Morgunblaðið - 20.08.1996, Page 1
5 af 6
+bónus
3 af 6
+ bónus
BÓNUSTÖLUR
© ^ ©
13.08.-19.08.96
UPPLYSEINieAR
• Fyrsti vinningur i Lottó 5 38 v;
keyptur í Toppmyndum i Eddufell
Reykjavik
lv«3*Jur
1, vmróngur
Vertu viðbúin(n) vinningi
l»tt«
1. vinningur er áætlaður 40 mill|ónir kr
14. 08.1996
VINNINOSTÚl.UR
MIÐVIKUDAGINN
AÐALTÖLUR
HeildarymnínQsupphíeb:
45.460.325
Ablandi:
1.090.325
17. 08.1996
23134
Vinnings-
upphæð
Fjoldi
vinninga
Vinnmgar
2.021.146
4 af 5
2.
247.140
plus
3.48,5
8.700
4. 3af 5
650
1.523
mtals
1.573
3.684.496
L«TJ«
1996
ÞRIÐJUDAGUR 20. AGUST
BLAÐ
< Vinningar
4. 48,6
Samtals:
Fjöldi
vinninga
237
827
Vinnings-
upphætt
14.790.000
48.330
1.620
15.147.74S
307.605
190
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÞREYTTIR EIM AKVEÐNIR
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
REYKJAVÍKURMARAÞON fór fram í 13. sinn á sunnudaginn, á 210. afmælisdegi borgarinnar. Blíðskaparveður var, sólin skein og nokkur vindur blés,
en hlaupararnir voru golunni fegnir. Heilt maraþon eru 42,2 kílómetrar og því mikil þrekraun að fara alla leið. Þessir garpar, sem eru við einn af
nokkrum stöðum þar sem hlaupurum var boðið upp á vatn, eru þreyttir að sjá en ákveðnir í að komast í mark - sem þeir og gerðu. Alls tóku um 2700
manns þátt í Reykjavíkurmaraþoni að þessu sinni; flestir í skemmtiskokki. 804 hlupu 10 kílómetra, 207 fóru hálfmaraþon en 129 þreyttu fullt maraþon.
OLYMPIUHREYFINGIN
Sleppum við fjárhagsskaða
JÚLÍUS Hafstein, formaður Ólymp-
íunefndar íslands, er bjartsýnn á að
nefndin sleppi við að greiða til baka
styrk sem Ólympíusamhjálpin veitti
Mörthu Emstdóttur. Eins og Morg-
unblaðið greindi frá á laugardag
krafðist framkvæmdastjóri Ölymp-
íusamhjálparinnar þess í bréfi til 01
að nefndin endurgreiddi 880.000
krónur sem Martha fékk, þar sem
hún hefði ekki keppt á Ólympíuleik-
unum í Atlanta.
Jafnframt lýsti framkvæmdastjór-
inn miklum vonbrigðum með að Pét-
ur Guðmundsson og Sigurður Einars-
son skyldu ekki keppa í Atlanta, og
bað ÓI að hugleiða þann möguleika
að bæta Samhjálpinni fyrir þann
tíma, þá fyrirhöfn og peninga sem
hún hefði lagt fram vegna æfinga
kastaranna, en um er að ræða rúm-
lega sex miljónir króna.
Júlíus sagði bréf framkvæmda-
stjóra Ölympíusamhjálparinnar,
Spánverjanum Anselmo Lopez, hafa
borist sér meðan á leikunum stóð í
Atlanta. „Viðbrögð okkar við bréfinu
voru að óska eftir fundi með forseta
Evrópusambands Ólympíunefnda,
Jacques Rogge, þar sem við skýrðum
okkar sjónarmið vegna Mörthu, því
bréfið vegna hennar kom fyrst. Hann
var sammála okkar niðurstöðu; það
væri ákvörðun Ólympíunefndar í
hveiju landi að ákveða hveijir færu
á leikana en ekki Ólympíusamhjálp-
arinnar, þó svo hún hefði styrkt
íþróttamanninn. Það kemur líka fram
í síðara bréfinu, sem skrifað var
vegna Péturs og Sigurðar, að Sam-
hjálpin telur sig ekki geta blandað
sér í þá ákvörðun. Hvergi í samning-
um Ólympíusamhjálparinnar,
íþróttamannanna og ÓI kæmi fram
að það skilyrði væri fyrir styrkveit-
ingunum að viðkomandi íþróttamað-
ur færi á leikanna. „Enda hefði
Ólympíunefnd Islands væntanlega
afþakkað styrkina ef það skilyrði
hefði verið sett,“ sagði Júlíus við
Morgunblaðið.
„Við í Ólympíunefndinni, og sér-
staklega við Ari Bergmann sem kom-
um mest nálægt þessu, gerðum okk-
ur grein fyrir því er ákvörðunin var
tekin um að þessir þrír íþróttamenn
yrðu ekki sendir á leikana, að við
myndum fá umkvörtun frá Ólympíus-
amhjálpinni. Vissulega höfðum við
áhyggjur af því en eftir að við rædd-
um við Rogge og framkvæmdastjóra
heimssambands Ólympíunefnda,
Spánvetjann Feliciano Mayoral,
sannfærðumst við um að ekkert
væri að óttast. Þeir sögðu okkur að
ef samkomulag um málið næðist
ekki milli Óí og Lopez, forstjóra
Ólympíusamhjálparinnar, myndu
þeir taka málið að sér fyrir okkar
hönd ásamt Mario Rana, forseta
heimssambands Ólympíunefnda en
hann er jafnframt varaformaður
stjórnar Ólympíusarnhjálparinnar,"
sagði JÚIÍUS.
„Ég er sannfærður um að sam-
komulag næst um að leysa málið og
Ólympíunefnd íslands bíði því ekki
fjárhagslegan skaða af þessu,“ sagði
hann. „Við verðum líka að gera okk-
ur grein fyrir því að við hefðum ekki
getað sett sérreglur fyrir þá íþrótta-
menn sem þáðu styrk frá Ólympíus-
amhjálpinni, vegna annarra íslenskra
íþróttamanna sem voru að vinna að
sama markmiðið; að komast á
Ólympíuleikana. Hjá okkur verður
að vera ein regla; jafnfræðisreglan
verður að gilda.“
GOLF: KEILIR OG GS SIGRUÐUISVEITAKEPPNINNI / B8