Morgunblaðið - 27.01.1996, Side 4

Morgunblaðið - 27.01.1996, Side 4
4 C LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ NORÐURLANDAÞJÓÐIRNAR fímm ásamt Færeyingum leggja fram bækur til verðlauna að þessu sinni. Grænlendingar og Samar nýta sér ekki tækifæri til að vera með og verður það að teljast miður. Skýr- ingar liggja ekki á lausu. Það sem má heita óvenjulegt um tilnefningar ársins er hreinn meiri- hluti bóka eftir karla. Aðeins ein kona, Vigdís Grímsdóttir, skartar á Iista yfír væntanlega verðlaunahafa. Að undanfömu hafa skáldsögur rejmst happadrýgri til verðlauna en ljóð. Einar Már Guðmundsson fékk verðlaunin í fyrra fyrir Engla al- heimsins. í hittifyrra komu þau í hlut Kerstin Ekman fyrir skáldsög- una Atburðir við vatn. Nokkrar mjög góðar ljóðabækur vom lagðar fram í fyrra. Vel getur verið að dómnefndarmenn telji ljóð ekki jafn Iíkleg til verðlauna og sög- ur því aðeins ein ljóðabók er tilnefnd nú. Bókin er aftur á móti viðameiri en gengur og gerist um ljóð. Eins og heitið gefur til kynna, 1001 digt, med 18 ordsnit, em Ijóðin þúsund og eitt. Bókin er rúmar 400 síður og tekur mið af árstíðunum. Höfund- urinn er Daninn Klaus Hoeck (f. 1938). Frá því að fyrsta ljóðabók hans kom út fyrir þijátíu ámm hef- ur hann bætt við að minnsta kosti 34 ljóðabókum, en kunnustu bækur hans á þessu tímabili em Hjem (1985), Heptameron (1989) og Eventyr (1992). Heimurinn er skáldlegur Bókin hefur verið skilgreind með þeim hætti að hún sé margvíddar ljóðbygging, alheimsverk sem leiti annars vegar samhengis vemleikans og náttúmnnar og hins vegar hugs- unarinnar og tungumálsins og fínni og birti þetta samhengi í ljóðlistinni eða í andanum eins og stendur í ljóð- unum. Preben Meulengracht segir að í augum Klaus Hæcks sé ljóðið ekki vemleikinn eða hversdagsleik- inn í formi ljóðs. Ljóð hans séu inn- sýn í veraleikann. Bókin heldur því fram að heimurinn sé skáldlegur. „Heilagur venjulegur hversdags- leiki“ er yrkisefni skáldsins, að vísu ekki alveg án tvísæis, en bókin er samin í nafni lífsins og skáldskapar- ins. Ib Michael er fímmtugur Dani og afkastamikill eins og landi hans Haeck. Brev til Mánen er þriðja og síðasta bindi endurminningaskáld- sögu, en getur vel staðið sjálfstæð sem slík. Fyrri bindin em Vanille- pigen (1991) og Den tolvte rytter (1993). Brev til Mánen er þroskasaga, lýsir kynnum pilts af ástinni, en þó einkum kynlífínu, fijálsu lífí lista- mannsins og loks alvömnni. Um- hverfí er Kaupmannahöfn, París og Feneyjar. Ib Michael skrifar Iéttan og læsilegan stíl sem getur verið töfrandi á köflum. í Brev til Mánen nær hann vel að spegla ærsl æsku- manna, sorgina og drauminn um Paradís. Eyjamar bak við hafíð, sem áður hafa verið áberandi í sögum Tíu karlmenn og einn kvenmaður Heilagiir venjulegnr hversdag'sleiki Á þríðjudaginn verður úr því skoríð hvaða ríthöfundur hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1996. Frá íslandi eru lagðar fram í einu lagi skáldsögumar Heimskra manna ráð og Kvikasilfur eftir Einar Kárason og Grandavegur 7 eftir Vigdísi Grímsdóttur. Jóhann Hjálmarsson, sem sæti á í dómnefndinni, segir hér lítillega frá bókum frændþjóðanna. Matti Yrjana Joensuu og ljóðum Ib Michaels, stíga nú fram í jarðneskri dýrð sinni. Píanó eða vörubíll Norðmennimir Dystein Lenn (f.1936) og Lars Amund Vaage 0ystein Lonn Tóroddur Poulsen (f.1952) munu vera