Morgunblaðið - 20.08.1996, Qupperneq 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1996 B 7
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
TENNIS / ISLANDSMEISTARAMOTIÐ
II nOI F / RVFITAKFPPNI GSÍ
Gunnar og Hrafn-
hildur unnu þrefaft
HRAFNHILDUR Hannesdóttir, Fjölni, og Gunnar Einarsson, TFK,
urðu um helgina þrefaldir íslandsmeistarar í tennis, en mótinu
lauk á sunnudaginn. Þau vörðu titla sína íeinliðaleik, léku saman
ítvenndarleik og sigruðu. Loks bar Gunnar sigur úr býtum ítví-
liðaleik karla ásamt Stefáni Pálssyni á sama tíma og Hrafnhildur
lék með Stefaníu Stefánsdóttur til sigurs ítvfliðaleik kvenna.
Hrafnhildur lagði Rakel Péturs-
dóttur að velli í undanúrslit-
um í tveimur settum, 6-2, 6-3 og
tryggði sér þar með
sæti í úrslitum en
Benediktsson ?taub lagði
skrifar Stefaniu, meistar-
ann frá því fyrir
tveimur árum, í þriggja setta leik,
3-6, 6-1, 6-4. Það voru því Hrafn-
hildur og íris sern léku til úrslita í
kvennaflokki og íris byijaði mun
betur og vann fyrsta settið örugg-
lega 6-4. Hrafnhildur náði að snúa
við bjaðinu í öðru setti og sigra
6-2. í þriðja setti leit út fyrir að
Írisi væri að takast það sem fáir
áttu von á, að vinna Islandsmeist-
aratitilinn. Hún náði forystu í sett-
inu, 3-1, og Hrafnhildur virtist ekki
ná sér á strik. En líkt og hendi
væri veifað snerist leikurinn við og
Hrafnhildur jafnaði_ 3-3 og komst
yfir 4-3. Hin unga íris var ekki af
baki dottin og jafnaði 4-4 en lengra
komst hún ekki og Hrafnhildur sigr-
aði í settinu 6-4 og innsiglaði þar
með fimmta íslandsmeistaratitil
sinn á sex árum í leik sem tók rúm-
ar tvær klukkustundir.
„Ég var lengi í gang og lék illa
lengi framan af,“ sagði Hrafnhildur
og var skiljanlega glaðbeitt eftir
að hafa sigrað í kvennaflokki annað
árið í röð, en hún er 18 ára göm-
ul. „Eftir dapra frammistöðu í
fyrsta setti var ég staðráðin í að
snúa við blaðinu í öðru setti og það
tókst, meira að segja var það auð-
velt.“
Hún sagði byrjunina á þriðja sett-
inu hafa verið afleita og það hafi
verið eins og hún teldi að sigurinn
kæmi af sjálfu sér eftir auðveldan
sigur í öðru setti. „Mér tókst sem
betur fer að rífa mig upp.“
íris sagðist vera ánægð með
frammistöðu sína þrátt fyrir tapið
en hún er aðeins 15 ára gömul.
„Mig vantar meiri reynslu og ef hún
hefði verið til staðar hefði ég sigr-
að,“ sagði íris. „Ég lék illa í öðru
setti en framan af því þriðja tókst
mér vel upp en er á leið fór reynslu-
leysið að segja til sín. En ég kem
reynslunni ríkari til leiks að ári,“
bætti íris við og sagðist vera ánægð
með að hafa náð að leggja Stefan-
íu, meistarann frá 1994, að velli í
undanúrslitum.
Minni vafi hjá körlunum
í karlaflokki lék minni vafi á
hver væri sá besti. íslandsmeistar-
inn í fyrra, Gunnar Einarsson, TFK,
var greinilega ekki tilbúinn til að
gefa neitt eftir í úrslitaviðureigninni
við Einar Sigurgeirsson og sigraði
annað árið í röð, að þessu sinni í
tveimur settum, en í fyrra sigraði
hann Stefán Pálsson í þremur sett-
um. Þess má geta að Einar tapaði
í undanúrslitum í fyrra en hafði þar
áður farið með sigur úr býtum sex
ár í röð. '
Gunnar kom grimmur til leiks
og fyrra settið var nær einstefna
af hans hálfu. „Hann gerði mikið
af mistökum sem ég gat nýtt mér.
Þá hafði ég einsett mér fyrir leikinn
að sækja að honum upp við netið
og það herbragð tókst fullkom-
lega,“ sagði Gunnar um fyrsta sett-
ið sem hann sigraði í, 6-2.
