Morgunblaðið - 23.01.1996, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 B 3
KNATTSPYRNA
Real tapaði
- þjálfarinn
rekinn
Peter Beardsley tryggði New-
castle 2:l-sigur gegn Guðna
Bergssyni og samhetjum í Bolton í
ensku úrvalsdeildinni um helgina
og er staða Newcastle áfram þægi-
leg á toppnum. Þetta var 100. mark
Beardsleys fyrir Newcastle í efstu
deild en hann lék með liðinu 1983
til 1987 og hefur verið þar á bæ
síðan 1993. Paul Kitson gerði fyrra
markið en Guðni jafnaði fyrir Bolt-
on, sem hefur aðeins fengið eitt
stig á útivelli og er sem fyrr í neðsta
sæti.
Robbie Fowler og vamarmaður-
inn Neil Ruddock gerðu sín tvö
mörkin hvor og Stan Collymore eitt
þegar Liverpool vann Leeds 5:0.
Gary Kelly, vamarmaður hjá Leeds,
fékk að siá rauða spjaldið fyrir að
btjóta á Rob Jones innan vítateigs
í stöðunni 1:0 á 60. mínútu og eft-
ir að Fowler skoraði úr vítaspyrn-
unni sem fylgdi í kjölfarið var allur
vindur úr gestunum.
Mick Harford hjá Wimbledon var
vikið af velli á 54. mínútu en lið
hans vann QPR 2:1. Norðmaðurinn
Öyvind Leonhardsen skoraði fyrir
Wimbledon í fyrri hálfleik en Mark
Hateley jafnaði þremur mínútum
eftir brottvikningu Harfords og var
það fyrsta mark hans fyrir QPR
síðan hann gekk til liðs við liðið frá
Glasgow Rangers í fyrra. Andy
Clarke gerði sigurmarkið stundar-
íjórðungi fyrir leikslok.
Middlesbrough tapaði fimmta
deildarleiknum í röð, að þessu sinni
2:1 í Southampton en heimamenn
sigmðu síðast 25. nóvember. Vam-
armaðurinn Phil Whelan í liði gest-
anna fékk að sjá rauða spjaldið
þegar 20 mínútur voru til leiksloka
og Juninho lék ekki með vegna
meiðsla en Richard Hall gerði sigur-
markið einni mínútu eftir að Whelan
fór af velli.
Alan Shearer skoraði þegar
Blackburn vann Sheffield Wedn-
esday 3:0 og hefur gert 27 mörk á
tímabilinu. Norðmaðurinn Lars Bo-
hinen og Kevin Gallagher gerðu hin
mörk meistaranna sem fóm í
fímmta sætið en svo ofarlega hafa
þeir ekki verið í vetur.
Andrei Kanchelskis tryggði
Everton 2:l-sigur gegn Arsenal
með marki sex mínútum fyrir leiks-
lok. Arsenal lék án margra fasta-
manna vegna meiðsla og leikbanna
en Ian Wright, sem var fyrirliði
fyrir Tony Adams, náði samt foryst-
unni og það með glæsilegu marki.
Eftir að Graham Stuart hafði jafnað
hafði Neville Southall nóg að gera
í marki Everton en Rússinn átti
síðasta orðið.
Chelsea vann Nottingham Forest
1:0 og hefur ekki tapað í síðustu
sex leikjum. John Spencer gerði
eina mark leiksins á 54. mínútu
eftir sendingu frá Rúmenanum Dan
Petrescu.
Þjóðveijinn Uwe Rösler skoraði
fyrir Manchester City en Dion
Dublin tryggði Coventry dýrmætt
stig í fallbaráttunni.
Aston Villa, sem hafði ekki tapað
gegn Tottenham í síðustu 13 leikj-
um, hélt uppteknum hætti og vann
2:1. Paul McGrath gerði fyrsta
mark sitt fyrir Villa í tvö ár en
þremur mínútum síðar fór boltinn
af honum í eigið mark eftir skot
frá Ruel Fox. Bæði lið lögðu áherslu
á sóknarleik en þegar 11 mínútur
voru til leiksloka og allt stefndi í
jafntefli gerði Dwight Yorke glæsi-
legt mark.
