Morgunblaðið - 23.01.1996, Síða 5
4 B ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 B 5
KORFUKNATTLEIKUR
Basl hjá INIjarðvíking-
um gegn Valsmönnum
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Það kann aldrei góðri lukku að
stýra að byija ekki með sitt
sterkasta lið inná, þó svo það séu
Njarðvíkingar sem
mæta Val. Þetta kom
á daginn á sunnu-
dagskvöldið þegar
íslandsmeistarar
Njarðvíkur heimsóttu Val að Hlíðar-
enda. Rondey Robinson var sá eini
úr venjulegu byijunarliði meistar-
anna sem hóf leikinn og hinir leik-
reyndu Njarðvíkingar sem komu síð-
ar inná virtust ekki finna sig í því
hlutverki og voru lengi í gang. Sum-
ir myndu sjálfsagt segja að þeir hafi
aldrei ferið í gang. Njarðvíkingar
höfðu það þó í lokin og sigruðu 85:79.
En það var enginn afgangur af
sigrinum hjá UMFN. Valsmenn voru
75:71 yfir er 4 mínútur voru eftir
og höfðu í fullu tré við meistarana
og það var fyrst og fremst þeirra
eigin klaufaskapur sem gerði það að
verkum að þeir töpuðu. Roland Bay-
less, sem annars átti stórgóðan leik,
misnotaði tvívegis skot og Bjarki
Guðmundsson bætti um betur og fór
hræðilega með ijögur færi.
Leikurinn var í jámum allan fyrri
hálfleikinn en í lok hans og upphafi
þess síðari komust Njarðvíkingar í
44:61 og munaði þar mestu að þeir
tóku að leika vöm, pressuðu hálfan
völlinn og breyttu síðan yfir í svæðis-
vöm en létu þó Frirðik elta Bayless.
Svo sigldi allt í strand hjá Njarð-
vík á sama tíma sem Valsmenn tví-
efldust og Bayless fór á kostum,
bæði í sókn og vöm. 27 stig Vals
gegn 6 stigum Njarðvíkinga urðu til
þess að Valur komst 71:67 yfir og
eftir það var mikil spenna en á síð-
ustu fjórum mínútunum gerðu meist-
ararnir 14 stig gegn 4 stigum Vals.
Það vom erlendu leikmennirnir
sem settu mestan svip á leikinn.
Bayless var frábær hjá Val, en gerði
dýr mistök undir lokin, og hjá Njarð-
vík átti Rondey mjög góðan síðari
hálfleik og gerði þá meðal annars
26 stig. Páll Kristinsson var eini
Njarðvíkingurinn sem lék eðlilega í
fyrri hálfleik.
KR að koma til
Eg er sáttur við að við emm farn-
ir að spila eins og lið, skotin
em farin að rata rétta leið og varnar-
leikurinn er góður,“
Stefán sagði Hermann
Stefánsson Hauksson eftir 93:80
skrifar sigur KR á Breiða-
bliki á Seltjamamesi
á sunnudaginn.
Leikurinn fór rólega af stað og fyrstu
stigin komu eftir tæpar 3 mínútur
og 7 árangurslausar sóknir. KR-ing-
ar náðu síðan að hrista Blikana af
sér um miðjan hálfleik eftir þriggja
stiga syrpu en Blikar mættu vígreif-
ir til síðari hálfleiks og tókst með
góðri vöm að saxa forskotið niður í
7 stig á fimm mínútum. En það tók
sinn toll auk þess sem Vesturbæing-
ar tóku sig saman í andlitinu og juku
forystuna á ný og klámðu leikinn.
KR-ingar sýndu oft skemmtileg
tilþrif og mátti merkja að liðið sé
að ná fyrri styrk, þó mótstaðan hafi
ekki verið mikil nú. Ingvar Ormars-
son var í miklum ham, Hermann var
öflugur, Jonathan Bow er að ná sér
eftir uppskurð og sýndi ágæta takta
eins og 3ja stiga skyttan Ólafur Jón
Ormsson en þeir tóku 6 fráköst hvor.
