Morgunblaðið - 13.06.1996, Síða 2
2 C FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN
Að duga eða
drepast fyrír
Svisslendinga
og Hollendinga
Ameðan augu flestra á Eng-
landi beinast þessa dagana
að stórleik Englendinga og Skota
sem fram fer á Wembley-leikvang-
inum næstkomandi laugardag, und-
irbúa hin liðin í A-riðli, Holland og
Sviss, sig af krafti fyrir annan mik-
ilvægan leik, sem ráðið gæti úrslit-
um um, hvort þessara liða kemst
upp úr riðlinum, en liðin mætast á
Villa Park í Birmingham í dag.
Svisslendingar munu að öllum
líkindum koma örlítið öðruvísi
stemmdir til leiks en Hollendingar,
en þeir svissnesku líta á jafnteflið
við England sem einungis fyrsta
skrefið af mörgum í átt að góðu
gengi í keppninni á meðan Hollend-
ingar gráta 0:0 jafntefli við Skota
og naga sig í handarbökin fyrir að
hafa ekki náð að skora í leiknum.
Hollendingum var þó að vísu
nokkur vorkunn því þeir öttu kappi
við eina öflugustu varnarlínu Evr-
ópu í dag, en oft hefur verið sagt
að gegn sterkum liðum saman-
standi landslið Skotanna af mark-
verði, níu varnarmönnum og einum
afturliggjandi sóknarmanni. Sviss-
lendingar hafa að öllum líkindum
ekki jafn sterkri vörn á að skipa
og Skotarnir og að sama skapi eru
Hollendingar líklega með sterkara
sóknarlið en Englendingar, sem
Svisslendingarnir gerðu einmitt 1:1
jafntefli við í opnunarleik keppninn-
ar. Róðurinn ætti því að verða erfíð-
ur fyrir Svisslendinga í leiknum í
dag, en þeir sýndu það og sönnuðu
í opnunarleiknum að þeir eru til
alls líklegir og koma hvergi bangn-
ir til leiks.
Þjálfari Svisslendinganna, Artur
Jorge, lét sína menn æfa fyrir lukt-
um dyrum á þriðjudag og var hann
stuttorður við blaðamenn. Það þyk-
ir þó líklegt að hinn geysisterki
Marc Hottiger, sem tók út leikbann
í leiknum gegn Englendingum,
muni að nýju taka sæti sitt í liðinu
og styrkja þar með vörn Svisslend-
inga. Annar þekktur varnaijaxl,
fyririiði Hollendinganna, Danny
Blind, sem einnig tók út ieikbann
í fyrsta leik Hollendinga í keppn-
inni, verður sömuleiðis kominn á
sinn stað í vörninni og binda Hol-
lendingar miklar vonir við að endur-
koma Blinds muni koma meira
skipulagi á leik liðsins.
Þjálfari Hollendinga, Guus Hidd-
ink, ber mikla virðingu fyrir sviss-
neska liðinu og leggur mikla áherslu
á það við leikmenn sína, að Sviss-
lendingana megi alls ekki vanmeta.
„Svissneskum félagsliðum hefur
farið mjög mikið fram á síðustu
árum og landsliðið stenst orðið fylli-
lega samanburð við þau bestu í
Evrópu," sagði Hiddink eftir æfingu
hollenska liðsins í gær.
í gærkvöldi höfðu þjálfarar lið-
anna enn ekki gefið upp byijunarlið
sín en líkleg byrjunarlið eru eftirfar-
andi:
Sviss: Pascolo, Hottiger, Vega,
Henchoz, Quentin, Geiger, Vogel,
Sforza, Bonvin, Grassi og Turk-
yilmaz.
Holland: Van der Sar, Reiziger,
Bogarde, Blind, Seedorf, R. de
Boer, Davids, Witschge, Hoekstra,
Bergkamp og Cruyff.
Dómari leiksins í dag verður At-
anas Ouzounov frá Búlgaríu.
KUMHO
í golfi verður haldið á Kiðjabergsvelli í
Grímsnesi sunnudaginn 16. júní.
Á þessum glæsilega golfvelli verður leikinn 18 holu
höggleikur þar sem karlar fá mest 24 í forgjöf en
konur 28. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin með og án forgjafar. Fyrir að vera næst
holu á 3. (12) og 7. (16) braut svo og fyrir lengsta
teighögg á 2. (11) braut. Rástímar eru frá kl. 9 til
10.30 og kl. 13.30 til 15.30.
Verðmæti vinninga
130 til 140 þús. kr.
auk veglegra vinninga fyrir þá sem fara
holu í höggi.
Upplýsingar og skráning er í
símum 5681093 og 4864495.
Völkorrsin og skemmtun
Hjólbarðastöðin, Bíldshöfða 8
Hjólbarðahöllin, Fellsmúia 24
Reuter
BÚLGARINN Yordan Lechkov, sem hér sést í harðri baráttu
við Spánverjann Amor í leik Búlgara og Spánverja á dögun-
um, mun væntanlega verða í eldiínunnl þegar Búlgarir mæta
Rúmenum á St. James’ Park í Newcastle í dag.
