Morgunblaðið - 20.08.1996, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.08.1996, Qupperneq 12
Reuter DAVID Beckham, einn ungu drengjanna hjá Manchester United, leikur á Morðmanninn Oyvind Leonhardsen hjá Wimbledon. Beckham gerði eftirminnilegt mark; þrumaði í netið af miðlínu. MEISTARAR Manchester Un- ited fóru á kostum er þeir hófu titilvörnina með 3:0 sigri á Wimbledon á útivelli á laugar- dag. Stjörnum prýtt lið New- castle galt hins vegar afhroð, tapaði fyrir Everton á útivelli, 0:2. Mikið fjör var ífyrstu um- ferð ensku úrvalsdeildarinnar, mikið gert af fallegum mörkum og nýju útlendingarnir í deildinni vöktu margir hverjir geysilega athygli. Mesta líklega ítalinn Fabrizio Ravanelli hjá Midd- lesbrough sem gerði þrennu gegn Liverpool. Fyrrum félagi hans hjá Juventus, Gianluca Vialli, náði sér ekki eins vel á strik með Chelsea, sem gerði markalaust jafntefli í Southamp- ton. Frakkinn Eric Cantona var í lykil- hlutverki er Man. Utd. sigraði bæði í deild og bikar sl. vor. Mörgum kom á óvart að hann skyldi ekki val- inn í franska landsliðið fyrir Evrópu- keppnina í Englandi í sumar, en hann er greinilega hress og endumærður eftir gott sumarfrí og lék vel gegn Wimbledon. Gerði mark með glæsi- legu skoti utarlega í teignum, eftir góða sendingu Nickys Butt, efst i vinstra homið. Þetta var fyrsta mark- ið á 25. mín. United gerði svo tvö mörk í seinni hálfleik. Fyrst bakvörðurinn Dennis Irwin og síðan hinn ungi David Beck- ham, á lokamínútunni. Mark hans var einkar glæsilegt; ieikmenn United brutu á bak aftur sókn heimaliðsins, Beckham fékk knöttinn skammt aftan miðju, leit upp og lét síðan vaða. Stóð nákvæmlega á miðlínunni, skotið var fast og nákvæmt og knötturinn sveif yfir markvörðinn í netið. Lið United var mjög sannfærandi, liðsheildin góð en Roy Keane og David Beckham þó bestir. Léku frábærlega. Augu allra voru skiljanlega á Alan Shearer, dýrasta knattspyrnumanni heims, í fyrsta deildarleiknum með Newcastle. Everton sigraði 2:0 og Shearer var ekki mjög áberandi, en var þó tvisvar nálægt því að skora. Kom knettinum reyndar í netið í fyrri hálfleik með góðum skalla en dómar- inn úrskurðaði að Philippe Albert hefði ýtt á bak vamarmanns Everton áður en Shearer skallaði - sem mörg- um þótti vafasamur dómur - og síðan skallaði hann í þverslá í seinni hálf- leik. Shearer var sem sagt ekki í aðal- hlutverki, þó dýrastur væri. Duncan Ferguson, miðheiji Everton, vakti mesta athygli. Þessi snjalli Skoti, sem sat í fangelsi lengi síðasta keppnis- tímabils, átti þátt í báðum mörkum , liðsins; var fyrst felldur í teignum og : víti dæmt sem David Unsworth skor- aði úr og síðan skallaði Ferguson ■ knöttinn fyrir fætur Gary Speed sem skoraði úr miðjum teig meðan vöm Newcastle steinsvaf á verðinum. Fabriziano Ravanelli kostaði Midd- lesbrough rúmlega helmingi minna en Shearer Newcastle; sjö milljónir punda, sem mörgum finnst nú tals- veit, en þessi ungi, gráhærði, mark- sækni ítali virðist peninganna virði ef marka má fyrstu umferðina. Hann lék mjög vel og skoraði þrívegis. Stig Inge Bjömebye gerði fyrsta markið fyrir Liveipool, en Ravanelli jafnaði úr víti, John Barnes kom gestunum aftur yfír eftir laglega sókn en enn jafnaði ítalinn. Liverpool náði foryst- unni í þriðja skipti um miðjan seinni hálfleik er Robbie Fowler gerði fallegt mark en Ravanelli kórónaði leik sinn með þriðja markinu skömmu fyrir leikslok. Bæði lið léku skemmtilega knattspyrnu, sóttu stíft en vamarleik- ur beggja var hins vegar ekki upp á marga físka. Kevin Campbell byijaði tímabilið glæsilega; gerði þrjú mörk fyrir Nott- ingham Forest gegn Coventry og Dean Saunders, sem Forest keypti frá Tyrklandi í sumar, átti þátt í þeim öllum. Greinilegt að þeir félag- arnir geta orðið hættulegir saman í framlínunni. Chris Armstrong hjá Tottenham fór einnig vel af stað, gerði bæði mörk Tottenham í sann- gjörnum 2:0 sigri á Blackburn á úti- velli. Arsenal, sem rak knattspyrnu- stjórann Bruce Rioch fyrir viku, sigr- aði West Ham 2:0 í fyrsta leiknum. John Hartson náði forystu á 27. mín. og fiskaði svo vítaspyrnu skömmu fyrir leikhlé og Dennis Bergkamp skoraði örugglega úr henni. Derby, sem er komið í úrvalsdeild- ina að nýju eftir nokkurra ára fjar- veru, byijaði ekki gæfulega á heima- velli gegn Leeds. Gestirnir voru komnir 2:0 yfir og allt stefndi í