„Þeirra sóknarleikur var sneggri
og við gerðum of mörg mistök. Þeg-
ar við náðum að minnka forskotið
gátum við ekki meir,“ sagði Blikinn
Michael Thoele. „Margir okkar voru
daprir eftir tapið gegn Val og við
vildum sárlega vinna, fengum reynd-
ar tækifæri til þesS en þeir vom
betri. Nú er bara að reyna að ná í
skottið á næstu liðum til að komast
í úrslitakeppnina og það er nóg eft-
ir.“ Thoele, Halldór Kristmannsson
og Birgir Mikaelsson voru atkvæða-
fyrir Hauka. Bræðumir Pétur og Jón
Arnar Ingvarssynir vom einnig
sterkir.
Góður sigur Tindastóls
Tindastóll sótti góðan sigur til
Akureyrar er liðið lagði Þór að
velli 76:71 um helgina. Leikurinn
■■■■■■ einkenndist af
ReynirB. tröppugangi, en sig-
Eiríksson ur Tindastóls var
skrifar sanngjam. Jafnt var
fra Akureyn á komjð með liðunum
framan af leiknum en um miðjan
hálfleikinn kom góður sprettur
Tindastóls og náði liðið þá 16 stiga
forskoti. Þegar flautað var til hálf-
leiks var munurinn þrettán stig og
virtist stefna í öraggan sigur gest-
anna, þar sem þeir höfðu leikið ágæt-
lega en Þór að saman skapi illa.
Þórsarar hafa greinilega fengið
vel valin orð í eyra frá þjálfara sínum
í hálfleik því þeir komu grimmir til
leiks, náðu að saxa á forskot Tinda-
stóls og um miðjan hálfleikinn var
munurinn einungis eitt stig. Eftir
þetta var aldrei mikill munur á liðun-
um en Tindastóll hafði þó ávallt for-
ystuna, lék skynsamlega á lokamín-
útunum og uppskar sætan sigur.
Tindastóll átti góða kafla í leiknum
og var þá mjög góð hreyfing á leik-
mönnum liðsins sem gerði það að
verkum að þeir áttu auðvelt með að
opna vöm Þórsara. Þeirra bestir voru
Láms Pálsson, Torrey John og Pétur
Guðmundsson. Þórsarar áttu mjög
köflóttan leik og komust hvorki lönd
né strönd gegn Tindastóli á stundum
og virtist leikmönnum liðsins þá fyr-
irmunað að koma boltanum rétta
leið. Þeir náðu svo góðum köflum inn
á milli, en það dugði ekki til að þessu
sinni. Bestir Þórsara vom Fred Will-
iams, Konráð Óskarsson og Kristinn
Friðriksson.
Morgunblaðið/Bjarni
RONDEY Robinson var bestur NJarðvíklnga þegar meistar-
arnlr mörðu sigur gegn baráttuglöðu Valsliði.
mestir með góða nýtingu auk þess
sem Agnar Olsen tók syrpu eftir hlé.
Nýting liðsins á fæmm var góð og
11 af 16 þriggja stiga skotum rötuðu
rétta leið.
Baráttusigur
Grindvíkinga
Þrátt fyrir að vera nánast útlend-
ingslausir unnu Grindvíkingar
sætan sigur á ÍR, 71:65. Leikurinn
^■■■B var heldur bragð-
Frímann daufur > fym half-
Ólafsson leik. Grindvíkingar
skrifarfrá tefldu fram nýjum
Grindavík leikmanni, Rodney
Dobard, sem kom inn í liðið eftir að
hafa verið á einni æfingn með því
og það sást á leik hans að nokkuð er
í land að hann falli að leikstíl liðsins.
„Það væri mjög ósanngjamt að
dæma hann af þessum Ieik því hann
er nánast að koma úr flugvélinni og
við munum nota það frí sem er fram-
undan til að æfa með honum og þá
er hægt að meta hann betur, en ég
hef engar áhyggjur," sagði Friðrik
Rúnarsson þjálfari Grindvíkinga.
Það var hins vegar í seinni hálf-
leik sem fjör fór að færast í leikinn.