dæmigerðir fyrir norskan prósa og báðir nýstár- legir höfundar. Lonn er sagður helstur áhrifavaldur í norskri smá- sagnagerð ásamt Kjell Askilden sem íslenskir lesendur þekkja. Hva Torgny Lindgren Johan Bargum skal vi gjore i dag og andre novell- er er smásagnasafn eftir Lonn sem Norðmenn leggja fram og eftir Vaage er skáldsagan Rubato. Smásögur Lonns vekja athygli fyrir lifandi samtöl sem hann hefur gott vald á, óvenju mikla hnitmiðun og fágun í framsetningu. Hvers- dagslífíð er söguefni höfundarins, oft dagleg störf á afskekktum og einangruðum stöðum. Sérstaklega er höfundinum lagið að skrifa um vandræðalegt samband kynjannna, þreytu sem þar er farið að gæta. Rubato mun merkja að leika frjálst og á persónulegan hátt á hljóðfæri. Það á vel við þessa skáld- sögu sem segir frá tónlistarmanni sem snýr baki við píanóinu og ger- ist vömbílstjóri. Óhapp í starfí og lát afa söguhetjunnar verður til þess að kalla fram togstreitu milli starfs og listar. Það sem gerir sög- una sérkennilega er stíllinn, hraður og afar innblásinn á köflum. Hið liðna er jafnan í huga bílstjórans, farið er viðstöðulaust fram og aftur í tíma. Siðmenning langt undan Hummelhonung eftir Torgny Lindgren (f. 1938) er framlag Svía og ekki áf lakara taginu. Þessi stutta skáldsaga Lindgrens hefur vakið mikla athygli og fengið lof gagnrýnenda. Margir kannast við höfundinn hér heima. Skáldsaga hans Naðran á klöppinni og smá- sagnasafnið Fimm fingra mandlan em báðar til í íslenskri þýðingu. Fyrmefnda bókin og skáldsagan Bat Seba hafa áður verið tilnefndar til Norðurlandaráðsverðlauna. Kona á miðjum aldri, rithöfund- ur, lendir í þeirri aðstöðu að sinna og hjúkra tveim bræðrum sem báð- ir em dauðvona og hatast. Þetta er stutt skáldsaga og afar vel skrif- uð. Alveg er óhætt að lesa söguna og njóta hennar eins og hún birtist lesanda sínum og án flókinna túlk- unarleiða. Menn hafa þó velt fyrir sér merkingunni hjá höfundinum og spurt hvort sagan sé um nútíma dýrling andspænis siðmenningu sem er að þrotum komin, hugsan- lega Austur- og Vestur-Evrópu. Varla eigi sagan einungis að sýna bágborið félagslegt ástand í Vestur- botni í Svíþjóð. Henning Mankell (f.1948) er kunnur fyrir sakamálásögur sínar um lögguna Kurt Wallander og hann þykir meðal helstu barna- og unglingabókahöfunda í Svíþjóð. A íslensku hafa komið eftir hann sög- urnar Hundurinn sem hljóp upp til stjörnu og Skuggarnir lengjast í rökkrinu. Bók hans Comédia In- fantil er tilnefnd nú, skáldsaga sem gerist í Afríku og fjallar um svipað efni og barnabókin Eldens hemlig- het sem líka kom út 1995. Mankell hefur samið leikrit og fengist við leikstjórn og starfar sem leikstjóri við Teatro Avenida í Maputo í Mós- ambikk. Comédia Infantil er í skáldlegum anda, frásögnin ævintýraleg en efn- ið þjóðfélagsböl. Tíu ára götudreng- ur hefur orðið fyrir skoti tilræðis- manns og er reiðubúinn að deyja, hverfa til þeirra sem farið hafa á undan og bíða hans í öðrum heimi. Blæðandi og nær dauða en lífí seg- Firring okkar tíma og allra tíma BOKMENNTTR Skáldsögur GRÁMOSINN GLÓIR eftír Thor Vilhjálmsson I GÚLAG-eyjaklasanum segir Alexander Solzhenítsyn frá vinnu- flokki, sem finnur leifarnar af mammút í frosinni túndmnni. Þeir suðu hann og átu og öðluðust þar með það tímabundna hjálpræði, sem allir menn leita eftir: Að vera búnir undir enn meira erfiði. Stíllinn og