Morgunblaðið - 24.05.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
■ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ
BLAÐ
Pétur kastaði
aðeins 17,53
PÉTUR Guðmundsson kúluvarpari úr HSK varð í
fjórða sæti í öflugu kastmóti i Salinas í Kalifomíu
í fyrradag og varpaði kúlunni aðeins 17,53 metra.
Sigurvegari í kúluvarpinu varð Andy Bloom Banda-
ríkjunum með 19,03 metra kast, annar varð Bretinn
Sean Pickering með 18,75.
Afrek mótsins vann Bandaríkjamaðurinn Anthony
Washington sem kastaði kringlunni 71,14 metra. Er
það besti árangur sem náðst hefur í kringlukasti frá
því Þjóðverjinn Jiirgen Schult setti heimsmet fyrir
áratug, en það er 74,08 metrar.
Aðstæður voru hagstæðar krmglukösturum í Sa-
linas, góð hafgola. Annar varð írinn Nick Sweeney
með 67,40 metra, sem er írskt met, og Andy Bloom,
sem vann kúluvarpið, varð þriðji með persónulegt
met, 64,86 metra. Norðmaðurinn Knut Hjeltnes kast-
aði 59,64 metra og varð í 15. sæti.
KNATTSPYRNA
Byrjað
með flug-
elda-
sýningu
Sævar Pétursson kom frá Nýja-Sjálandi
til að skora fyrsta mark 1. deildar-
keppninnar, sem byijaði af miklum karfti í
gærkvöldi á fimm vígstöðv-
SigrrnjndurÓ. um' Alls voru skoruð 21 mark
Steinarsson í deildinni í fyrstu umferð,
tók saman eins og í fyrra. Þrír leikmenn
skoruðu tvö mörk; hinn ungi
Bjarni Guðjónsson, sonur Guðjóns Þórðarson-
ar, þjálfara ÍA, var einn þeirra og er greini-
legt að hann ætlar að feta í fótspor bróður
síns, Þórðar, sem er nú atvinnumaður hjá
Bochum og skoraði nítján mörk fyrir Skaga-
menn í 1. deild 1994. Sverrir Sverrisson,
bróðir Eyjólfs Sverrissonar, skoraði tvö mörk
fyrir Leiftur, sem vann óvæntan sigur í Eyj-
um, 1:3, og Kristinn Tómasson skoraði tvö
mörk fyrir Fylki, sem skaut Breiðablik á
bólakaf í Kópavogi, 6:1. Guðmundur Bene-
diktsson skoraði 100. mark KR-inga í leikjum
gegn Keflvíkingum í deildinni, í jafnteflisleik
í Keflavík, 2:2. Sigurður Grétarsson, þjálfari
Vals, lék sinn fyrsta leik í deildinni í þrettán
ár - skoraði síðast fyrir Breiðablik gegn Þór
á Akureyri 1983.
Þrír leikmenn fengu að sjá reisupassann
í gærkvöldi. Það má með sanni segja að
deildin hafí byijað með flugeldasýningu.
■ Leikirnir / C2 - C7
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Sverrir skoradi tvö í Eyjum
SVERRIR Sverrisson skoraði tvívegis fyrir Leiftur í Vestmannaeyjum, þar sem Norðanmenn lögðu ÍBV 3:1. Sverrir er
hér með knöttinn en Hlynur Stefánsson, sem leikur nú með Eyjaliðlnu eftlr nokkurra ára dvöl í Svíþjóð fylglst með.