Morgunblaðið - 05.03.1996, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ISL AN DSM EISTAR AR
Uppsveifla KA
■niðurgangur hjá Vikingi
Sæti
2.
ISL AN DSM EISTARAR
KAkemur |
uppúr2.
deild 1985
deild
12 lið ídeildínni _
Sæti
9. Sex liða W 9.
10. úrslita- keppni j fltta liða úrslitakeppni 10.
'85 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996
■ REGI Blinker skrifaði í gær und-
ir samning til þriggja og hálfs árs
við enska félagið Sheffield Wed-
nesday. Blinker, sem á þrjá lands-
leiki að baki fyrir Holland, hefur
leikið meira en 250 leiki með Fey-
enoord í Hollandi undanfarin níu
tímabil en kantmaðurinn hefur ekki
fengið mörg tækifæri hjá þjálfaran-
um Arie Haan á yfirstandandi tíma-
bili.
■ MARC Gngnon frá Kanada
bætti heimsmet sitt í 1.500 metra
skautahlaupi á stuttri braut þegar
hann fékk tímann 2.18,16 mín. í
heimsmeistarakeppninni í Haag í
Hollandi um helgina. Fyrra met
hans var 2.18,61 en Bretinn Nicky
Gooch fór á 2.18,30 og Chae Ji-
hoon frá Suður-Kóreu á 2.18,50.
■ ISABELLE Charest frá Kanada
setti einnig met en hún fór 500
metrana á 45,25 sekúndum í riðla-
keppninni. Yun-Mi Kim frá Suður-
Kóreu átti fyrra metið, 45,53, sett
í Gjövik í Noregi fyrir ári.
■ ÍTALSKA karlasveitin setti
heimsmet í 5.000 metra boðhlaupi,
fór á 7.04,92 mínútum, en met
Kanada frá því í Gjövik í fyrra var
7.07,96.
■ ÍTALSKA kvennasveitin fór
FOLK
3.000 metra boðhlaup á 4.21,50, sem
er heimsmet, en sveit Kína átti fyrra
metið, 4.24,68, sett í Gjövik i fyrra.
■ MANABU Horii frá Japan setti
heimsmet í 1.000 metra skautahlaupi
á móti í Calgary í Kanada um helg-
ina. Hann skautaði á 1.11,67 mín.
en landi hans, Yasunori Miyabe,
átti fyrra metið, 1.12,37, sem hann
setti í sömu höll fyrir tveimur árum.
■ HIROYASU SHIMIZU frá Jap-
an bætti heimsmetið í 500 metra
hlaupi á sama móti, fór á 35,39 sek-
úndum, en met Bandaríkjamanns-
ins Dan Jensens sett á sama stað
1994 var 35,76. Horii var annar á
35,39 og Rússinn Sergey Klevc-
henya þriðji á 35,76.
■ GWEN Torrence setti banda-
rískt met í 200 metra hlaupi innan-
húss um helgina þegar hún hljóp á
22,33 sekúndum á sjötta og síðasta
stigamóti Bandaríkjamanna í vetur.
Hún var stigahæst á mótum vetrar-
ins og fékk 40.000 dollara í verðlaun.
■ MICHAEL Johnson var þremur
hundruðustu úr sekúndu frá heims-
meti sínu í 400 metra hlaupi, hljóp
á 44,66. Derek Mills var annar á
45,60.
■ CARL Lewis var síðastur í sínum
riðli í 60 metra hlaupi og komst ekki
í undanúrslit.
■ ROGER Kingdom komst ekki í
úrslit í 60 metra grindahlaupi. Tug-
þrautamaðurinn Dan O’Brien varð
í fjórða sæti.
■ DONOVAN Bailey frá Kanada
var stigahæstur karla á mótum vetr-
arins og fékk 40.000 dollara í verð-
laun en hann keppti ekki um helg-
ina. Þetta var í síðasta sinn sem út-
lendingar fá að keppa á meistara-
móti Bandaríkjanna innanhúss.
■ JIM Courier vann Chris Wood-
ruff 6-4, 6-3 í úrslitaleik bandaríska
meistaramótsins í tennis um helgina.
Þetta var fyrsti titill Couriers á liðn-
um fimm mánuðum eða síðan hann
varð meistari á Opna svissneska
mótinu 1. október sem leið. Þetta var
jafnframt í 19. sinn sem hann verður
meistari.
