Morgunblaðið - 07.05.1996, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
bikar
í?( “> h\
m
Leikið gegn
Liverpool
á Wembley
11. maí
1996
Frábær árangur Manchester United
undir stjórn
Alex Fergusons
1990
| m
-cSfap í
deildarbikar
á Wembley
1991
Leeds varð
Englands-
meistari
1992 1993
BíRar
e í "
■'SeffiTap í
deildarbikar
á Wembley
1994
Blackbum
varð
Englands-
meistari
Tap á
Wembley
1995
■ KYLFINGAR í meistaraflokki
kusu á dögunum bestu kylfinga síð-
asta árs og við það tækifæri var
bjartasta vonin útnefnd. Björgvin
Þorsteinsson, hinn gamalreyndi
kylfingur frá Akureyri hafði orð á
því að hann hefði átt að vera valinn
því sama dag reyndist hann spræk-
astur allra þegar landsliðshópurinn
hélt „Master" mót sitt. Björgvin, lék
Grafarholtsvöllinn á 70 höggum,
einu undir pari og fékk þó skolla á
þremur síðustu holunum.
■ CARL Lewis keppti í fyrsta sinn
í langstökki á árinu, á móti í Hous-
ton á laugardag. Hann stökk lengst
8,34 metra en meðvindur var reynd-
ar of mikill í öllum stökkum nema
einu. Lewis stefnir að því að keppa
á Ólympíuleikunum í Atlanta,. sem
yrðu fimmtu ÓL-leikar hans. „Ég er
svolítið vonsvikinn," sagði Lewis,
sem ætlaði sér að stökkva yfir 28
fet, 8,53 m. Lewis er nú 86 kg að
þyngd, og hefur aldrei verið þyngri.
■ OLGA Shishigina frá Kaz-
akhstan, silfurverðlaunahafi í 100
metra hlaupi á heimsmeistaramótinu
í Gautaborg í fyrra, hefur verið sett
í fjögurra ára keppnisbann vegna
ólöglegrar lyfjanotkunar.
■ TALSMAÐUR alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins segir Olgu hafa
Mm
FOLK
farið í lyfjapróf í Ghent í Belgíu í
febrúar síðastliðnum og við rannsókn
hafi komið í ljós að hún hafí neytt
steralyfsins stanozolol. Þess má geta
að um er að ræða sama lyf og Ben
Johnson hafði notað, er hann féll á
lyfjaprófi á Ólympíuleikunum í Seoul
1988.
■ MATTHEW Simmons, stuðn-
ingsmaður Crystal Palace sem Eric
Cantona sparkaði í á sínum tíma og
var dæmdur í langt keppnisbann fyr-
ir, var fyrir helgi fundinn sekur um
að hafa ögrað Cantona með hótun-
um áður en atvikið átti sér stað, í
janúar 1995. Þegar tilkynnt var í
réttarsalnum að hann væri sekur
fundinn trylltist Simmons, stökk
fram og sparkaði í höfuð lögmanns-
ins sem sótti málið.
■ SIMMONS, sem er 21 árs, var
sektaður um 500 pund - um 50
þúsund krónur - fyrir hótanir í garð
Cantonas og verður látinn greiða
200 pund, um 20 þús. kr. í lögfræði-
kostnað. Lögfræðingur Simmons
baðst afsökunar á framkomu skjól-
stæðings síns í réttarsalnum og hann
galt hennar ekki frekar. Skv. dómi
réttarins er honum hins vegar mein-
aður aðgangur að breskum knatt-
spyrnuvöllum í eitt ár.
■ QU Yunxia, heimsmethafi í 1.500
m hlaupi kvenna, keppir ekki í 800
m hlaupi á Ólympíuleikunum í Atl-
anta. Hún náði ekki að tryggja sér
sæti í landsliði Kína í þeirri grein á
úrtökumóti um helgina - komst ekki
einu sinni í úrslit hlaupsins, en hún
á enn von um að fara til Atlanta
því 1.500 m hlaupið er enn eftir á
úrtökumótinu.
■ WANG Junxia, kínverski heims-
methafinn í 10.000 og 3.000 m
hlaupi kvenna náði besta tíma ársins
í 5.000 á úrtökumótinu í Kína á
sunnudag. Hljóp á 14 mín. 51,87
sek. Þetta er einnig besti tími hennar
- áður hafði hún best náð 14.53,08
í fyrra.
■ BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Þýskalands, hefur ekki hug á að
velja Lothar Mattháus í landsliðs-
hóp sinn fyrir EM í Englandi.
UST
Listamönnum utan íþróttanna
hefur oft verið legið á hálsi
fyrir að hafa hom í síðu þeirra
og finna þeim allt til foráttu.
Ekki má þó alhæfa í þessu efni
frekar en öðru og tilfellið er að
íþróttirnar eiga marga
góða stuðningsmenn
innan annarra list-
greina.
Jónas Ámason, rit-
höfundur, var þriðji
maðurinn í samnefnd-
um útvarpsþætti Ingólfs Mar-
geirssonar og Árna Þórarinsson-
ar á Rás 2 fyrir skömmu. Hann
sagðist aldrei hafa getað neitt
5 íþróttum og ávallt verið síðast-
ur í röðinni í menntaskóla þegar
menn voru að fara kollstökk og
öll önnur stökk. „Ég fór alltaf
kollhnís,“ sagði listamaðurinn
en vakti athygli á gildi knatt-
spyrnunnar, aðspurður um hvað
væri gaman að horfa á í sjón-
varpi. „Fótboltinn er það besta.“
Spyijendur áttu ekki von á þessu
svari og því síður skýringunni.
„Það er bara lýrikkin í honum.
Menn verða hissa þegar ég segi
þetta en það er ekki aðalatriðið
að það séu gerð mörk heldur sú
ánægja sem hann veitir manni,
að sjá menn fara fallega með
boltann og spila saman. Þetta
er harmónía sem gleður menn
svona álíka og harmónía í fögr-
um tónverkum." Á þessari
stundu urðu hlutverkaskipti í
þættinum. „Þið hafíð ekki kom-
ist upp á lag með þetta?“ spurði
rithöfundurinn. „Ekki með
þessu hugarfari,“ var svarið.
„Þá skuluð þið fara að athuga
það,“ sagði Jónas og bætti við
að menn þyrftu að vera „rútiner-
aðir“, hafa fylgst með knatt-
spyrnunni langa lengi, „enska
boltanum, til dærnis."
Finninn Osmo Vánská stjórn-
aði Sinfóníuhijómsveit íslands
sem aðalhljómsveitarstjón í síð-
asta sinn í liðinni viku. í viðtali
við hann I Morgunblaðinu 1.
maí sl. kom fram að hljómsveit-
in hefði tekið stórstlgum fram-
förum undanfarin ár og var vitn-
Knattspyrnan gledur
eins og harmónía í
fögmm tónverkum
að í erlenda dóma um frammi-
stöðu hennar. „Það býr mikið í
Sinfóníuhljómsveit íslands en ég
óttast að hún eigi ekki eftir að
ná eins langt og hún hefur burði
til, þar sem starfsumhverfi
hennar er óviðunandi," sagði
Finninn og lagði áherslu á nauð-
syn byggingar tónleikahúss auk
þess sem hann áréttaði mikil-
vægi menningarinnar. „Það er
ekki hægt að hugsa sér betri
landkynningu en menningu, list-
ir og íþróttir, sem ég flokka
reyndar undir menningu. Þjóðir
þurfa því að hlúa að þessum
mikilvægu þátturn í arfleifð
sinni. Traust er lykilatriði í sam-
skiptum þjóða og ef menningin
er traustsins verð hvers vegna
ætti viðskiptalífið ekki að vera
það líka. Þjóðir horfa því oftast
til gæða og styrks menningar-
innar þegar þær eru á höttunum
eftir nýjum viðskiptasamning-
um. Ef rétt er haldið á spilum
getur menningin verið öflugur
físksali.“
Forystumenn íþróttahreyf-
ingarinnar hafa oft bent á mikil-
vægi íþróttaæfinga, skemmta-
nagildi keppninnar og mögulega
verðmætasköpun starfsins. Um-
mæli fyrrnefndra snillinga eru
á sömu nótum og lóð á vogar-
skál íþróttanna.
Steinþór
Guðbjartsson
Hvernig/öfBIRKIRKRISTINSSON aðþvíaðfáásig 10mörkgegnRosenborg?
