Morgunblaðið - 30.03.1996, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. MARZ 1996 C 7
Fjölskyldu-
tónleikar
SKÓLAHLJÓMSVEIT Grafar-
vogs heldur upp á þriggja ára
afmæli sitt með fjölskyldutónleik-
um í Ráðhúsi Reykjavíkur á
pálmasunnudag kl. 16. Báðar
deildir sveitarinnar, yngri og
eldri, koma fram og leika tónlist.
Hljóðfæraskipunin er hefðbundin
að hætti brassbanda.
Á efnisskránni eru m.a. verk
eftir Mussorgsky, Handel, Svavar
Benediktsson, Andrew Webber,
John Lennon og marga fleiri.
Hljómsveitin hefur starfað af
miklum krafti í vetur og leikið
víða, nú síðast á Akranesi um síð-
ustu helgi.
Sljórnandi er Jón E. Hjaltason
og er öllum heimill ókeypis að-
gangur.
SKOLAHLJOMSVEIT Grafarvogs.
Mynda-
safn SÍS
ÁRIÐ 1994 var Þjóðminjasafni
íslands afhent til varðveislu
myndasafn Sambands íslenskra
samvinnufélaga. Myndasafnið er
allstórt að vöxtum og hefur að
geyma mjög fjölbreytt myndaefni.
Ljósmyndirnar sýna starfsemi
Sambandsins og kaupfélaganna
um land allt; verslanir, frystihús,
verkstæði, býli og þorp, og fólk
að störfum. Einnig eru í safninu
myndir tengdar útgáfu á vegum
Sambandsins, s.s. Norðra, Hlyns
og Samvinnunnar.
Kjarni myndasafnsins kom
óskráður til Þjóðminjasafnsins.
Smá brot úr myndasafninu er nú
til sýnis í Bogasal Þjóðminjasafns-
ins. Þjóðminjasafnið er opið
laugardaga, sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 12-17.
EIN myndanna
á sýningunni.
dóttir leysti nöfnu sína Stephensen
af hólmi, í hlutverki ráðskonunnar
dularfullu, er sú síðarnefnda hvarf
tímabundið til annarra leikstarfa
en í framtíðinni munu þær stöllur
skiptast á að túlka ráðskonuna.
I „Kennslustundinni" er slegið
á marga og ólíka strengi og þar
hljóma ýmis ólík tilbrigði gaman-
leiks og harmleiks í takt við hljóm-
fall það sem kennt hefur verið við
„fáránleikastefnu" leikhússins, en
Ionesco er einn helsti fulltrúi þeirr-
ar stefnu, segir í kynningu.
Gyðjur og grindur
MYNPLIST
G a 11 c r í S æ v a r s
Karls/Gallerí Úmbra
BLÖNDUÐ TÆKNI
Kristín Amgrímsdóttir/Anna Snædís
Sigmarsdóttir. Gallerí Sævars Karls:
Opið virka daga á verslunartíma til
10. apríl. Gallerí Úmbra: Opið kl.
14-18 alla daga nema mánud. til 3.
apríl. Aðgangur ókeypis.
LITLU sýningarstaðirnir í ná-
grenni Bakarabrekkunnar eru að
verða einn sterkasti þáttur mynd-
listarlífsins í höfuðborginni. Nú eru
starfandi átta slíkir á litlu svæði
frá Hverfisgötu að Bókhlöðustíg,
og með nýju galleríi við Hafnar-
stræti eykst enn við þetta miðlæga
mynstur. Lifandi list er einn helsti
styrkur líflegs miðbæjar, og bjóða
þessir staðir nú þegar upp á ákveð-
ið mótvægi við stærri sýningarstaði
og söfn lengra frá þessu svæði.
Á sama tíma er ljóst að stærð
sýninga og vægi er ekki alltaf með
þeim hætti, að þær verðskuldi
mikla og sjálfstæða umfjöllun. í
því er um margt þægilegra að líta
til fleiri en einnar sýningar á sama
tíma, enda skoða flestir sýningarn-
ar með þeim hætti, þ.e. ganga á
milli staða til að bera saman það
sem þeir hafa fram að færa.
Kristín Arngrímsdóttir
Kristín hefur helst markað sér
braut með teikningum af konum,
þar sem mjúkar útlínur sem eru
ýmist unnar með bambuspenna eða
pensli skapa munúðarfullar ímyndir
draumheima og átakalausrar feg-
urðar. Hún hélt einkasýningu á
sama stað fyrir tæpum fimm árum
þar sem slík verk voru uppistaða
sýningarinnar, og hefur frá þeim
tíma haldið áfram á sömu braut.
Hér gengur Kristín út frá svip-
aðri myndsýn, og gefur í sýningar-
skrá eftirfarandi grunn:
Þrír norrænir
ANNA Snædís Sigmarsdóttir
„Ég loka augunum og hugsa
mér stað þar sem ekkert hljóð heyr-
ist nema kvak í lóu, spóa og garg
í kríu. Ég opna augun og sé þar
hafa vaxið fíflar og sóleyjar."
