Morgunblaðið - 22.08.1996, Síða 1
RÍKISFIÁRMÁL
Mikilvægt að hætta
hallarekstri /4
flugmAl
Fargjaldastrið i
háloftunum /5
DANMÖRK
Úr fiskeldi í
kalkúnarækt /6
Hlutabréf
Hlutabréf í SR-mjöli hækkuðu
um 6,8% í gær og skiptu bréf
að markaðsvirði rúmlega 10
milljónir króna um hendur.
Þetta var rúmlega þriðjungur
allra viðskipta á hlutabréfa-
markaði í gær. Hlutabréf í
Sæplasti hækkuðu um 4,5% en
umfang viðskipta var lítið.
Stjórnun
Sigurður B. Sigurðsson, for-
stjóri Cooking Excellence Ltd.,
tók nýverið við stöðu stjórnar-
formanns Clarksville Sod
Farms í New Jersey í Banda-
ríkjunum. Fyrirtækið sérhæfir
sig í framleiðslu túnþakna og
dreifingu á grænmeti. Hlutverk
Sigurðar verður að hafa yfir-
umsjón með stækkunaráform-
um heildsöluarms fyrirtækis-
ins.
Vextir
Ávöxtunarkrafa 5 ára spari-
skírteina lækkaði úr 5,6% í
5,35% og ávöxtunarkrafa hús-
bréfa lækkaði um 0,05% í 5,53%.
Ávöxtunarkrafa 20 ára spari-
skírteina lækkaði einnig og var
5,35% við lokun.
SÖLUGENGIDOLLARS
SJOVA ■
ALMENNAR
MILUUPPGJÖR1996
Niðurstöður úr rekstrarreikningi og efnahagsreikningi
Rekstrarreikningur *mnrMna
1996 1995 Breyt.
Tekjur: Jan.- júní Jan.- júní 95-96
Eigin iðgjöld tímabils 1.416 1.364 +3,8%
Umboðslaun 42 71 -40,8%
Hreinar fjármunatekjur 463 372 +24,5%
Gjöld: Eigin tjón tímabils 1.349 1.370 -1,5%
Skrifstofu- og stjórnunarkostn. 296 304 -2,6%
Aðrir liðir 29 8 +262%
Reiknaðir skattar 78 32 +144%
Hagnaður: 169 93 +81,7%
Efnahagsreikningur MWómrMna
1996 1995 Breyt.
Eignir: 30. júní 30. júní 95-96
Veltufjármunir 4.621 4.569 +1,1%
Fastafjármunir 6.538 5.715 +14,4%
Vátrygg.skuld, hlutur endurtryggj. 1.391 1.367 +1,8%
Eignir samtals: 12.550 11.651 +7,7%
Skuldir og eigið fé: Skammtímaskuldir 910 776 +17,3%
Langtímaskuldir 88 73 +20,5%
Vátryggingaskuld 10.093 9.673 +4,3%
Eigið fé 1.459 1.129 +29,2%
Skuldir og eigið fé samtals: 12.550 11.651 +7,7%
Góð afkoma hjá Sjóvá-Almennum
Hagnaður
jókst um 82%
HAGNAÐUR Sjóvá-Almennra
trygginga hf. á fyrri hluta þessa
árs nam 169 milljónum króna og
jókst um 82% miðað við sama tíma-
bil í fyrra. Iðgjaldatekjur félagsins
jukust lítillega en hins vegar jukust
hreinar fjármunatekjur félagsins
um 24,5% miðað við fyrri hluta síð-
asta árs.
Ólafur B. Thors, framkvæmda-
stjóri Sjóvá-Almennra, segist
ánægður með þessa afkomu enda
sé hún betri en á sama tíma í fyrra.
Hann segir þijár ástæður öðrum
fremur fyrir batnandi afkomu fé-
lagsins. I fyrsta lagi hafi iðgjöldin
aukist hjá félaginu, þrátt fyrir meiri
endurgreiðslur og afslætti í tengsl-
um við Stofn auk einhverrar lækk-
unar á tryggingatöxtum. Þannig
hafi iðgjaldatekjur aukist um 4%
en tryggingaskírteinum hafi hins
vegar fjölgað um 9%.
Hreinar fjármunatekjur
463 milljónir
í öðru lagi segir Ólafur að endur-
tryggingavernd hafi nýst félaginu
betur en áður og hafí þetta tvennt
skilað félaginu 44 milljóna króna
betri afkomu af vátryggingastarf-
seminni. í þriðja lagi hafí félagið
síðan notið góðs af betra árferði í
þjóðfélaginu. Þannig hafi hreinar
íjármunat.ekjur félagsins aukist um
rúm 24% og numið 463 milljónum
króna á fyrstu sex mánuðum ársins.
„Við erum stórir íjárfestar og
þau fyrirtæki sem við eigum í hafa
gengið vel og skilað okkur auknum
arði og fjárfestingarstefna félagsins
hefur heppnast vel.“
Vátryggingaskuld Sjóvá-Al-
mennra hækkar um 420 milljónir
króna á fyrstu sex mánuðum ársins
og nam nærri 10,1 milljarði króna
31. júní sl. Ólafur segir að þessi
hækkun komi til vegna nýrra tjóna
sem orðið hafi. Tjónum hafi ekki
fækkað og misjafnt sé í hvaða
greinum þeim fjölgi. Því verði fé-
lagið að áætla fyrir nýjum tjónum.
Hugað að lækkun iðgjalda
„Það eru einnig fleiri eldri tjón
sem greiðast nú en áður. Heildar-
áhrifin af þessu, t.d. í bílatrygging-
unum, eru þau að við erum að
borga út úr þessari uppsöfnuðu
tjónaskuld sem menn hafa nú rætt
sem mest um. Á þessu tímabili
höfum við því ekki þurft að hækka
hana að fullu sem nemur útgreiðsl-
um. Hins vegar verðum við auðvit-
að að halda áfram að leggja til
hennar fyrir þeim nýju tjónum sem
eiga sér stað.“
Ólafur segir að þessi góða af-
koma félagsins gefi því meira svig-
rúm til þess að gera viðskiptavinum
þess kleift að njóta góðrar afkomu.
Því megi reikna með frekari lækk-
unum iðgjalda. „Við munum fyrst
og fremst huga að því hvernig við
getum bætt Stofninn. Þar erum við
að skila iðgjöldum til þeirra við-
skiptavina sem treysta okkur fyrir
öllum sínum tryggingum.
En jafnframt munum við að sjálf-
sögðu skoða það hvort einhverjar
beinar gjaldskrárlækkanir, annað-
hvort gagnvart einhverjum ákveðn-
um hópum eða yfir línuna, séu inni
í myndinni," segir Ólafur.
Glltnir hf. Kírkjusandi, 155 Reykjavfk Símí 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10.
FJARMOGNUN
ATVINNUTJEKJA
Skynsamlegar fjárfestingar í atvinnutækjum
eru oftar en ekki lykillinn að velgengni.
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun
atvinnutækja.
Glitnirhf