Morgunblaðið - 11.01.1996, Page 6
6 D FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BÖRN OG UNGLINGAR
Sex unglingar á HM í Sviss
Halldóra
HALLDÓRA Þorgeirsdóttir,
sundkona úr Ægi og bronsverð-
launahafi í 200 m bringusundi á
síðasta Norðurlandamóti ungl-
inga, setti telpnamet í 50 m
bringusundi, synti á 35,22 sek-
úndum. Metið setti Halldóra sem
er fjórtán ára á móti hjá Ár-
manni í Sundhöll Reykjavíkur
setti met
skömmu fyrir áramót. Þetta met
og fjöldi annarra sem ungir sund-
menn hafa verið að setja í síðasta
mánuði sýnir að miklar framfarir
eru að eiga sér stað og fróðlegt
verður að fylgjast með á næsta
sundmóti sem verður í Hafnar-
firði undir umsjón SH síðustu
helgi í þessum mánuði.
ÚRSLIT
Badminton
Um síðustu helgi fór fram Unglingameist-
aramót TBR í badminton. Þátttakendur
voru um 150 frá TBR, Víkingi, Hafnar-
firði, Keflavfk, Þorlákshöfn, hHveragerði,
Flúðum, Akranesi og Borgamesi. Keppt var
í öllum greinum og flokkum unglinga. úr-
slit urðu sem hér segir.
Hnokkar og tátur 12 ára og yngri:
Einliðaleikur:
Halldóra Jóhannsdóttir, TBR, sigraði Fann-
eyju Jónsdóttur, Víkingi, 11:7/11:2.
Valur Þráinsson, TBR, sigraði Daníel Reyn-
isson, HSK, 12:10/7:11/11:0.
Tvíliðaleikur:
Björk Kristjánsdóttir og Halldóra Jóhanns-
dóttir, TBR, sigruðu Fjólu Sigurðardóttur
og Önnu Þorleifsdóttur, Vikingi, 15:7/15:8.
Valur Þráinsson, TBR, og Daníel Reynis-
son, HSK, sigruðu Ólaf Olafsson og Hjört
Arason, Víkingi, 15:5/15:6.
Tvenndarleikur:
Haltdóra Jóhannsdóttir og Valur Þráinsson,
TBR, sigruðu Björk Kristjánsdóttur, TBR,
og Daníel Reynisson, HSK, 18:17/15:9.
Sveinar og meyjar 12 til 14 ára:
Einliðaleikur:
Guðlaugur Axelsson, UMSB, sigraði Davtð
Thor Guðmundsson, TBR, 1:11/11:1/11:8.
Hrafnhildur Ásgeirsdóttir, TBR, sigraði
Bryndísi Sighvatsdóttur, BH, 11:8/11:5.
Tviliðaleikur:
íris Ellertsdóttir og Tinna Sæmundsdóttir,
Þór Þorlákshöfn, sigruðu Láru hannesdóttur
og Oddnýju Hinriksdóttur, TBR, 15:8/15.3.
Óli Þór Birgisson og Guðlaugur Axelsson,
UMSB, sigruðu Elvar Guðjónsson, TBR, og
Margeir Gunnarsson, Víkingi, 18:17/14:
18/17:16.
Tvenndarleikur:
Helgi Jóhannesson, og Ragna Ingólfsdóttir,
TBR, sigruðu Davíð Thor Guðmundsson og
Söru Jónsdóttur, TBR, 16:17/15:3/15:9.
Drengir og telpur 14 til 16 ára:
Einliðaleikur:
Gunnar Reynisson, keflavík sigraði Ævar
Pétursson, Keflavík, 15:7/17:15.
Svava Svavarsdóttir, HSK, sigraði Þórunni
Harðardóttur, BH, 11:6/11:7.
Tvíðliðaleikur:
Sara Jónsdóttir og Oddný Hróbjartsdóttir,
TBR, sigruðu Evu Petersen og Agústu Ni-
elsen, TBR, 15:9/15:6.
Ingólfur Ingólfsson, TBR, og Björn Odsson,
BH, sigruðu Helga Jóhannesson og Birgi
Haraldsson, TBR, 9:15/15:11/17:14.
Tvenndarleikur:
Björn Oddsson, BH, og Hrund Atladóttir,
TBR, sigruðu Birgi Haraldsson og Katrínu
Atladsóttur, TBR 15:5/15:5.
