Morgunblaðið - 04.04.1996, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 C 3
VIÐSKIPTI
Næstmestí sammni
símafélaga vestra
SBC Communicati-
ons kaupir Pacific
Telesis
New York. Reuter.
BANDARÍSKA fjarskiptafyrirtæk-
ið SBC Communications Inc. hefur
skýrt frá samningi um kaup á öðru
stóru símafyrirtæki, Pacific Telesis
Grouþ. Samningurinn hljóðar upp á
23,8 milljarða dollara og SBC tekur
við skuldum Pactel.
Þar með verður komið á fót öðru
stærsta símafyrirtæki Bandaríkj-
anna og jafnframt er hér um að
ræða fyrsta samruna svokallaðra „
Baby Bell“ símafélaga.
Nýja fyrirtækið, sem heldur
nafninu SBC Communications
name, munu sameina starfsemi
SBC í San Antonio, Texas, og um-
svif Pacifíc Telesis í Kaliforníu og
Nevada. SBC, sem áður hét Sout-
hwestern Bell, heldur uppi síma-
þjónustu í Texas, Missouri, Okla-
homa, Arkansas og Kansas.
Verðmæti hlutabréfa í hinu sam-
einaða fyrirtæki verður um 50 millj-
arðar dollara og starfsmenn þess
verða rúmlega 100.000. Sala þess
mun nema 21 milljarði dollara og
tekjur tæplega 3 milljörðum dollara
að sögn fyrirtækjanna.
Hluthafar Pacifíc Telesis fá alls
17 milljarða dollara í SBC hluta-
bréfum fyrir hlutabréf sín. Hver
hlutur í Pacifíc Telesis er því 39
dollara virði samkvæmt samningn-
um, eða 41% verðmeira en hluta-
bréf í Pactel við lokun á föstudag.
Samkvæmt samningnum tekur
SBC við um $6.8 milljörðum dollara
af skuldum Pactel.
Hlutabréf í Pactel hækkuðu um
6 dollara í 33,75 á mánudag eftir
opnun kauphallarinnar í New York.
Bréf SBC lækkuðu um 2,75 dollara
í 49,875 dollara í New York.
Sérfræðingur Dillon Read sagði
að hluthafar hefðu „áunnið sér fjög-
urra ára arð. á einum degi“.
Miklir framtíðarmöguleikar
Sumir sérfræðingar telja að ann-
ar bjóðandi í Pactel kunni að koma
fram, til dæmis GTE Corp., sem
er auðugra en SBC að sögn starfs-
manns Forrester Research og um-
svifamikið í Kaliforníu.
Sérfræðingar segja að SBC hafí
komizt að góðum kjörum við Pact-
el, sem hafi mikla framtíðarmögu-
leika þrátt fyrir skammtíma erfið-
leika. Þeir segja rökrétt að næsta
Cable & Wire-
lessogBT
kanna samruna
skref verði aukið símasamband við
Mexíkó og Asíu. „Þessi tvö fyrir-
tæki afgreiða helming allra símtala
til og frá Mexíkó og 20% símtala
til Asíu,“ sagði einn þeirra..
Bent er að að róttækar breyting-
ar á bandarískum fjarskiptalögum
nýlega hafi gert samninginn mögu-
legan og þær muni líklega leiða til
samruna fleiri fyrirtækja í grein-
inni.
Sá á fund
semfinnur
—góða aðstöðu!
SCANDIC
LOFTLEIÐIR
Pantaðu sal í tíma og stma 50 50 160
SAMNEISSYNING AÐ HOTEL LOFILEJÐGM
10. og 11. apríl
Póstur & sími bý&ur tii Samnetssýningar þar sem eftirtalin fyrirtœki
kynna vörur og þjónustu:
Apple-umboðið
SINVMIRKDMN
PÓSTUR
OG SÍMI
NÝHERJI
London. Reuter.
SÉRFRÆÐINGAR hafa fagnað
hugsanlegum samruna British
. Telecommunications (BT) og ann-
ars brezks fjarskiptarisa, Cable &
Wireless (CW), og telja að sigrast
megi á erfiðleikum, sem standi í
vegi fyrir samkomulagi.
