Morgunblaðið - 13.01.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.01.1996, Blaðsíða 6
6 D LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ VONIR standa til þess að Rómaróperan sé á leið upp úr öldudaln- um eins og uppfærslan á R matrimonio segreto er talin dæmi um. Rómaróperan vaknar til lífsins RÚSSNESKIR sjóliðar og liðsmenn frönsku útlendinga- hersveitarinnar, séðir með augum Giorgiu Fioro. ÓPERUHÚS , Rómaborgar hefur glatt hjörtu ítala en einnig verið þeim afar þungbært á undanförnum árum. Á efnisskránni hafa verið margar perlur tónlistarinnar og ber þar líklega hæst tónleika tenóranna Pavarottis, Domingos og Carreras árið 1990 sem haldnir voru í Cara- calla og reyndust einn ábatasamasti listviðburður sögunnar. Hins vegar má tína til langa sögu mistaka stjómenda hússins og endalausra framkvæmda sem hafa leitt til þess að orðspor hússins hefur versnað mjög og Róm telst nú svarti sauður- inn í óperuheiminum, að því er segir í The European. - Saga og orðspor hússins náði lík- lega botninum á tveggja ára stjóm- artíma Gian Paolo Cresci 1991- 1993 en þá jókst 10 milljarða líra halli í 45 milljarða líra. Óstjóm Cresci hafði framleitt sjónvarps- efni áður en hann tók við starfmu og byijaði á því að lýsa yfir vankunn- áttu sinni í tónlist, nema hvað hann kannaðist við „Nessun dorma“. Þeg- ar 45 milljarða líra tap blasti við, yppti hann öxlum og sagði það vera andvirði nýs skriðdreka. Ætlun Crescis var að „færa óper- una nær almenningi". Til þess að svo hefði mátt verða, hefði þurft að lækka miðaverð ennþá meira. Þess í stað fóru fjármunir ópemhússins í að koma til móts við launakröfur starfsmannanna, fokdýrar uppsetn- ingar, einkennisbúninga fyrir dyra- verði og til að greiða laun fimm fastráðinna lækna við húsið. ítalski tónlistargagnrýnandinn Sandro Cappelletto sendi nýverið frá sér bók þar sem hann rekur óstjóm- ina árin tvö sem Cresci réð ríkjum í óperuhúsinu í Róm. Cappelletto segir ekki um árás á Cresci að- ræða.„Hann átti einfaldlega vini á hæstu stöðum og treysti þeirri sögu- legu staðreynd að eyði menn um efni fram, komi ríkið að endingu til aðstoðar. Sem það að sjálfsögðu gerði." Hreinsað til Sá sem fenginn var til að taka til hendinni eftir Cresci heitir Gi- orgio Vidusso. Þrátt fyrir mikinn þrýsting frá stjórnvöldum um að halda útgjöldum í skefjum, hefur Vidusso tekist að setja saman skyn- samlega efnisskrá fyrir árið sem er nýhafið. Fyrsta verkið verður „Iris“ eftir Mascagni, sem er sjaldan sett upp núorðið en það var fmmflutt í sama óperuhúsi og nú hýsir Rómar- óperuna árið 1899. Aðalhlutverkið verður í höndum Danielu Dessi og stjómandi er Gianluigi Gelmetti. I kjölfarið fylgja sýningar á „Tur- andot" og „II matrimonio segreto" eftir Cimarosa, en sú uppfærsla hlaut mikið lof í San Carlo í Napólí á síðasta leikári. Forvitnilegust þyk- ir þó mörgum ný uppfærsla Peter Hall á „Fidelio" eftir Beethoven en hún er sett upp í samvinnu við Co- vent Garden og verður fmmflutt i apríl. I maí lýkur leikárinu svo með uppfærslu á „Svefngenglum" Bell- inis, sem á að gerast á Englandi á 18. öld og er ekki laust við að kvik- myndaleikstjórinn Pupi Avati, sem setur verkið upp, leiti í smiðju hryll- ingsbókmenntanna. Velunnarar Rómarópemnnar vona þó að nafn verksins verði ekki að áhrínsorðum heldur þvert á móti, uppfærslan verði dæmi um að listamenn óper- unnar séu að vakna að nýju. Konaí karla- skoðun ÞRÁTT fyrir að Giorgia Fioro sé aðeins 28 ára gömul hefur hún líklega séð meira til karlmanna en flestar konur geta gert sér vonir um á ævinni. Frá árinu 1990 hefur þessi ítalski ljósmynd- ari beint Hasselblad-vél nær ein- göngu að karlmönnum sem lifa og hrærast i lokuðu samfé- lagi. Hún hefur eytt mánuðum við slíkar að- stæður; hefur fylgt á hæla frönsku