Morgunblaðið - 12.09.1996, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1996 B 5
KIMATTSPYRNA
Manchester United hefur ekki sigrað í Evrópuleik á Ítalíu ítæplega 30 ár
Evrópumeistarar Juve
byriuðu með glæsibrag
í fimm mánuði. Hér togar hann
nna í gærkvöldi.
plaði
tmund
Esnaider gaf tóninn strax á
fimmtu mínútu er hann átti skot
í stöng. Hann var nálægt því að
skora fyrsta markið á 28. mínútu
er hann var að sleppa inn fyrir
vörn Steaua og Marius Baciu
braut á honum og fékk að líta
rauða spjaldið að launum. Rúm-
enska liðið lék því mest allan leik-
inn einum leikmanni færri og átti
varla eitt einasta skot að marki.
Markvörður þeirra, Daniel Ghera-
sim, átti frábæran fyrri hálfleik
en bæði mörkin í síðari hálfleik,
sem Simeone gerði, má skrifa á
/mwr
FOLK
■ MÓNAKÓ fagnaði sigri í gegn
Hutnik Krakow í Póllandi, 1:0,
í UEFA-keppninni, þó svo að liðið
hafi leikið með tíu leikmenn mest-
an hluta seinni hálfleiksins.
Philippe Leonard var rekinn af
leikvelli á 62. mín., eftir að hafa
séð sitt annað gula spjald. Níger-
íumaðurinn Viktor Ikpeba skor-
aði sigurmark Mónakó, sem réði
ferðinni allan leikinn, þremur mín.
fyrir leikslok.
■ ANDREI Tikhonov var hetja
Spartak Moskvu í 3:2 sigri á
danska liðinu Silkeborg í UEFA-
keppninni í gær. Hann skoraði
fyrstu tvö mörkin í leiknum og
bjargaði síðan á marklínu hinu
megin á lokamínútu leiksins er
Danir gátu jafnað. Ruslan Nig-
matullin, markvörður Spörtu, var
rekinn af leikvelli á 88. mín. fyrir
að handleika knöttinn utan víta-
teigs.
Kanada stöðvaði sigur-
göngu Bandaríkjanna
Kanada stöðvaði sigurgöngu
Bandaríkjanna í heimsbikar-
keppninni í íshokkíi með 4:3 sigri
í fyrsta leik af mest þremur í úrslita-
rimmunni um gullið sem fór fram
í Philadelphia í fyrrinótt. Aðeins
Bandaríkjamenn fóru í gegnum for-
keppnina án þess að tapa en að
þessu sinni mættu þeir oij'örlum
sínum.
Steve Yzerman gerði sigurmark-
ið þegar 10 mínútur og 37 sekúnd-
ur voru liðnar í bráðabananum að
venjulegum leiktíma loknum. „Ég
skaut til hliðar á markið og Richter
sló pökkinn í netið,“ sagði Yzerman
um sigurmarkið. „í raun missti ég
marks.“ Bandaríkjamenn sögðu að
dæma hefði átt markið af vegna
rangstöðu. „Þetta var rangstöðu-
mark en samt sem áður lékum við
ekki nógu vel til að sigra og sigur
Kanadamanna var sanngjarn,"
sagði Ron Wilson, þjálfari Banda-
ríkjamanna. „Ömurlegt er að verða
vitni að atviki eins og rangstöðu-
marki en þetta gerist. Brind’Amour
var rangstæður."
Eric Lindros hjá Philadelphia Fly-
ers kom Kanada á bragðið og gerði
eina markið í fyrsta leikhluta, skot
af um 16 metra færi þegar Kanada-
menn voru einum fleiri. Varnarmað-
urinn Darian Hatcher hjá Dallas
kom Bandaríkjunum yfir í öðrum
leikhluta með tveimur mörkum en
Claude Lemieux hjá Stanley-bikar-
meisturum Colorado jafnaði á síð-
ustu mínútu leikhlutans eftir send-
ingu frá Mark Messier, leikmanni
New York Rangers. Theo Fleury
hjá Calgary gerði þriðja mark
Kanada þegar tæplega 10 mínútur
voru liðnar í þriðja leikhluta og leit
út fyrir að það yrði sigurmarkið en
Brian Leetch, varnarmaður hjá
Rangers, jafnaði þegar sjö sekúnd-
ur voru til leiksloka.
