Morgunblaðið - 07.06.1996, Page 1
\
■ GLÍMA VIP SIÐAREGLUR/3 ■ RAUTT LJÓS/3 ■ FRÁ PÓSTVERSLUN
TIL VERSLUNARVELDIS/4 ■ SUÐ í EYRA/5 ■ UNGBARNAVERND/6
■ REÐASAFIM/6 ■ HRÁ HÖNNUIM/7 ■ UNGMENNI ELTA TÍSKUNA/8
Karlmenn í skærum
litum, appelsínugulum og grænum
KONUR hafa löngum verið
óhræddari en karlmenn að klæðast
litríkum fötum. Núna hafa ungir
menn með hækkandi sól hins veg-
ar tekið verulega
við sér og útlit er
fyrir að skær-
grænir og appel-
sínugulir Iitir verði
vinsælir í sumar.
Síðasta sumar
bar á þessari tísku
en í aðeins daufari
litum. Núna fást á
hinn bóginn skær-
ar skyrtur, peys-
ur, bolir og jafnvel
nærbuxur í búð-
um. „Sterkir og
skærir litir eru að
verða áberandi,“
sagði Kristinn S.
Thorarensen í
versluninni Kókó.
„Skærgrænn er^
sumarliturinn,"
segir Arnar Gauti
Sverrisson í Jack
& Johns-verslun-
inni og bætir við
að skær skyrta
eða peysa sé vin-
sælt við svartan
jakka. „Það er til
alls kyns klæðnað-
ur á karlmenn í
skærum litum, til dæmis vesti.“
Starfsmaður í versluninni Joe’s
segir allan klæðnað nema skó vera
til í skærum litum, og að segja
megi að svart, hvítt og skært sé
í tísku. Hann upplýsir að íslenskir
karlmenn velji v-hálsmál og að
vera í skyrtum hnepptum frá við
hálsinn og því sé bindið á undan-
haldi.
í versluninni Sautján var að
finna skærar appelsínugular og
grænar stutterma skyrtur, peysur,
boli. Og í Bogart var skærappel-
sínugulum fatnaði stillt upp, eins í
Hanz.
Skæru litirnir hafa tekið sæti jarð-
litanna sem voru áberandi síðasta
sumar. Skærappelsínuguli og sítr-
ónugræni liturinn hverfur hins
vegar ekki í haust
úr búðum, því
hönnuðuðir hafa
gert haust- og
vetrarklæðnað í
þessum litum, og
verslunareigendur
hér segja að innan
um hefðbundna liti
næsta vetur muni
skína í skært.
Danskir karlar
skærari
Samkvæmt
fréttum úr tísku-
búðum á öðrum
Norðurlöndum
virðast til dæmis
danskir karlmenn
enn djarfari í
klæðaburði en ís-
lenskir. Þeir ganga
galvaskir um í
skærappelsínugul-
um, rauðum, blá-
um, gulum og
grænum buxum.
Hugsanleg skýring
á þessari dirfsku
er góða veðrið þar.
Enda kemur í Ijós
að skær föt seljast vel hér á sólrík-
um dögum.
Daglegt líf dubbaði tvo unga
menn upp fyrir lesendur, annan í
peysu frá Sautján, hinn í föt frá
Bogart. ■
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Þorkell
Þagnar-
skyldan
HVER einstaklingur á sér
leyndarmál sem hann kærir
sig ekki um að aðrir viti, en
stundum neyðist hann til að
tala og þarf að treysta á
trúnað annarra og þagnar-
skyldu.
En hversu ríka áherslu
leggur fólk í hinum ýmsu
starfsstéttum á þagnar-
skylduna og hvenær getur
verið rétt að ijúfa þögnina?
Hvaða rök og ástæður gera
þagnarskylduna ógilda?
Leitað var svara við þess-
um spurningum með því að
kanna hvað þagnarskyldan
er og spyrja fólk úr nokkr-
um starfsstéttum um hana.
Einnig eru sögð nokkur
íslensk dæmi um trúnaðar-
brot.
2