„Einar byijaði betur í öðru setti
en mér tókst að jafna og þegar við
höfðum báðir unnið fjórar lotur í
öðru setti var komin mikil tauga-
spenna í okkur. Staðan var 40:40
og þá vann ég bolta sem var mjög
mikilvægur og vann þar með
fimmtu lotuna. Það var þess vegna
mikil pressa á honum í síðustu lot-
unni þar sem ég hafði uppgjafar-
réttinn og bætti í og sigraði," bætti
Gunnar við og sagðist að sjálfsögðu
vera ánægður með að hafa sigrað
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
annað árið í röð. Hann hefði þurft
að hafa meira fyrir sigrinum nú en
í fyrra þrátt fyrir að þá hefði hann
leikið þriggja setta leiki bæði í úr-
slitum og undanúrslitum. „Það kom
tvennt til að þessu sinni, bæði var
það að nú var ég skráður til leiks
sem besti spilarinn og auk þess
hefur öðrum farið' fram síðan í
fyrra. „Já, ég þurfti að hafa meira
fyrir sigrinum nú.“ Gunnar sagðist
hafa leikið tennis í níu ár en hann
er átján ára gamall. Hann hefur
búið í Bandaríkjunum í níu ár og
byijaði að æfa þar er hann fluttist
út. Nú væri stefnan sett á að kom-
ast í háskóla í Los Angeles og vinna
sér rétt í sterku tennisliði skólans.
„Ég kem að ári staðráðinn í að
veija titilinn," sagði Gunnar.
Meistarataktar hjá
þreföldum meisturum
GUNNAR Einarsson úr Tennisfélagi
Kópavogs og Hrafnhildur Hannesdóttir
úr Fjölni, urðu bæði þrefaldir íslands-
meistarar í tennis um helgina. Gunnar,
sem er á myndinní til vinstrí, varð í
fyrsta sinn meistari í einliðaieik í fyrra
og endurtók leikinn nú. Hrafnhildur hef-
ur hins vegar orðið meistari í einliða-
leik fimm sinnum á síðustu sex árum.
TORFÆRA
lném
FOLK
■ SVÍARNIR sem mættu í heims-
bikarmótið sögðu að það væri ekki
nóg með að Islendingar hefðu
veitt grimmt og selt síld úr Smug-
unni. íslenskir torfæruökumenn
hefðu selt úr sér heilann. Svo
glæfralegir fannst Svíum íslenskir
ökumenn undir stýri.
■ GUNNAR Pálmi Pétursson
vann í flokki götujeppa þrátt fyrir
að hafa velt harkalega í einni þraut-
inni. Hann háði harða keppni við
Gunnar Guðmundsson sem hafði
forystu eftir fjórar þrautir. Gunnar
innsiglaði sigurinn í tímaþrautinni
og fékk 1.320 stig í heildina en
Gunnar 1.260.
■ SONAX umboðið var styrktar-
aðili mótsins, en erlendis styður
þýska fyrirtækið Formula 1 öku-
mennina Daraon Hill, Jaques Vil-
lenueve og Heinz Harald Frentz-
en. Liðsstjórar ökumanna torfær-
unnar fengu húfur merktar
Frentzen og gættu þeirra eins og
sjáaldurs augna sinna. SONAX
hérlendis styður torfærukappann
Einar Gunnlaugsson og gaf 10
fjarstýrða Benz kappakstursbíla í
barnahappdrætti í hléi á staðnum.
■ NORSKUR ökuþór, Torger
Johansson fékk tilþrifaverðlaun
fyrir akstur í flokki götujeppa og
Gísli G. Jónsson í flokki sérútbú-
inna fyrir stórkostleg tilþrif í tíma-
braut.
■ SÆUNN Lúðvíksdóttir var
eina konan sem keppti í torfær-
unni. Hún var mistæk í bytjun en
átti góðan endasprett og keyrði vel
í tímabrautinni. Náði þar þriðja
besta tímanum ásamt íslands-
meistaranum Haraldi Péturssyni.
TVÍVEGIS kviknaði eldur í jeppa inga Más Björnssonar. Hér reynir hann að ræsa vélina en bensín sem flætt hafði í pústið brenn-
ur með tilheyrandi eldsúlu eftir að nitró búnaðurinn hafði dælt meira bensínmagni óbrenndu í gegnum vélina.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
EIGINKONAN, Svetlana Markovic,
óskar Sigurði til hamlngju.