Lið Kanada var sókndjarfara í
venjulegum leiktíma og átti sjö skot
að marki gegn einu í bráðabanan-
um. Dómarinn fékk pökkinn í and-
litið í þriðja leikhluta og varð fjórum
tönnum fátækari fyrir vikið auk
þess sem annar dómari varð að
taka við.
Bandaríkjamenn unnu m.a
Kanadamenn i undankeppninni en
sjá fram á að úrslitin geta ráðist í
Montreal í nótt. „í svona leikjum
ræður reynslan úrslitum,“ sagði
Glen Sather, þjálfari Kanada. „Við
vitum hvernig á að sigra þegar
mikið liggur við.“
TÉKKINIM Karel Poborsky hjá Manchester United tll vinstrl og Frakkinn Didi-
er Deschamps berjast um boltann í leik Juventus og Man. United í gærkvöldi.
EVRÓPULEIKUR ÁRSINS «.......... sSJ
/ilíD . Jtlir / MIKILVÆGUR ^
KR - AIK
Laugardalsvöllur (immtudaginn 12. sept kl. 19.00
Upphitun á Aski v/Suðurlandsbraut
frá kl. 17.00 þar sem boðið verður
upp á léttar veitingar á vægu verði.
Cvrópumeistarar Juventus fóru á kostum í Tórínó
™ í gærkvöldi þegar þeir tóku á móti Englands-
og bikarmeisturum Manchester United í fyrsta leik
c-riðils meistaradeildar Evrópu. Heimamenn unnu
1:0 með glæsilegu marki Króatans Alens Boksic eft-
ir liðlega hálftíma leik en yfirburðir heimamanna
voru mun meiri en markatalan gefur til kynna.
Boksic var gagnrýndur fyrir að fara illa með færin
í deildarleik Juve í Reggiana um helgina en hann
stóð vel fyrir sínu í fyrsta Evrópuleik sínum með
Juve og markið var vel gert. Einu sinni sem oftar
misstu gestirnir boltann á vallarhelmingi heima-
manna sem sneru vörn skjótt í sókn; Frakkinn Zined-
ine Zidane gaf hárnákvæma sendingu fram á Boksic,
sem hristi Nicky Butt af sér og sendi framhjá danska
markverðinum Peter Schmeichel en hann renndi sér
örvæntingarfullur á móti Króatanum án árangurs.
Yfirburðir Juve voru sérstaklega miklir í fyrri
hálfleik og hvað eftir annað splundruðu leikmenn
liðsins flatri fjögurra manna vörn United með hröðu
spili upp kantana og sendingum fyrir markið en
mótherjarnir voru varla með. Eftir eina slíka sókn
upp vinstri kantinn að tveggja stundarfjórðunga við-
ureign lokinni fengu heimamenn aukaspyrnu rétt
utan vítateigs. í framhaldi af henni varði Schmeic-
hel þrumuskot frá Gianluca Pessotto en hélt ekki
boltanum. Fyrirliðinn Antonio Conte náði honum og
skoraði en var dæmdur rangstæður. Conte fékk líka
gott færi á móts við fjærstöng snemma leiks eftir
sendingu frá Boksic utan af vinstri kanti en fyrirlið-
inn hitti boltann illa, skaut í jörð og þaðan fór bolt-
inn yfir markið. Alessandro Del Piero lék á Gary
Neville á 27. mínútu og gaf fyrir frá vinstri en
Christian Vieri skallaði yfir úr opnu færi. Með öðrum
orðum átti Juve fyrri hálfleikinn og þó meiri broddur
hefði verið í United eftir hlé geta gestirnir þakkað
fyrir að hafa ekki tapað með meiri mun.
Juve sigraði Ajax í úrslitaleik keppninnar á liðnu
vori en aðeins sex leikmenn í sigurliðinu þá voru
með Juve að þessu sinni. En þrátt fyrir miklar breyt-
ingar lofa Evrópumeistaramir góðu.
Þetta var fimmti Evrópuleikur Manchester United
á Italíu síðan tímabilið 1957 til 1958 og hafa þeir
allir tapast með samtals markatölu 12:1.
ISHOKKI