Morgunblaðið - 24.02.1996, Síða 8

Morgunblaðið - 24.02.1996, Síða 8
8 D LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Frá hugmynd að veruleika Undanfarin sjö ár hefur Kjartan Ólafsson þróað Calmus-tónsmíðakerfi sitt og hlaut fyrir skemmstu licentiat-gráðu fyrir vikið. Hann sagði Ama Matthíassyni að sköpun tónsmiðsins væri engu minni þó notast væri við tölvu. RJARTAN Ólafsson lauk fyrir skemmstu námi í tónsrhíðum við Sibeliusar-akademíuna finnsku og hlaut fyrir licentiat-prófgráðu sem samsvarar doktorsgráðu utan Norðurlandanna. Snar þáttur í námi hans og þar af leiðandi prófgráð- unni er vinna hans við Calmus-tón- smíðakerfi síðustu sjö ár, en það er gríðarlega flókið tölvuforrit. Kjartan Ólafsson segir að próf- gráðan sjálf þýði í raun aðeins að hann hafi lokið Calmus-verkefninu og teljist því eitthvað fróðari um ákveðið svið tónlistar. „Ég hóf vinnu við Calmus 1988 og hef unn- ið það að mestu innan akademíunn- ar,“ segir hann. „Sibeliusar-aka- demían er fyrst og fremst tónlistar- skóli en ekki tækniskóli og aðal- áherslan lögð á fagurfræðileg gæði, þar var mönnum alveg sama hvaða brögðum ég beitti til að ná þeim.“ Tæknimenn og músíkantar „Til allrar hamingju fyrir mig og mína vinnu voru þarna músíkantar sem voru mjög færir tæknimenn og á þessum sjö árum voru gerðar tugþúsundir prufa á Calmus og ijöldi tónsmíða saminn, einleiks- verk, hljómsveitarverk, konsertar og kammerverk," segir Kjartan og bætir við að eftir á að hyggja beri mörg þeirra verka það með sér að tónskáldið sé að fást við nýtt öflugt tónsmíðatæki; „ég verð að viður- kenna að ég var eins og á ólmum hesti, því þótt ég hafí skrifað forrit- ið tók nokkur ár að ná valdi á því“. Byggt á gervigreindartækni Kjartan segir að Calmus byggi að miklu leyti á gervigreindar- tækni, en gervigreind byggist á því að við hverja ákvörðun breytast forsendur fyrir næstu ákvörðun, þannig að þróun getur átt sér stað. „Þetta tekur til flestra þátta tón- smíðanna. Tónskáldið gefur for- sendur og efnivið fyrir forritið, still- ir það af, gefur liti og þróun. Þegar því er lokið fer forritið af stað og vinnur sjálfstætt úr öllum þessum upplýsingum og er alltaf viðbúið því að það komi upp einhver tón- smíðaleg vandamál sem það þarf að leysa sjálft. Þetta breytir í raun ekki .tónsmíðaferlinu og sköpunin er ekki minni, því tónskáldið skilar frá sér sínum hugmyndum, kröfum og óskum. Tónsmíðakerfí hafa í raun verið til í árhundruð; til að mynda eru sónötuformin og rondó- formin vísir að tónsmíðakerfí eins notað er oft í tölvum í dag. Tón- smíðakerfi í tölvum eru iðulega mun sveigjanlegri en eldri kerfi eins og til mynda tólftónakerfi Schoen- bergs. Eitt aðalatriði í öllum slíkum kerfum er að styttá leiðina frá hugmynd að veruleika.