Ótrúleg
lífsreynsla
BIRKIR Kristinsson, landsliðsmarkvörður sem leikur með Brann
í Noregi, þurfti að taka knöttinn tíu sinnum úr netinu er liðið
lék gegn Rosenborg f norsku 1. deildinni á sunnudaginn. Birkir
hefur aldrei áður fengið eins mörg mörk á sig í einum leik —
fékk á sig níu mörk með ÍA gegn Sporting Lissabon í Evrópu-
keppninni 1986. Hann sagði þetta „met“ ekki vera mjög áhuga-
vert og hann hefði alveg viljað vera laus við það. Bjarni Sigurðs-
son sem lék í markinu hjá Brann fyrir tveimur árum fékk á sig
níu mörk á sama velli gegn Rosenborg en nú hefur Birkir sem-
sagt slegið það met. Birkir gekk til liðs við Brann frá Bergen
sl. haust og sagðist vera ánægður með dvölina ytra, alla vega
fram að þessum dæmalausa markaleik. „Þetta var ótrúleg lífs-
reynsla og ég get lofað þér þvf að fái ég á mig jafnmörg mörk
aftur þá hætti ég,“ sagði Birkir.
Birkir sagði að leikurinn gegn
Rosenborg hefði verið sann-
kölluð martröð. Fyrsta markið kom
eftir aðeins tvær
Eftir mínútur og eftir 20
Val B. mínútna leik var
Jónatansson staðan orðin 4:0 og
í kjölfarið var ein-
um leikmanni Brann vikið af lei-
kvelli. Staðan í hálfleik var 6:0 og
sagði landsliðsmarkvörðurinn að
erfitt hafi verið að fara með það
veganesti inn í búningsklefa í leik-
hléi. „í síðari hálfleik var þetta
aðeins spurning um hversu skellur-
inn yrði stór.“
Hvernig voru þessi mörk sem
þú lékkst á þig?
„Þau voru flest skoruð af stuttu
færi — fimm til sex metrum. Vörn-
in var hræðilega slök og andstæð-
ingarnir tættu hana í sundur og
voru yfirleitt komnir einn eða tveir
innfyrir. Það var því mjög erfitt
fyrir mig að ráða við þessi skot.“
Var ekki erfitt fyrir þig að sofna
um kvöldið eftir þessa markasúpu?
„Jú, það var erfitt því ég var
að reyna að fara yfir það í hugan-
um hvernig þessi mörk voru sem
ég fékk á mig. Ég vaknaði líka
snemma daginn eftir og þá var ég
enn að velta þessu fyrir mér og
trúði þessu varla.“
Hvað sagði þjálfarinn við ykkur
eftir ieikinn?
Morgunblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson
BIRKIR Krlstinsson sló „met“ Bjarna Sigurðssonar hjá
Brann er hann fékk á slg tíu mörk gegn Rosenborg.
„Hann vissi varla hvað hann
átti að segja. Þetta var jafnmikið
áfall fyrir hann og okkur. Hann
var síðan með tveggja tíma fund
með okkur um kvöldið þar sem
málin voru rædd og leikmenn
fengu að segja sitt álit, koma með
sínar hugmyndir og hvað mætti
betur fara í leik okkar. Við eigum
að leika gegn Moss á heimavelli á
fímmtudag og þann leik verðum
við að vinna til að koma okkur á
réttan kjöl aftur.“
Hvernig voru móttökurnar þeg-
ar Iiðið kom keim til Bergen í gær?
„Það voru margir sem tóku á
móti okkur, aðallega fréttamenn
sem vildu fá nánari útskýringar á
þessum hrakförum. Við fengum
rækilega á baukinn í dagblöðunum
í Bergen, sem töluðu um martröð
og niðurlægingu. Áhuginn á knatt-
spyrnu er mikill í bænum og því
er þetta áfall fyrir alla bæjarbúa.
Við strákarnir töluðum um það á
leiðinni heim að best væri að safna
skeggi og kaupa sólgleraugu svo
enginn þekkti okkur.“
Áttu von á að missa stöðuna í
liðinu eftir þessa útreið?
„Það er ekki gott að segja. Það
gekk vel hjá mér í hinum þremur
deildarleikjunum, en þetta er auð-
vitað tækifæri fyrir þjálfarann að
breyta til ef hann hefur áhuga á
því.“
Ef við snúum okkur að öðru,
hvernig hefur þér líkað lífið í Berg-
en?
„Bara mjög vel, alla vega þar
til kom að þessum leik. Aðstæður
hér eru til fyrirmyndar. Við höfum
æft vel og okkur hefur gengið
ágætlega í vorleikjunum.“