Heimamenn voru yfir fram á sjöundu
mínútu þegar ÍR jafnaði 48:48 og
komst síðan í 57:52. Þá fannst Frið-
riki þjálfara nóg komið, bað um leik-
hlé og kippti Dobard út en setti Pál
Axei inn. Páll þakkaði traustið og
gerði strax körfu og jafnaði síðan
57:57 og Grindvíkingar náðu aftur
yfirhöndinni. Leikmenn ÍR era þekkt-
ir fyrir annað en að gefast upp, náðu
að minnka muninn í tvö stig og unnu
boltann þegar 32 sekúndur vom eft-
ir. Þeir höfðu því möguleika á að
jafna eða vinna með 3ja stiga körfu
en misstu hinsvegar boltann og
heimamenn út um leikinn.
Guðmundur og Páll léku mjög vel
Gunnlaugur
Jónsson
skrifar
frá Akranesi
fyrir heimamenn ásamt þeim Helga
og Hirti. IR-liðið var nokkuð jafnt.
„Það var dálítið súrt að tapa þess-
um leik því við fundum loksins okkar
gamla leik. Við áttum góða mögu-
leika þama í lokin en vomm óheppn-
ir. Við emm vonandi að rífa okkur
upp eftir slakt gengi að undan-
fömu,“ sagði Gunnar Sverrisson lið-
stjóri ÍR.
Haukar sigruöu
í „forleiknum"
Haukar sigmðu Skagamenn,
89:78, í „forleik" fyrir bikarúr-
slitaleikinn þar sem þessi lið mætast
um næstu helgi.
Leikurinn var ekki
vel leikinn og virtist
sem leikmenn væru
með hugann við úr-
slitaleikinn. Haukar tóku leikinn
strax í sínar hendur og náðu góðu
forskoti og það leit út fyrir stórsigur
þeirra þar til Dagur Þórisson kom
inná hjá heimamönnum. Á stuttum
tíma gerði hann 20 stig, þar af þijár
þriggja stiga körfur, sem hefur ekki
verið hans sterkasta hlið. í hálfleik
höfðu Haukar forystu, 50:38.
Haukar byijuðu seinni hálfleik vel
og náðu tuttugu og eins stigs for-
skoti, 65:44, en heimamenn náðu
góðum kafla og minnkuðu muninn í
10 stig, 70:60. Nær komust þeir
ekki og Haukar sigmðu með 11 stiga
mun.
Skagamenn verða að spila miklu
betur og spila meira sem liðsheild
ef þeir ætla sér að sigra Hauka um
næstu helgi. Bjarni Magnússon og
Haraldur Leifsson náðu sér ekki á
strik. Dagur Þórisson átti fínan leik
en Milton Bell var atkvæðamestur
og var mikill slagur milli hans og
Jason Willifords sem gerði 23 stig
Keflvíkingar sterkari
Hingað til hefur nú verið mjög
erfitt að koma hingað og ég
er því mjög ánægður með að fara
■■■ héðan með 13 stiga
Theodór si&u1- > farteskinu,“
Þórðarson, sagði Jón Kr. Gísla-
Borgarnesi son, þjálfari og leik-
maður Keflvíkinga,
eftir að Keflavík hafði sigrað heima-
menn 103:90. „Hlutirnir gengu mjög
vel upp hjá okkur í fyrri hálfleik.
Falur náði að keyra upp hraðann og
hann skilaði mörgum stoðsending-
um. Það var líka mjög mikilvægt að
byija vel eftir leikhlé og ná 20 stiga
forskoti. Mér finnst liðið mitt vera á
réttri leið, við höfum sýnt nokkuð
stöðugan leik eftir áramót.“
„Keflvíkingar náðu að spila sinn
leik,“ sagði Tómas Holton, þjálfari
og leikmaður Skallagríms. „Þeir
fengu að leika á sínum hraða, taka
sín skot og þeir fengu að gera það
sem þeir vildu. Við tókum of seint
við okkur og þá vár munurinn orðinn
of mikill til þess að hægt væri að
vinna hann upp og því fór sem fór.“
Leikurinn var jafn fyrstu 5 mínút-
umar en síðan náðu Keflvíkingar að
keyra upp hraðann og yfirspila
heimamenn um stund og náðu 15
stiga forskoti — höfðu 17 stiga for-
ystu í leikhléi, 58:41.