“ Enginn einn sannleikur „Notandi Calmus hannar eigið umhverfi enda er ekki til neinn einn sannleikur í tónsmíðum. Hvert tón- skáld hefur sín sérkenni og forritið býður upp á það að tónskáldið móti það eftir eigin þörfum og safni sínum efnivið. Það eru ýmis stíl- brigði sem fylgja tónskáldum og þau er hægt að búa til í forritinu og geyma. Einnig er hægt að láta tónsmíðarnar erfa efnivið frá fyrri tónsmíðum og í raun endurnýta." Kjartan segir að þessa vinnu séu mörg tónskáld að vinna með blaði og blýanti, en Calmus bjóði upp á að gera hana í öflugu og handhægu umhverfi. Margir eigi þó erfitt með að átta sig á forritinu og þótt það sé fullbúið í dag hyggist hann gera á því ýmsar endurbætur, meðal annars til að gera það einfaldara og þægilegra í notkun. „Tónskáld eru ekki vön tölvuumhverfí og eiga því erfitt með að tileinka sér það. Þeirra börn eiga þó eftir að þekkja slíkt umhverfi vel og þannig getur sjö ára dóttir mín athafnað sig í forritinu og stýrt því að hluta,“ segir Kjartan og kímir. „Tónskáld eiga aftur á móti erfítt með að tengja saman einhverjar tölvuað- gerðir og tónlist og að teikna upp hvemig laglína á að þróast; eiga erfitt með að skila því til tölvunn- ar, þó þau geti skrifað það á blað nánast ósjálfrátt. Þeir sem reynt hafa forritið eru þó allir ánægðir með tónlistarforsendur þess og það : Morgunblaðið/Sverrir KJARTAN Olafsson skiptir höfuðmáli." Kjartan segir að nú á tímum tæknibyltingar séu menn að komast yfir tæknibrjálæðið sjálft og farnir að huga frekar að þeim gæðum og möguleikum sem tæknin býður. „Menn eru farnir að spyija spurn- inga eins og á hvern hátt hefur tölvan bætt mína vinnu, aukið af- köstin og gæðin. Það er ekki nóg að vera tengdur inn á alnetið, eiga möguleika á að ná í allar uppýsing- ar sem hugsast getur og hafa sam- skipti við fólk um allan heim sem er að fást við svipaða hluti, ef menn hafa ekki í huga gæði vinnunnar eða afköst. Upplýsingaleitin sem slík er orðin aðalatriðið en ekki úrvinnsla upplýsinganna eða hag- nýtt gildi þeirra. íslenska mennta- netið hans Péturs Þorsteinssonar er dæmi um það hvernig tölvur og nettenging getur aukið afköst og möguleika við kennslu og sjálfstæð vinnubrögð. Á móti kemur stjórn- leysi alnetsins sem getur orðið Þrándur í Götu markvissrar upplýs- ingaleitar.“ Kjartan er með heimasíðu á al- netinu, á slóðinni http://rvk.is- mennt.is/'kjol, og þar hefur hann meðal annars kynnt Calmus. Hann segir að síðustu mánuði hafi um fimm þúsund manns heimsótt síð- una. „Ég er ánægður með þennan áhuga, sem er mest að utan, og hann gefur vísbendingu um að al- netið eigi eftir að verða mikilvæg leið til kynningar á hugbúnaði því I raun stend ég jafnfætis hugbún- aðarrisum með sínar heimasíður; allir eiga jafna möguleika á netinu. Á sama hátt getur netið nýst ís- landi, sem er lítið og fjárvana mið- að nágranna sína flesta, til kynn- ingar og markaðssetningar." VERK eftir Guðrúnu H. Jónsdóttur. Þrír lista- menn í Hafnarborg í HAFNARBORG, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, verða opnaðar þijár sýningar í dag, laug- ardag. Guðrún Ragnhildur Eiríksdóttir sýnir vatnslitamyndir og er þetta fyrsta opinbera sýning hennar, en hún hefur fengist við vatnslitamálun undanfarin níu ár, fyrst á námskeiði hjá Ingibergi Magnússyni en síðar undir leiðsögn listmálaranna Eiríks Smith og Hrings Jóhannessonar. Guðrún H. Jónsdóttir sýnir mál- verk en hún er