Piltar og stúlkur 16 - 18 ára:
Einliðaleikur:
Brynja Pétursdóttir, lA, sigraði Erlu haf-
steinsdóttur, TBR, 11:5/11:1.
Sveinn Sölvason, TBR, sigraði Björn Jóns-
son, TBR, 15:7/15:5.
Tvúiðaleikur:
Björn Jónsson og Sveinn Sölvason, TBR,
sigruðu Sævar Stöm, TBR, og Gunnar
Gunnarsson, Keflavik, 15/4/15:7.
Brunja Pétursdóttir og Bima Guðbjartsdótt-
ir, ÍA, sigraðu Önnu L. Sigurðardóttur og
Erlu Hafsteinsdóttur, TBR, 15:10/15:13.
Tvenndarleikur:
Sveinn Sölvason og Erla Hafsteinsdóttir,
TBR, sigraðu Bjöm Jónsson, TBR og Brynju
Pétursdóttur, ÍA, 15:10/11:15/15:9.
Morgunblaðið/ívar
ÞRÍR stlgahæstu ð Nýársmóti fatlaðra í Sundhöll Reykjavík-
ur sl. sunnudag. Frá vlnstri: HJördís Anna Haraldsdóttir,
Helðdís Dögg Elríksdóttlr og Haraldur Þór Haraldsson.
Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga
Heiðdís Dögg náði
bestum árangri
Nýárssundmót fatlaðra bama
og unglinga fór fram í Sund-
höll Reykjavíkur síðastliðna helgi.
Þetta er árlegt mót og eru keppend-
ur 17 ára og yngri.
/Var . Allir keppendur eru
Benediktsson í einum flokki en
skrilar stigagjöf er reiknuð
út sér fyrir hvem fötlunarflokk.
Því er ekki um að ræða hefðbund-
ið keppnisfyrirkomulag þar sem
veitt em verðlun fyrir fyrsta, annað
og þriðja sæti í hverri grein. Reikn-
uð em út stig hvers keppanda út
frá árangri hans í hverri grein.
Stigahæsti einstaklingurinn hlýtur
síðan „Sjómannabikarinn" en hann
var gefínn af Sigmari Ólafssyni
sjómanni á Reyðarfirði.
Að þessu sinni varð Heiðdís
JJögg Eiríksdóttir, Ægi/íþróttafé-
lagi heymarlausra, hlutskörpust,
hlaut 637 stig fyrir 50 m skrið-
sund, 32,97 sekúndur. í öðra sæti
varð Hjördís Anna Haraldsdóttir,
Ægi/ÍFH, með 634 stig fyrir 50 m
baksund sitt á 39,88 sekúndum og
í þriðja sæti varð Haraldur Þór
Haraldsson, ÍFR, með 458 stig fyr-
ir 50 m bringusund sem hann synti
á 59,18 sekúndum. Eins og sést
var Iítill munur á milli Heiðdísar
Daggar og Hjördísar Önnu, aðeins
þijú stig eða um það bil 5 úr sek-
úndu.
„Þetta er fimmta árið sem ég
æfi sund og hef allan tímann æft
hjá Ægi. Mér finnst mjög gaman
í sundi og að sjálfsögðu ætla ég
að halda áfram að æfa,“ sagði
Heiðdís Dögg að keppni lokinni,
en hún verður sextán ára á þessu
ári. „Ég hef líka æft frjálsíþrótt-
ir, fimleika og knattspyrnu, en
sundið er skemmtilegast og
bringusundið er mín uppáhalds-
grein. Núna æfi ég þolfimi méð
sundinu til að fá styrk og út-
hald,“ bætti þessi duglega sund-
kona við.
Alls tóku fjömtíu og fjórir
keppendur þátt í mótinu að þessu
sinni frá fímm félögum. Allir
fengu viðurkenningarskjal að
launum auk þess sem þrír stiga-
hæstu einstaklingamir hlutu
verðlaun, þ.e. Heiðdís Dögg, Hjör-
dís Anna og Haraldur Þór. Heið-
ursgestur mótsins að þessu sinni
var Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða. Eins og ávallt við setn-
ingu mótsins sáu fatlaðir tónlist-
armenn um tónlistina og að þessu
sinni vom það nemendur og kenn-
arar Fullorðinsfræðslu fatlaðra
sem léku og sungu fyrir keppend-
ur. Skátar úr skátafélaginu
Skjöldungum stóðu heiðursvörð
og settu mikinn svip á mótið sem
fór hið besta fram.
