Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRIMA
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996 B 9
Weah med stutft
Laudrup
ekki til sölu
Reuter
PAUL Ince hjá Inter Mílanó er búinn að lelka á Pabio Rossltto hjá Udinese.
markið eftir hornspyrnu Frakkans
Youri Djorkaeff. Inter, sem varð
meistari síðast 1989, tefldi fram
sex af sjö útlendingum sem eru
hjá liðinu.
Udinese var nær búið að jafna
metin er Þjóðverjinn Oliver Bier-
hoff kostaði sér fram og skallaði
knöttinn að marki en rétt fram hjá.
Leikmenn Bologna héldu upp á
að þeir eru með á ný í 1. deildar-
keppninni, eftir fimm ára fjarveru
Bologna, með að leggja Lazíó 1:0.
Davide Fontolan, sem kom til liðs-
ins frá Inter Mílanó, skoraði mark-
ið á 35. mín. Zdenek Zeman, þjálf-
ari Lazíó, lét sóknarleikmanninn
Giuseppe Signori setja á vara-
mannabekknum í fyrri hálfleik,
setti hann síðan inn á fyrir Igor
Protti, markakóng á Italíu sl.
keppnistímabil.
Stuðningsmenn liðanna lentu
saman fyrir og eftir leik, tveir
stuðningsmenn Lazíó fengu hnífst-
ungu og voru fluttir á sjúkrahús.
Eitt skot, og mark
Evrópumeistarar Juventus urðu
að sætta sig við jafntefli gegn
nýliðum Reggiana, 1:1. Christian
Vieri skoraði mark Juventus strax
á sjöttu mín. eftir sendingu frá
Alen Boksic. Reggiana jafnaði að-
eins þremur mín. síðar með marki
frá Sandro Tovalieri. Eftir það fór
leikurinn að mestu fram í vítateig
heimamanna, Vieri og Boksic áttu
báðir skot sem höfnuðu á þverslá.
Boksis fór síðan illa að ráði sínu
undir lok leiksins, þegar hann var
einn á móti markverði - brást
bogalistin. „Reggiana átti eitt skot
að marki og skoraði," sagði Marc-
ello Lippi, þjálfari AC Milan.
Þó að á Ítalíu leiki margir af
bestu sóknarleikmönnum heims,
var það varnarmaður sem var fljót-
astur að skora í leik Giuseppe
Pancaro hjá Cagliari; skoraði beint
úr aukaspyrnu af 25 m færi eftir
tvær mín. í sigurleik gegn Atal-
anta, 2:0. Fyrir það skot fákk hann
að launum 2.000 flöskur af ljúf-
fengu gæðavíni.
BRASDLIUMAÐURINN Rom-
ario var heldur betur í sviðs-
ljósinu í Valencia í gær, þegai'
hann bar til baka að hann væri
á förum frá Valencia. Hann
gerði það aðeins klukkustund
eftir að hann hafði sagt að
hann myndi ekki leika undir
stjórn þjálfai-ans Luis Arago-
nes. Romario var óhress þegar
ljóst var að hann væri ekíri í
iiðinu sem léki gegn Bayern
Miinchen í UEFA-keppninni í
kvöld. Þegar Romario tók um-
mæli sín til baka, sagðist hann
hafa sagt þau í hita leiksins.
Þjáifari Valancia er undir
pressu, eftir að liðið hefur tap-
að fyrstu tveimur leikjiuium í
1. deildarkeppninni.
Manchester Unit«
og Juventus
Stórleikur Manchester United og ^
í Meistarakeppni Evrópu verður sý
beinni útsendingu á SÝN miðvikudaginn
1 1. september kl. 18.30. Fylgstu með á S'
Ertu ekki örugglega áskrifandi!
SÝIXI & FJÖLVARP FYRIR AÐEINS
Ef þú ert, eöa gerist áskrifandi aö Stöö 2, og gengur frá áskriftar-
samningi fyrir 20. septeinber færö þú SÝINI & Boluarp fyrir
990 Itr. á mánuöi. Miðað er viö boðgreiðslur og samfellda
áskrift í sex mánuði.