Keflavíkurhraðlestin kom síðan á
fullri ferð inná eftir leikhlé og heima-
menn máttu hafa sig alla við að
halda í við þá. Heimamenn voru þó
alls ekki allir á hælunum í þessum
leik. Þeir Grétar Guðlaugsson og
Bragi Magnússon léku mjög vel og
gáfu Keflvíkingum ekkert eftir hvað
hraða og snerpu varðaði og Alexand-
er stóð einnig fyrir sínu. Liðið allt
tók síðan vel við sér undir lok leiks-
ins og náði að minnka muninn í 10
stig þegar 2 mínútur voru eftir. En
það var of seint og Keflvíkingar sigr-
uðu því af öryggi.
Hjá Keflavík vom þeir Lenear
Bums, Guðjón Skúlason, Falur Harð-
arson og Albert Óskarsson bestir.
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Bjami
GRÓTTUMENNIRNIR Róbert Rafnsson og Juri Sadovsklj stöðva Valsmanninn Skúla Gunnsteinsson,
Skúli, lék mjög vel f sókn og vörn.
Létt hjá Valsmönnum
VALSMENN unnu sannfærandi og
léttan sigur á Gróttu í ieik iiðanna
á Seltjarnarnesi á sunnudags-
kvöldið. Þegar upp var staðið
skildu átta mörk liðin að, lokatölur
voru 30:22.
Valsmenn höfðu undirtökin frá byij-
un, leiddu með þremur mörkum í
hálfleik og kláruðu leikinn á fyrstu tíu
mínútum síðari hálf-
Stefán leiksins, þegar þeir náðu
Eiríksson sjö marka forskoti.
skrifar Gróttumenn náðu með
góðum leikkafla að laga
stöðuna nokkuð, gerðu fjögur mörk í
röð, en lengra komust þeir ekki og Vals-
menn léku af öryggi síðustu mínúturnar
og sigmðu með átta mörkum.
Jón Kristjánsson þjálfari Vals sá aldr-
ei ástæðu til að skipta sér inn á í leikn-
um, og Sigfús Sigurðsson sat á bekknum
lengst af. Skúli Gunnsteinsson átti mjög
góðan leik í sókn og vörn, Valgarð Thor-
oddsen lék frábærlega í horninu og skor-
aði sex stórglæsileg mörk og Davíð Ól-
afsson stóð sig vel í hraðaupphlaupun-
um. Ólafur Stefánsson lék vel, átti marg-
ar skemmtilegar linusendingar og Dagur
var traustur. Þá lék Guðmundur Hrafn-
kelsson vel í markinu, varði 17 skot.
Hjá Gróttu var Juri Sadovski marka-
hæstur með 10 mörk, þar af sjö úr vít-
um. Sóknarleikur Gróttumanna var ein-
hæfur og oft ráðleysislegur, enda var
við óhemju sterka vörn að etja. Varnar-
leikinn leystu þeir vel af hendi í fyrri
hálfleik, en gekk illa að hemja Vals-
mennina í þeim síðari.
Rammur endahnútur KA-manna
Leikir KA og FH hafa löngum verið
harðir og spennandi og viðureign
liðanna á Akureyri sl. sunnudagskvöld
uppfyllti þessi skilyrði
lengst af. Harkan var
sannarlega til staðar og
spennan varði allt þar
til um 10 mínútur voru
til leiksloka. Þá var staðan 22:21 en
frábær endasprettur KA færði liðinu
ömggan sigur, 30:24. Toppsætið er því
enn norðanmanna.
Gríðarleg handavinna í vörnum
beggja liða einkenndi fyrstu mínúturn-
ar. Hafnfirðingar skoruðu eftir þijár og
hálfa mínútu og heimamenn jöfnuðu
mínútu síðar. Eftir tíu mínútur var stað-
an 3:4 og ekki útlit fyrir neinn markal-
eik. Varnirnar voru í aðalhlutverki og
oft spilað gróft en mesta furða hvað
dómararnir vom sparir á refsingar.
KA-menn náðu 3ja marka forskoti en
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar frá
Akureyri
FH-ingar jöfnuðu í 10:10 eftir að Duran-
ona hafði misnotað tvö vítaskot.
