Morgunblaðið - 16.04.1996, Page 8

Morgunblaðið - 16.04.1996, Page 8
íslendingar hlutu gull eftir glæstan sigur í Japanskeppninni „Við lékum mjög agað“ Sigurður, Ólaf- ur og Þor- björn bestir SIGURÐUR Bjamason var kjör- inn mikilvægasti leikmaður Jap- anskeppninnar í handknattleik, Ólafur Stefánsson var útnefndur besti leikmaður íslands og Þor- bjöm Jensson besti þjálfari keppninnar. Þorbjöm sagði við Morgun- blaðið að hann hefði notað Sig- urð mikið í allar stöður, jafnt i vöm og sókn. „Hann stóð sig mjög vel og sýndi mikla fjöl- hæfni. Síðan var valinn besti maður hvers liðs og’var Ólafur valinn hjá okkur.“ Félagamir fengu verðlaun fyrir árangurinn og var Þorbjöm mjög ánægður með myndavélina sem hann fékk. „Hún á eftir að koma að góðum notum.“ GOLF Islendingar unnu Norðmenn 29:24 í úrslitaleik Japanskeppninnar í handknattleik sem lauk í Kuma- moto í fyrradag. Leikurinn var lengst af í járnum, íslendingar höfðu yfirleitt frumkvæðið og náðu mest tveggja marka forystu í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 14:13. Sama barátta einkenndi seinni hálfleik en í stöðunni 20:18 breytti Þorbjöm Jensson, landsliðs- þjálfari, í 5-1 vörn og á næstu mín- útum gerðu íslendingar fimm mörk gegn engu. Þetta var vendipunktur- inn og strákarnir fögnuðu glæstum sigri. „Þetta var mjög erfitt í fyrri hálfleik," sagði'Þorbjörn við Morg- unblaðið, „og leikurinn var í járnum þar til ég breytti um varnaraðferð. Þetta var mikill baráttuleikur og menn tóku fast á hver öðrum en við lékum mjög agað og sóknarnýt- ingin var 68%, sem er mjög gott.“_ Patrekur Jóhannesson var at- kvæðamestur að þessu sinni, gerði átta mörk í tíu skotum, en allir léku vel, að sögn Þorbjöms. Guðmundur Sigurður Bjarnason Hrafnkelsson var í marki í fyiri hálfleik og Bjarni Frostason eftir hlé. „Það sem stendur upp úr í þess- ari keppni er að við spiluðum mjög agaðan leik, vomm sterkir í vörn og einkennandi var að við tvíefld- umst ávallt í seinni hálfleik, gengum þá frá mótherjunum, sem er gott,“ sagði Þorbjöm. „í svona keppni er fímmti og síðasti leikurinn oft sá lakasti, en það var stígandi í þessu hjá okkur frá byrjun, við efldumst við hveija raun og urðum betri eftir því sem á leið. Það er mjög ják- vætt. Við gátum líka spilað fjöl- breyttan varnarleik sem er af hinu góða, en 6-0 vörnin kom best út.“ Þorbjörn er greinilega á réttri leið með landsliðið, en þetta er í annað sinn á tæpu ári sem liðið verður meistari í keppni undir hans stjórn. „Það var mjög mikilvægt að geta tekið þátt í þessari keppni," sagði Þorbjörn. „Eins og menn vita eru margir leikmenn á leið í at- vinnumennsku erlendis og því var þessi 'tími mjög dýrmætur fyrir lið- ið. Sama er að segja um lotuna í júní sem verður mikilvægur undir- búningur fyrir leikina í riðlakeppni Heimsmeistarakeppninnar í haust en úrslitakeppnin verður í Japan eftir rúmt ár og þar viljum við vera.“ ■ Þorbjörn / B2 620.000 kr. fyrir sigurinn í Japan ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik vann Noreg 29:24 í úrslitaleik Japanskeppninnar í fyrradag og fékk glæsilegan kristalsvasa í verðlaun. Auk þess fékk liðið milljón yen, um 620.000 krónur, fyrir fyrsta sætið. Norðmennirnir fengu 700.000 yen fyrir ann- að sætið og Suður-Kórea 500.000 yen fyrir þriðja sæti. „Þessir peningar koma sér vel,“ sagði Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari íslands, við Morgunblaðið. „Næst á dag- skrá er keppnisferð til Fær- eyja 10.-13. maí. Síðan verðum við saman við æfingar frá 10. júní og út mánuðinn, en þeirri lotu Iýkur með keppnisferð til Sviss. Syo eru það leikirnir í undankeppni HM í haust, en dregið verður í riðla eftir Evi’ópukeppnina 2. júní.