Morgunblaðið - 10.05.1996, Blaðsíða 2
2 E FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Morgunblaðið/Kristinn
EDWARD Hákon Huijbens leiðtogi vinstri manna og Jens Garðar Helgason hægri maður. Menntaskólinn á Akureyri í bakgrunni.
BLAÐAMAÐUR fékk
hægri og vinstri menn
í Menntaskólanum á
Akureyri til að leiða
saman hesta sína og
varpaði fram spumingum til umræðu.
I slaginn komu fyrir hönd vinstri
manna (v) Edward Hákon Huijbens,
Baldvin M.H. Zarieh, Sigurður Erl-
ingsson, Ragnar Þór Pétursson og
Huginn Freyr Þorsteinsson. And-
spænis stóðu Einar Þór Hafberg,
Arnljótur Bjarki Bergsson, Þórður
Rafn Ragnarsson, Kristín H. Hálf-
danardóttir og Jens Garðar Helga-
son, hægrimenn (h).
Arnljótur(h): Pólitísk umræða
mótar fólk og er nauðsynleg vegna
þess að fólk þarf að taka afstöðu
til svo ótal jnargra hluta.
Jens(h): Ég held að það sé þrosk-
andi fyrir einstaklinga að takast á
við hin og þessi málefni, og það
æfir fólk líka í ræðutækni þegar
deilt er um málefni.
Ragnar(v): Fólk verður elds-
nöggt að finna hentirök fyrir mál-
stað sínum. Til dæmis með og á
móti byltingunni á Kúbu! (kliður)
Sigurður(v): Og vekja fólk til
umhugsunar þannig að það kjósi
ekki Sjálfstæðisflokkinn bara út á
nafnið.
Eða vera með Karl Marx barm-
merki bara af því að það er í tísku.
Amljótur(h): Aðalmálið er að fólk
kaupi sjálfviljugt það sem það vill
kaupa, og engu sé neytt upp á það.
Edward(v): Mér finnst markmið-
ið vera að fólk hugsi. Ég ber að
sjálfsögðu virðingu fyrir þeim sem
eru á öndverðum meiði við mig, en
það sem ég vil er að menn komi
með rök fyrir máli sínu. Og ef menn
geta gert það er ég ánægður, en lem
þá ekki.
Þórður(h): Ykkur hefur nú oft
vantað rökin, og þið eruð alltaf að
deila á okkur fyrir að koma með
tölur og staðreyndir.
Edward(v): Sama segi ég, auð-
vitað hefur ykkur líka vantað rök,
ef þú vilt fá svona skot til baka,
það er náttúrlega minnsta málið.
Jens(h): Það er alveg dæmigert
að þið gefið Rödd alþýðunnar út
eftir að Hægrisíðan er komin út
og eruð á móti greinunum sem við
skrifum. Getið þið ekki skrifað
sjálfstæðar greinar?.
t Gagnkvæm
virðing
aöolsmerki
beggja
# Vinstri frið-
ur byggist
á vináttu
# Hægri frið-
ur hvílir á f rið-
arbandalagi
# Herinn er
báinn að skíta
allt út
LEIÐIN til áhrifa i heiminum er í gegnum
stjórnmál. Ráðherrar og sveitarsljórnar-
menn taka ákvarðanir sem geta varðað
heill og hamingju þegnanna, og af þeim
sökum er betra að kunna skil áJielstu
málafiokkunum.
Ungt fólk hefur stundum látið til sín
taka í sljórnmálum og tekist að hafa áhrif.
Ungt fólk getur verið ferskt og óspillt í
hugmyndum sínum um hvernig eftirsókn-
arvert þjóðfélag eigi að líta út, en kannski
er mikilvægast að það þjálfi hugann í að
hugsa á sljórnmálalegum og gagnrýnum
nótum.
Ungt fólk á Islandi í framhaidsskólum
og Háskóla íslands hefur hins vegar ekki
verið áberandi mikið að ræða stjórnmál
sin á milli síðustu tvo áratugi. Ládeyðan
hefur breiðst út, en hinsvegar hefurhópur
nemenda í Menntaskólanum á Akureyri
borið sigurorð af henni.
