Morgunblaðið - 25.01.1996, Qupperneq 1
SAMSKIP
Stofna dótturfélag í
Bandaríkjunum /2
HATNARMÁL
Kraftur í fram-
kvæmdum /4
KRINCLUR
Festa eign sína í
sessi/5
Spariskírteini
Alls bárust 29 tilboð að fjárhæð
626 milljónir í útboði Lánasýslu
ríkisins á spariskírteinum í gær.
Tekið var tilboðum að fjárhæð 556
milljónir og var meðalávöxtun
samþykktra tilboða í spariskír-
teini til 20 ára 5,8% og hafði hækk-
að úr 5,74%. Meðalávöxtun 10 ára
skírteina var 5,89% og hafði
hækkað úr 5,87% en meðalávöxtun
10 ára árgreiðsluskírteina var
5,85%.
Frammistöðumat
Kreditkortanotkunin 1995
Visa-ísland hf.
VÍSA VISA
Árstölur Breyting 1995 frá 1994
Heildarvelta á kreditkortum 48.640 milljónir 10% aukn.
Rafmagnsveita Reykjavikur hefur
ákveðið að gera frammistöðumat
þjá starfsmönnum sínum. Þetta
er í fyrsta sinn sem fyrirtæki í
eigu Reykjavíkurborgar ákveður
að ráðast í slíkt mat. I framhaldi
af því verður ákveðið hvort ráðist
verður í gerð frammistöðumats
hjá öðrum borgarfyrirtækjum og
stofnunum.
Gjafaver
Heildverslunin Gjafaver ehf. hef-
ur keypt húseignina að Hverfis-
götu 33 af Olíufélaginu hf. Björn
Sveinsson, framkvæmdastjóri
Gjafavers, segir þetta húsnæði að
mörgu leyti hentugra undir starf-
semi fyrirtækisins en núverandi
húsnæði þess að Krókhálsi 3 og
því hafi verið ráðist í þessi kaup.
- þar af notkun erlendis 6.752 milljónir 9% aukn.
Heildarfj. innlendra færslna 13,5 milljónir 7,5%aukn.
Kreditkort hf.
EUROCARD
Árstölur Breyting
1995 frá 1994
Heildarvelta á kreditkortum 15.600 milljónir 13%aukn.
- þar af notkun erlendis 2.200 milljónír 11%aukn.
Heildarfj. innlendra færslna 5,1 milljón 14% aukn.
SÖLUGENGI DOLLARS
Jólaveltan á kreditkortunum
Úttektartímabil til greiðslu 2. febrúar
EUR0CARD (1) JÓL1994 8. des,-12. jan. JÓL1995 7. des.-11.jan. Breyting
Notkun innanlands 1.250 millj. 1.450 millj. 16% aukn.
Meðalupphæð á gíróseðil 62.000 kr. 65.000 kr. 4% aukn.
VISA
Notkun innanlands 4.578 millj. 5.083 millj. 11% aukn.
Meðalupphæð á gíróseðil 62.100 kr. 66.100 kr. 6% aukn.
Jólareikningar
kortafyrirtækj-
anna 6,5 millj-
arðar króna
ÚTTEKTIR hjá kreditkorthöfum
Visa og Eurocards á tímabilinu 7.
desember til 11. janúar námu alls
um 6.533 milljörðum króna saman-
borið við 5.828 á sama tímabili í
fyrra. Hér er um að ræða 12%
aukningu milli ára. Verið er að
senda út reikninga fyrir úttektun-
um um þessar mundir sem koma
munu til greiðslu um mánaðamótin.
Á síðasta ári nam heildarvelta
greiðslukortafyrirtækjanna sam-
tals 64,2 milljörðum króna. Þetta
er tæpur fjórðungur af áætlaðri
einkaneyslu landsmanna og rúmur
helmingur af fjárlögum ríkisins.
Visa var með 75,7% veltunnar en
Eurocard 24,3%. Færslur innan
lands voru alls 18,6 milljónir og
voru 72,6% þeirra með Visa korti
en 27,4 með Eurokorti.
Heildarvelta Visa 48,6
milljarðar króna
Kreditkortafærslur hjá Visa ís-
land á þessu tímabili námu alls
5.083 milljónum króna en námu
4.578 milijónum á sama tímabili í
fyrra að sögn Leifs Steins Elísson-
ar, aðstoðarframkvæmdastjóra
Visa íslands. Þar er því um að
ræða 11% aukningu. Meðalupphæð
á hveijum gíróseðli er nú 66.100
krónur en var 62.100 fyrir ári en
það er um 6% aukning.
Heildarvelta Visa ísland var 48,6
milljarðar króna á síðastliðnu ári
og er þar um að ræða rúmlega 10%
aukningu á milli ára. Þar af nam
erlend notkun 6,8 milljörðum og
þar er aukningin 9% milli ára.
Heildarfjöldi innlendra Visa
færslna var alls 13,5 milljónir í
fyrra, sem er 7,5% aukning frá
árinu áður.
16% aukning
hjá Eurocard
Kreditkortafærslur hjá Eurocard á
jólatímabilinu eða frá 7. desember
til 11. janúar námu alls 1.450 millj-
ónum króna. Er þar um að ræða
16% aukningu á milli ára sam-
kvæmt frétt frá Kreditkortum hf.
Meðalupphæð hvers reiknings þar
er um 65 þúsund krónur en var
um 62 þúsund í fyrra og nemur
aukningin 4%.
Heildarvelta Kreditkorta var um
15,6 milljarðar króna á síðasta ári,
sem er 13% aukning frá 1994. Þar
af nam erlend notkun 2,2 milljörð-
um króna og þar er aukningin 11%
milli ára. Heildarfjöldi innlendra
færslna hjá Eurocard nam 5,1 millj-
ón á á árinu og voru þær 14% fleiri
en árið 1994.
29% aukning viðskipta
erlendra korthafa
Að sögn forstöðumanna korta-
fyrirtækjanna aukast viðskipti er-
lendra korthafa hérlendis ár frá ári
og var aukningin um 29% hjá báð-
um fyrirtækjum milli áranna 1994
og 1995.
E i g e n d l u r s p a r i s l k í r t e i n a r í I kissjóðs athugið!
Fáðu þér spariskírteini ríkissjóðs
með gullnum kaupbæti:
1
SJÓÐUR 5 HJA VIB
A. Spariskírteini rikissjó&s
B. Óverötryggb rikisveröbréf
■ j C. Húsbréf
B. 25% A. 65% Sjó&ur 5 hjó VÍB
Atta góðar ástœður til að fjárfesta í Sjóði 5
Alltaf innleysanleg - enginn fastur gjalddagi • Stöðug
ávöxtun - 7,0% raunávöxtun sl. 5 ár • Auðvelt að fylgjast
með verðmæti bréfanna • Engin fyrirhöfin - ekkert umstang
• Hægt að kaupa fyrir hvaða fjárhæð sem er • Sérfræðingar
sjá um ávöxtun • Eignarskattsfrjáls • 100% ábyrgð
ríkissjóðs. Leggðu intt gamla spariskírteiníð
...og fáðu margþantan kaupbo'tí
FORYSTA I FJARMALUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Adili að Verðbréfaþingi lslands •
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.