Koma einu sinni
til tvisvar í viku
Við komum hingað einu sinni
til tvisvar í viku og leikum
körfubolta og höfum gert það í
allan vetur,“ sögðu þeir félagar
Hrólfur Vilhjálmsson og Kristján
Kristjánsson, sextán ára strákar
er Morgunblaðið truflaði þá frá
æsilegum körfuleik í Kolaportinu
á dögunum. „Okkur finnst fínt
að geta komið hingað og spilað
þegar okkur lystir."
Þeir sögðust báðir hafa æft hjá
KR, en Hrólfur hefur skipt yfir í
Breiðablik og leikur þar með ungl-
ingaliðinu, en Kristján kvaðst
hafa slitið krossbönd í fyrra í
hægra hné og hefði ekki byijað
að æfa að nýju með KR, „en ég
fer að byija aftur“. sagði hann.
„Við höfum tekið þátt í körfu-
boltakeppnum tveir á tvo og þrír
á þijá og hefur gegnið þokkalega.
Það er gott að æfa sig fyri svoleið-
is mót hér.“
Þeir félagar sögðust ekki fylgj-
ast grannt með körfuboltanum
hér heima, finnst hann ekki mjög
skemmtilegur, NBA boltinn væri
mun meira heillandi og með hon-
um fylgdust þeir af miklum
áhuga. „Ég er Lakers-maður,“
sagði Hrólfur, „ástæðan er sú að
þegar ég var sjö ára bjó ég í Los
Angeles og æfði með barnaliði
félagsins. Það var á þeim tíma
sem þeir voru á toppnum og ég
hef fylgt þeim að málum síðan.“
Kristján sagðist vera eindreginn
stuðningsmaður Chicago Bulls.
Þegar kom að því að spyija þá
hver væri þeirra uppáhaldsleik-
maður í NBA-boltánum stóð ekki
á svarinu, „Tim Hardaway, tví-
mælalaust."
KRISTJÁN Kristjánsson og Hrólfur Vilhjálmsson.
Sex ungir skíðamenn, þrír
strákar og þijár stelpur, hafa
verið valdir til þátttöku fyrir ís-
lands hönd á heimsmeistaramót
unglinga í alpagreinum sem fram
fer í Sviss í næsta mánuði. Þetta
era; Jóhann Haukur Hafstein,
Ármanni, Egill Birgisson, KR, Jó-
hann Friðrik Haraldsson, KR, Sig-
ríður Þorláksdóttir, ísafirði,
Brynja Þorsteinsdóttir, Akureyri
og Hrefna Óladóttir, Akureyri.
Þau hafa öll dvalið erlendis við
æfíngar og nám í vetur. Egill og
Brynja í Oppdal í Noregi, Jóhann
Friðrik í Járpen í Svíþjóð, Jóhann
Haukur í Geilo í Noregi, Sigríður
í Temaby í Svíþjóð, fæðingabæ
þess þekkta Ingemarks Sten-
marks. Hrefna var hins vegar við
nám í Verkmenntaskólanum á
Akureyri fram til áramóta en hef-
ur farið til Noregs til æfínga á
sama stað og þau Egill og Brynja.
Unglingalandsliðsmenn íslands
í skíðagöngu em nú staddir í Sví-
þjóð við æfíngar og keppni. Um
síðustu helgi tóku Islendingamir
þátt í móti í Strömsund. Þóroddur
Ingvarsson frá Akureyri náði
besta árangri þeirra, lenti í 28.
sæti. Gísli Harðarson, Akureyri,
varð í 32. sæti, Ingólfur Magnús-
son frá Siglufirði í 33. sæti, Jón
Garðar Steingrímsson, Siglufírði,
í 35. sæti og Árni Gunnar Gunn-
arsson frá Olafsfírði í 36. sæti.
Daníel Jakobsson sigraði í mótinu.
ÞAU voru sigursæl í flokkum pilta og stúlkna, f.v.: Sveinn
Sölvason, Erla Hafsteinsdóttir, Brynja Pétursdóttir og
Björn Jónsson öll úr TBR.
ÞÓRODDUR Ingvarsson nóði
bestum árangri íslensku
skíðagöngumannanna í
Strömsund um síðustu helgi.