Morgunblaðið - 24.02.1996, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 D 7
Minningartónleikar
í Breiðholtskirkju
TONLEIKAR verða
haldnir í Breiðholtskirkju
til minningar um Svein-.
björn Sveinbjörnsson á
morgun sunnudag 25.
febrúar kl. 16. Hann var
sonur Friðrikku Eðvalds-
dóttur og Sveinbjörns
Bjarnasonar og var fædd-
ur 23. febrúar 1971 og
hefði því orðið 25 ára í
þessum mánuði. Hann
lézt af slysförum við
Systrafoss í Kirkjubæjar-
klaustri þann 24. ágúst
1980 þá á 10 aldursári.
Á tónleikunum sem
jafnframt eru til íjáröfi-
unar fyrir orgelsjóð Breið-
holtskirkju koma fram eftirtaldir
listamenn; söngkonurnar Erla Þór-
ólfsdóttir, Jóhanna G. Linnet,
Ragnheiður Linnet, Sigrún Hjálm-
týsdóttir, söngvararnir Bergþór
Pálsson, Egill Ólasson, Eiríkur
Hreinn Helgason, Friðbjörn G.
Jónsson, hljóðfæra-
leikararnir; Bjarni
Sveinbjörnsson,
Edda Borg Ólafs-
dóttir, Jónas Þórir
Þórisson, Ólafur
Vignir Albertsson
og Sigfús Halldórs-
son; Kirkjukór
Breiðholtskirkju
syngur undir stjórn
Daníels Jónassonar
og Barnakór Breið-
holtskirkju undir
stjórn Árnýjar Al-
bertsdóttur.
Allir listamenn-
irnir gefa sitt fram-
lag til þessara tón-
leika og rennur aðgangseyrir því
óskiptur til orgelsjóðsins.
Að loknum tónleikunum verður
kaffisala í safnaðarheimili kirkj-
unnar, einnig til styrktar orgel-
sjóðnum.
Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Sveinbjörn
Sveinbjörnsson
Alda, Hlynur
og Steinunn
sýna í Nýlista-
safninu
ALDA Sigurðardóttir, Hlynur Halls-
son og Steinunn Helga Sigurðardótt-
ir opna þijár sýningar í Nýlistasafn-
inu á laugardag kl. 14. Gestur í
setustofu safnsins er Örn Karlsson.
Alda Sigurðardóttir sýnir fjórar
myndir í forsal safnsins sem gerðar
eru úr lituðu bómullarefni og festar
á tréramma. Útsaumur og hekl er
gert úr ívafi efnisins og nefnast
verkin „Undan rekkjuvoðum". Lista-
konan hefur gert myndir af sínum
eigin ættum, einskonar minnismerki
eða minnisvarða um það sem varð
og það sem ekki varð. Hlynur Halls-
son, sem búsettur er í Þýskalandi,
sýnir í efri sölum safnsins. Sýningin
ber heitið „Átta götumyndir frá
Akureyri". Sýningin samanstendur
af myndum, textum og bókverki.
Steinunn Helga Sigurðardóttir
sýnir í neðsta sal safnsins myndir
sem unnar eru eftir myndum úr ís-
lensku teiknibókinni. ísjenska teikni-
bókin er varðveitt í Árnasafni, en
Steinunn sem býr og starfar í Kaup-
mannahöfn hefur haft aðgang að
íslenskum handritum sem hún notar
í verkum sínum.
Listamennimir þrír útskrifuðust
frá fjöltæknideild Myndlista- og
handíðaskóla íslands árið 1993.
Öm Karlsson, sem er gestur
safnsins í setustofu, sýnir myndir
unnar með blandaðri tækni.
Sýningarr.ar eru opnar daglega
frá kl. 14-18 og þeim lýkur sunnu
daginn 10. mars.
Morgunblaðið/Asdís
ANN Toril Lindstad, orgelleikari, og Laufey
Sigurðardóttir, fiðluleikari.