Æsispennandi lokasprettur
w
Islenskir ökumenn háðu harða
keppni um sigurlaunin í fyrsta
heimsbikarmótinu í torfæru sem fram
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
skrilar
sekúndunum
fór í Jósepsdal á laug-
ardaginn. í flokki sér-
útbúinna jeppa réðust
úrslitin bókstaflega á
síðustu metrunum og
í tímabraut. Sigurður
Axelsson hékk á sigrinum, þó Gísli
G. Jónsson næði fjórum sekúndum
betri tíma í lokaþrautinni. Munaði
aðeins tíu stigum á þeim í lok keppni,
Sigurður fékk 1.260 stig og Gísli
1.250. Flokk sérútbúinna götujeppa
vann Gunnar Pálmi Pétursson frá
Hornafirði. Tvö þúsund áhorfendur
fylgudst með keppninni sem gekk
seint í byijun vegna þess hve erfiðar
þrautinar voru og brautarhreinsun
gekk stirðlega. Ökumenn undir fána
Svíþjóðar gerðu ekki garðinn frægan
í þessari ferð. Tugir torfærujeppa eru
í Svíaríki og komu margir ökumenn
til að skoða aðstæður fyrir mót fram-
tíðarinnar. Leist þeim vel á aksturs-
tækni íslenskra ökumanna og öku-
menn þeirra sem kepptu núna höfðu
ekki erindi sem erfiði, en vilja efla
samstarf milli landanna.
Fimm ökumenn blönduðu sér sterk-
lega í baráttuna um fyrsta sætið. Þór
Þormar var með forystu eftir fjórar
þrautir, en í millitíðinni höfðu Éinar
Gunnlaugsson og Gísli G. Jónsson
haft 10 stiga forystu. En reynsluleysi
varð kannski Þór að falli í fjórðu þraut.
Hann ætlaði sér upp hrikalegt brekku
með nokkrum illskeyttum börðum, en
tókst ekki sem skyldi þó litlu munaði.
„Ég ætlaði upp, fann lyktina af
fyrsta sætinu og vildi fleiri stig. Jepp-
inn ofreis þegar ég var kominn efst í
brekkuna og ég ríghélt í stýrið og
spennti lappirnar._ Vissi að ég myndi
falla aftur niður. Ég hentist til og frá
þegar jeppinn valt fimm veltur með
látum. Fyrsta hugsunin þegar jeppinn
var lentur endanlega var að fara og
gera við,“ sagði Þór Þormar í samtali
við Morgunblaðið. En hann fékk ekki
að fara lengra, öryggisfulltrúi LÍA
meinaði honum að halda áfram vegna
skemmda á veltibúrinu. „Ég yar ekki
sáttur við þessa ákvörðun. Ég hefði
vel getað lagfært veltibúrið. En ég
verð bara að vera grimmur næst og
stefni nú hiklaust á fyrsta sætið,“
sagði Þór.
Sigurður kláraði fimmtu þraut en
Gísli fékk aðeins 220 stig, önnur bens-
índælan bilaði og nítrón búnaðurinn
virkaði ekki fyrir vikið. Sigurður var
þar með kominn 50 stigum á undan
Gísla fyrir sjöttu og síðustu þrautina.
Staðan fyrir síðustu braut var því
þannig að Sigurður var með 990 stig,
Gísli 960 og Einar 920.
Einar náði ekki nema þokkalegum
tíma í tímabrautinni. Sigurður bætti
um betur fór á 48,68 sekúndum á
meðan Gísli fór eins og elding um
tímabrautina, ýmist á fjórum hjólum
eða tveimur. „Ég missti hinsvegar
vald á bílnum í eitt augnablik á lo-
kakaflanum sem þýddi að ég ók niður
eitt dekk og tapaði 10 stigum þó ég
næði besta aksturstíma," sagði Gísli.
Þetta þýddi að Sigurður vann með
10 stiga mun.
„Ég var ánægður að vinna sigur.
Ég er búinn að bíða lengi eftir gullinu
og átti ekki von á að geta unnið mig
upp úr sjöunda sæti um miðja keppni
í það fyrsta,“ sagði Sigurður, „Ég
blindaðist ef sólinn í þriðju þraut, sló
af og gaf svo aftur í. Þá varð nitró-
sprenging og húddið þeyttist af. Mér
leist ekkert of vel á blikuna, því það
logaði í vélarsalnum og bensíntankur-
inn er frammí. En ég slapp með
skrekkinn og gat haldið áfram. Nú
verð ég að ná heimsbikarnum. Ég
verð að vinna einhvern titil á árinu,“
sagði Sigurður.