einnig þekkt undir listamannsnafninu Gígja. Guðrún nam við Myndlista- og handíðaskóla íslands veturna 1979-81 og hefur fengist við olíumálun síðan. Sýningum þeirra lýkur 11. mars. Annars konar landslag í kaffistofu Hafnarborgar sýnir kanadíski listmálarinn Ian Hobson. Hann segist forðast að kalla sig landslagsmálara því orðið kalli upp í hugann mynd af málara sem situr við trönur sínar úti í landslaginu og málar það sem hann sér. Hobson telur að svo beinu sambandi verði aldrei komið á milli landslags og myndar. Málverk hans sjálfs verða til á löngum tíma, taka stundurp fjögur til fimm ár og eru úrvinnsla ótal hugmynda sem hann hefur síðan mótað í skyssum og málverkum. ísland hefur haft mikil áhrif á Hobson þá mánuði sem hann hefur dvalið hér við störf í myndlistastöð- inni í Straumi. Það er ekki síst veðr- ið hér sem hefur fangað hug hans og hann hefur unnið hér um 160 teikningar og tuttugu og sjö olíumál- verk. Myndirnar sem hann vinnur hér eru liður í stærra verki sem mun ná til þriggja landa við Norður-Atl- antshafið; Nýfundnalands, Islands og írlands. Við þetta verk nýtur Hobson styrks frá kanadísku lista- stofnuninni. Sýning Ian Hobsons stendur til 5. mars. VETTVAIMGUR Eistland í nýjum heimi Eistlendingar hafa reynt að finna sig í nýjum heimi síðan þeir hlutu sjálfstæði, að staðsetja sig upp á nýtt. f þeirri viðleitni hafa þeir leitað sögulegs uppruna síns en í þarlendum bókmenntum hefur komið fram stefna sem kallast ethnofuturismi. Einn- ig hafa Eistar lagt mikla áherslu á að tengjast betur umheiminum. AÐ ER lærdómsrík upplifun að heim- sækja þjóð sem er í deiglunni, sem er að móta sjálfsmynd sína og stað- setja sig upp á nýtt í heiminum. í Eistlandi er talað um að hin tvílita heimssýn sé á undanhaldi eftir að járntjaldið féll. Hin pólitíska grunnandstæða á milli austurs og vesturs hefur riðlast og í framhaldi virðist hafa myndast hugmyndalegt tómarúm sem endurspeglast glögglega í listum og menn- ingu. Sumir Eistar tala um að nú þurfi að fínna raunveruleikann sem hefur dulist ein- hvers staðar inn á milli hugtaka eins og efn- is og anda, lögmáls og frelsis. Kannski er raunveruleikinn trúarlegt ástand, sagði eist- neskur listamaður við mig fyrir skömmu. Ein leiðin sem Eistar fara til að fínna sig í nýjum heimi er að leita í fortíðinni. í bók- menntunum hófst þessi leit reyndar nokkru fyrir hrun múrsins. Árið 1980 kom fram hóp- ur rithöfunda í landinu sem kenndi sig við ethnofuturisma. Markmið hópsins var að tengja saman í bókmenntunum forn og þjóð- leg lífsviðhorf og nútímalegt form eða öfugt, forn og þjóðleg bókmenntaform og nútíma- lega heimssýn. Eistar hafa þannig reynt að finna eðli sitt og sjálfsmynd í sögu sinni en um leið hafa þeir reynt að finna samhljóm við samtímann. Mikilvægur þáttur í því að komast í takt við nútímann hefur verið að tengjast betur umheiminum. Á Sovéttíma var Eistland lokað samfélag; upplýsingar frá öðrum heimshlut- um bárust mjög óreglulega og þá oft í bjag- aðri mynd. Það voru einkum mjög virkir og opnir listamenn og fræðimenn sem komust í tengsl við erlenda