Fiðla og orgel
í Hallgrímskirkju
SJALDGÆF hljóðfæraskipan
verður á tónleikum sem Listvinafé-
lag Hallgrímskirkju býður til í
kirkjunni á sunnudaginn, 25. febr-
úar, kl. 17. Laufey Sigurðardóttir,
fiðluleikari, og norski orgelleikar-
inn Ann Toril Lindstad flytja tón-
list eftir norsku tónskáldin Konrad
Baden, Klaus Egge, Trond Kverno
og Knut Nystedt svo og tónverkið
Skessur eftir Mist Þorkelsdóttur
sem var samið sérstaklega fyrir
þær stöllur og verður frumflutt á
tónleikunum. Tónverkið Triptyc-
hon II eftir Kverno er samið við
nokkur erindi úr hinu forna
Draumkvæði sem til er í þýðingu
dr. Kristjáns Eldjárns og mun
Þorsteinn Guðmundsson, leikari,
lesa þau í tengslum við orgelleik-
inn.
Tónleikar með eingöngu upp-
runalegum tónverkum fyrir fiðlu
og orgel em sjaldheyrðir. Laufey
og Ann Toril settu sér það mark
að finna tónverk eftir höfunda
samtímans frá heimalöndum
beggja, íslandi og Noregi. Þær
völdu verk fyrir fiðlu og orgel eft-
ir norsk tónskáld sem fædd eru
snemma á öldinni, Largo funébre
frá 1933 eftir Klaus Egge, Elegie
ópus 51 eftir Konrad Baden og
Concerto sacro ópus 137 eftir
Knut Nysted frá 1993. Áðumefnt
Triptychon II er samið árið 1989.
íslenski þáttur dagskrárinnar er
eins og áður sagði verk Mistar
Þorkelsdóttur, Skessur.
Laufey Sigurðardóttir er fiðlu-
leikari í Reykjavík og hefur víða
komið fram hér heima og erlendis,
auk þess sem hún fæst við fiðlu-
kennslu. Ann Toril Lindstad er
menntuð í Noregi og Hollandi í
orgelleik og kirkjutónlist. Hún var
kantor í Laugarneskirkju í Reykja-
vík árin 1985-1990. Þetta er í
annað sinn sem þær Ann Toril
halda tónleika saman í Reykjavík.
Opið hús
í Tónskóla
Sigursveins
Á DEGI tónlistarskólanna,
laugardaginn 24. febrúar,
verður opið hús í Tónskóla
Sigursveins í Hraunbergi 2 frá
kl. 14-16.
Fer þar fram árleg hljóð-
færakynning og mun gefast
tækifæri til að skoða og prófa
flest þau hljóðfæri sem kennt
er á í skólanum.
Kennarar verða til aðstoðar
og nemendur munu leika fyrir
gesti.
Allir eru velkomnir að
heimsækja skólann.
Þrennir
nemenda-
tónleikar
Á DEGI tónlistarskólanna í dag,
laugardag, verða þrennir nemenda-
tónleikar á vegum Tónlistarskóla
íslenska Suzukisambandsins.
Tónleikarnir eru haldnir í Bú-
staðakirkju og hefjast kl. 13.,
14.30. og 16. Þar koma fram nem-
endur í píanó, fiðlu, selló og söng
með ýmiss konar samleiksatriði.
Síðustu viku hefur aðaláhersla
verið lögð á kammertónlist í skóla-
starfinu og eru tónleikarnir afrakst-
ur þess.
Við skólann stunda nú 178 nem-
endur nám eftir Suzukiaðferðinni,
en í þeirri aðferð er samvinna nem-
enda og foreldra sett í öndvegi
undir handleiðslu kennara.
Bjarni Þór sýnir
í Kolaportinu
BJARNI Þór Þorvaldsson „Thor“
opnar myndlistarsýningu í kaffiter-
íu Kolaportsins, laugardaginn 24.
febrúar.