Hlutabréf í fyrirtækjunum hafa
hækkað í verði síðan tilkynnt var
að þau hefðu aftur tekið upp „könn-
unarviðræður“, sem geta leitt til
stofnunar 33 milljarða punda risa-
fyrirtækis í eigu Breta, sem mundi
ráða lögum og lofum á brezkum
fjarskiptamarkaði og gegna virku
hlutverki í Evrópu, Austur-Asíu og
Bandaríkjunum.
Sérfræðingar telja að fyrirtækin
eigi að geta náð samkomulagi, en
segja að það verði erfítt og flókið
verk. Verð var aðal ásteytingar-
steinninn þegar fyrirtækin til-
kynntu fyrr í marzmánuði að þau
hefðu slitið viðræðum.
Eftirlitsstofnanir í nokkrum lönd-
um, aðallega Bretlandi, Hong Kong
og Þýzkalandi, munu hafa sitthvað
við væntanlegt samkomulag að at-
huga, en sérfræðingar telja að þeir
erfiðleikar séu ekki óyfirstíganlegir.
Sameining
talin eðlileg
Margaret Thatcher einkavæddi
bæði BT og C&W snemma á síð-
asta áratug og lengi hefur verið
viðurkennt að eðlilegt sé að þau
sameinist.
Aðalávinningur BT yrði 57,5%
hlutur C&W í Hong Kong Telecom,
sem mundi styrkja stöðu BT í Aust-
ur-Asíu. Þar við bætast víðtæk og
margháttuð starfsemi C&W víða
um heim, einkum samvinna við fyr-
irtækið VEBA AG í Þýzkalandi,
sem stofnað var til í fyrra.
Hagnaður BT fyrir skatta nam
2.6 milljörðum punda fjárhagsárið
1995, en hagnaður C&W 844 millj-
ónir punda.
Hlutabréf í BT hækkuðu í gær,
föstudag, um 16,5% í 365 pens og
bréf í C&W hækkuðu um 14,5 pens
í 526 pens.
Heimilistæki hf
TÆKIMI-OG TOLVUDEILD
SMITH &
NORLAND
SMel
a
rím
OPINKERFIHF
I HEWLETT
I PACKARD
Tæknival
IDQiD
Pepsi í bláar dósir
Gatwick-flujfvelli, Englandi. Reuter.
PEPSI COLA hefur afhjúpað
hljóðfráa Concorde þotu málaða í
bláum lit, sem fyrirtækið hyggst
taka upp og vekja athygli á með
500 milljóna dollara auglýsingaher-
ferð til að ná aftur markaðshlut-
deild frá keppinautinum Coca-Cola.
Dósir Pepsi verða bláar, en ekki
rauðar, hvítar og bláar eins og þær
hafa verið hingað til. Hafa ofurfyr-
irsæturnar Claudia Schiffer og
Cindy Crawford og bandaríski tenn-
isleikarinn Andre Agassi verið feng-
in til liðs við fyrirtækið til að aug-
lýsa nýju vöruna.
„Við teljum þetta dýrustu breyt-
ingu, sem gerð hefur verið á fram-
leiðsluvöru," sagði John Swanho-
use, einn yfirmanna markaðasmála
Pepsi, á Gatwick-flugvelli Lundúna.
Með auglýsingaherferðinni, sem
kallast „bláa áætlunin", er reynt
að ná til unglinga, sem talið er að
geti ráðið úrslitum um sölu Pepsi á
næstu öld. Coca-Cola selur nú þrisv-
ar sinnum fleiri gosdrykki í heimin-
um en Pepsi.
Óljóst er hvemig Pepsi hyggst
nota bláu Concorde þotuna. Sér-
fræðingar segja að hún geti ekki
flogið hraðar en hljóðið nema hún
sé hvítmáluð — annars flagni máln-
ingin af vegna hitans.
Mvinib fyrirlestrana á miðvikudcginum ki 9.00
Sigvaldi Jónsson, Prím. Samnets tölvukort og notcndabúnaður
Sigfús Bjömsson, Háskóla íslands. Símstöbvar framtíðarinnar
Sven R0nnow, TeleDanmark. Reynsla Dana af Samnetinu
Sýningin er opin frá kl. 10.00 til 17.00 bá&a dagana
Aðgangur er ókeypis
PÓSTUR
OG SÍMI
< teft, ‘ u jj j
SAMNET
SIMANS