strauma og stefnur en aðeins útvaldir í þessum hópum höfðu aðgang að sérstökum deildum bókasafna sem höfðu að geyma bækur með óæskilegum viðhorfum, svo sem eftir Milan Kundera og Michel Fouc- ault. Nú eru bókabúðir fullar af ritum þess- ara höfunda og seljast vel. En sennilega er sjónvarpið sterkasta tækið til að tengjast umheiminum. Þijár eistneskar sjónvarpsstöðvar keppast við að senda út vestrænt efni, bandarískir sjónvarpsþættir eru ríkjandi. Eitt kvöldið er sýnt frá söngva- keppni þar sem verið er að velja lag til þátt- töku í júróvisjón; það er í annað eða þriðja sinn sem Eistar senda lag í keppnina. Hún er talin mikilvæg fyrir þjóðina enda er hún mikið rædd á meðal almennings. Má heyra að hún er töluvert hitamál. Eistar hafa einnig talið mikilvægt að efla tengsl sín við Norðurlöndin þótt þeirtelji sjálfa sig fyrst og fremst Evrópumenn. Norræna upplýsingaskrifstofan hefur haft stóru hlut- verki að gegna í þessum efnum síðastliðin ár en slíkar skrifstofur á vegum norrænu ráðherranefndarinnar eru í öllum Eystrasalts- ríkjunum, Pétursborg og í Kaliningrad. Mið- stöð þessarar skrifstofu í Eistlandi er í Tall- inn en útibú er í Tartu. Skrifstofumar hafa aðstoðað við að skipuleggja norræna menn- ingarviðburði, ráðstefnur og ýmis konar fundi í Eistlandi. Einnig hafa þær staðið fyrir nám- skeiðum í norrænum tungumálum í háskólan- um og aðstoðað nemendur við að afla sér styrkja til frekara náms á Norðurlöndunum. Einnig hafa skrifstofurnar unnið að því að koma á viðskiptasamböndum við norræn fyr- irtæki og hefur meira en 25 verkefnum af því tagi verið hleypt af stokkunum. Svíar og Finnar hafa verið ötulastir við að stofna til ýmiss konar samstarfs við Eista á sjálfstæðistímanum. Síðan íslendingar tóku frumkvæði í að viðurkenna sjálfstæði þjóðar- innar haustið 1991 hefur hins vegar lítið borið á þeim þar. Sigurður Öm Brynjólfsson, sem starfar í Tallinn við brúðumyndagerð, segist undrandi á því að íslendingar skuli ekki hafa haft meiri áhuga en raun ber vitni á því að stofna til viðskiptasamstarfs við Eista á ein- hveiju sviði. Sigurður hefur starfað í Tallinn í þijú ár og segist ekki hafa orðið var við nokkum áhuga íslendinga, hvorki ríkis né einkaaðila, á að leggja peninga í rekstur í Eistlandi síðan þeir gengu svo hetjulega fram í viðurkenningu sjálfstæðis landsins. Menningarleg sarnskipti hafa heldur ekki verið mikil. Á síðasta ári var þó gefið út ljóða- safnið, Við höfum ekki sést lengi, með þýðing- um Hjartar Pálssonar á ljóðum eistneska skáldsins, Jaans Kaplinski. Kaplinski er eitt fremsta skáld Eista og hefur verið þýddur á fjölmörg tungumál. Verður vonandi haldið áfram á þessari braut. Rithöfundurinn ungi, Emil Tode, hefur til dæmis vakið gríðarlega athygli fyrir skáldsögu sína, Landamæraríkið, sem hefur verið þýdd á tólf tungumál. Tode þykir takast vel að lýsa sálarástandi þjóðar sinnar eftir byltinguna, þjóðar sem dansar á mærum tveggja heima, tveggja tíma. Það væri verðugt verkefni að koma þeirri bók í tæri við íslenska lesendur. ÞH

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.