Tvær stjórnmálahreyfingar eru starf-
andi innan skólans: Hima eða Hægrimenn
í Menntaskólanum á Akureyri (MA) og
Lomma eða Lenin- og marxistar í MA
Hreyfingarnar hafa verið ágætlega virk-
ar síðustu þtjú árin, haldið málfundi, gefið
reglulega út málgögn í blaðaformi sem
heita Hægri síðan og Rödd alþýðunnar,
fengið fyrirlesara eða bara hópast saman
í sund svo eitthvað af afrekalistanum sé
nefnt.
Blaðamaður hlýddi í tvær stundir á
hægri og vinstri menn skiptast á skoðunurn
um hin ólíklegustu málefni. Krakkamir
eru á aidrinum 18 til 20 ára og varð aldr-
ei svara vant, og í (jós kom að flestir höfðu
myndað sér eigin skoðun á málunum. Sjálf-
stæð gagnrýnin hugsun er aðalmarkmiðið,
þótt þau reyni auðvitað meðvitað að hengja
hvert annað í smáatriðunum - en kannski
er það meira til gamans gert?
Spurð um hugsjónir, byggja þær á
mannréttindum og gagnkvæmri virðingu
sem þau stunda sjálf, þvi þrátt fyrir hávær
rifrildi á fundum vinna þau saman á öðrum
vettvangi að mikilvægum verkefnum.
Vinstri menn í MA segjast vilja frið í
heiminum sem byggir ekki á hræðslu við
ógnarvopn heldur vináttu. Hægrimenn
segja hinsvegar að aðeins hernaðarbanda-
lög á borð við NATO geti skapað raunhæf-
an frið í heiminum.
Rætt var um gróða og græðgi. Hægri
menn segja gróðavon eins manns geta
komið öðrum til góða. „Hún knýr einstakl-
inginn áfram," sagði einn. Vinstrimenn
vilja á hinn bóginn ekki haftalaus við-
skipti slíks manns, og trúa á aðrar mann-
legar hvatir.
Unga fólkið segir stjórnmálaumræðuna
skemmtilega í MA og að hún geti, ef vel
tekst til, komið í veg fyrir að nemendur
verði gersamlega hugsjónalausir, sem er
hörmulegt ástand. „Sumir segja: „Það er
sami rassinn undir þeim öllum!“ En það
er ekki rétt og til að komast að því þarf
að vera með í umræðunni," segir vinstri
maður.
MA-ingarnir segja að stjórnmálafélög
séu aftur á móti ekki leyfð í Verkmennta-
skólanum á Akureyri. Ástæðan er að
þeirra mati, að yfirvöld skólans, vilja
koma í veg fyrir að pólitfsk innræting
eigi sér stað. MA-ingar segja ótta um slíkt
óraunhæfan.
Lenin- og marxistar segjast ekki boða
það sem forverar þeirra hafi gert i heimin-
um, heldur aðeins vilja benda fólki á að
lesa rit Lenins og Karls Marx. Einn eða
tveir úr hópnum sögðust styðja Kastró og
bendaá að Bandaríkjamenn hafi gert allt
sem í þeirra valdi stendur til að eyðileggja
byltinguna. Ha'gri menn hrista hausinn.
Þetta unga fólk virðist kunna skil á
mörgum og ólíklegustu málaflokkum, og
orðræðan breytist ekki í heift þótt vissu-
lega sé sá höggvinn sem vel við höggi ligg-
ur. ■
Gunnar Hersveinn
JENS Garðar Helgason
talar um friðarbanda-
lagið NATÓ.
# Kúba síð-
asta vígið
og Pat
Buchanan
# Eldsnögg-
ur að finna
hentirök fyrir
málstað
# Hvítir, feitir
miöaldra
karlar ráða
EINAR Þór Hafberg
ber í borðið. Talið frá
hægri; Edward H. Huij-
bens, Baldvin M.H. Zari-
eh, Sigurður Erlings-
son, Ragnar Þór Péturs-
son, Huginn Freyr Þor-
steinsson og Jens Garð-
ar Helgason.
a