Morgunblaðið - 27.08.1996, Síða 1
•f
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
■ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST
BLAD
Guðjón Þórðarson þjálfari Akurnesinga bikarmeistari fjórða árið í röð
AFRAM IA
AFRA
Hver sigur
sætastur
Akurnesingar urðu bikarmeist-
arar í knattspyrnu á sunnudag
með 2:1 sigri á ÍBV í úrslitaleik á
Laugardalsvelli. Þetta var sjöundi
sigur Skagamanna í keppninni og
fjórða árið í röð sem Guðjón Þórðar-
son, þjálfari þeirra, stýrir liði til sig-
urs í bikarúrslitum. Er ekkert lát á
sigurgöngu hans í bikarkeppninni?
„Nei, ekki núna að minnsta kosti.
Maður stefnir auðvitað alltaf að því
að vinna og til þess er maður í þessu,“
sagði Guðjón við Morgunblaðið eftir
leikinn.
Hann var með Skagamenn árið
1993 þegar liðið varð síðast bikar-
meistari, gerði KR-inga að bikar-
meisturum tvö síðustu ár og núna
Skagamenn á ný. Er öðruvísi að
verða meistari með sínu heimaliði en
það var með KR-ingum? „Ég er að
vinna með vanari liði núna, KR-ingar
höfðu ekki unnið í tæpa þrjá áratugi
og það var auðvitað mjög skemmti-
legt augnablik. En hver sigur og
núið er alltaf sætast. Þetta er alltaf
jafngaman og menn verða alls ekki
leiðir á að verða bikarmeistari. Ef
menn verða leiðir á því þá er eitt-
hvað að.“
Guðjón sagði að ÍA-liðið hefði átt
góðan og rólegan tíma á Hótel Örk
fyrir leikinn og þar hefði verið farið
vandlega yfir hvemig menn ætluðu
að spila leikinn. „Leikurinn þróaðist
eins og við ætluðum okkur. Við viss-
um að við hefðum getu til að skora
og myndum vinna nema ef eitthvert
slys yrði af okkar hendi, sem varð
ekki. Þetta var mjög rólegur bikarúr-
slitaleikur, fyrri hálfleikurinn var
eins og þægilegur deildarleikur, en
það var hluti af því sem við vildum.
Við fórum varlega og vildum það
frekar en missa leikinn í einhvem
hasar og hamagang. Við erum bestir
þegar við höldum haus, spilum og
látum boltann vinna og við hefðum
hæglega getað bætt við fleiri mörkum
eftir að við komust í 2:0, vorum nær
því en þeir að komast inní leikinn."
Þeir sóttu mikið síðustu mínúturn-
av. Varstu aidrei hræddur?
„Nei, nei. Þetta var mjög eðlilegt.
Við hefðum hæglega getað bætt við
þriðja markinu, en það hafðist nú
ekki. Sóknir þeirra undir lokin vom
eðlilegar, við erum tveimur mörkum
yfir og erum að láta leikinn líða,“
sagði Guðjón.
Á efri myndinni fagna bikarmeist-
aramir ásamt stuðningsmönnum sín-
um og hér til hliðar er það Alexander
Högnason sem bleytir í fyrirliðanum
Ólafi Þórðarsyni með mjólkurskvettu.
■ Meistarar / B2
■ Leikurinn / B4
■ Úrslit / B7
FATLAÐIR: GLÆSILEGUR ÁRANGUR ÍSLEIMDINGA í ATLANTA / B3
Fjöldl
vlnnlnga
Vinnings-
upphæð
Vinningar
5 af 6
1033
46.102852
V«rtu vlöbuln(n) vlnnlngl
miklls aó vino
1. vlnningur er áaetlaöur 40 mllljónir kr.
VÍNNINGSTÖLUR
VÖVtKUDAGtNN
AÐALTÖLUR
BONUSTÖLUR
Kl Hn
ifírflDníD'
• Bonusvmnlngarnlr a hiugordaciinn
yar vofu koyptir i Soluturninum
Hamrnborg a Isafiröl og hjja KEA viö
Byggöaveg a Akuroyri.
■ Vjnningar Fjöldi vinninga Vinnlngs- upphæö
M 1.5 af 5 0 3.453.763
I 2. Vá>5 t 176.750
|}j 3.Jo,s 64 9.520
H 4. 3af 5 2.036 690
BjSamtals: 2.102 5.821.383
i