Morgunblaðið - 13.04.1996, Qupperneq 1
fMi0r0nmMí#iiÍ>
• í heimsókn hjá söngvara/4
• Baksvið drykkjusýkinnar/4
• Ekki fæddur snillingur/8
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996
BLAÐ
eftir Van
Teikning
Þýsk sálumessa eftir Brahms á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands
Gogh
Amsterdam. Reuter.
UMFAN GSMIKIL sýning á
teikningum og rissum Vincents
Van Goghs var opnuð í
Amsterdam á miðvikudag og
var þar meðal annars afhjúpuð
ómerkt teikning, sem eignuð
hefur verið hollenska listmál-
aranum.
„Þetta er athyglisverður
fundur vegna þess að teikning-
in er hluti af fáum verkum frá
þeim stutta tíma, sem Van
Gogh var í Haag,“ sagði Louis
Van Tilborgh, yfirlistráðu-
nautur Van Gogh-safnsins í
Amsterdam.
Verkið er frá árinu 1883 og
er gert með vatnslitum, blý-
anti og bleki. Þar sést kona
bera barn eftir vegi í flatlendi.
Hér er um að ræða fyrsta
hluta fjögurra ára sýningar á
öllum verkum Van Gogh-safns-
ins. í þessum hluta eru 70
teikningar, sem gerðar voru
frá 1880 til 1883, og stendur
sýningin til 15. september.
Árið 1930 lýsti J.B. de la
Faille, sem þá var einn helsti
sérfræðingur í þessum fræð-
um, yfir því að umrædd teikn-
ing, sem ber heitið „Landslag
með konu og barni“, væri föls-
uð, en ónefndur þýskur safnari
bauð safninu að kanna hana
nánar fyrr á þessu ári. Nú er
talið að ekki sé nokkur vafi á
að teikningin sé eftir Van
Gogh.
„Það var hrein tilviljun að
við vorum að skoða hóp teikn-
inga, sem þessi tilheyrði,“
sagði Van Tilborgh. „í ljós kom
að teikningin er ein af fjórum,
sem voru gerðar með vatnslit-
um og blýanti á eins pappír.
Áður hafði verið sagt að hér
væri ekki teikning eftir Van
Gogh á ferð því að hann not-
aði sjaldan vatnsliti."
SÓLRÚN Bragadóttir sópransöngkona verður
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
sviðsljósinu með Sinfóníuhljómsveit íslands og Kór Langholtskirkju í Hallgrímskirkju.
S'
INFÓNÍUHUÓMSVEIT
íslands efnir til tónleika í
Hallgrímskirkju í dag
klukkan 17 ásamt Kór
Langholtskirkju og einsöngvurun-
um Sólrúnu Bragadóttur sópran
og Lofti Erlingssyni bariton. Tón-
sprotinn verður í höndum Japan-
ans Takuo Yuasa.
Á efnisskrá verður Þýsk sálu-
messa eftir Johannes Brahms,
„algjör perla,“ eins og Sólrún
Bragádóttir kemst að orði. Kveðst
hún hafa sungið hana bæði sem
kórmeðlimur og einsöngvari og
aldrei fengið leið á henni; „verkið
smýgur beint inn í sálina“.
Efasemdarmaður
Johannes Brahms var mikill efa-
semdarmaður hvað trúmál varðar.
Þrátt fyrir umtalsverða þekkingu
á Biblíunni er sagt að hann hafi
Beint inn
sálina
*
í
FYRIR 66 árum var sagt að „Landslag með konu og barni“ væri
fölsun, en nú þykir 100% öryggt að Van Gogh hafi verið að verki.
verið sannfærður um
að ekkert biði manna
að loknu jarðnesku
lífi. Sálumessa hans
er því ekki bæn fyrir
hinum látnu og hefur
engin bein tengsl við
sálumessur fóm-
versk-kaþólsku kirkj-
unnar.
Fráfall vinar hans,
Roberts Schumanns,
1856, og móður hans
níu árum síðar hafði Takuo
djúp áhrif á Brahms Yuasa
og að líkindum er það
engin tilviljun að hann skyldi
semja sálumessuna á þessu tíma-
bili. Var hún frumflutt í heild á
föstudaginn langa 1868 í dóm-
kirkjunni í Bremen undir stjórn
höfundar og hlaut frábærar við-
tökur.
Loftur
Erlingsson
Gaman
og krefjandi
Sólrún segir að sálumessa
Brahms hafi þótt einkennast af
dirfsku á sínum tíma, þar sem
textinn er á þýsku en ekki latínu.
Textinn mun vera tekinn beint úr
Biblíunni og þykir Sólrúnu hann
ákaflega fallega valinn. „Síðan er
virkilega gaman og krefjandi að
syngja verkið en það hentar minni
rödd mjög vel.“
Sólrún Bragadóttir stundaði
framhaldsnám í Bandaríkjunum
en hefur lengst af starfað í Þýska-
landi, meðal annars við óperuhús
í Keiserslautern, Hannover og
Diisseldorf. Starfar hún nú sjálf-
stætt og kemur fram sem gesta-
söngvari við óperuhús víða um
Evrópu, svo sem óperuna í Belf-
ast, þar sem hún söng nýverið í
Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart.
Fyrir dyrum standa nú hljóðritanir
í Þýskalandi ásamt píanóleikaran-
um Einar Steen-Nöckleberg, sem
staddur var hér á landi á dögun-
um, með geislaplötuútgáfu í huga.
Þá efnir Sólrún reglulega til ljóða-
tónleika.
Loftur Erlingsson er nýkominn
heim úr framhaldsnámi í söng við
Royal Northern College of Music
í Manchester á Englandi. Hlaut
hann sérstaka óperuþjálfun í The
National Opera Studio í London,
auk þess að sækja námskeið hjá
ýmsum þekktustu söngvurum Evr-
ópu. Loftur hefur sungið fjölmörg
óperuhlutverk og oft komið fram
á tónleikum, bæði hér heima og
erlendis.
Eftirsóttur
sljórnandi
Hljómsveitarstjórinn Takuo Yu-
asa hóf tónlistarnám í fæðingar-
borg sinni, Osaka í Japan. Þaðan
lá leiðin til Bandaríkjanna, þar sem
hann lauk prófi í tónsmíðum og
hljómsveitarstjórn frá Háskólan-
um í Cincinnati. Ferill Yuasa sem
stjórnanda hófst árið 1979 er hann
vann til fyrstu verðlauna í alþjóð-
legu hljómsveitarkeppninni í
Katowice í Póllandi.
Yuasa er ekki einungis eftirsótt-
ur á heimaslóð, heldur jafnframt
í Evrópu og er meðal annars fyrsti
gestastjórnandi sinfóníuhljóm-
sveitar BBC í Skotlandi.
Kór Langholtskirkju hefur
starfað undir stjórn Jóns Stefáns-
sonar frá árinu 1964 og flutt
mörg af stærstu kórverkum tón-
bókmenntanna. Kórinn hefur farið
í fjölmargar tónleikaferðir til út-
landa og meðal annars flutt H-
moll messu Bachs ásamt Ensku
kammersveitinni í Barbican tón-
leikahöllinni í London.
r