REYKJAVÍK
Sú var tíð að mikili meiri hluti
besta íþróttafólks landsins
keppti fyrir félög í Reykjavík.
Höfiiðborgin státaði af béstu fé-
lagsliðunum og einstaklingar í
hinum ýmsu greinum
sköruðu fram úr. Nú
eru breyttir tímar.
íþróttastarfsemi er að
vísu mikil í borginni,
en flestir afreksmenn-
imir, helstu fyrir-
myndirnar, em úti á
landsbyggðinni.
Yfirleitt er það þannig að af-
reksmennirnir, þeir bestu og sig-
ursælustu, vekja mesta athygli,
stuðla að aukinni íþróttaiðkun
þeirra yngri og draga að flesta
áhorfendur; em hvati fyrir við-
komandi bæjarfélag. Með það í
huga stendur Reykjavík illa að
vígi í samanburði við mörg önnur
sveitarfélög eins og Akranes,
Akureyri og Reykjanesbæ.
Knattspyma er vinsælasta
íþróttagrein landsins en aðeins
þijú Reykjavíkurfélög em í 1.
deiid Jcaria. Handknattleikur og
körfuknattleikur em helstu
greinamar á veturna en í 12 liða
handboitadeild verða væntanlega
aðeins þrjú félög úr borginni
næsta vetur og tvö í 12 liða körfu-
boltadeild. Nánast sömu íþrótta-
mennirnir hafa farið fyrir reyk-
vískum keppendum 1 einstakl-
ingsgreinum í mörg ár og virðist
vera að halla undan fæti hjá þeim
flestum. Almennt er íþróttaað-
staða í landinu hvergi betri en í
Reykjavík og þar er ijölmennið
mest en minna verður úr efniviðn-
um en ætla má.
„Það hlýtur að vera áhyggju-
efni, ekki bara félaganna 5
Reykjavík heldur líka þeirra, sem
eru í forsvari fyrir íþróttir, að það
skuli aðeins vera tvær sterkar
íþróttadeildir í Reykjavík, knatt-
spymudeild KR og handknatt-
leiksdeild Vals,“ segir Brynjar
Harðarson, formaður handknatt-
leiksdeiidar Vals, í samtali við
íþróttablaðið. Hann segir jafn-
framt að félögin séu að molna
innanfrá því þeim fækki stöðugt
Stórfoorgir tefla fram
færri en sterkari liðum
og einstaklingum
sem hafí kraft, vilja eða getu til
að stjórna félögunum vegna fjár-
hagslegrar stöðu þeirra. Þau hafi
skuldbundið sig, eytt um eftii
fram og séu að súpa seyðið af því.
Gangi rekstur íþróttafélags illa
er ekki við neinn að sakast nema
stjórnendur þess. Þeir bera
ábyrgðina. Hins vegar má ætla
að reksturinn gangi víða illa
vegna þess að aliir vilja vera í
fremstu röð og svo virðist sem
margir séu tiibúnir að leggja mik-
ið undir til að ná settu marki.
Þegar það næst ekki sitja þeir
eftir með sárt ennið, tóma buddu
og skuldir í ofanálag. Eyðsla um
efni fram getur ekki endað nema
á einn veg.
íþróttamenn og keppnislið í
fremstu röð eru stolt borga víða
um heim en yfírleitt eru hvorki
mörg topplið né margir afreks-
menn í einstaklingsgreinum í
sömu borg. Fjöldi íþróttamanna
er fyrir hendi í miiljónaborgum
en aðeins lítið brot kemst í hóp
afreksmanna. Þess vegna er
staða Reykjavíkur ekki óvenjuleg
hvað þetta varðar og reyndar
má gera ráð fyrir færri en sterk-
ari liðum og einstaklingum í
Reykjavík í fremstu röð á meðal
íþróttamanna landsins áður en
langt um líður.
Steinþór
Guðbjartsson
Hvernig kann landsliðsíyrirliðinn GUÐIMIBERGSSON við sig í Bolton?