Staðan var jöfn í leikhléinu, 12:12,
og sama baráttan hélt áfram í seinni
hálfleik. Líkt og í upphafi var lítið skor-
að og staðan 16:16 eftir 10 mínútna
leik. Duranona lék sem indíáni í vöm
KA og einbeitti sér að Guðjóni sem
hafði verið dijúgur. Kúbumaðurinn
sýndi lipra takta í hlutverkinu, sem yfir-
leitt hefur hlotnast litlum og léttum
hornamönnum. Patrekur hrökk ræki-
lega í gang og skoraði fimm mörk í röð
en FH-ingar héldu enn haus fram í
miðjan hálfleikinn þegar staðan var
19:18. Þá urðu hvörf í leiknum og mark-
ast þau af innkomu Alfreðs þjálfara
Gíslasonar. Sá gamli tölti í vömina við
mikil fagnaðarlæti og batt hana saman
eins og svo oft áður í vetur. Stemmning-
in í liðinu og á áhorfendapöllum magn-
aðist og fjörkippurinn skilaði góðu for-
skoti, 25:21, þegar 6 mínútur voru eft-
ir. Alfreð skynjaði að sigurinn var í
höfn og fór aftur út af eftir að hafa
gefið tóninn í 8 mínútur. Það var nóg.
Lærisveinarnir luku ætlunarverkinu
með prýði og KA sigraði með sex marka
mun.
„Þetta var hörkuleikur og við vomm
lengi að hrista þá af okkur. En sjálfs-
traustið er í lagi, við vorum betri og
mér finnst gott að vinna FH með sex
marka mun,“ sagði Patrekur Jóhannes-
son eftir leikinn. Hann var með sjálfs-
traustið í lagi, átti stórleik í vörn og
sókn, skoraði 12 mörk og þar af 8 í
seinni hálfleik. Jóhann G. sýndi líka enn
einu sinni hvers vegna hann er alltaf
að banka á dyrnar hjá Þorbirni Jenssyni
og Guðmundur Arnar varði vel í seinni
hálfleik. Hjá FH voru bræðurnir Magnús
markvörður og Guðjón fyrirliði langbest-
ir. Liðið er ekki eins sterkt og það sýn-
ist á pappírnum og e.t.v. er komin þreyta
í nokkra leikmenn sem lifa á fornri
frægð. Krafturinn var þó mikill í 50
mínútur eða svo en meira þarf til.
Dapurt í Höllinni
KR tók á móti ÍR í Höllinni á sunnu-
dag og beið þar lægri hlut í tilþrifa-
litlum og leiðinlegum leik. ÍR vann sann-
gjamt 31:24 þrátt fyrir
að hafa átt í þó nokkram
erfíðleikum framan af.
ÍR-ingar byijuðu leik-
inn betur og flest benti
til að þeir myndu ekki eiga í neinum
erfiðleikum með KR-ingana. Þegar leið
á fyrri hálfleikinn komu þó KR-ingar
betur inn í leikinn og var þar mest slöpp-
um leik ÍR að þakka frekar en góðum
leik KR.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Sindri
Bergmann
Eiðsson
skrifar
„Það er mjög erfitt að spila á móti
liði eins og KR sem hangir á boltanum
og spilar langar sóknir. Hættan við að
falla niður á sama plan er alltaf fýrir
hendi, og við gerðum það. En við náðum
okkur á strik og ég er ánægður með
sigurinn,“ sagði Jóhann Ásgeirsson fýr-
irliði IR eftir leikinn.
Leikurinn var annars litlaus og leiðin-
legur. Leikmenn liðanna virtust ekki
hafa of mikinn áhuga á að spila fallegan
handbolta. Það voru þó öðm fremur
ungu strákarnir í ÍR sem skópu sigur-
inn. Daði Hafþórsson, tvítugur strákur,
spilaði vel, sem og Ragnar Óskarsson,
átján ára piltur, átti góðan leik og skor-
aði 5 mörk. í liði KR var Sigurpáll Aðal-
steinsson bestur.
Vinnum ekki í viðtengingarhætti
Slök byijun Yíkinga gegn Stjömunni
á laugardaginn skipti sköpum í
23:16 tapi þeirra fyrir heimamönnum í
Garðabænum. „Fyrstu
tíu mínúturnar slógu
okkur útaf laginu og síð-
an tók við hik og ótti en
ef við hefðum nýtt færin
strax eftir hlé hefði ýmislegt getað gerst.