Einar Gunnlaugsson náði í brons-
verðlaunin í flokki sérútbúinna bíla.
íslandsmeistarinn Haraldur Pétursson
og Ásgeir J. Allanson urðu jafnir í
4.-5. sæti.
Suðumesjamenn
stálust á toppinn
Kvennasveit Keilis endurtók leikinn frá því ífyrra, vann alla mótherja sína 3:0
MJÓTT var á mununum í
Sveitakeppni GSÍ á Hvaleyrar:
velli íHafnarfirði um helgina. í
karlaflokki luku þrjár sveitir
keppni jafnar að stigum, en
A-sveit Golfklúbbs Suðurnesja
var úrskurðaður sigurvegari
vegna þess að sveit hans fékk
fleiri vinninga í leikjum sfnum.
í kvennaflokki hafði A-sveit
Keilis betur fhreinum úrslita-
leik gegn A-sveit Golfklúbbs
Reykjavíkur.
Keppni í karlaflokki gat vart
verið jafnari. Þijár sveitir luku
keppni með 4 stig eftir fimm leiki,
en A-sveit Golfklúbbs Suðurnesja
hafði sigrað í fleiri innbyrðis leikjum
í viðureignum sínum og hreppti því
hnossið. Þegar sveitirnar lögðu upp
í síðasta hringinn á sunnudag var
Golfklúbburinn Leynir með eins
stigs forystu - hafði fengið 4 stig,
en Suðurnesjamenn og heimamenn
úr Keili voru með þrjú stig. Suður-
nesjamennirnir sigruðu A-sveit
Golfklúbbs Reykjavíkur, 3:0, í
fimmta og síðasta leik sínum og
luku því leik með 4 stig - jafnmörg
og Leynir, en með fleiri innbyrðis
vinninga. Hilmar Björgvinsson og
Guðmundur R. Hallgrímsson sigr-
uðu Tryggva Pétursson og Þorkel
Snorra Sigurðarson í fjórmenningi
og höfðu því tekið 1:0 forystu í
leiknum. Örn Ævar Hjartarson lék
glæsilega í tvímenningi gegn Sig-
urði Hafsteinssyni og var leiknum
lokið strax á 13. holu því Örn hafði
þá sigrað, 7:5. Félagi Arnar, Helgi
Þórisson, lék einnig vel og sigraði
Hjalta Pálmason, 6:4.
Síðasti leikurinn var á milli
heimamanna Keilis og Leynis-
manna frá Akranesi. Keppnin stóð
þegar hér er komið sögu á milli
Suðurnesjamanna, sem höfðu lokið
leik, og Akurnesinganna. Leynis-
menn tóku forystu í leiknum gegn
Keili þegar Þórður Emil Ólafsson
og Örn Arnarson sigruðu Svein Sig-
urbergsson og Friðbjörn Oddsson í
fjórmenningi, 2:1. Suðurnesjamenn
gátu ekki annað en lagt allt sitt
traust á Keilismennina tvo sem á
eftir komu, þá Björn Knútsson og
Björgvin Sigurbergsson. Eftir átján
holur voru Björn og Kristinn G.
Bjarnason jafnir og urðu þeir því
að leika bráðabana. Björn sigraði á
fyrstu holunni í bráðabananum og
höfðu Keilismenn því jafnað leikinn.
Islandsmeistarar síðustu tveggja
ára, Björgvin Sigurbergsson úr
Keili og Birgir Leifur Hafþórsson
frá Leyni, háðu því harða baráttu
í lokin, en Björgvin hafði betur í
þetta sinn og bar sigurorð af Birgi
á 18. holu, 2:0.
Keilismenn höfnuðu í öðru sæti
vegna þess að þeir sigruðu Leyni í
innbyrðis viðureign sveitanna, en
Leynir varð að sætta sig við þriðja
sætið þrátt fyrir að vera í foryst-
unni fyrir síðustu umferðina. Fyrir
keppnina bjuggust flestir við því
að baráttan stæði á milli Leynis og
Keilis, en Suðurnesjamenn komu,
sáu og sigruðu. „Við ætluðum bara
að gera okkar besta, komum sjálfs-
öruggir til leiks og höfðum trú á
okkur. Við ætluðum að leika okkar
golf og ef það myndi duga væri það
bara mjög gott. Það eina sem við
gátum gert síðasta daginn var að
vinna okkar leik og svo varð hitt
bara að ráðast," sagði Örn Ævar
Hjartarson, en hann lék glæsilega
Morgunblaðið/Golli
SUÐURNESJAMENN réðu sér varla fyrir kætl þegar úrslitin voru kunn. Helgi Þórisson er lengst
til vfnstri á myndinni með Gylfa Kristinssyni, sem var ekkf í sveit GS. Órn Ævar Hjartarson
gengur glaður í bragði fyrir aftan þá félaga og honum á vinstri hönd er Davíð Jónsson. Fremst
á myndinni faðmar Guðmundur Rúnar Hallgrímsson félaga sinn, Hilmar Björgvinsson, og liðs-
stjórinn Sturlaugur Ólafsson fylgist með úr fjarlægð aftast í hópnum.
