Morgunblaðið - 23.01.1996, Side 1

Morgunblaðið - 23.01.1996, Side 1
KÖRFUKNATTLEIKUR: CHICAGO VANTAR FIMM LEIKITILAÐJAFNA MET LAKERS / B8 Góður árangur Daníels á sænska meist- aramótinu DANÍEL Jakobsson, sem keppir fyrir Leiftur, Ólafsfirði, varð í 13. sæti í 30 km göngu með frjálsri aðferð á sænska meistaramótinu á sunnu- dag. Hann var meirihluta göngunnar í sjöunda sæti en dalaði aðeins á síðustu kilómetrunum. Allir sterkustu göngumenn Svía tóku þátt í mótinu og er því árangur Daníels góður. Sigurvegari í göngunni var Ólympíumeistar- inn Vladimir Smirnov frá Kasakstan. Sviinn Niklas Jonsson varð annar og landi hans, Torgny Mogren, þriðji. Ásarna, félag Daníels, sigraði i liðakeppninni, en þrír bestu timarnir hjá liðs- mönnum hvers félags eru reiknaðir saman. Daní- el varð þriðji Ásama-strákanna og því kom tími hans til útreiknings. í dag verður keppt í 15 km göngu með frjálsri aðferð á sænska meistaramótinu. Afturelding nálægt meti FH-inga Vippaði séryfir 3,90 metra ífyrstu tilraun VALA Flosadóttir, frjálsíþrótta- kona úr ÍR, tvíbætti Islands- og Norðurlandametið í stang- arstökki kvenna á frjálsíþrótta- móti í Malmö í Svíþjóð á sunnu- dag. Gamla metið hennar, 3,82 metrar, var viku gamalt. Á sunnudaginn bætti hún metið fyrst um þrjá sentímetra er hún stökk 3,85 metra og fór síðan yfir 3,90 metra í fyrstu tilraun. „Árangurinn hefur komið mjög á óvart. Ég bjóst ekki við að bæta mig svona mikið strax í upphafi keppnistímabilsins," sagði Vala. Vala, sem verður 18 ára á þessu ári, er nú komin í röð 15 bestu stangarstökkvara heims. „Eg get bætt mig enn frekar ef ég fæ stöng sem er harðari en sú sem ég hef notað að undanfömu. Ég á von á nýrri stöng frá FRÍ á næstu dögum og vonandi verður ekki langt að bíða þar til ég fer yfir fjóra metra. Það er markmiðið að ná því fyrir Evrópumótið innanhúss sem fram fer í Stokkhólmi í mars,“ sagði Vala við Morgunblaðið. Heimsmetið í stangarstökki kvenna utanhúss er 4,28 metrar og er það í eigu ástralskrar stúlku. Vala er yngst kvenna sem stokkið hafa yfir 3,90 metra og því má segja að hún eigi óopinbert heimsmet í sínum aldursflokki. Vala hefur mikla yfirburði í stangarstökkinu í Svíþjóð því sú sem varð önnur á mótinu í Malmö um helgina, og er næstbest í Svíþjóð, stökk aðeins 2,70 metra. Vala keppti einnig í þremur öðr- um greinum á mótinu um helgina þar sem þátttakendur voru 1.400 talsins og komu m.a. frá Dan- mörku. Hún sigraði í hástökki, stökk 1,76 metra og var aðeins fimm sentímetrum frá sínu besta. Hún varpaði kúlu 11,68 metra og varð önnur og hljóp 60 metra grinda- hlaup á 9,47 sekúndum og hafnaði í öðru sæti. Hún tekur þátt í tveimur mótum um næstu helgi. Á laugardaginn í Malmö og síðan á sunnudag í Gauta- borg, en þar keppa einnig Jón Arn- ar Magnússon, UMSS, Jóhannes Már Marteinsson, ÍR, og Geirlaug B. Geirlaugsdóttir, Ármanni. Jó- hannes Már og Geirlaug eru að reyna við lágmörk í 60 metra hlaupi fyrir EM í Stokkhólmi. iviyna/noii uisson, öyasvensKa uagDiaaex. VALA Flosadóttir tvíbættl íslands- og Norðurlandametið f stangarstökki á sunnudaginn. Hér er hún komln í háloftin og stefnan er sett á fjóra metra. LEIKMENN Aftureldingar