Morgunblaðið - 13.01.1996, Page 1
fHmrgmttritafeto
• Ólund, farðu út alla með sút!/4
• Farið frjálslega með sannleikann/5
• Málað eftir smekk fjöldans/8
MENNING
USTIR
rj
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 blaðJJ
Listahátáð
Sirkus
í Reykjavík
1996
LISTAHATIÐ í Reykjavík ’96 verð-
ur haldin í júní. Að vanda kemur
fjöldi innlendra og erlendra lista-
manna fram en hátíðin er nú haldin
í fjórtánda sinn. Boðið verður upp
á fjölbreytta dagskrá með áherslu
á það sem er helst á döfínni í heimi
listanna, hér heima og erlendis.
Dagskrá Listahátíðarinnar er
nánast fullmótuð. Hún verður sett
á undan opnun sýningar á verkum
Egon Schiele og Arnulf Rainer í
Listasafni íslands 31. maí, þar sem
m.a. verða kunngjörð úrslit í Ljóða-
samkeppni Listahátíðar, en í hana
bárust 525 ljóð.
Margir erlendir gestir verða á
hátíðinni. Óperusöngvararnir Gal-
ina Gorchakova, Rannveig
Fríða Bragadóttir, Dmitri
Hvorostovsky og Keith Ika-
ia-Purdy munu syngja á
tónleikum í Laugardalshöll
8. júní með Heimskórnum,
The World Festival Choir, og
Sinfóníuhljómsveit Islands.
Evgeni Kissin var undrabam á
flygilinn en er nú orðinn fullþroska
listamaður, margverðlaunaður fyrir
frábæra tækni og túlkun. Telja
sumir hann vera fremsta píanóleik-
ara okkar tíma (sbr. Gramophone,
nóv. 1994). Einleikstónleikar hans
verða í Háskólabíói 15. júní.
Strengjakvartettinn Philharmon-
ia Quartett-Berlin sem skipaður er
leiðandi mönnum úr Fflharmóníu-
sveit Berlínar leikur í íslensku óper-
unni 9. júní.
Aðrir athyglisverðir tónleikar
verða í íslensku óperunni 5. júní
með Yuuko Shi-
okawa fiðluleikara
og píanósnillingn-
um András Schiff.
Af öðrum klassísk-
um stórviðburðum ber
hæst komu Vladimirs Ash-
kenazy og Deutsches Sym-
phonie Orchester-Berlin en
undir hans stjórn hefur þessi
hljómsveit skipað sér í röð
fremstu sinfóníuhljómsveita
heimsins. Tónleikarnir verða
í Laugardalshöll 29. júní og
verða haldnir til heiðurs frú
Vigdísi Finnbogadóttur for-
seta íslands og vemdara
Listahátíðar í Reykjavík.
Bandaríska gagnrýnend-
ur skortir ekki lýsingarorðin
þegar þeir iýsa dansi Maure-
en Fleming. Hann er eins
konar ljóðlist í hreyfingum
sem sameinar hina japönsku butoh
danshefð og klassískan dans. Sýn-
ingar hennar verða í Loftkastalan-
um 2. og 4. júní.
Djass, sirkus o.fl.
Úr heimi djassins kemur tromp-
etleikarinn Lester Bowie með Brass
Fantasy hljómsveit sína skipaða 10
hljóðfæraleikurum og leika þeir í
Loftkastalanum 2. og 4. júní. Lest-
er Bowie heimsótti ísland fyrir rúm-
um áratug en þá með Art En-
semble of Chicago. Sem fyrr fer
Lester ekki troðnar slóðir og það
er ekki að ósekju að hann er talinn
einn af fremstu trompetleikurum
heimsins í dag.
Belgíski leikhússirkusinn Circ-
us Ronaldo byggir á gömlum *
hefðum úr evrópsku leikhúsi /'
og fjölleikahúsi. Sirkusinn
kemur með forna húsvagna
sína og slær upp skrautleg- ‘
SJÁ BLS. 2
an
dýra
FRANSK-kanadískur sirk-
us, „Cirque du Soleil", hefur
vakið geysilega athygli víða
i Evrópu og í Bandaríkjun-
um fyrir framúrskarandi
lipurð sirkusmeðlima. Engin
—- dýr eru í
‘W' hópnum, að-
eins lipurt
fimleikafólk
af öllum
stærðum og
«. gerðum, Kúbu-
menn, Kín-
>jHr verjar, Rússar
%S ogFrakkar’
' Pólverjarog
Perúmenn sem
sett hafa upp
óvenju listræna og
fallega sýningu.
ÍSLENSKA óperan frumsýnir í dag
klukkan 15 ævintýraóperuna Hans
og Grétu sem Adelheid Wette og
Engelbert Humperdinck sömdu á
síðustu öld. Hún er byggð á góð-
:unnu Grimmsævintýri með sama
Snakmenmn
fjögur hafa ekki
hlotið nafngift-
ina út i loftið.
Morgunblaðið/Halldór
Hans og Gréta
frumsýnd í dag
nafni. Aðalhlutverkin i sýningunni
eru í höndum Hrafnhildar Björns-
dóttur (Gréta) og Rannveigar Fríðu
Bragadóttur (Hans).
■ Ólund, farðu út/D4
KONANI
LÍFIKAFKA
LIF ÞEKKTRA
manna varpar (jósi á
líf þeirra sem þá
umgengust. Lífs-
hlaup Milenu Jes-
ensku var af þeim
toga en hún átti í
» skriflegu ástarsam-
bandi við rithöf-
undinn Franz
Kafka skömmu
áður en hann lést.
Milena var ekki
aðeins þekkt fyr-
ir tengsl sín við
Kafka, hún var
þekktur blaða-
maður og bar-
áttukona fyrir sjálfstæði
Tékkóslóvakíu í heimsstyrjöld-
inni síðari. Ævisaga Milenu kom
nýlega út hjá André Deutsch for-
laginu en hún er eftir Mary
Hockaday og nefnist „Kafka,
love and courage: The life of
Milena Jesenska". Bókin fær frá-
bæra dóma í The Financial Tim-
esþar sem helstu aðfinnslur
varða það að bókin sé ekki lengri.
Milena var hávaxin og glæsileg
kona og varð sem ung kona þekkt
í samkvæmislífi
Prag. Hún
flúði undan
ráðríki föð-
ur síns til Vínar en
þaðan skrifaðist hún
á við Kafka. Eru bréf
hans til hennar talin
mikilvæg viðbót við
annað útgefið efni
eftir hann. Þau þykja
hlaðin tilfinningum
og bera vitni sam-
kennd þeirra og nán-
um skilningi á þörf-
um hvors annars. Mi-
lena og Kafka áttu í
skammvinnu ástar-
sambandi en veikindi
Kafka gerðu það að
Franz Kafka verkum að hann varð
afhuga kynlífi.
Þegar Kafka lést skrifaði Mi-
lena minningargrein um hann
sem þótti sýna að hún hefði haft
skilning á viðkvæmni hans og
snilligáfu. „Hann var maður og
listamaður, svo átakanlega næm-
ur að hann heyrði jafnvel þegar
aðrir, hinir sem ekkert heyrðu,
töldu sig örugga,“ skrifaði hún
m.a.
Milena gerðist blaðamaður og
varð þekkt og dáð í heimalandi
sínu. Þegar Þjóðverjar réðust inn
i Tékkóslóvakíu, gekk hún til liðs
við andspyrnuhreyfinguna, var
handtekin og lést í fangabúðum
árið 1944.