“ Róbert með 85% nýtingu RÓBERT Sighvatsson gerði 17 mörk í 20 tilraunum og var með næst bestu skotnýtingu allra leikmanna keppninnar eða 85%. Bandaríski línumað- urinn Matt Ryan gerði 16 mörk í 18 tilraunum og var með 88,9% nýtingu. Greg Norman samurvið sig þrátt fyrir að tapa á ótrúlegan háttfyrir Nick Faldo Ekki heimsendir BRETINN Nick Faldo tryggði sér sigur á Bandaríska meistaramót- inu í golfi (US Masters) sem lauk á sunnudaginn, lék á 276 högg- um, eða fimm höggum betur en Ástralinn Greg Norman. Þetta var í áttunda sinn sem Norman verður í öðru sæti í einu af stóru mótunum fjórum. Það var ekki margt sem benti til þess að Faldo sigraði þegar kapparnir hófu leik á sunnudaginn, Norman átti sex högg á Faldo, en það sannaðist enn eina ferðina að leik er ekki lokið fyrr en kúlan dettur í 18. holuna. Þetta var í þriðja sinn sem Faldo sigrar á mótinu og á hann því orðið þrjá græna jakka, en sigurvegarinn fær ár hvert fær einn slíkan. essa 60. Mastersmóts verður lengi minnst, sérstaklega fyrir afleitan leik Normans síðasta dag- inn, en þá kom hann inn á 78 högg- um, 15 höggum meira en hann lék fyrsta hringinn á! Greg Norman er af mörgum talinn besti kylfingur heimsins, enda hefur hann verið í efsta sæti heimslistans í mörg ár. Hann er einnig þekktur fyrir ann- að; að sigra sjaldan á stóru mótun- um fjórum og hann hefur aldrei sigrað á stórmóti í Bandaríkjunum. Það er oft sagt að menn vilji halda ímynd sinni, en nú fannst mönnum Norman ganga of langt í þeim efn- um! Það er ekki á hveijum degi sem 11 högga sveifla verður á síðasta degi milli tveggja efstu manna og allra síst á meðal bestu kylfinga heimsins. En maður skyldi aldrei segja aldrei. „Þetta hefur verið ótrúlegur dagur og ég segi ykkur satt að ég vorkenni Greg,“ sagði Faldo, en hann hefur áður mætt Norman á síðasta hring. Árið 1990 lék hann síðásta hringinn á 67 höggum á Opna breska meistara- mótinu, en Norman var á 76 högg- um. Faldo hefur þrívegis sigrað á Opna breska og jafn oft á Masters. „Eg sárvorkenni honum því ég veit að þetta svíður bæði mikið og lengi,“ sagði Faldo. Klúður Norman lét engan bilbug á sér finna á blaðamannafundi eftir mót- ið: „Ég’ kúðraði þessu gjörsamlega, mér er það fyllilega ljóst - og ég veit að ég hef misst af sigri á nokkr- um öðrum mótun,“ sagði hinn 41 árs gamli Ástrali, sem hefur meðal annars tapað í umspili í öllum stóru mótunum fjórum. Hann bað menn að vorkenna sér ekki og benti á að það væri hægt að nota aðrar reikni- aðferðir í golfinu en að telja högg- in: „Er ekki allt í lagi? Ég fékk góð verðlaun." Hann fékk um 18 millj- ónir króna. Norman sagði hrun sitt síðasta daginn ekki hafa neitt með þrýsting að gera. „Ég fann ekki fyrir neinum þrýstingi úti á velli, en ég fann hins vegar að ég týndi alveg niður takt- inum og tímasetningunni. Ég fann ekki fyrir neinni spennu og ég held ég hafi hugsað rökrétt - ég spilaði bara hræðilega. Menn hafa sagt að ég tapi oft mótum en ég er ekki sammála því. Ég vann bara ekki í dag, en ég hef sigrað í mörgum mótum, og e_f til vill búinn með minn skerf. Ég vildi að ég hefði sigrað í þeim mótum sem Faldo hefur sigrað í, en ég gerði það ekki. Mig langar að sigra á Masters, en mér tókst það ekki. Faldo vann og því hefur hann eitthvað sem mig langar í. Auðvitað er ég svekktur að hafa klúðrað þessu, en þetta er ekki heimsendir, langt frá því,“ sagði hann. Faldo sagði hins vegar að and- rúmsloftið á Augusta-golfvellinum væri engu líkt og það hefði örugg- lega áhrif, a.m.k, á sig. „Þessi völl- ur krefst mjög mikillar nákvæmni og enginn völlur, sem ég hef leikið á, krefst eins mikillar herkænsku. Menn verða helst að hugsa um síð- asta höggið á 18. holu þegar þeir standa á fyrsta teig.“ Sögulegt Norman skráði nafn sitt í sögu Mastersmótsins fyrsta daginn þeg- ar hann lék á 63 höggum og setti mótsmet. Hann jók forystu sína um tvö högg í næsta hring og einnig í þeim þriðja, en svo skráði hann á ný nafn sitt í sögu mótsins; enginn hefur tapað niður eins mikilli for- ystu á síðasta hring. Hann hlaut um 18 milljónir króna fyrir annað sætið og setti enn eitt metið með því þar sem hann varð fyrstur manna til að ná því marki að fá meira en 10 milljónir dollara í verð- launafé í bandarísku mótaröðinni, en það er andvirði rúmlega 670 milljónir króna. Fyrirgefdu! Reutcr NICK Faldo faðmar Greg Norman aö sér. Bretinn, sem sigr- aði, sagðist kenna í brjóstl um hlnn ástralska félaga slnn eftir að haft betur í vlðureigninnl vlð hann. ENGLAND: 121 112 11X XX11 ITALIA: 111 211 111 X X X 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.