Hins vegar vinnastjeikir ekki í viðteng-
ingarhætti," sagði Árni Indriðason þjálf-
ari Víkinga.
Það gekk hvorki né rak hjá Víkingum
í upphafi: Ingvar Ragnarsson markvörð-
ur Stjörnunnar varði 7 skot, Axel Stef-
ánsson tvö víti og þrisvar hitti boltinn
stangirnar á meðan Reynir Þór Reynis-
son í marki Víkings varði varla skot.
Vöm Garðbæinga hrökk síðan í gang
og ítrekaðar tilraunir Víkinga til að gefa
á Birgi Sigurðsson á línunni gengu sjald-
an upp.
Strax eftir hlé fór Reynir Þór í gang
og Víkingum tókst að minnka muninn
í 13:10 og reyndar fengu þeir tækifæri
til að gera enn betur. En Ingvar varði
sitt fyrsta skot á 11. mínútu og á tíu
mínútum snem Stjömumenn dæminu
við og náðu sjö marka forskoti. Eftir
það var sigurinn nokkuð vís.
„Við unnum á vörninni og baráttunni
en þurftum að leggja okkur fram eins
og þarf í öllum leikjum. Við erum að
reyna að vinna leiki með því að fá ekki
á okkur rnörk," sagði Ingvar markvörð-
ur sem átti stóran þátt í sigrinum. Konr-
áð Olavson var bestur og Sigurður
Bjamason ágætur í sókninni.
Lukkan var ekki með Víkingum í
upphafi og það var á brattan að sækja
fyrir þá allan leikinn. Birgir á línunni
barðist vel fyrir hveijum bolta en hans
var vel gætt. Árni Friðleifsson var
óhræddur og tók oft af skarið.
Hrunadans
í Drammen
LEIKMENN UMFA hlutu einhverja þá háðulegustu útreið sem
íslenskt félagslið hefur hlotið í seinni tíð er þeir stigu á stokk í
Drammenhöllinni síðastiiðinn sunnudag í þeim tilgangi að glíma
við frændur sfna í norska liðinu Drammen. Ekki stóð steinn yfir
steini ítaugaveikluðu liði Mosfellinga ífyrri hálfleik og hver
byrjendamistökin ráku önnur. Meðalsterkt norskt félagslið nýtti
sér veikleika íslendinganna til fullnustu og keyrði hreinlega yfir
gesti sína og þegar skundað var til skrafs og ráðagerða að lokn-
um fyrri hálfleik stóðu leikar 13:3. Heldur batnaði leikur Mosfell-
inga í þeim síðari, enda gat hann ekki versnað, og að leikslokum
voru lokatölurnar 22:14 fyrir heimamenn, raunveruleikinn sem
ekki var framhjá litið.
Ivar
Benediktsson
skrifar frá
Drammen
Eftir að leikmenn beggja fylkinga
höfðu verið kynntir til leiks
með pompi og pragt undir takt-
fastri rokktónlist frá
Tinu Tumer var sem
leikmenn UMFA
héldu að þeir væru
mættir á tónleika en
ekki til handboltaleiks. Geir Out-
storp skoraði fyrsta mark heima-
manna við gríðarlegan fögnuð
heimamanna og ekki var gleði
frænda vorra minni er Ingimundur
Helgason lék fyrstu feilnótu gest-
anna er hann lét Frode Scheie
markvörð veija slakt vítakast. Þar
með var ballið byijað og segja má
að gestirnir hafi verið áhorfendur
að þeim dansleik þar sem eftir lifði
fyrri hálfleiks.
Drammen-liðið lék ákveðna flata
vöm eins og við var búist en leik-
menn Aftureldingar vora værakær-
ir í sóknaraðgerðum sínum og léku
langt frá henni og sóttu nær ekk-
ert að henni. Heldur var reynt að
skjóta máttlitlum skotum utan af
velli og knötturinn sendur samheija
á milli með lausum sendingum sem
varnarmenn Drammen lásu auð-
veldlega og nýttu sér með því að
keyra hraðaupphlaup á gesti sína.