„Villa lék mjög vel,“ sagði Geriy
Francis, knattspymustjóri Spurs,
„og þetta var erfíðasti leikur okkar
í nokkum tíma.“ Aðspurður um
baráttuna um titilinn sagðist Franc-
is ekki hafa hugleitt hana en aðeins
eitt lið kæmi til greina. „Aðeins
eitt lið er í baráttunni og þannig
verður það nema 10 stig verði tek-
in af Newcastle."
Beardsley rauf 100 marka
múrinn með Newcastle
Real Madrid féll út úr spænsku
bikarkeppninni í liðinni viku
og mátti síðan þola tap í deildinni
á heimavelli um helgina, en þjálfar-
inn var rekinn í kjölfarið. Liðið er
í áttunda sæti, níu stigum frá sæti
sem veitir þátttökurétt í Evrópu-
keppni félagsliða. „Við höfum náð
botninum og það kemur að því að
ekki er hægt að veija menn leng-
ur,“ sagði Lorenzo Sanz, forseti
Real, eftir að liðið hafði tapað 2:1
fyrir nágrönnunum í Rayo Vallec-
ano, en stuðningsmenn Real púuðu
á liðið er það gekk af velli. Skömmu
síðar var Jorge Valdano rekinn.
Hann lék áður með Real en tók við
þjálfarastöðunni í fyrra.
Guilherme frá Brasilíu skoraði
fyrir gestina eftir þriggja mínútna
leik en Raul Gonzalez jafnaði í byij-
un seinni hálfleiks og eftir það
stjómuðu heimamenn ferðinni. Um
miðjan hálfleikinn gerðu vamar-
menn Real sig aftur seka um mis-
tök og Guilherme refsaði þeim með
marki sem fyrr.
Barcelona vann botnlið Valla-
dolid 1:0. Fyrirliðinn Jose Maria
Bakero skoraði skömmu eftir hlé
en Valladolid tókst ekki að nýta sér
vítaspymu undir lokin.
Gudni í þriðja sæti
Mynd/Bolton Evening News
GUÐNI Bergsson skoraðl í fyrrl lelk Bolton gegn Newcastle og aftur í seinni vlðureign IIAanna
um helglna. Hann hefur gert þrjú mörk í deildinnl á tímabllinu og er þriAji markahæstl lelkmaA-
ur Bolton en tveir menn hafa gert sín fjögur mörkln hvor. „ÞaA var ánægjulegt að skora en
ég hefAi viljaA skipta á markinu og stigl því þaA var þaA sem viA þurftum,“ sagAi GuAni vlA
MorgunblaAIA. Eftir aukaspyrnu skallaAi GuAnl boltann frá markteig í stöng og Inn.
Cantona
tryggði
Man. Utd.
sigur
Eric Cantona tryggði Manchester
United sigur á West Ham, 0:1,
á Upton Park í Lundúnum í gær-
kvöldi — hann skoraði markið eftir
aðeins átta mín. Ryan Giggs og
Andy Cole léku knettinum inn í víta-
teig hægra megin og þaðan sendi
Giggs knöttinn fyrir mark West
Ham — Cantona var við fjærstöng-
ina og sendi knöttinn upp í þaknet-
ið. Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu — og uppúr sauð í seinni
hálfleik þegar Nicky Butt, miðvall-
arspilari United, var rekinn af leik-
velli eftir gróft brot á Julian Dicks.
Hann fékk þá sína aðra áminningu.
Andy Cole mótmælti dómnum og
varð Cantona að ganga á milli —
koma i veg fyrir að Cole færi sömu
leið og Butt.
Manchester United náði að
minnka forskot Newcastle niður í
níu stig, en Newcastle á einn leik
til góða.