Qsrni y svn
FJÖLVARP
Tryggðu þér áskrift að SÝN og Fjölvarpi Áskriftarsími: 515 6100
á tilboðsverði fyrir 20. september. Grænt númer: 800 6161
Urslit / B10
an skemmtiþáftt
MEISTARABARÁTTAN er haf-
in á Ítalíu. Marco Simone skor-
aði tvö mörk og Líberíumaður-
inn George Weah skoraði
glæsilegt mark þegar meistar-
ar AC Milan hófu titilvörnina
með því að leggja Veróna að
velli, 4:1. Bikarmeistarar Fior-
entfna fengu skell, töpuðu
heima fyrir Vicenza 2:4 -
Marcelo Otero skoraði öll
mörk gestanna. Til að gera
leik heimamanna enn svartari
var varnarmaðurinn Daniele
Carnasciale rekinn af leikvelli.
Það sló þögn á áhorfendur á
Giuseppe-Meazza-leik-
vanginum í Mílanó þegar Veróna
komst yfir með skallamarki An-
tonios De Vitis. Þjálfarinn, Oscar
Washington Tabarez frá Uruguay,
var ekki brosmildur í sínum fyrsta
deildarleik með AC Milan. Marco
Simone fékk hann til að brosa á
49. mín., er hann jafnaði og síðan
aftur á 65. mín., 2:1. Það var svo
á 86. mín. að George Weah setti
upp stuttan skemmtiþátt fyrir Ta-
barez; tók knöttinn við eigin víta-
teig, hljóp með hann yfir 80 metra
og skoraði með þrumuskoti, sem
Attiiio Gregori, markvörður Ver-
óna, réð ekki við. Weah hljóp 80
m á fjórtán sek., lék á nokkra leik-
menn og lenti í einu samstuði.
Roberto Baggio rak síðan smiðs-
höggið með því að skora fjórða
markið rétt fyrir leikslok.
Otero skoraði fjögur
mörk í Flórens
Þeir voru ekki upplitsdjarfir
stuðningsmenn og leikmenn Fior-
entína þegar þeir voru komnir
tveimur mörkum undir eftir aðeins
hálftíma - Marcelo Otero var að
verki í bæði skiptin. Sjálfsmark frá
Luigi Sartor kom heimamönnum á
bragðið. Stuðningsmenn Fiorent-
ína vonuðust eftir að þeirra menn
kæmu grimmir til leiks í seinni
hálfleik. Otero slökkti þær vonir,
með því að skora þriðja mark sitt
á 67. mín., 1:3. Luis Oliveira svar-
aði fyrir heimamenn áður en Otero
skoraði fjórða mark sitt úr víta-
spyrnu á síðustu mín. leiksins.
Suður-Amerískur
sambadans í Róm
Argentínumaðurinn Carlos
Bianchi og Carlo Ancelotti, fyrrum
landsliðsmaður Ítalíu, byijuðu vel
sinn þjálfaraferil á Ítalíu - lið
þeirra, Roma og Parma, fögnuðu
bæði sigri. Bianchi, sem kom til
Roma frá Velez í Argentínu, sá
sína menn vinna Piacenza 3:1. Það
voru Suður-Ameríkumenn sem sáu
um að skora mörkin á Olympíuleik-
vanginum í Róm; Aldair frá Brasil-
íu, Argentínumaðurinn Abel Balbo
og Uruguaymaðurinn Daniel
Fonseca.
Ancelotti sá sína menn í Parma
komast tvö mörk yfir eftir 22 mín.
með mörkum frá Dino Baggio og
nýja stjörnuleikmanninum Enrico
Chiesa. Gianfranco Zola, sem sýndi
allar sínar bestu hliðar, bætti við
þriðja markinu 3:0 - einlék laglega
að marki og skoraði með skoti af
30 m færi.
Svisslendingurinn Christian
Sforza lék sinn fyrsta deildarleik
á Ítalíu, skoraði sigurmarkið gegn
Udinese, 1:0. Markið létti and-
rúmsloftið hjá Inter Mílanó, sem
leikur undir stjórn Englendingsins
Roy Hodgson. Sforza skoraði
GLASGOW Rangers hefur
hafnað boði frá Barcelona, sem
bauð níu mii|j. pund í Brian
Laudrup. „Brian er ekki til
sölu. Hann er frábær leikmað-
ur,“ sagði David Murray hjá
Rangers. Brian, sem er 27 ára,
var keyptur til Rangers frá
Fiorentína á Ítalíu fyrir 2,2
millj. punda og var hann út-
nefndur besti leikmaður Skot-
lands á fyrsta keppnistímabili
sínu með Rangers. Samningur
hans við liðið rennur út eftir
tvö ár. „Við vonum að hann
verði lengur en fjögur ár hjá
okkur,“ sagði Murray.
Romario í
sviðsljósinu