Þetta er hans önnur einkasýing.
Á sýningunni eru um 40 myndverk
úr olíu, akrýl og unnin með penna.
Sýningin er opin um helgar frá
kl. 10-18 og stendur til 17. mars.
Amma kemur
til borgarinnar
NORSKA kvikmyndin „Mormor og
de átte ungene“ verður sýnd í Nor-
ræna húsinu sunnudaginn 25. febr-
úar kl. 14.
Myndin segir frá mömmu, pabba
og börnunum átta sem búa öll sam-
an í tveggja herbergja íbúð í Osló.
Einn daginn kemur amma í heim-
sókn og gistir hjá þeim á eldhúsgólf-
inu. „Þá gerist ýmislegt skemmtileg
því amma hefur aldrei komið til
borgarinnar áður og margt framandi
að sjá og gera,“ segir í kynningu.
Myndin er byggð á sögunni „Átte
Smá, To Store og en Lastebil" eftir
Anne-Cath Vestly og Anne-Cath
leikur sjálf ömmuna í myndinni.
Myndin er með norsku tali og sýn-
ingartíminn er 90 mín.
Allir eru velkomnir og aðgangur
er ókeypis.
Lúðrasveit
Reykjavíkur í
Ráðhúsinu
LÚÐRASVEIT Reykjavíkur heldur
sína fyrstu tónleika á þessu ári
sifnnudaginn 25. febrúar kl. 15 í
Tjarnarsal Ráðhússins.
Á efnisskránni eru meðal annars
lög eftir Henry Filmore, Glenn Mill-
er, Hector Berlioz, Sigfús Einarsson
og Emil Thoroddsen.
Meðlimir Lúðrasveitarinnar eru
um 30 talsins og leika þeir undir
stjórn Jóhanns Ingólfssonar sem
tók við sveitinni sl. haust.
Aðgangur er ókeypis.
Purcell-tónleik-
ar í Bústaða-
MENNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Kjartan Ólason, Philippe Richard og
Guðrún Hrönn Ragnarsd. - Kjarvalssýn-
ing fram á vor.
Listasafn íslands
Ný aðföng III til 25. febr.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sýn. á vatnslitam. Ásgrims út mars.
Listasafn Sigurjóns Olafssonar
Portrettsýning til 19. maí.
Norræna húsið
Sams. myndlistarm. frá Færeyjum,
Grænlandi og íslandi til 10. mars.
Gerðarsafn
Thomas Huber sýnir til 10. mars.
Ingólfsstræti 8
Hrafnkell Sigurðsson sýnir til 3. mars.
Gallerí Sævars Karls
Kristján Guðmundss. sýnir til 13. mars.
Nýlistasafnið
Alda Sigurðard., Hlynur Hallsson,
Steinunn Helga Sigurðard. og Öm
Karlsson sýna til 10. mars.
Hafnarborg
Guðrún H. Jónsd., Guðrún Ragnhildur
Eiríksd. sýna til 11. mars og Ian Hob-
son til 5. mars.
Gallerí Stöðlakot
Árdís Olgeirsdóttir sýnir til 3. mars.
Listhús 39
Ásrún Tryggvadóttir sýnir til 10. mars.
Gallerí Greip
Jón B. Kjartanss. sýnir til 10. mars.
Gallerí Fold
Siguijón Jóhannsson sýnir til 10. mars
og Sveinbjörg Hallgrímsd. sýnir í kynn-
ingarhorhi.
Listhús Ófeigs
Erna G. Sigurðard. og Eva G. Sigurð-
ard. sýna til 9%mars.
Gallerí Sólon íslandus
Anna María Siguijónsd. sýnir ljósmynd-
ir til 17. _mars.
Gallerí Úmbra
14 Langbrækur sýna til 13. mars.
Gallerí Onnur hæð
Vincent Shine tii 6. mars.