Vil spila í
efstu deild
GUÐNI Bergsson, fyrirliði fslenska landsliðsins í knattspyrnu,
hefur verið einn af lykilmönnum enska úrvalsdeildarliðsins
Bolton. Hann átti þátt í að koma liðinu upp úr 1. deild ífyrra-
vor, var kosinn besti maður liðsins f ágúst og nóvember, er
næstmarkahæstur með fjögur mörk og tryggði því 1:0 sigur
í Leeds um helgina með glæsilegu skallamarki. Guðni er
kvæntur Elfnu Konráðsdótturfélagsráðgjafa sem sækir nám-
skeið f fjölskyldumeðferð. Þau eiga soninn Berg sem er fjög-
urra ára. Þeim líður vel f Bolton og f gær skrifaði Guðni und-
ir nýjan samning sem gildir út tfmabilið 1998.
„Það var gaman. Ég skoraði
fyrir Tottenham á sínum tíma í
3:1 sigri gegn Nottingham Forést
og jafnaði 2:2 fyrir Bolton gegn
Tottenham en þetta var fyrsta
sigurmark mitt hérna. Það var
ágætt að ná að koma við hann á
góðu augnabliki og sjá boltann í
markinu en við héldum haus í þær
75 mínútur sem eftir voru leiks
og það var líka ljúft."
Breytir sigurinn miklu fyrir
Bolton sem er áfram í neðsta
sæti?
„Þetta var nauðsynleg upprisa
eftir miklu vonbrigðin í ná-
grannaslagnum gegn Manchester
United. Það var mikið áfall fyrir
liðið og aðdáendur þess að tapa
6:0 en þessi sigur gefur okkur
Guðni skoraði þegar stundar-
fjórðungur var liðinn af
viðureign Leeds og Bolton. Bolton
fékk aukaspyrnu rétt utan víta-
teigshornsins
Eftir vinstra megin,
Steinþór fyrirgjöfin var á
Guðbjartsson fjærstöng og þar
kom Guðni aðvíf-
andi en umkringdur mótheijum
stökk hann hæst og hitti boltann
eins og best verður á kosið. Mörk-
in urðu ekki fleiri og Bolton fékk
dýrmæt stig í fallbaráttunni. „Við
eigum enn von ef við höldum
áfram að sýna svona frammi-
stöðu,“ sagði Colin Todd, knatt-
spymustjóri Bolton. En hvernig
fannst Guðna að gera sigurmark
í fyrsta sinn í Englandi?
Morgunblaðið/Valur Benedikt Jónatansson
FJÖLSKYLDAN kann vel við sig í Bolton en hér er Guðni
með eiginkonunni Elínu, syninum Bergi og hundinum Depli.
von. Við verðum að reyna að sýna
okkar rétta andlit í þeim leikjum
sem eftir eru en eins og ég hef
oft sagt áður er liðið betra en
staðan gefur til kynna.“
Þú varst frá í tæpar þrjár vik-
ur vegna meiðsla en komst svo
sem bjargvættur. Var það undir
sjálfum þér komið hvort þú spil-
aðir eða ekki í Leeds?
„Ég lék með varaliðinu síðast-
liðinn miðvikudag til að sjá hvort
ég gæti verið með gegn Leeds
og það var í fyrsta sinn sem ég
hljóp eitthvað að ráði frá því ég
rifbeinsbrotnaði fyrir tæplega
þremur vikum. Rifin héldu og því
treysti ég mér í slaginn þótt ég
væri eðlilega þyngri en venjulega.
Ákveðið var að ég spilaði sem
hægri bakvörður sem er ekki
uppáhaldsstaðan en ég kvarta
ekki þegar ég skora og hlutirnir
ganga upp.“
Og þú ætkir að vera áfram hjá
Bolton næstu árin?
„Já. Það er frágengið að ég
verð áfram til vors 1998. Mér
hefur gengið vel með liðinu, fjöl-
skyldunni líður vel i Bolton og
félagið gerði mér gott tilboð sém
ég ákvað að taka. Hér hef ég
fengið tækifæri til að leika sem
miðvörður, hef gaman af þessu
og er reynslunni ríkari. Það er
mikill uppgangur hjá félaginu og
mig langar að spila áfram í úr-
valsdeildinni en ég get ekki búist
við að önnur áhugaverð lið bíði í
röðum eftir að kaupa þrjátíu og
eins árs gamlan leikmann.“