Morgunblaðið - 23.01.1996, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.01.1996, Qupperneq 8
TENNIS Táning- amir í sviðs- Ijósinu IFM KORFUKNATTLEIKUR Chicago þarf fimm sigra til að jafna met Lakers Risaslagur Reuter SHAQUILLE O’Neal og félagar hans í Orlando höfðu betur í viöureigninnl við melstara Houston í fyrrlnótt og slgruöu 97:96. O’Neal gerAI 29 stlg, en Hakeem Olajuvuon, sem llggur hér f gólfinu, var stigahæstur helmamanna með 30 stlg. MICHAEL Jordan og félagar hans hjá Chicago Bulls halda áfram sigurgöngu sinni í NBA- deildinni. Nú var það Detroit sem var lagt að velli, 111:96, f Detroit. Þetta var 11. sigur liðs- ins í röð og hefur það nú unnið 34 leiki og tapað aðeins þrem- ur. Jordan gerði 36 stig og Scottie Pippen kom næstur með 22 stig. Bulls þarf nú að- eins fimm sigra í viðbót til að jafna met Los Angeles Lakers frá því 1972 er liðið byrjaði tíma- bilið, 39-3. Jordan sagði eftir leikinn að þessi árangur Chicago þýddi einfald- lega góða byrjun á tímabilinu. „Við erum ekkert stórlið enn. Við verðum að sjá til hvemig við endum tímabil- ið, það er það sem skiptir máli. Við höfum ekki gert neitt ennþá,“ sagði Jordan. Orlando gerði góða ferð til Houst- on og sigraði með eins stigs mun, 97:96. .Shaquille O’Neal gerði 29 stig og Penny Hardaway 28. Hake- em Olajuwon var stigahæstur heimamanna með 30 stig. Rik Smits gerði 16 af 24 stigum sínum í fyrsta leikhluta og Reggié Milter 23 fyrir Indiana sem vann Washington 106:96 á heimavelli. David Robinson setti niður 23 stig og Brad Lohaus 18 fyrir San An- tonio Spurs sem vann Philadelphiu 118:88. Robinson hitti úr 10 af 12 skotum sínum utan af velli og tók átta fráköst. Jerry Stackhouse var með 20 stig og Weatherspoon 17 fyrir Philadelphiu. James Robinson setti persónulegt met á tímabilinu með því að gera 22 stig fyrir Portland sem vann Cle- veland 88:81. Þetta var áttundi sigur liðsins í síðustu tíu leikjum. Danny Ferry gerði 29 stig fyrir Cleveland og setti persónulegt stigamet. Gary Payton gerði 29 stig og Shawn Kemp 26 er Seattle sigraði Dallas 108:101. George McCloud var með 26 stig og Jason Kidd 22 fyrir Dallas. Charles Barkley, sem lék aðeins í 28 mínútur, var með 22 stig og tók 13 fráköst er Phoenix sigraði Sacramento 111:97. Þetta var fyrsti sigur liðsins undir stjórn nýja þjálf- arans Cottons Fitzsimmons. Damon Stoudamire gerði 23 stig fyrir nýliða Toronto í 97:95 sigri gegn Boston. Rick Fox var með 20 stig fyrir Celtics, sem hefur tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum. Grizzlies lagAi Knlcks Nýliðarnir í Vancouver Grizzlies sigruðu New York Knicks 84:80 á heimavelli sínum aðfaranótt sunnu- dags. Greg Anthony og Bryant Ree- ves gerðu 14 stig hvor fyrir Grizzli- es, sem unnu annan leikinn af síð- ustu sjö. Grant Long var með 20 stig fyrir Atlanta sem vann Miami Heat 98:78. Hittni Miami var afar slök og sem dæmi um það rötuðu aðeins fimm skot af 20 utan af velli ofan í körf- una í þriðja leikhluta, eða 25% nýt- ing sem er það lakasta hjá liði í ein- um leikhluta í NBA-deildinni í vetur. Latrell Sprewell setti niður 20 stig fyrir Golden State Warriors sem sigraði Charlotte á útivelli, 110:102. Nýliðinn Joe Smith gerði 21 og tók 20 fráköst sem er met hjá honum í vetur. B.J. Armstrong var með 19 stig. Mitch Richmond gerði 22 stig og SarunaS Marciulionis 20 stig fyrir Sacramento sem vann Denver 115:110. Olden Polynice var með 16 stig og 13 fráköst fyrir Kings, sem hefur tapað fiórum af sex síð- ustu leikjum sínum. Mahmoud Abd- KNATTSPYRNA Mexikó sigraði í keppninni um gullbikarinn í Bandaríkjun- um á sunnudaginn, sigraði strákana frá Brasilíu 2:0 í úrslitaleik. Banda- ríkjamenn unnu Guatemala 3:0 í leik um þriðja sætið. Mexíkó fékk eitt tækifæri í fyrri hálfleik en mörkin gerðu þeir Luis Garcia og Cauhtemoc Blanco í síðari hálfleik og voru þau sérlega glæsi- leg. Garcia fékk boltann í vítateign- um eftir hornspyrnu. Hann snéri ul-Rauf var með 36 stig og Dikembe Mutombo 20 fyrir Denver. Los Angeles Lakers varð að sætta sig við tap á heimavelli gegn Cleve- land, 93:82. Danny Ferry gerði 19 stig og tók 10 fráköst fyrir gestina. Nick Van Exel var stigahæstur í liði Lakers með 17 stig og Ceballos kom næstur með 15 stig. Chris