Nærri helmingur marka Drammen-
liðsins í fyrri hálfleik var gerður
úr hraðaupphlaupum og það sem
ljótt var að sjá var að leikmenn
UMFA fylgdu hraðaupphaupunum
lítið eftir heldur horfðu á þau eins
og eitt undur veraldar. Auk þeirra
veikleika sem að framan eru taldir
vom leikmenn UMFA að fá dæmd-
an á sig ruðning, skref, ólöglegar
blokkeringar, þeir voru að detta
með knöttinn án þess að nokkur
andstæðingur væri í seilingarfjar-
lægð, boltanum var kastað oftar
en einu sinni út af í stað þess að
senda hann á samheija. Þá var
vamarleikur UMFA ráðleysislegur
og markvarslan vart merkjanleg
þannig að Norðmenn sátu að öllum
þeim veitingum sem þeir gátu torg-
að á meðan hrunadansinn var Mos-
fellinga.
Fyrsta mark UMFA gerði Páll
Þórólfsson eftir 11,50 mínútna leik
en þá höfðu Norðmenn gert fimm
fyrstu mörkin. Bjarki Sigurðsson
skoraði annað mark UMFA þegar
fimmtán mínútur voru eftir af hálf-
leiknum og tólfta sóknin var á enda
- staðan þá 8:2. Norskur blaðamað-
ur sem sat hjá undirrituðum á með-
an á leiknum stóð sagði er hann
hristi nær af sér höfðið yfir döprum
leik UMFA: „Hvað er að gerast?
Getur liðið ekki meira en þetta?“
Bjarki lagaði síðan stöðuna úr 12:2
í 12:3 en hálf sjötta mínúta var til
leikhlés og leikmenn Drammen
sýndu miskunn sína með því að
gera aðeins eitt mark á þeim mínút-
um sem liðu fram að því.
Síðari hálfleikurinn hófst ekki
gæfulega fyrir leikmenn UMFA og
allt virtist stefna í sama farið.
Drammen liðið náði ellefu marka
forskoti að loknum 5 mínútum,
16:5. En þá hristu leikmenn UMFA
loks úr sér taugaveiklunina og
vandræðaganginn og fóra að leika
hraðari og árangursríkari sóknar-
leik, nær vörn Drammen en áður
og tókst að opna hana laglega hvað
eftir annað og munurinn minnkaði
smátt og smátt. Þá var bragðið á
það ráð í vörninni, sem skipti einn-
ig um ham, að taka Frode Hagen,
skyttu Drammen, úr umferð og bar
það tilætlaðan árangur, einkum
Þekktum styrk og
veikleika UMFA
Við höfðum farið mjög yfir leik
UMFA fyrir leikinn og þekktum
vel styrk þeirra og veikleika," sagði
Kent Anderson, þjáifari Drammenl-
iðsins. „Markmið okkar var að stöðva
Bjarka Sigurðsson og koma í veg
fyrir sendingar inn á Róbert á lín-
unni. Þeir eru að mínu mati lykil-
menn liðsins. Ég færði minn sterk-
asta varnarmann til í vörninni og lét
hann fylgja Bjarka og honum fórst
það vel úr hendi. En ég er ánægður
með leikinn og ég tel þetta vera
annan besta leik okkar á tímabilinu,
sá besti var gegn París St Germain
í síðustu umferð.
Þrátt fyrir átta marka forskot
verður við ramman reip að draga í
síðari leiknum á íslandi. En ég tel
möguleika okkar nokkuð góða.“
Spenna myndaðist
„Ég get ekki sagt að leikur þeirra
hafi komið okkur í opna skjöldu. Við
höfðum séð leiki með þeim bæði
gegn Parísarliðinu í síðustu umferð
framan af. Er þijár mínútur lifðu
af leiknum var staðan orðin 20:14,
en með mjög óvönduðum lokakafla
tókst ekki að gera eins gott úr þeirri
stöðu sem upp var komin og Norð-
menn fögnuðu innilega átta marka
sigri.
Drammen liðið leikur sterkan
vamarleik þar sem leikmenn vinna
mjög vel saman, en sóknarleikur
þeirra er hins vegar ekki ýkja öflug-
ur. Þeir leika fremur langar sóknir
og lentu m.a. í því í síðari hálfleik
að fá í tvígang dæmda á sig töf.