Hafnarhúsið
Sýning á lokaverkefnum nýútskrifaðra
arkitekta til 25. febr.
| Myndás
Ljósmyndasýn. Páls Guðjónss. til 2. mars.
TONLIST
Laugardagur 24. febrúar
Lúðrasveit Reykjav. í Ráðhúsinu kl. 15.
Nemendatónl. ísl. Suzukisamb. í Bú-
staðakirkju kl, 13., 14.30. og 16. Tónl.
Tónlistarsk. Bessastaðahr. í samkomu-J
sal hreppsins kl. 11 f.h. Samk. Björk f f
Fella- og Hólakirkju kl. 16. Tónleikar
Tónlistarsk. ísafj. í sal Grunnskólans
kl. 16.30. Kór Dalvíkurkirkju í Árbæjar-
kirkju ásamt kór Árbæjarkirkju kl. 17.
Tölvusýn. í Tónisk. Keflav. kl. 13 og
tónl.atriði á sal skólans.
Sunnudagur 25. febrúar
Minningartónl. um Sveinbjöm Svein-
bjömsson í Breiðholtskirkju kl. 16. Tónl.
Tónlistarsk. Isafj. í sal Grunnskólans
kl. 16.30. Slökkviliðskórinn í Loga-
landi, Borgarfirði. Söngur Passíusál-
manna i Digraneskirkju. Afmælistónl.
Tónlistarsk. Akureyrar í Akureyrar-
kirkju kl. 17.
Þriðjudagur 27. febrúar
Björg Jónsd. og Signý Sæmundsd. á
tónl. Tónl. LR i Borgarleikh. kl. 20.30.
Sólarmegin í Hallgrímskirkju kl. 21.
Miðvikudagur 28. febrúar
Hljómsv. Tónlistarsk. í Reykjav. í Bú-
staðakirkju kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Þrek og tár lau. 24. febr., fim., lau.
Kardemommubærinn lau. 24. febr., sun.,
lau.
Glerbrot sun. 25. febr.
Kirlgugarðsklúbburinn sun. 25. febr.
Leigjandinn sun. 25. febr., fös.
Ástarbréf sun. 25. febr.
Borgarleikhúsið
íslenska mafian lau. 24. febr., lau.
Lína Langsokkur sun. 25. febr.
BarPar lau. 24. febr., sua
Konur skelfe lau. 24. febr., sun.
Við borgum ekki, við borgum ekki fös. 1.
mars.
Leikfélag Akureyrar
Sporvagninn Gimd iau. 24 . febr.
IlafuarfjarðarleikhÍLsið
Hermóður og Háðvör lau. 24. febr., fös.
Loftkastalinn
Rocky Homor lau. 24. febr.
Kaffileikhúsið
Sápa þrjú og hálft lau. 24. febr., fös.
Kennslustundin sun. 25. febr., fös.
Grískt kvöld mið. 28. febr., lau.
Möguleikhúsið
Ævintýrabókin lau. 24. febr.
Ekki svona! sun. 25. febr.
Leikfélagið Snúður og Suælda
Veðrið klukkan 18 og Háttatími. Sýn.
í Risinu, lau., sun., þri., fim. kl. 16.
kirkju
PURCELL-tónleikar verða í Bú-
staðakirkju á sunnudaginn kl. 17.
Leikin verður Sónata nr. 2 fyrir
trompet og hljómsveit og tvö kórverk
flutt. Kór Bústaðakirkju syngur
ásamt níu einsöngvurum úr kórnum.
Stjórnandi er Guðni Þ. Guðmunds-
son.
KVIKMYNDIR
MÍR
„Stríð og friður" frá kl. 10 að morgni
til 18.30 að kvöldi.
Norræna húsið
„Mormor og de átte ungene“ sun. kl. 14.
LISTAKLUBBUR
Leikhúskjallarinn
Hvað er smásaga? mán. kl. 20.30.