Vináttan ekki
með á völlinn
egar landslið Búlgaríu og
Rúmeníu munu ganga inn á
völlinn á St. James’ Park í New-
castle í dag verður áralangur vin-
skapur margra lykilmanna liðanna
að öllum líkindum skilinn eftir inni
í búningsklefa. Rúmenar bókstaf-
lega verða að sigra í leiknum ætli
þeir sér áframhaldandi þátttöku í
keppninni og Búlgarir munu áreið-
anlega reyna að endurtaka leikinn
frá heimsmeistarakeppninni ’94 í
Bandaríkjunum þegar þeir komust
alla leið í undanúrslit.
Helstu stjörnur liðanna, Búlgar-
inn Hristo Stoichkov og Rúmeninn
Gheroghe Hagi, hafa verið perlu-
vinir um árabil og í dag munu
þeir báðir ganga einbeittir til leiks
í Newcastle með sama markmið í
huga, að koma liði sínu áfram í
Evrópukeppninni og nýta jafn-
framt það sem gæti orðið síðasta
tækifæri þeirra til að sanna sig í
knattspyrnuheiminum, en báðir
áttu Stoichkov og Hagi fremur
léleg tímabil í deildunum í vetur,
Stoichkov á Italíu og Hagi á Spáni,
og virðist frægðarsól þessara
stórsnjöllu leikmanna örlítið vera
farin að hníga.
Bæði lið munu eflaust gefa allt
sitt í leikinn og leikmenn þessara
gömlu nágrannaþjóða frá A-Evr-
ópu munu væntanlega beijast til
síðasta blóðdropa á St. James’
Park í dag, ákveðnir í að valda
ekki stuðningsmönnum sínum
vonbrigðum og hjartasorg. En trú-
lega á aðeins annað þessara liða
raunhæfan möguleika á áfram-
haldandi þátttöku í keppninni því
Frakkar, sem nú hafa leikið 24
landsleiki án ósigurs, virðast
hvergi líklegir til að gefa þumlung
eftir. Þetta vita leikmenn liðanna
og er undirbúningurinn sam-
kvæmt því. „Við vorum betri en
Frakkarnir á mánudaginn, en
núna verðum við að vinna Búlg-
arana. Þeir hafa góðu liði á að
skipa en við munum bera höfuðið
hátt og koma þijóskir til leiks líkt
og þeir gera ætíð. Ég tel okkur
eiga góða möguleika á sigri,“ sagði
Gheorghe Hagi, einn skæðasti
leikmaður Rúmeníu í gær.
Líkleg byijunarlið á St. James’
Park í dag eru eftirfarandi:
Rúmenía: Stelea, Belodedici,
Petrescu, Mihali, Selymes, Hagi,
Popescu, Lupescu, Munteaunu,
Lacatus og Moldovan.
Búlgaría: Mihailov, Kishishev,
Ivanov, Kiryakov, Tsvetanov, Lec-
hkov, Yankov, Balakov, Kostad-
inov, Stoichkov og Penev.
Dómari í Newcastle í dag verður
Peter Mikkelsen frá Danmörku.
HELGARGOLFIÐ
Landsmót í
holukeppni
íslandsmótið í holukeppni verður hald-
ið á golfvelli Golfklúbbs Suðurnesja,
Leirunni, um helgina. Keppnin hefst
á morgun, föstudag, og lýkur á sunnu-
daginn. Allir bestu kylfingar landsins
mæta til leiks, 32 í karlaflokki og sex
í kvennaflokki. Örn Arnarson frá Ak-
ureyri, nú í Leyni, sigraði í fyrra í
karlaflokki og Olöf María Jónsdóttir
úr Keili í kvennaflokki.
Volcano í Eyjum
Opna Volcano mótið, það fyrsta í röð-
inni, verður í Vestmannaeyjum á laug-
ardag og sunnudag en ætlunin er að
þetta verði alþjóðlegt mót innan tíðar.
Afmæli í Bakkakoti
Fimm ára afmælismót Bakkakots
verður minnst með móti á velli klúbbs-
ins í Mosfellsdalnum á laugardag og
sunnudag.
Sólsetur í Heiðmörk
Sólsetursmótið verður haldið í Urriða-
vatnsdölum á velli Oddfellowa á föstu-
daginn. Ræst verður út af öllum teig-
um kl. 20 þannig að keppendur verða
64 talsins. Hugmynd Oddfellowa er
að gera þetta að alþjóðlegu móti með
tímanum, en í ár verða allir keppendur
íslenskir.
Grafarholtsvöllur
Samvinnuferðar/Landsýnar mótið
verður á laugardaginn hjá GR í Graf-
arholtinu og verður leikfyrirkomulagið
Texas Skramble.
Hvaleyrarholtsvöllur
Markómerkjamótið verður í Hvaleyr-
inni á laugardag og er þetta 18 holu
höggleikur með og án forgjafar.
Borgarnes
Opna Aquarius mótið verður haldið í
Borgarnesi á sunnudaginn og er þetta
18 holu höggleikur með og án forgjaf-
ar.
Háforgjafarmót
Háforgjafarmót verður á velli Odd-
fellowa á sunnudaginn, 18 holu högg-
leikur.
Sandgerðismótið
Opna Sandgerðismótið verður haldið
í Sandgerði á sunnudaginn, 18 holu
höggleikur með og án forgjafar.
Stigamót öldunga
Síðasta stigamót LEK til landsliðs
eldri kylfinga fer fram á Grafarholts-
velli á morgun, föstudag. Keppt er í
flokkum karla 55 ára og eldri og 50
til 54 ára. Einnig í flokkum kvenna
50 ára og eldri.