Liðið er langt frá því að vera jafn
öflugt og tölurnar gefa til kynna
og ljóst að það er ekkert topplið á
íslenskan mælikvarða, en það er
UMFA ekki heldur.
Einar Þorvarðarson og lærisvein-
ar hans eiga vandasamt verkefni
fyrir höndum á fimmtudagskvöldið
og ljóst að algjör toppleikur verður
að nást eigi að vera möguleiki að
velgja Drammenliðinu undir ugg-
um. Sú von er veik en leikurinn er
ekki búinn fyrr en flautað hefur
verið til leiksloka. Róbert og Páll
voru skástir Mosfellinga í síðari
hálfleik, þá átti Jóhann Samúelsson
þokkalegan sprett, en allir eiga leik-
menn það sammerkt að þeir mega
ekki gleyma þessum leik - hann
er víti til varnaðar.
og gegn Elveram í deildinni nýlega.
Við vorum bara að gera mikið af
byijendamistökum. Þegar það fór að
gerast myndaðist mikil spenna hjá
öllum leikmönnum sem erfitt var að
rífa sig upp úr. Þá vorum við ragir
við að skjóta á markið. Síðari hálf-
leikur var mun betri lengst af. En
þetta er ekki búið,“ sagði Bjarki Sig-
urðsson.
Hryllilegur fyrri hálfleikur
„Við lékum hryllilegan fyrri hálf-
leik og þar tapaðist þessi leikur.
Staðreyndin er sú að vandamál okk-
ar í hveijum leik er það að bara einn
og tveir leikmenn ná að leika vel og
það er slæmt,“ sagði Einar Þorvarð-
arson, þjálfari UMFA. „Minn skiln-
ingur er sá að það hafi verið pressa
og streita í liðinu sem hafði áhrif og
menn urðu geysilega hræddir. Þetta
lið nær engum árangri í svona leik
með þessum hætti heldur verður að
fara í leikina af krafti. Við súpum
seyðið af því nú.“
FOI_K
UMFA átti tuttugu og þijár
sóknir í fyrri hálfleik og gerði sem
kunnugt er aðeins þtjú mörk. Til
marks um um sóknargetu Mosfell-
inga í fyrri hlutanum má nefna að
Frode Scheie markvörður
Drammen varði einungis þijú skot
á þessum tíma, eitt vítakast, eitt
hraðaupphlaup og eitt skot eftir
gegnumbrot.
■ Á sama tíma þá áttu Dramm-
enbúar tuttugu og fjórar sóknir og
gerðu þrettán mörk. í síðari hálf-
leik var gerðu leikmenn UMFA ell-
efu mörk úr tuttugu og einu upp-
hlaupi og Norðmenn níu mörk úr
tuttugu sóknum.
■ FRODE Scheie varði alls fjögur
af fimm vítaköstum UMFA í leikn-
um, tvö frá Bjarka Sigurðssyni
og tvö frá Ingimundi Helgasyni.
■ DRAMMENLIÐIÐ er skipað
sex leikmönnum sem hafa verið að
leika með norska landsliðinu á síð-
ustu misserum. það eru þeir Glenn
Solberg, Frode Hagen, Svein
Heim Bjerr, Marius Riise, Geir
Oustorp og Knut Jakobsen.
■ HVERT sinn sem leikur
Drammen og UMFA var stöðvaður
voru lög leikin af plötum. Mesta
bar á ylhýrum norskum ballöðum
en einu sinni er leikurinn var stopp-
aður og leikmenn UMFA sáu ekk
til sólar glumdi í hátalarakerfi húss
ins, lagið úr kvikmyndinni Life o
Brian, Always look at the brigh
side of life.., eða ævinlega skal liti
á björtu hliðar lífsins. Norsk kald-
hæðni eða hrein tilviljun?
■ AXEL Stefánsson markvörðui
Stjörnunnar skelfdi vítaskýttui
Víkinga á laugardaginn. Víkingai
fengu þijú vítaskot, tvö varði Axe.
en eitt fór yfir.
■ SIGURÐUR Bjarnasoi
Stjörnumaður lék aðeins í sókninr
gegn Víkingum á laugardaginr
Gömul úlnliðsmeiðsl tóku sig up
og að sögn Sigurðar mun það tak
hann tíma að ná sér að fullu.