andblærinn í skáld- sögu Thors Vilhjálmssonar, Grá- mosinn glóir, vekur gmn um, að ekki séu öll kurl til grafar komin, að enn sé eitthvað að fínna í fros- inni túndranni. Sagan segir frá ungum dómara, sem sendur er út í afskekkta sveit til að dæma þar í sifjaspellsmáli. manns nokkurs og hálfsystur hans, sem höfðu þar að auki fyrirkomið nýfæddu bami sínu. í sálu dómarans togast á ýmis öfl: Hugsjónir hans og bók- stafur laganna og hins vegar ástríður mannanna í þessu af- skekkta og guðsvolaða héraði. Grámosinn glóir gerist undir lok síðustu aldar en það er ekki tíma- setningin, sem vekur strax tilfinn- ingu með lesandanum fyrir gömlu, frosnu kjöti. Það er miklu fremur síðrómantísk skrúðmælgin, sem ber kannski meira á í ensku þýð- ingunni. Sagan er um glæp og refsingu og dapurleg örlög — dimm hús, draugasögur, kerlingu, sem spáir útskúfun og dauða, svipi og ástríður, sem kvikna í ógnvekjandi landinu. Allt vitnar þetta um tilfinninga- semi, sem módern- isminn gerði útlæga í evrópskum bók- menntum alllöngu fyrir fyrra stríð. Hinn hluti sög- unnar er ekki síður afmarkaður í tíma. Dómarinn, Ásmund- ur, fyrir og eftir ferðina, er eins kon- ar 19. aldar bóhem, mitt á milli hins róm- antíska Werthers Goethes og ýkju- kennds en táknræns karakters úr sögum Huysmans eða Swinbum- es. Dularfull kona lokkar hann til sín; hann fínnur til skáldlegrar upphafningar gagnvart grófleik- anum; hann veltir fyrir sér náttúr- unni og sínu eigin eðli. Það er varla unnt að finna skóf, stein, fugl (auðvitað svan), sem em ekki táknræn fyrir þessa leiðinlegu til- finningasemi hans. Enginn veit á hveiju er von þegar mammút- urinn þiðnar. Sumir hlutar hans eru beinlínis óætir eins og mér fínnast þessir ofhlöðnu kaflar vera. Ásmundur situr fullur fyrirlitning- ar á hávaðasömum listamannakrám eða kaffihúsum og finnur ekki lítið til sín. Höf- undurinn, sem er lík- lega að þíða einhveija bita úr sínum eigin rómantíska mammút, virðist álíka ánægður með þessa persónu sína. „Hann strauk hendinni um hár sitt,“ segir hann um Ás- mund á kaffíhúsinu, „til að hag- ræða bylgjunum sem fóm vel við hið háa enni yfir skarpskyggnum augum, og létu svamla um sal í söngvakófi þessu, og vissi fátt í þessum mannfagnaði samboðið sér.“ Rithöfundur getur ekki gætt persónu sína „skarpskyggnum augum“, aðeins lesandinn getur skynjað það. Ásmundur endur- speglar vilja höfundarins og túlkar hugarflug hans og ímyndunarafl; það sama gildir um konuna með bládökku augun, sem kemur til hans og fer með hann heim til sín. Það byijar með baðkarinu og þegar allt er komið vel á veg legg- ur hún til, að þau fari inn í svefn- herbergið. Ásmundur var sveipað- ur handklæði, segir höfundurinn okkur, og „dró sig til hlés í fullri reisn“. Það er ekki heldur á valdi rithöfundar að útdeila reisn af þessu tagi. Það er í hinum hluta sögunnar, sjálfu meginefninu, sem gömul saga leysist úr læðingi, merkilega auðug og grípandi. Ásmundur er tilgerðarlegur og meðvitaður um sjálfan sig og þótt það skolist ekki af honum, þá hefur ferðin til bæj- arins þar sem rannsóknin á að fara fram mikil áhrif á hann. Fylgdarmaður Ásmundar er Þórður, gagnorður maður en samt merkilega mælskur og ein trúverð- ugasta persóna sögunnar; leiðin liggur um hijóstragt en lifandi land og yfir því hvelfist hinn ís- Thor Vilhjálmsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.