■ Úrslit / B6
■ Staöan / B6
Sunderland
áeftir
lan Rush
PETER Reid, knattspymu-
stjóri Sunderland, sagði eftir
markalaust jafntefli við Leic-
ester í toppbaráttu 1. deildar
í fyrradag að hann ætlaði að
reyna enn frekar að fá Ian
Rush frá Liverpool. „Ef Roy
Evans er tilbúinn að lána
hann hef ég mikinn áhuga á
að fá svo hæfileikaríkan ieik-
mann. Það yrði frábært að
fá hann að láni en þar sem
Liverpool er í baráttu um tit-
ilinn og enn með í bikar-
keppninni er ólíklegt að fé-
lagið láti hann fara.“
Rush sagði í enska dagblað-
inu News ofthe Worldá
sunnudag að veru hans hjá
Liverpool væri sennilega að
ljúka eftir 16 ára feril. „Ég
er á síðasta ári samnings mins
og það hefur ekkert verið
rætt um framhaldið. Ef
Liverpool vill ekki hafa mig
vil ég láta önnur félög vita
að ég er jafn ákafur og fyrr.“
Fiorentina fylgir AC
Milan eftir sem skugginn
Rangers
fékk skell
Allan Johnston, sem er í ung-
mennaliði Skotlands, gerði öll
mörk Hearts sem sótti Rangers heim
í skosku úrvalsdeildinni um helgina
og vann 3:0. Þetta var fyrsta tap
Rangers í deildinni í síðustu 20 leikj-
um en hinn tapleikur liðsins í deild-
inni var á heimavelli gegn Hibernian
23. september. Johnston braut ísinn
á sjöttu mínútu en þá hafði Andy
Goram, markvörður Rangers, haldið
hreinu í deildinni í 801 mínútu. Paul
Gascoigne lék ekki með Rangers
vegpia leikbanns og Ally McCoist var
frá vegna meiðsla. Liðið hefur orðið
Skotlandsmeistari undanfarin sjö ár
en nú er Celtic aðeins einu stigi á
eftir meisturunum. Hearts sigraði
síðast á Ibrox fyrir átta árum og er
í þriðja sæti, 22 stigum á eftir Rang-
ers.
Fiorentina gefur ekkert eftir í
baráttunni um meistaratitilinn
og hefur ekki tapað í síðustu átta
leikjum. Liðið vann Torínó 3:0 á
útivelli og var það fyrsta tap heima-
manna í síðustu sex leikjum. Gabri-
el Batistuta braut ísinn á 58. mín-
útu eftir gott spil við Francesco
Baiano og Anselmo Robbiati. Ba-
iano bætti öðru marki við og Bat-
istuta innsiglaði sigurinn með 13.
marki sínu á tímabilinu.
„Það er of snemmt að tala um
meistara," sagði Claudio Ranieri,
þjálfari Fiorentina, en félagið varð
síðast meistari 1969. „Bíðum og
sjáum hvar við stöndum í lok febr-
úar.“ Þessi orð eru einkennandi
fyrir Fiorentina að undanförnu
þrátt fyrir að liðið hafi fylgt AC
Milan eftir sem skugginn. Leik-
mennirnir hafa haft hljótt um sig
en vamarmaðurinn Andrea Sottil
gat ekki setið á sér eftir sigurinn.
„Fiorentina á 60% möguleika á að
verða meistari. Nefnið lið sem leik-
ur betur." Ranieri var allt annað
en ánægður með þessi ummæli.
„Sottil segir að við eigum 60%
möguleika. Það þýðir að hann fylg-
ist með næsta leik úr stúkunni.
Mamma mia, ég verð að nota vik-
una í að ná leikmönnum mínum
niður á jörðina."
Fiorentina er stigi á eftir AC
Milan sem vann Padova 1:0 á San
Siro-leikvanginum. George Weah lék
ekki með heimamönnum þar sem
hann er með Líberíu í Afríkukeppn-
inni og íjarvera hans kom niður á
liðinu sem fyrr. Engu að síður skap-
aði það sér nokkur færi og átti m.a.
skot í slá áður en Roberto Baggio
tryggði sigurinn með því að skora
úr vítaspymu á 56. mínútu eftir að
brotið hafði verið á Dejan Savicevic.
Parma vann Atalanta 2:0 og er
í þriðja sæti, þremur stigum á eftir
AC Milan. Gabriele Pin, sem var
fastamaður í liði heimamanna í
fyrra, lék níunda leik sinn á tímabil-
inu og gerði frábært mark af 30
metra færi á 37. mínútu en Aless-
andro Melli bætti öðru marki við
eftir undirbúning Gianfranco Zola
rétt áður en flautað var til leikhlés.
Pietro Vierchowod skoraði á síð-
ustu mínútu og tryggði meisturum
Juventus 3:3 jafntefli gegn Cremon-
ese á útivelli. Juve er í fjórða sæti
með 29 stig.
Roma vann Sampdoria 3:1 og
gerði Abel Balbo öll mörk heima-
manna.