sigur þeirra en hið ótrúlega gerðist. Sturridge minnkaði muninn á 77. mín. og Simpson jafnaði á þeirri næstu. Og Leedsarar eru væntanlega óhressir með það mark. Þeir tóku nefnilega miðju, eftir að Sturridge skoraði, knötturinn var sendur til baka og þaðan enn lengra - ætlaður markverðinum - en Simpson hljóp sem óður væri, tæklaði markvörðinn, náði að spyrna í knöttinn og inn fór hann! Þá voru liðnar 9,5 sekúndur síðan Leeds byrjaði á miðju. Southampton og Chelsea gerðu markalaust jafntefli á sunnudag í leik þar sem gestirnir frá London voru mun nær því að sigra. „Ég er auðvitað óánægður. Við sköpuðum okkur fullt af færum sem við náðum ekki að nýta, en reyndar náðum við að halda þeim þannig að í skefjum að þeir fengu aðeins eitt færi. Með það get ég verið ánægður, en þegar upp er staðið má segja að við höfum frekar tapað tveimur stigum en náð í eitt. Þess vegna er ég vonsvikinn," sagði Ruud Gullitt, knattspyrnustjóri Chelsea. ítalinn Vialli hafði sig fremur lítið í frammi í leiknum en var þó nálægt því að skora. Átti glæsilega hjól- hestaspyrnu eftir fyrirgjöf; tók knöttinn óvænt á lofti og þrumaði honum í þverslána á 70. mín. ■ Úrslit / B9 ■ Peningarnir / B2 Mabbutt óheppinn GARY Mabbutt, fyrirliði Tottenham, fótbrotnaði í leiknum gegn Blackburn á laugardag eftir samstuð við Graham Fenton. Mabbutt, sem verður 35 ára á föstudaginn, segist ákveðinn í að leggja hart að sér og mæta til Ieiks á ný. „Læknarnir segja mér að þetta sé „hreint“ brot...svo vonandi þarf ég ekki að fara í aðgerð." Mabbutt verður í gifsi í sex vikur og læknar telja hann geta farið að leika um jólaleytið. Elstur en bestur ULI Stein, hinn litríki þýski markvörður sem nú leikur á ný með Armenia Bielefeld, lék stórkostlega gegn Borussia Mönchengladbach á föstu- dagskvöldið. Hann er orðinn 41 árs en segist aldrei hafa verið í betri æfingu en nú og fjölmiðlar hrósuðu honum í hástert. Voru sammála um að enginn mai’kvörður hefði ver- ið honum fremri í 1. umferð- inni í Þýskalandi. Southall frábær NEVTLLE Southall, gamla brýnið í marki Everton, lék 700. leikinn fyrir félagið og sýnir að lengi lifir í gömlum glæðum. Hann hélt upp á dag- inn með þvi að veija nokkrum sinnum af stakri snilld. IÞROMR KNATTSPYRNA / ENGLAND Tveir Eng- lendingar AÐEINS tveir Englendingar voru í liði Chelsea gegn Sout- hampton, miðvallarleikmenn- irnir Dennis Wise og Andy Myers. Aðrir voru frá ítalfu, Frakklandi, Rúmeníu, Wales, írlandi og Skotlandi. ÞYSKALAND Meistaravagninum strax skellt í fluggír Meistaramir töp- uðu í Leverkuse Borussia Dortmund hóf titilvörn sína í þýsku knattspyrnunni í Leverkusen á laugardag og þurftu meistararnir að bíta í það súra epli að bíða 2:4 ósigur fyrir heimamönn- um úr Bayer. Eftir einungis sjö mínútna leik höfðu þeir Paulo Sergio og Ulf Kirsten komið Leverkusen í 2:0 en Dortmund, sem lék án þeirra Matt- hias Sammers, Steffen Freunds, Rene Schneiders, Karl-Heinz Ried- les og Paulo Sousas, náði þó að jafna metin skömmu fyrir leikhléið með laglegum mörkum frá Skotan- um Paul Lambert og Ghanabúanum Ibrahim Tanko. Ekki var svo langt liðið fram í síðari hálfleikinn þegar Holger Fach hafði komið Leverkusen yfir á ný og undir lok leiksins gulltryggði síðan Rene Rydlewicz stóran sigur liðsins með glæsilegu marki eftir mistök í vörn meistaranna. Þrátt fyrir Dortmund hafði sakn- að nokkurra öflugra leikmanna á laugardaginn þykir ósigur liðsins fyrir Leverkusen renna stoðum und- ir þær spár að það muni eiga eftir að reynast félaginu erfitt að veija titil sinn og að Bayern Múnchen, sem lagði St. Pauli að velli 2:1 á föstudag, muni ná að endurheimta þýska meistaratitilinn. Ómögulegt er þó að spá fyrir um væntanlega meistara þegar einung- is einni umferð er lokið en fyrirfram er talið líklegt að auk Dortmund og Bayern muni Stuttgart, Werder Bremen og Borussia Mönc- hengladbach koma til með að bítast um efsta sæti deildarinnar. Stuttgart sigraði Schalke örugg- lega í fyrstu umferðinni 4:0 með mörkum frá þeim Giovane Elber, Mathias Hagner, Krassimir Bal- akov og Fredi Bobic. Lið Stuttgart þótti leika frábærlega og reyndar best allra liða í fyrstu umferð þýsku deildarinnar. Mönchengladbach og Arminia Bielefeld gerðu markalaust jafntefli en Bremen beið hins vegar mjög óvæntan 2:3 ósigur fyrir Frei- burg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.