I myndunum á veggjunum er
liggjandi kona umkringd þessu
litfagra illgresi, og fuglarnir hæn-
ast óhræddir að henni, líkt og gyðju
náttúrunnar. Við nánari skoðun
kemur í ljós að fínleg blómin sem
og fuglarnir eru vatnslitaðar klippi-
myndir, sem eru límdar inn í flet-
ina; þannig verður umhverfi gyðj-
unnar í hveiju verki afar draum-
kennt, og mýkt teikningarinnar fær
meira gildi en ella.
Gylltir rammar auka enn á birtu
verkanna og minna auk þess á
páska, sem eru á næsta leiti; þeirri
áminningu er raunar fylgt eftir
með skreyttu eggi, sem tileinkað
er lóunni.
Þessi fallega sýning er í góðu
samræmi við það sem Kristín hefur
áður sýnt. Ýmsum kann að þykja
skoi'ta á kraftinn, en hér er ekki
gengið út frá átökum, heldur un-
aði; samræmi fremur en andstöðu.
Anna Snædís Sigmarsdóttir
Grafík er ef til vill það sem gest-
um dettur síst í hug þegar þeir
koma inn í Gallerí
Úmbru og sjá
myndir Önnu Snæ-
dísar, en þaðan er
engu að síður und-
irstaða verkanna
komin. Sú vitneskja
er góð áminning
um með hversu fjöl-
breyttum hætti er
hægt að virkja hina
ýmsu miðla mynd-
listarinnar, en það
er síðan hinn mynd-
ræni árangur, sem
skiptir mestu.
Ánna Snædís út-
skrifaðist frá graf-
íkdeild Myndlista-
og handíðaskóla Islands 1994, en
hún dvaldi einnig um tíma við aka-
demíuna í Helsinki. Hún sýndi verk
sín á Selfossi á síðasta ári, en þetta
er fyrsta einkasýning hennar í höf-
uðborginni.
Hún sýnir hér alls fimmtán verk,
en myndirnar eru unnar með silki-
þrykki á striga, sem síðan er höndl-
aður frekar, t.d. skafinn niður og
í sumum tilvikum er þrykkið yfir-
lagt svörtum línum. Litfletirnir eru
fremur daufir, en virka vel í sumum
minni verkanna, t.d. „Brúnt borð“
(nr. 15), en síður í öðrum.
Þau verk eru hins vegar tærust,
þar sem svört línunet grindin á lit-
unum undir, og úr verður línuspil,
sem um sumt minnir á „loftteikn-
ingar“ Jackson Pollocks, þó hér sé
um að ræða öllu einfaldari bygg-
ingu. Myndin „Legoland" (nr. 6)
er gott dæmi um þetta, þar sem
lausriðið net leggst yfir flötinn og
móýar hann.
I heild ber þessi sýning með sér
að fjalla fremur um tæknilega
möguleika myndmiðilsins en mynd-
málið sjálft; Anna Snædís er þann-
ig að kanna kostina, en á eftir að
þróa viðfangsefnin frekar.
Eiríkur Þorláksson
kórar með opið
hús í Lang-
holtskirkju
UNGLINGADEILD
Leikfélags Kópavogs
Kakófónía í
Kópavogi
UNGLINGADEILD Leikfélags
Kópavogs frumsýnir á sunnudags-
kvöld leikrit sem unglingarnir hafa
unnið í „spuna“. Verkið kalla þau
„Kakófóníu" og er það byggt mjög
lauslega á sögunni um Rómeó og
Júlíu, sem flestir þekkja úr sam-
nefndu Shakespeare-leikriti.
Þet.ta er ekki í fyrsta sinn sem
unglingadeildin tekst á við klassík.
Fyrir tveimur árum færði hún á
svið eigin útgáfu af Pilti og stúlku
og síðastliðið haust var Silfur-
túnglið eftir Halldór Laxness aðal-
viðfangsefni hópsins.
„í „Kakófóníu" segir frá tveimur
stúlknaklíkum sem takast á um
hvað sem verða vill og eru tilbúnar
að ganga býsna langt í þeim átök-
um. Á það eftir að hafa ófyrirséð-
ar afleiðingar," segir í kynningu.
Sýnt er í nýju leikhúsi í Auð-
brekku 2, þar sem Krossinn hafði
áður starfsemi sína.
Kostuleg
kennslustund
EINÞÁTTUNGURINN „Kennslu-
stundin" eftir Eugéne Ionesco hef-
ur nú verið sýndur um fjögurra
mánaða skeið í Kaffileikhúsinu.
Uppfærslan hefur vakið mikla
athygli. Lof hefur verið borið á
leikstjórn Bríetar Héðinsdóttur og
ekki síður á túlkun leikaranna,
þeirra Gísla Rúnars, sem leikur
prófessorinn, Steinunnar Ólínu í
hlutverki nemendans og Guðrúnar
Þ. Stephensen, sem ráðskona.