Karlsdóttir báru sigurorð af Ágústu
Guðmundsdóttur og Sigríði Th.
Mathiesen í Ijórmenningi, 3:2.
Brugðið hefði getað til beggja vona
í næstu tveimur leikjunum, en Þór-
dís Geirsdóttir tryggði Keili sigur-
inn er hún lagði Ragnhildi Sigurðar-
dóttur í æsispennandi einvígi á 19.
holu. Ólöf María Jónsdóttir bætti
um betur og sigraði Herborgu Arn-
arsdóttur einnig á 19. holu og full-
komnaði þar með sigurinn.
„Þetta er frábært. Það er aðeins
eitt orð til yfir þetta. Við áttum
frekar von á því að sigra heldur en
að tapa leiknum í dag og það gekk
eftir. Við erum með mjög gott lið
og lékum vel í dag,“ sagði Ólöf
María Jónsdóttir. Þórdís Geirsdóttir
sagði að þessi sigur hefði verið
nauðsynlegur til að sanna að fyrri
sigrar hefðu ekki verið nein heppni.
„Við vorum alltaf vissar um að
vinna fjórmenninginn. Ég var alveg
með það á hreinu að við myndum
vinna þennan leik. Það var búið að
vera svolítil pressa á okkur. Við
stilltum öðruvísi upp í fyrra. Þá lenti
Ólöf á móti Ragnhildi, en ég á
móti Herborgu. Þá sögðu sumir að
við hefðum bara verið heppnar að
vinna. Nú lenti ég á móti Ragnhildi
og Ólöf á móti Herborgu, en við
unnum þær samt. Þannig að við
erum búnar að sanna það að þetta
var engin heppni í fyrra. Við þurft-
um líka að sanna fyrir sjálfum okk-
ur að við gætum unnið þær hérna
á okkar heimavelli, því við töpuðum
fyrir þeim hérna fyrir fjórum árum.
Það er alltaf plús að vera heima
og þess vegna var mikilvægt fyrir
okkur að vita til þess að við getum
unnið þær hér líka,“ sagði Þórdís.
Golfldúbbur Suðurnesja kom á
eftir Keili og Golfklúbbi Reykjavík-
ur og hafnaði í þriðja sæti. Norð-
lensku klúbbarnir, Golfklúbbur Ak-
ureyrar og Golfklúbbur Sauðár-
króks, urðu fyrir því óláni að falla
niður í 2. deild, en staðgenglar
þeirra að ári verða Golfklúbburinn
Kjölur frá Mosfellsbæ og B-sveit
Golfklúbbs Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Golli
KEILISKONUR sigruðu í Sveitakeppni GSÍ þriöja áriö í röö.
Efri röö f.v.: Ólöf María Jónsdóttir, Lilja G. Karlsdóttir og
Guðbrandur Sigurbergsson, liðsstjóri. Neðri röð f.v.: Kristín
Pálsdóttir, Þórdís Geirsdóttir og Inga Magnúsdóttir.
í keppninni og var félögum sínum
styrk stoð. Venjan er sú að tvær
neðstu sveitirnar falla niður í 2.
deild og þurfti A-sveit Golfklúbbs
Akureyrar og B-sveit Golfklúbbs
Reykjavíkur að bíta í það súra epli,
en A-sveitir Golfklúbbs Vestmanna-
eyja og Nesklúbbsins fylla skarðið
í 1. deild á næsta ári.
Kvennasveit Keilis var í miklum
ham á heimavelli sínum um helgina
og sigraði í öllum leikjum sínum,
en það gerðu þær einnig í fyrra.
Keiliskonur hafa nú sigrað þijú ár
í röð, en þær léku gegn GR-ingum
í síðustu umferðinni á sunnudaginn.
Sveitimar tvær voru þá jafnar að
stigum og háðu þvi hreinan úrslita-
leik. Heimamenn stigu fyrsta skref-
ið er þær Kristín Pálsdóttir og Lilja
I