útlend- ingahersveitar- innar í frum- skógum við miðbaug, vaðið for- ina eins og hermennirnir á Ig- man-fjalli í Bosníu og dvalið um lengri tíma með rússneskum glæpamönnum í fangabúðum. Á síðasta ári vann Fioro til Ernst Haas-verðlaunanna sem færðu henni um 650.000 krónur ísl. í aðra hönd og þ'ósmyndabúnað að verðmæti 520.000 krónur. Fioro beindi sjónum sínum fyrst að karlmönnum fyrir al- vöru er hún vann um átta mán- aða skeið að myndröð um hnefa- leikakappa í New York. Nú, fimm árum síðar, vinnur hún að umfangsmikilli myndröð sem kallast Karlar og ætlunin er að ljúki árið 2000. A meðal þess sem þar verður sýnt eru myndir úr daglegu lífi námaverkamanna í Úkraínu og svipmyndir úr kyrr- látu samfélagi ítalskra munka Verkefnið er geysilega víð- femt og tímafrekt enda nálgast Fioro viðfangsefni sitt af natni mannfræðingsins og vísinda- mannsins. „Það þýðir ekkert ann- að en að gefa sig alla í verkefn- ið. Ég vinn að minnsta kosti sex mánuði að hveiju verkefni," segir hún í samtali við The European. Ernst Haas-verðlaunin hlaut Fioro fyrir myndraðir um lífið í frönsku útlendingahersveitinni og Nakhíjmovskaja-þjálfunar- búðunum fyrir rússneska sjóliða, en til þess að búa sig undir það verkefni lærði hún rússnesku. Fioro segist heillast af samfélög- um sem þessu vegna þess að þau séu á útleið. „Þeim er haldið sam- an af stofnanareglum, veiýum og slætti hversdagslíflsins." Myndir hennar af útlendinga- hersveitinni eru kyrrlátar og kraftmiklar, ýmist teknar þegar mikið gengur á eða ýósmyndar- inn beinir sjónum sínum að ein- stökum hermönnum, við skyldu- störf eða í frítíma. Myndimar em ógnvænlegur vitnisburður um hættur og erfiðleika sem hermennskunni fylgja en em einnig til marks um stolt þeirra manna sem hafa kosið að ganga til liðs við sveitina. Sjálf segist Fioro hafa haft siðareglur her- mannana að leiðarljósi, reglur sem þeir byggi allt á. Fyrir þeim sé hvert verkefni heilagt og þeir muni allt til þess vinna að Ijúka því. Nú þegar æ minni fjármunum er varið í Ijósmyndaverkefni á borð við þau sem Fioro hefur unnið að, virðist hin gríðarstóra myndröð hennar fjarlægur daumur. Ólíkt flestum ljósmynd- uram reiðir hún sig nær ein- göngu á styrki og því koma verð- launin sér ákaflega vel í næsta verkefni, sem er að fylgjast með spænskum nautabönum. Giorgia Fioro Nýja testamentið TÓNLIST Sígildir diskar BEETHOVEN Ludwig van Beethoven: Píanósónöt- ur nr. 1-32. „Kjörfurstasónötur WoO 47 nr. 1-3. Sónatínur nr. 37- 38 An- hang 5 nr. 1-2. Sónata nr. 38 WoO 51 (brot). Jenö Jandó, píanó. Naxos 8.550045, -054, -150, -151, -161, -162, -166, -167, -234 & -255. Upptaka: DDD, Budapest, 4/1987-2/1989. Heildarlengd (10 diskar): 10.48:44. Verð: 6.900 kr. HVERJUM kemur það við, til hvers sígild tónlist er notuð í heimahúsum? Engum. Tími stall- setningar og duftskriðs vanefna- ára þessa lýðveldis er liðinn. Eða þykir lengur feimnismál, þó að heilög Sesselja sé látin auka nytina úr kúm? Sé notuð sem bakgrunnur á góðra vina fundi? Nú, eða sem svefnmeðal? Ég held ekki — og bendi hér með hollustufíklum á pottþétt svar við svefnpilluáti: píanósónötur Mozarts — í meðförum æðardún- fingraðasta slaghörpuleikara ver- aldar, Mitsuko Fuchida! Værðar- fyllri nætursvefn fæst ekki keypt- ur úr plötubúðum í dag, og er þar talað af persónulegri reynslu. í þessu felst auðvitað enginn áfellisdómur. Sónötur Mozarts þarf ekki að veija; þær standa fyllilega undir nafngiftinni sígild tónlist. Sömuleiðis felst engin van- þóknun í því að ljóstra upp, að öðru máli gegnir um píanósónötur Beethovens, skoðaðar frá hinum óneitanlega þrönga sjóndeildar- hring svefnmeðalsins. Þar segir áðumefnd persónuleg reynsla nefnilega annað. Þær eru hörmulegar. Hvort aðrir hafí reynt hið sama, veit ég ekki. En það er ágizkun undirritaðs, að