Morgunblaðið - 10.07.1996, Blaðsíða 2
2 D MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Royal Greenland
hefur vinnslu á
fiski í Þýskalandi
Vill verða leiðandi
í tilbúnum réttum
ROYAL Greenland, sjávarút-
vegsfyrirtæki grænlensku
heimastjórnarinnar, hefur fest
kaup á fiskvinnslufyrirtækinu
Jadekost í Wilhelmshaven í
Norðaustur-Þýskalandi. Kemur þetta fram í fréttatilkynningu frá fyrirtæk-
inu og þar segir, að með kaupunum hafi það tryggt sér nægilega fram-
leiðslugetu til að fylgja eftir áætlunum sínum um framleiðslu tilbúinna
rétta. Sú starfsemi, sem verið hefur í Glyngöre í Danmörk, framleiðsla
tilbúinna rétta og frystra flaka, verður nú flutt í verksmiðjuna í Wilhelms-
haven. íslenskar sjávarafurðir könnuðu hugsanleg kaup á þessari verk-
smiðju, en úr þeim varð ekkert.
Benedikt Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri ÍS, segir í samtali við
Verið, að þessi verksmiðja hafi orð-
ið gjaldþrota fyrir skömmu. Bank-
arnir.s em eignuðust hana hafi síðan
reynt að selja hana og ÍS hafi með-
al annarra verið boðið að skoða
þann kost. „Þeirri skoðun okkar var
ekki lokið, þegar verksmiðjan var
seld Royal Greenland. Við lögðum
heldur ekkimikla áherzlu á þetta
mál, þar sem mikið var um að vera
hjá okkur á öðum vettvangi á sama
tíma,“ segir benedikt Sveinsson.
Umsvif Royal Greenland erlendis
hafa aukist mjög á síðustu árum
og helmingur af veltu fyrirtækisins,
sem er um 28,5 milljarðar ísl. kr.,
er nú í afurðum, sem framleiddar
eru utan Grænlands. Er tilgangur-
inn með þessari alþjóðavæðingu að
gera fyrirtækið ónæmara fyrir
sveiflukenndri hráefnisöflun í
Grænlandi og hafa framleiðsluna
þar sem auðvelt er að nálgast hrá-
efni og markaði.
422 millj. kr.
Lítil frámleiðslugeta í Glyngöre
hefur hingað til haldið aftur af til-
raunum Royal Greenland til að hasla
sér völl sem leiðandi fyrirtæki á
Evrópumarkaði í tilbúnum réttum
og því hefur ýmist verið um það
rætt að byggja nýja verksmiðju eða
kaupa stóra vinnslu. Varð síðari
kosturinn loks fyrir valinu en kaup-
in á Jadekost kostuðu fyrirtækið
422 millj. ísl. kr.
Jadekost-verksmiðjan er afar vel
búin og auk þess er hún mjög vel
í sveit sett hvað varðar hráefnisút-
vegun og dreifingu á enskan, þýsk-
an og franskan markað. Royal Gre-
enland tekur einnig við sölufyrir-
tækinu Jadefood og mun því geta
nýtt sér þau viðskiptasambönd og
vörumerki, sem það hefur haft.
Með kaupunum fær Jadekost
nýtt nafn og heitir nú Royal Green-
land Seafood Germany GmbH.
Skipulagslega er það sett undir
Royal Greenland Seafood A/S, sem
er með aðalskrifstofur í Glyngöre,
og forstjóri þess, Torben Jeppesen,
verður stjórnarformaður í þýska
fyrirtækinu. Aðalframkvæmdastjóri
þess verður aftur Teis Knudsen, sem
nú stjórnar urriðaframleiðslunni í
Vejle.
55.000 tonn á ári
Jadekost-verksmiðjan var reist á
árunum 1992-’93 en varð gjaldþrota
á síðasta ári vegna of mikillar fjár-
festingar. Tóku þá við henni þrír
bankar, sem héldu rekstrinum
áfram. Verksmiðjan er 14.000 fer-
metrar og árleg vinnslugeta 55.000
tonn.
Hafnfirðingur HF
enn óklár á veiðar
ENN ER unnið að lagfæringum á
Hafnfirðingi HF og skýrist líklega
ekki fyrr en í næstu viku hvenær
skipið verður tilbúið til veiða. Sjó-
frost ehf. keypti skipið frá Kanada
nú í vor og hefur skipið legið í
Hafnarfjarðahöfn síðan þá.
Bjarni Einarsson, stjórnarmað-
ur Sjófrosts ehf., segir að tafir
hafi orðið meiri en áætlað var en
nú sé unnið á fullu að því að gera
skipið klárt. „Við verðum eitthvað
lengur að koma öllu í lag og lík-
lega ætti að skýrast í næstu viku
hvenær það verður. Við áætluðum
að vera tilbúnir ujn miðjan júní
en það hefur því miður ekki geng-
ið eftir. Við misstum þar af leið-
andi af úthafskarfanum en það
hefur ekki verið ákveðið hvert
skipið fer á veiðar. Það verður
skoðað þegar þar að kemur en það
er ekki úr miklu að velja eins og
er,“ segir Bjarni en segir að lík-
lega verði Smugan þrautalending-
in.