Childs setti persónulegt stigamet er hann gerði 30 stig og tók tíu fráköst fyrir New Jersey Nets sem vann Minnesota 103:97. Nets lék án Kendall Gill og Khalid baki í markið, tók knöttinn niður og hafði fullt vald á honum og „negldi“ í netið. Síðara markið kom á 75. mínútu þegar Alberto Garcia Aspe sendi glæsilega sendingu inn fyrir vörn Brasilíu. Þar komst Blaco á auðan sjó og skoraði með góðu skoti. Leikmenn Mexíkó virtust kunna mun betur við sig á rennblautum vellinum og hið létta samspil Brasil- íumanna gekk ekki upp í bleytunni. Brasilíumenn léku einum færri síð- Reeves, sem komu í skiptum fyrir Kenny Anderson og Gerald Glass frá Charlotte Hornets á föstudag. Ekki er allt á hreinu með skiptin því Ree- ves kom meiddur til New Jersey. John Stockton var með 14 stig og 15 stoðsendingar fyrir Utah Jazz sem vann Los Angeles Clippers 106:82. Karl Malone var með 21 stig og sjö fráköst og Adam Keefe 12 og 11 fyrir Utah. Táningurinn Brent Barry var með 22 stig fyrir Clippers. ustu tíu mínúturnar en varnarmað- urinn Andre Luis var rekinn af velli. Bora Milutinovic þjálfari Mexíkó var að vonum ánægður eftir úrslita- leikinn, en hann var áður þjálfari Bandaríkjanna og „liðin hans“ urðu því í fyrsta og þriðja sæti. Leikmenn hans réðu gangi úrslitaleiksins og Brasilíumenn, sem gerðu 10 mörk í fyrstu þremur leikjunum, réðu ekk- ert við sterka vörn Mexíkó þegar þeir reyndu að sækja. Ungu stúlkurnar Chanda Rubin frá Bandaríkjunum Iva Majoli frá Króatíu og Martina Hingis frá Sviss eru komnar í átta manna úr- slit kvenna á Opna ástralska mótinu í tennis. Rubin, sem er 19 ára, kom á óvart og vann Gabrielu Sabatini 6-2, 6-4 á 76 mínútum, Majlo, sem er 18 ára, vann belgísku stúlkuna. Sabine Appelmans 6-2, 6-4 og Hingis, sem er 15 ára, vann Brenda Schultz-McCarthy 6-1, 6-4 á 59 mínútum. Sabatini, sem er úr leik eins og Mary Pierce sem átti titil að veija og Kimiko Date, kenndi golu og einbeitingarleysi um mistök sín. „Stundum er tímasetningin ekki rétt. Vindurinn hafði áhrif og ég einbeitti mér ekki að því sem ég þurfti að gera,“ sagði hún. Rubin mætir Arantxa Sanchez Vicario frá Spáni í átta manna úr- slitum. „Sjálfstraustið er í lagi í hvert sinn sem ég geng til keppni og úrslitin sýna það,“ sagði Rubin. „Eg ætla að sækja stíft, reyna að stjóma leiknum og stefni að því að bæta mig.“ Sanchez Vicario hefur farið hljóðlega í gegnum keppnina en hún átti ekki í erfiðleikum gegn Mary Joe Fernandez og vann 6-3, 6-3. „Þetta var samt erfiðasti leikur minn í keppninni en sá besti. Ég gerði allt rétt,“ sagði hún. Monica Seles er sigurstrangleg- ust í keppninni en Majoli sagðist hlakka til að mæta henni. „Ég reyni að gera mitt besta og við sjáum hvað gerist en hún er frábær tennis- leikari," sagði Majoli. Óvænt í kariaflokki Thomas Muster var talinn sigur- stranglegur eftir að Pete Sampras féll óvænt úr keppni á laugardag en Svíinn Mikael Tillström, sem er 23 ára og í fyrsta sinn á Opna ástr- alska, eyddi þeim hugleiðingum með því að vinna Muster 7-5, 4-6, 6-3, 6-2. Muster meiddist á ökla í þriðju umferð en var ekki með nein- ar afsakanir frekar en Sampras. „Ég get líka tapað ómeiddur," sagði hann. Andre Agassi vann Svíann Jonas Björkman 4-6, 6-2, 4-6, 6-1, 6-2 og er nú sigurstranglegastur. „Ef ég verð ekki meistari vil ég ekki vera númer eitt á afrekalistanum,“ sagði Agassi sem mætir næst Cour- ier. Rússinn Yevgeny Kafelnikov sagði hins vegar að hann hefði sigr- að alla sem eftir væru í keppninni. „Tennisleikarinn, sem ég hef aldrei sigrað, er dottinn úr keppni,“ sagði Rússinn sem er tuttugu og eins árs. „Ég hef sigrað alla hina og því get ég ekki orðið meistari? Ég er í góðu formi og mjög ánægður með alla þætti leiks míns. Ég hef á til- finningunni að ég geti orðið meist- ari.“ Svíinn Thomas Enqvist komst auðveldlega í átta manna úrslitin en Ástralinn Mark Philippoussis, sem er 19 ára og sló Sampras úr keppni, tapaði 6-2, 6-2, 6-2 fyrir Mark Woodforde. „Eftir sigurinn gegn Sampras var erfitt fyrir mig að halda áfram,“ sagði Philippouss- is. „En þetta er góð reynsla og ég á eftir að láta finna fyrir mér síðar.“ Mexíkó vann strákana ENGLAND: 212 111 11X X111 ITALIA: 121 X X 1 11X X11X

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.