ein ástæðan fyrir því að Beethoven virðist stugga meira við hlustandanum í svefnrof- unum en meistari Mozart sé sú, að tónhugsun hans er þrungnari. Ef styrkur stefjaúrvinnslu Mozarts er falinn bak við tælandi fyrirhafnar- leysið, biýzt hann fram hjá Beethov- en af rökfostu afli, líkt og óstöðv- andi hraunkvika, sem hlustandinn fær ekki rönd við reist. Þar fer fíl- efld en hnitmiðuð frumorka, sem höfðar jafnt til hjartans og hugans, á lágum nótum jafnt og háum. Eins og píanóunnendur vita, ágerist þessi náttúra Beethovens eftir því sem lengra á sköpunarfer- il hans líður. Andstætt við Moz- art, sem lagði hlutfallslega litla rækt við greinina, eru hinar 35 píanósónötur Beethovens (svo maður telji „Kjörfurstasónöturn- ar“ þijár frá Bonnárunum með) þroskadagbók hans frá unglings- árum fast að ævilokum; frá dygg- um arftaka Vínarheiðlistar yfír í boðbera framtíðar. Og eitt enn, sem allt fram á þennan dag hefur haft sérstakt lag á að kippa áheyr- andanum upp úr sessunni: hrynj- andin. Beethoven er án efa einn meitlaðasti og frumlegasti hryn- hugsuður 19. aldar, en það er hlið á honum, sem tónvísindamenn virðast enn hafa vanrækt að kanna. í þessu ljósi er jafnskrýtið og það er gremjulegt, hversu lítið er um heildarútgáfur á þessu „Nýja testamenti hljómborðsins“ eins og það hefur verið kallað (Veltempr- aða hljómborð Bachs I/II er hið Gamla), þar sem verkum er raðað í tilurðarröð. Naxosútgáfan sem hér um ræðir er engin undantekn- ing. Sá sem lesa vill þroskadagbók Beethovens spjalda á milli (í það fer hálfur sólarhringur), verður að skipta um disk meira eða minna í sífellu. Það er engu líkara en að húsbændur forlagsins hafí fyrst viljað fikra sig áfram eftir undir- tektum markaðarins með nokkrum þekkt- ustu sónötunum (Pat- hétique, Appassíónötu og Tunglskinssónöt- unni), en ákveðið síðan að klára alla ópusana, án þess þó að missa sjónar af því, að hver stakur diskur þyrfti helzt að geyma a.m.k. einn vinsældarkjör- grip, svo allt seldist nú jafnt. En burtséð frá því eru vandfundin betri kaup fyrir þann sem hyggst höndla testa- mentið í heild en þessir 10 Naxos- diskar, og eru verðsjónarmið þar ekki ein til umhugsunar, því spila- mennska ungverska píanistans Jenö Jandó heldur háum staðli út í gegn. Hinn létti og skýri ásláttur hans, ásamt tærri upptöku og létt- róma hljóðfæri (sennilega Bösend- orfer eða álíka) fer nokkurs konar bil beggja milli stórrómantískrar túlkunar eins og hjá Kempf og Arrau og þess er „upphafshyggju- flytjendur" væru líklegir til að kjósa. Þannig heyrast t.d. fimm- hljómagrip vinstri handar á neðsta tónsviði, sem hugsuð voru fyrir sláttþýðari hljóðfæri en okkar tíma, skýrar en hjá nafntoguðustu merkisberum flygilsins um miðbik þessarar aldar. Og hvað varðar fíngra- leikni og tærleika á hröðum köflum tekur Jandó mörgum þeirra fram. Vankantar ung- verska snillingsins eru ekki margir. Helzt fellur í eyrun ákveðin kviksilfruð „óþreyja" endrum og eins, eink- um í hægum köflum, þar sem hlustandinn saknar meiri þyngdar og yfirvegaðra rúbat- ós - sumir mundu kannski segja meiri rómantíkur - oft og einatt þar sem höfuðKempf-ur genginna áratuga drógu hvað fegurst seiminn. Kannski er það jafnvægi náttúr- unnar. Þegar Jandó nær sama höfga með fjölgandi árum og fækk- andi hærum, gæti hann á hinn bóginn verið farinn að missa eitt- hvað af þeirri spræku, merlandi fími, sem skín svo dátt í dag. Sjaldan verður á allt kosið. Hitt er ljóst, að Naxosdiskamir tíu eru meðal gimilegri tilboða á einhveiju merkasta stórvirki píanóbók- mennta sem hljómplötubúðir bjóða í dag. Túlkun Jandós er ekki bara heiðarleg og yfírlætislaus; hún státar af frábærri tækni - og nægri dýpt og tilfinningu til að endast flestum. Ríkarður Ö. Pálsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.