Melabraut - Hafnarfirði
Vorum aö fá í einkasölu þetta atvinnuhúsnæði
skammt fyrir ofan höfnina í Hafnarfirði. Um er að
ræða tvær hæðir alls 1.635 fm, með innkeyrslu-
möguleika beggja vegna. Húsnæðið hefur verið
nýtt sem vörugeymsla, en gæti nýst undir hvers
konar fiskvinnslu. Húsnæðið er í góðu ástandi, þó
er lóö ekki fullfrágengin. Verð 44 milljónir.
Nánari upplýsingar hjá fasteignasölunni Ás,
Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, sími 565 2790.
SKÖTUSELNUM PAKKAÐ
• VINNSLUSTÖÐIN í Vest-
mannaeyjum er nú að selga á
markað ýmiss konar físk, sem
hentar á grillið. Þorbergur
Aðalsteinsson, markaðsfull-
trúi Vinnslustöðvarinnar, seg-
ir að fiskinum sé pakkað í þar
til gerða álbakka sem siðan
eru settir í lofttæmdar umbúð-
ir. Nákvæmar leiðbeiningar
eru á umbúðunum þannig að
eidamennskan er lítið mál.
„Núna erum við að setja
skötusel, steinbít, búra og
rauðsprettu á markað, en þar
sem þetta er kæiivara ráðast
tegundirnar af þvi hvaða fisk
er að hafa hveiju sinni,“ segir
Morgunblaðið/Sigurgeir
Þorbergur. Mikil vinna hefur
verið lögð í að útbúa réttina
og er útkoman sérstök krydd-
olía og kryddblöndur. Sem
dæmi má nefna að lúðan er
krydduð með hawæísku
kryddi, skötuselurinn austur-
lensku kryddi og steinbíturinn
er í piparsósu.
„Gefur öruggari keyrslu
og mun betri nýtinguu
Hentar best í skipum
skeið í karfavinnslunni hjá Fiskiðj-
unni Skagfirðingi hf. á Grundar-
firði. Eyjólfur Lárusson, vinnslu-
stjóri, segist mjög ánægður með
flokkarann og hann hafi reynst
vel. Hann gefi öruggari keyrslu í
vinnslunni og mun betri nýtingu.
„Flokkarinn lofar mjög góðu. Hann
þjónar þremur flökunarvélum hjá
okkur og gerir flökunina mun létt-
ari og með honum verður nýtingin
á vélunum mun betri og þar af leið-
andi verða afköstin meiri. Hann
flokkar karfann mjög vel því hann
festist síður í flökunarvélunum þó
að um misjafnar stærðir sé að
ræða,“ segir Eyjólfur.
Þráinn segir karfaflokkarann
vera ákveðinn punkt í þessari þró-
un. Flokkarinn sé sérstaklega ætl-
aður fyrir vinnslu í skipum sem
veiða fyrir markað og geti því kom-
ið með fiskinn flokkaðan að landi.
„Flokkarinn getur flokkað karfa en
einnig annan físk eins og þorsk,
ýsu og ufsa upp í allt að þrjú og
hálft kíló. Ef flokkarinn er notaður
um borð í skipi myndi það til dæm-
is þýða að allur undirmálsfiskur
kæmi að landi en það er slegist um
hann á mörkuðum.
Einnig hentar fiokkarinn vel um
borð í frystiskipum þar sem karfinn
er hausaður og flokkaður eftir
hausun," segir Þráinn. Hann segir
það hafa sýnt sig að flokkarinn
STAVA-karfaflokkari frá Stálvinnslunni hf.
STÁLVINNSLAN hf. hefur sett
á markað nýjan beltaflokkara
fyrir karfa. Þráinn Sigtryggsson
hjá Stálvinnslunni hefur þróað
flokkarann sem hann segir vera
afsprengi síldarflokkara sem fyrirtækið hefur selt um áraraðir og er
einkum ætlaður til fiskflokkunar um borð í skipum.
Nýr karfaflokkari
frá Stálvinnslunni
Þráinn segir karfaflokkarann í
raun framhaldsvinnslu á STAVA
síldarflokkaranum sem Stálvinnsl-
an hf. setti fyrst á markaðinn árið
1960 og hefur selt víða um heim.
Árið 1988 hafi hann gert sér grein
fyrir þörfinni fyrir flokkara fyrir
stærri fisk, sérstaklega til að flokka
eldisfisk og hafið þróun á nýjum
flokkara og lokið þeirri smíði árið
1990.
„Þessi flokkari var smíðaður til
að flokka lifandi eldisfisk, þannig
að ef slátra á einhverri ákveðinni
stærð af fiski þá er hann flokkaður
frá en smærri fiskur syndir út í
kvíarnar aftur. Einnig þróuðum við
út frá þessu seiðaflokkara því seið-
in eru þannig að þau stækka mis-
munandi hratt og stærri seiðin aféta
þau minni. Því þarf helst að flokka
hveija stöð á mánaðarfresti,“ segir
Þráinn.
flokki ekki aðeins fisk sem komi
beint úr sjó heldur líka blóðgaðan
og hausaðan fisk og jafnvel aðgerð-
an fisk einnig.
Gefur betri nýtingu
Karfaflokkari frá Stálvinnslunni
hf. hefur verið notaður um nokkurt