Sú breyting varð nýlega á hlut-
verkaskipan að Guðrún Ásmunds-
ÞRÍR kórar verða með opið hús í
Langholtskirkju á sunnudagskvöld
kl. 20.
Þetta eru Herlevs pigekor sem
stjómað er af Helge Christensen
frá Danmörku og hér er í vinabæj-
arheimsókn til Seltjarnamess, fær-
eyski kórinn Aurora Borealis frá
Þórshöfn en það er kammerkór
skipaður ungu fólki undir stjóm
Ólafs Jökladal. Einnig syngur
Gradualekór Langholtskirkju undir
stjorn Jóns Stefánssonar.
Þetta mót er hugsað fyrst og
fremst til að skapa vinatengsl milli
þessara ungu söngvara en öllum
er fijáls ókeypis aðgangur.
Sólarmegin í
Hveragerði
SÖNGHÓPURINN Sólarmegin frá
Akranesi heldur tónleika í Hvera-
gerðiskirkju þriðjudaginn 2. apríl
kU 20.30.
Á efnisskrá eru innlend og er-
lend lög, meðal annars íslensk þjóð-
lög, dúettar og kvartettar.
Sönghópurinn hefur sungið sam-
an í sex ár og komið víða fram
bæði innanlands og utan. Söng-
stjóri hópsins er Guðmundur Jó-
hannsson t>g undirleikari Anna
Snæbjömsdóttir.
Sýningu Sig-
ríðar í Listhúsi
39 að ljúka
SÝNINGU Sigríðar Erlu í Listhúsi
39, Strandgötu 39 í Hafnarfirði,
lýkur á mánudag.
Sýningin heitir „Ilát“ en þar
sýnir Sigríður Erla ýmis ílát úr leir.
Sýningin er opin frá kl. 10-18
virka daga, frá 12-18 laugardag
og 14-18 sunnudag.
FJÖRUTÍU radda mótetta,
leyndardómur Sixtínsku kap-
ellunnar og Óttusöngvar á
vori verða flutt á aukatón-
leikum Mótettukórs Hall-
grímskirkju að kvöldi pálma-
sunnudags, 31. mars nk.,
klukkan 20.30. Verk þessi
voru flutt á tónleikum sl.
sunnudagskvöld en húsfyllir
var í Hallgrímskirkju og við-
tökur afar góðar. Það er
Mótettukórnum kærkomið að
flytja aftur þessi verk, en
tónleikarnir eru líka endur-
teknir til að veita þeim sem
misstu af tónleikunum tæki-
færi til að hlýða á þessa tón-
list.
Kórverkið Spem in alium
eftir enska tónskáldið Thom-
as Tallis frá 16. öld er skrif-
að fyrir 40 söngraddir, sem
skiptast í átta fimmradda
kóra, en þeim er dreift um kirkjuna
þannig að tónlistin berst að áheyr-
endum úr öllum áttum. Ekki er vitað
til að þetta verk hafi verið flutt áður
hér á landi.
Mótettan Miserere eftir ítalska
tónskáldið Gregorio Allegri frá byij-
un 17. aldar er sögufrægur helgi-
söngur, sem saminn var fyrir Sixt-
ínsku kapelluna í Róm og eingöngu
ætlaður til flutnings þar.
Óttusöngvar Jóns Nordals
Þriðja verkið á tónleikum Mótettu-"
kórsins er verkið Óttusöngvar á vori
eftir Jón Nordal, sem Mót-
ettukórinn flutti i nóvember
1993 við mjög góðar undir-
tektir. Það var skrifað fyrir
Sumartónleika í Skálholti og
byggist á völdum messutext-
um og Sólhjartarljóðp eftir
Matthías Johannessen. í þess-
ari viku var verkið hljóðritað
til útgáfu hjá íslenskri tón-
verkamiðstöð í tilefni 70 ára
afmælis tónskáldsins. Með
kómum syngja einsöngvar-
amir Þóra Einarsdóttir sópr-
an og Sverrir Guðjónsson
kontratenór og hljóðfæraleik-
arar eru Inga Rós Ingólfs-
dóttir á selló, Eggert Pálsson
á slagverk og Douglas A.
Brotchie leikur á orgel.
Hörður Áskelsson stjórnar
tónleikunum.
Það er fleira framundan
hjá Mótettukórnum. í byijun
maí mun kórinn taka þátt í alþjóð-
legri kórakeppni í Cork á írlandi,
þar sem 13 kórar keppa, en yfir 90
kórar munu hittast á kóramóti sem
keppnin er angi af. Þá mun kórinn
frumflytja nýtt verk eftir Hafliða
Hallgrímsson á Listahátíð í Reykja-
vík 2. júní og I lok september stefnir
kórinn á að flytja Óttusöngva á vori
á norrænni kirkjulistahátíð í Gauta-
borg í Svíþjóð.
Forsala miða á aukatónleikana fer
fram í Hallgrímskirkju. Miðaverð er
1.000 kr.
Jón
Nordal
Hörður
Áskelsson
Tónleikar
Mótettukórsins
endurteknir