Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ B
ÞEIM sem gengur illa
að hætta að reykja
gefst kostur á að fara
í fimm daga meðferð
á Heilsustofnun NLFÍ
frá og með maímánuði
næstkomandi. Þetta er
ein tillaga nefndar,
sem heilbrigðisráð-
herra skipaði í septem-
ber 1995, til að kanna
möguleika á skipuleg-
um aðgerðum til að
hjálpa fóki að hætta
að reykja.
Nefndin hefur af-
hent ráðherra tillögur
sínar sem eru tvíþætt-
ar. Auk meðferðar fyr-
ir reykingamenn verð-
ur komið á fót tveggja
daga leiðbeinendanámskeiði fyrir
starfsmenn heilsugæslu, sjúkrahúsa
og meðferðarstofnana á sviði ávana-
og fíkniefna sem og fijálsra félaga-
samtaka. Á námskeiðinu verða þátt-
takendum kynnt undirstöðuatriði
tóbaksvarna og meðferðar gegn
reykingum. Fyrsta námskeiðið er
áformað 27. og 28. apríl nk.
Fjárfesting í heilsu
Nefndin leggur áherslu á þá stað-
reynd að skipulegar aðgerðir á sviði
tóbaksvarna og meðferðar vegna
reykinga eru fjárfesting í heilsu
þjóðarinnar. Máli sínu til stuðnings
benda nefndarmenn á að samkvæmt
breskum rannsóknum sé kostnaður
heilbrigðisþjónustunn-
ar vegna reykingafólks
allt að fjórum sinnum
meiri en kostnaður
vegna þeirra sem ekki
reykja.
í skýrslunni segir
meðal annars að reyk-
ingar hafi sérstöðu
sem dánarorsök á ís-
landi því þær séu meg-
inástæða 18-19%
dauðsfalla. Séu ein-
ungis reykingamenn
taldir valdi reykingar
50% dauðsfalla
þeirra.
Gert er ráð fyrir að
þátttakendur í meðferð
Heilsustofnunar NLFÍ
greiði sjálfir 6-10 þús-
und krónur og framkvæmd leiðbein-
endanámskeiðanna sé háð því að
gjaldið sem lagt er á brúttósölu tób-
aks hækki úr 0,2% í 0,4%.
Auk ýmissa atriða leiddu at-
huganir nefndarinnar í ljós að þótt
fjölmargir vinni að tóbaksvörnum
og aðstoði fólk við að hætta að
reykja hafi starfsemin ekki fengið
æskilegan forgang í heilbrigðisþjón-
ustunni. Aðgerðir séu ekki nægjan-
lega markvissar og skortur sé á sam-
hæfingu þeirra innan heilbrigðis-
þjónustunnar auk þess'sem lögum á
sviði tóbaksvarna sé ekki framfylgt
sem skyldi og hérlendis sé ekki not-
ast við ýmis úrræði sem beitt er í
öðrum löndum. ■
ANDBLÆR LIÐINNA ÁRA
► GAMLIR munir, ant-
ik og safngripir, hafa
aðdráttarafl sem margir
eiga erfitt með að
standast. Andrúmsloft
verslana þar sem slík-
ir munir eru seldir er
líka engu líkt, bæði
seiðandi og heillandi,
og maður hrífst með
á vit ókunnra slóða.
Stöðugur straumur
fólks skoðar sig þar um
i töfraheimi
gamalla <■ _
hlutaminninga. • & 9
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996
■ „REYKIIMGAR HAFA SÉRSTÖÐU SEM DÁIMARORSÖK Á ÍSLANDI
ÞVÍ ÞÆR ERU MEGIMÁSTÆÐA 18-19% PAUÐSFALLA. SÉU EIWUIMGIS
REYKINGAMENN TALDIR VALDA REYKINGAR 50% DAUÐSFALLA.“H
Meðferð
fyrir reykingafólk
og námskeið fyrir leiðbeinendur
LjósA
lampar
Rafkaup
Armúla 24, s. 568 1518.