voru nær því búnir að jafna met íslenskra liða í Evrópukeppninni, þegar þeir skoruðu ekki nema þijú mörk í fyrri háfleik gegn Drammen, 13:3, og töpuðu 14:22. FH-ingar skoruðu aðeins tvö mörk, 18:2, í fyrri hálfleik gegn júgóslavneska liðinu Partizan Bjelovar í Skolsko-sportaka-dvorana í Karlovac í Króatíu 1971. FH-ingar töpuðu leiknum 27:8, en áður höfðu þeir tapað 14:28 í Laugardalshöll- inni. FH-ingar komu til leiksins aðeins rúmri klukkustund fyrir hann, eftir að hafa verið 45 klukkustundir á ferðalagi af þeim 60 kls. sem ferðin til Karlovac tók. FH-liðið fór fyrst til Kaupmannahafnar, þar sem þeir fengu að kynn- ast svikum hjá j úgóslavneska flugfélaginu JAT, en FH-ingar, sem áttu að fara nær beint til Júgó- slavíu, urðu að bíða í sjö klukkustundir á Kast- rup-flugvelli, þaðan var flogið til Stokkhólms og síðan til Júgóslavíu. Vegna veðurs gat flugvél- in ekki lent í Zagreb og var þá flogið til Split, þar sem FH-ingar komu um nótt. Eftir stuttan svefn á hóteli hélt FH-liðið til Zagreb ogþaðan með langferðabifreið til Karlovac. Komið var á áfangastað kl. 15, leikurinn gegn Partizan Bjelovar hófst kl. 16.15. „Það þýðir ekkert að skamma mig — ég hef skorað helminginn af mörkunum,“ sagði Jónas Magnússon, linumaður FH-liðsins, þegar FH-ing- ar komu inn í búningsklefa í leikhléi. Krol fastar með landsliði Egypta RUUD Krol, hinn hollenski landsliðsþjálfari Egypta, hefur ákveðið að fasta með leikmönnum landsliðsins, en leikmenn halda Ramadan hátið- legan á meðan liðið tekur þátt í Afríkukeppni landsliða sem fram fer í Suður-Afríku. Krol, sem er kaþólikki, sagðist gera þetta tU að skilja bet- ur hvernig leikmönnum sinum liður. Hann mun því hvorki neyta matar né drykkjar á meðan bjart er og eftír að skyggja tekur ætlar hann aðeins að snæða með leikmönnum sínum. Egypt- ar leika á morgun við Suður-Afriku og verða að sigra til að komast áfram i keppninni. íslandsmet Jóns Arnars Jón Arnar Magnússon úr UMSS setti íslandsmet í 50 metra grindahlaupi á móti í Reykjavík um helgina. Hljóp vegalengdina á 6,6 sekúndum en eldra metið, sem var 6,7 sekúndur, átti hann sjálfur ásamt Gísla Sigurðssyni, sem nú þjálfar Jón Arnar, Hirti Gíslasyni og Ólafi Guðmundssyni. Geirlaug B. Geirlaugsdóttir, Ár- manni, jafnaði á sama móti eigið Íslandsmst í 50 metra hlaupi er hún hljóp á 6,2 sek. Metið setti hún í fyrra. Geirlaug, Jóhannes Marteins- son úr ÍR og Jón Arnar halda öll til Svíþjóðar á fimmtudag þar sem þau taka þátt í alþjóðlegu móti í Gautaborg um helgina. Geirlaug og Jóhann ætla að freista þess að ná lágmarki í 60 m hlaupi fyrir Evr- ópumeistaramótið innanhúss sem verður í Stokkhólmi í byijun mars en Jón Arnar keppir um helgina í 60 m hlaupi og 60 m grindahlaupi. Um aðra helgi taka Geirlaug og Jóhannes þátt í 60 m hlaupi á norska meistaramótinu en þá verð- ur Jón Arnar enn í eldlínunni í Gautaborg, ásamt Ólafi Guðmunds- syni, þar sem þeir keppa á sænska meistaramótinu í sjöþraut. 1996 FRJALSIÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 23. JANUAR BLAÐ Vala Flosadóttir tvf- bætti IMorðurlandametið BLAÐ ALLRA LANDSMANNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.