heiminum. Hasselblad er m.a. þekkt fyrir að hafa verið valin af bandarisku geimferða- stofnuninni í Apollo geimferðina 1969; geimfarinn Neil Arm- strong var með Hasselblad-vél á sér er hann steig fyrstur manna á tunglið og tók þá margar eftir- minnilegar myndir. Beco hefur verfið með við- gerðarþjónustu fyrir Hasselblad hérlendis frá 1985 en tók við söluumboðinu fyrir tveimur og hálfu ári. Sérfræðingar frá fyrirtækinu koma til íslands á tveggja ára fresti og fara yfir myndavélar Hasselblad-notenda þeim að kostnaðarlausu en Beco hefur hins vegar allan tækjakost til að þjónusta Hasselblad-not- endur dags daglega, öll mæli- tæki og nauðsynleg verkfæri. A myndinni, sem Kjartan Þor- björnsson (Golli) tók, er íslenski hópurinn ásamt Birgittu Zorjan, sem er önnur frá vinstri, al- mennatengslafulltrúa Hassel- blad. Eigendur Beco eru Baldvin Einarsson, lengst til vinstri, og Ingibjörg Siguijónsdóttir, önn- ur frá hægri. Fólk Ráðinn ritstjóri Gests ’96 • RÓBERT Mellk hefur verið ráð- inn ritstjóri bókarinnar Gestur ’96, sem gefín er út á ensku af Lífi og sögu hf. Bókin er nú að koma út í 5. skipti og mun sem fyrr höfða til er- lendra ferðamanna með landkynningu í formi ljósmynda og greina. Hún er um 250 blaðsíður og liggur frammi á flestum gistiherbergjum landsins og ferðaskrifstofum innanlands og er- lendis, segir í frétt. Róbert hefur á annan áratug unn- ið við útgáfu sem tengist íslensku þjóðlífi. Hann hefur ritstýrt ýmsum blöðum og tímaritum, svo sem Mod- ern Iceland, Foreign Livingog Ice- land - The Cutting Edge of Fisheries Technology. Greinar eftir hann hafa birtst í tímaritum heima og erlendis, Róbert Mellk m.a. EX, WorldFishingog Scandina- vian Guide. Róbert er fæddur og uppalinn í Bandaríkjunum, en móðir hans er íslensk. Eftir háskólapróf fluttist hann til íslands og kenndi m.a. fyrstu árin ensku og bókmennt- ir við Menntaskólann við Hamra- hlíð og Námsflokka Reykjavíkur áður en hann sneri sér að skriftum og ritstjórnarstörfum. Ráðin til Kassa- gerðarinnar • ELÍN Björg Ragnarsdóttir, hef- ur verið ráðin til starfa sem sölumað- ur hjá Kassagerð Reykjavíkur. Elín Björg er fædd árið 1968 á Húsavík. Hún útskrifaðist 1994 sem fisk- tæknir frá Fisk- vinnsluskólanum í Hafnarfirði og lauk námi í sjávar- útvegsfræðum við Endurmennt- unarstofnun Há- skóla íslands í Elín Björg desember 1995. Elín Björg hefur sl. sumur starfað við fiskvinnslu og ferðamál. Framkvæmdastjóri Apótekarafélagsinshættir STJÓRN Apótekarafélags íslands sagði í október sl. upp ráðningar- samningi við Guðmund Reykjalín, framkvæmdastjóra félagsins, með 6 mánaða fyrirvara. Ástæða uppsagn- arinnar er sú breyting á fyrirkomu- lagi í lyfsölumálum, sem fyrirsjáan- leg er með væntanlegri gildistöku nýrra lyfjalaga 15. mars 1996, að því er segir í frétt frá félaginu. Fram kemur að stjóm AÍ taldi eðlilegt að félagið væri óbundið, þeg- ar að þessum breytingum kæmi og gæti þá hagað rekstri félagsins mið- að við nýjar aðstæður. I framhaldi af uppsögninni óskaði Guðmundur Reykjalín eftir að fá lausn frá störfum sem fyrst og hefur verið gerður starfslokasamningur við hann. Guðmundur lét formlega af störfum 1. janúar sl., en samkomulag var um að hann sinni ákveðnum verk- efnum fyrir félagið fyrst um sinn. Guðmundur Reykjalín starfaði sem framkvæmdastjóri félagsins í 15 ár og nú þegar hann lætur af störfum eru honum þökkuð farsæl störf, sem hann hefur rækt af ein- stakri samviskusemi og prúð- mennsku, segir í fréttinni. að Grensásvegi 7 á morgun föstudag frá 14.00 til 17.00 Við bjóðum forsvarsmönnum fyrirtækja og áhugasömum aðilum að koma og kynnast starfsemi okkar að Grensásvegi 7, 2. hæð, föstudaginn 12. janúar milli kl. 14.00 og 17.00. U DTfQ □ © Ll QD HQ frá hugmynd til markaðar Brynjar HÖNN UN Ráðgjöf Auglýsingar og markaðsmál Sfmi 568-6121 ^8x588-6121 © Rauði dregillinn Stafræn hljóð- og myndvinnsla Sfmi 588-4222 • Fax 588-4225 ISL@NDIA Internetmiðlun Veffang: http://www.islandia.is Sfmi 588-4020 • Fax 588-4014 UNDUR& StórMErKI Auglýsingar / Skiltagerð Sfmi 588-3066 • Fax 588-4014 Auglýsingar Markaösmál Hönnun Ráðgjöf Kvikmyndun Stafræn hljóö- og myndvinnsla Internet Heimasíöur Ski Itagerö Merkingar Þjónusta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.