Morgunblaðið - 08.03.1996, Page 8
8 B FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÞESSIR skápar nýtast vel undir alla smáhlutina sem fylgja hverju heimili.
til
ÞAÐ getur komið sér vel
að geta rennt svona stól
til og frá eftir þörfum.
ess að lífga upp á heimilið
ÞEIR sem búa í litlu og þröngu húsnæði eiga oft í stökustu vandræðum
með að koma húsgögnum heimilisins fyrir á „réttan“ hátt, að ekki sé
talað um að breyta einhverju og endurraða. Það er hægara sagt en gert
að flytja til þung húsgögn í þröngu rými. Þetta getur verið leiði-
gjarnt, enda hressandi fyrir sálartetrið að fá útrás fyrir sköpun-
argleðina með svona breytingum.
Húsgagnahönnuðir virðast þessa dagana
hafa íbúa litlu, þröngu heimilanna sérstak-
lega í huga. Húsgögnin sem blasa við af
síðum tímarita um hönnun og híbýli eru
létt og litskrúðug - og á hjólum. Meðfylgj-
andi myndir sýna aðeins lítið sýnishorn af
þessum „hjólandi“ húsgögnum en gefa les-
endum vonandi hugmyndir. Þeir laghentu
geta skroppið í næstu járnvöruverslun og
fest kaup á hjólum til skella undir uppáhalds-
skápinn, bókahillurnar, skrifborðið, sófaborðið,
dívaninn . . . Möguleikarnir eru óþrjótandi. ■
POTTUR undir
blóm, eða bara
hvað sem er.
TÖLVUBORÐ eru
oft á hjólum, en
þetta er létt og lip-
urt, og umfram allt
öðruvísi.
DAGLEGT LÍF
■
HILLURá
hjólum.
í>!
Hundalíf
ÞAÐ var líf og fjör í íþróttahúsi
Digranesskóla um síðustu helgi.
Keppni í fullum gangi, en keppend-
ur frábrugnir
248 hundar
voru ó sýningu
Hundnræktnr-
félngs íslnnds
síðustu helgi
þeim sem
venjulega
spreyta sig þar
í hinum ýmsu
íþróttagrein-
um. Það var
nefnilega sýn-
ing hjá
Hundaræktar-
félagi íslands og hundarnir sem
tóku þátt í sýningunni voru hvorki
fleiri né færri en 248 af af 36 teg-
undum.
Dómarar á sýningunni voru Öj-
vind Asp frá Noregi og Elina Tan-
Hietalahti frá Finnlandi, en úrslit
urðu sem hér segir:
Besti hundur sýningar:
St. Bernharðshundur
INTUCH NU-SUCH-IS.M.
Bernegardens Tamlin
Eigandi Ástrós
Gunnarsdóttir
2. sæti:
Irskur seti
Filja-Czar Almas Niccolai
Eigandi Magnús
Jónatansson
3. sæti:
Borzoi
IS. M. Eðal-Darri
Eigandi Katrín
Friðriksdóttir
4. sæti:
þýskur fjárhundur
Isafoldar - Dúna
Eigandi Sigrún
Baldursdóttir
5. sæti:
Kóngapúðli
IS. M. Roffe
Eigandi Sóley Möller
Besti öldungur sýningar:
Irskur seti
Dimma
"j* *■;
Wj
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HER stilla hundarnir sér upp með aðstoð eigenda. Dómarar velja í fimm efstu sætin.
ST. BERNHARÐSHUNDURINN Bernegardens Tamlin var valinn besti hundur
sýningarinnar. Eigandi er Ástrós Gunnarsdóttir.
Eigandi Sigríður
Eiríksdóttir
Besti hvolpur sýningar:
Golden retriever
Nolla-Drífa
Eigandi Ásgeir Þórðarson
Besti ræktunarhópur:
Cavalier King Charles
spaniel
Ræktandi: María Tómas-
dóttir
Besti afkvæmaliópur:
IS. M. Dalmo’s Globetrott-
er ásamt 5 afkvæmum
Ræktandi: Alma Róberts
Besti ungi sýnandi:
Lena Rut Kristjánsdóttir,
11 ára með Leiru-Þór, la-
brador retriever