Morgunblaðið - 03.08.1996, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1996 C 3
Q99 ATLAMTA ’96
11 Róaði mig
## viðað
hugsa heim;
um Huldu
Ingibjörgu og
Krister
Blæ
Sterkasta tugþraut-
arkeppni allra tíma
TUGÞRAUTARKEPPNIN á
Ólympíuleikunum að þessu
sinni er sú sterkasta sem nokk-
urn tímann hefur farið fram,
ef litið er á heildina.
Fimm keppendur fóru yfir
8.600 stig, en aldrei höfðu
nema þrír afrekað það áður á
sama mótinu. Þá voru sex efstu
menn í keppninni allir yfir
8.500 stigum en áður höfðu
mest fjórir gert það í sömu
keppni og sé 8.200 stiga mark-
ið haft til viðmiðunar náðu 16
keppendanna að komast yfir
það að þessu sinni, en mest
höfðu átta manns áður gert
það á sama móti.
Þá má geta þess að árangur
Dans O’Briens á mótinu, 8.824
stig, er sá sjötti hæsti í sög-
unni. Sjálfur hefur hann tvisv-
ar náð betri árangri, Daley
Thompson frá Bretlandi einu
sinni og Jiirgen Hingsen, Vest-
ur-Þýskalandi, tvisvar.
Allir sendir
í lyfjapróf
ALLIR tugþrautarkapparnir fóru í
lyflapróf eftir að keppni lauk. Þeim
gekk misvel að pissa, sumir voru
tiltölulega fljótir en aðrir - m.a.
Jón Arnar - sátu lengi áður en
þeir gátu létt á sér. Starfsmenn
báru mikið af alls kyns svalar-
drykkjum inn í herbergið þar sem
drengirnir héldu sig en Jón Arnar
sagði á eftir að henn hefði drukkið
nokkra lítra til viðbótar eftir keppn-
ina til að reyna að framkalla þvag-
sýni. „Ég sef varla mikið í nótt.
Verð örugglega meira og minna
klósettinu," sagði Jón Arnar.
klárast ekki fyrr en klukkan er far-
in að halla í þrjú að nóttu á íslandi
aðfaranótt föstudags. Sá grunur
læðist að undirrituðum að fjöldi
manna þar hafi beðið með að fara
að sofa þar til 1500 metra hlaupinu
var lokið. Hafi setið við sjónvarps-
tækin og fylgist með Jóni Amari,
Dan O’Brien og félögum í síðustu
greininni.
Sáttur
„Ég er sáttur. íslandsmetið féll
og þó margt hefði náttúrlega mátt
betur fara í ýmsum greinum og ég
veit ég hefði átt að geta bætt met-
ið meira er ég sáttur. En þrautin
gekk þó ekki alveg eins og ég vildi,“
sagði Jón Arnar er hann settist nið-
ur með blaðamanni Morgunblaðs-
ins. Klukkan er orðin margt og
engir eftir á leikvanginum nema
hann, Gísli þjálfari, Birgir læknir
og fáeinir lögregluþjónar og vallar-
starfsmenn. Skömmu áður höfðu
rúmlega 80 þúsund manns hvatt
Dan O’Brien eins og mest þeir
máttu, til að hjálpa honum við að
halda forystunni, en nú var þögnin
í algleymingi. Búið að slökkva flóð-
ljósin á vellinum og dauðaþögn.
Jón Arnar gaf sér tíma til að
setjast niður um stund í þögninni
og ræða við Morgunblaðið. Þó syfj-
aður sé og þreyttur er hann yfirveg-
aður og rólegur. Og hann rennir í
huganum í gegnum tugþrautina:
„Hundrað metra hlaupið var al-
veg í lagi hjá mér. Ég var alveg
sáttur við það,“ sagði hann en Jón
hljóp á 10,67 sek. en fór á 10,79
er hann setti íslandsmetið í fyrra.
Best á hann 10,65. „Langstökkið
klikkaði hins vegar hjá mér. Ég
gerði reyndar gilt stökk en það var
allt of stutt til ég yrði ánægður.
Ég hitti einhvem veginn ekki á
gott stökk að þessu sinni, fann mig
ekki nægilega vel.“ Jón stökk 7,28
metra en á best 8,00 og fór 7,67 í
metþrautinni í fyrra.
Kúluvarp er þriðja grein. „Hún
var alveg þokkaleg. Ég er samt
óhress þó árangurinn líti ágætlega
út á pappír - ég hef nefnilega ver-
ið að gera það vel á æfingum upp
á síðkastið að ég átti að gera bet-
ur.“ Hann varpaði 15,52 metra og
vert er að geta það er lengsta kast
hans í greininni í tugþraut.
„Það var ekkert stórslys,” segir
Jón Arnar um fjórðu greinina, há-
stökkið, „en ég hefði átt að ná betri
árangri þar. Tækniatriðin þarf ég
að laga í hástökkinu." Hann stökk
1,95 m en fór yfir 1,94 í metþraut-
inni í fyrra.
Síðasta grein fyrri dagsins er 400
m hlaup og „ég er mjög ánægður
DanO’Brien
Bandaríkjunum
Ólympíumeistari í tugþraut.
Aldur: 30 ára.
Persónulegt met: 8.891 stig 1992, sem jafnframt er
heimsmet.
Fyrri árangur: Sigurvegari á heimsmeistaramótinu 1991
- Sigurvegari á heimsmeistaramótinu 1993 - Sigurvegari
á Friðarleikunum 1994 - Sigurvegari á heimsmeistaramót-
inu 1995.
■ Móðir Dan O’Briens var frá Finnlandi en faðir hans
var bandarískur blökkumaður. Tveggja ára að aldri var
O’Brien hins vegar ættleiddur af hjónum frá Oregon-fylki
og fékk hann síðar skólastyrk frá háskólanum í Idaho.
O’Brien komst ekki í lið Bandaríkjamanna fyrir Ólympíu-
leikana í Barcelona 1992 því honum mistókst að stökkva
yfir byijunarhæðina í stangarstökki.
Morgunblaðiö/Kristinn
ÞESSU er lokið, sjðumst síðar... Dan
O’Brien kveður.
Þrjátíu
klukku-
stunda
þrekraun
KEPPENDURNIR í tugþraut-
arkeppni á Ólympíuleikunum
voru flestir orðnir þrekaðir
þegar þeir komu í markið að
lokinni síðustu keppnisgrein-
inni, 1.500 m hlaupi, að kvöldi
fimmtudagsins að staðartíma,
enda rúmlega sólarhrings þrek-
raun að baki. Þeir höfðu reynt
með sér í tíu erfiðum greinum
sem alls tóku 26 og hálfa
klukkustund. Er þá lagður sam-
an tíminn sem leið frá því að
þeir geystust af stað í fyrstu
keppnisgreinina, 100 metra
hlaup, og þar til j»eir komu í
markið í 1.500 metra hlaupi.
Fyrri daginn stóð keppnin
yfir í 13 klukkustundir og síð-
ari daginn leið 13 og hálf
klukkustund frá því fyrsta
grein hófst þar til yfir lauk. í
viðbót við 26 og hálfan tíma
má reikna með að keppendur
hafi verið mættir í upphitun
a.m.k. einum klukkutíma áður
en þrekraunin hófst hvorn dag
jafnframt því sem drjúgur tími
hefur farið í að teygja á vöðvum
og jafna sig á eftir. Þess vegna
er ekki vanáætlað að telja að
alls hafi kapparnir eytt um 30
klukkustundum hver í tug-
þrautarkeppninni áður en yfir
lauk.