Morgunblaðið - 27.09.1996, Side 6

Morgunblaðið - 27.09.1996, Side 6
6 B FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF VEISLA á Garði til heiðurs íslensku alþingismönnunum sem komu til Kaupmannahafnar árið 1906, til að ræða sambandsslitin. Frá vinstri til hægri í fremstu röð: óþekkt- ur, Stefán Guðmundur Stefánsson cand. jur. Anders Thomsen þingmaður, Hannes Hafstein ráðherra, St. Stefánsson bókavörður, Jón Magnússon ráðherra, Carl Theodor Zhale, forsætisráðherra Danmerkur, Joh. Thorsteinson ritstjóri, Valdimar Erlendsson læknir, Hemming Matsen þingmaður, Pjétur Bogason læknir, Thorvald Frants Hörring. Þrettándi er Skúli Thorodsen ritsljóri, 14) C. Björnsen stud. jur., 15) Þórhallur Bjarnason, 16) Þorgrímur Þórðarson læknir, 17) Christian Rasmussen þingmaður, 18) Jóhannes Jóhannesson sýslumaður, 19) August Herman Ferdinand Carl Goos þingmaður, 20) Niels Buck Breinholdt þingmaður, 21) Bogi Th. Melsteð sagnfræðingur, 22) Ernst Louis August Christian Jensen málflutningsmaður, 23) Rasmuss Holst Andersen verkfræðingur, 24) Otto Andrup safnstjóri,25) frú Clausen, 26) Björn Bjarna- son sýslumaður, 27) Björn M. Olsen prófessor. Ævintýra- ljómi yfir lífi Hafnar- stúdenta um síðustu aldamót „Ef ég gæti farið aftur í tímann myndi ég verða Hafnarstúdent um aldamótin. Það var einhver ævintýra- ljómi yfir Kaupmannahöfn á þessum árum og líf íslensku stúdentanna um margt merkilegt og heillandi, þrátt fyrir mikla fátækt." Sú sem þetta mælir er ungur sagnfræðingur, Mar- grét Jónasdóttir að nafni, en hún hefur sökkt sér niður í fundar- gerðabækur Félags íslenskra stúdenta í Kaupmannahöfn, undanfarin ár, og skrifað sögu þess frá 1893 til 1970. Blaðamaður mælti sér mót við Margréti á kaffihúsu einu í Reykja- vík og bað hana um að leiða lesend- ur Daglegs lífs inn í heim Hafnar- stúdentanna fyrr á öldinni. Stofnfundur Stúdentafélagsins í Kaupmannahöfn var haldinn þann 21. janúar, 1893. „í stofnlögum kemur fram að einn helsti tilgangur félagsins hafi verið að gefa stúdent- um kost á að skóla sig í ræðulist og rökfimi, en einnig átti það að vera vettvangur pólitískrar umræðu. Fundarstaðir voru margir, en fyrstu áratugina var oftast hist á „verts- húsum“ í nágrenni Garðs við Kobma- gergade. Og var það vel því oft fylgdi dálítil drykkja fundunum,“ segir Margrét. Aliar fundargerðabækur félagsins 1 hafa varðveist, nema ein sem.nær yfir tímabilið 1907-1914 og er talið víst að ritari félagsins hafi glatað henni á bar einum við Nýhöfn. „Á næsta fundi á eftir var sagt frá því að ritari félagsins mundi síðast eftir því að hafa séð hana er hann gekk niður á stað einn er Kahytten nefnd- ist, en þar var gleðskapur mikill á stundum,“ segir Margrét og vitnar í fundargerð frá þessum tíma þar sem segir að ritarinn kveðst „vonast til að bókin myndi þar finnast mega og nú vel vera að svo sé ef innbyggj- endur þess húss hafa eigi þegar notað hana fyrir þerriblöð, sem nú eru í háu verði sem fleira." Hávær mótmæli vift fundargerðirnar Margrét segir að fundargerðir Stúd- entafélagsins hafi verið skrifaðar sem skemmtilestur fyrir félagsmenn og því hafi hún tekið þeim með ákveðnum fyrirvara. En þrátt fyrir það séu þær afar læsiiegar og per- sónulegar. „Það kom mér til dæmis á óvart hvað ég gat í raun og veru gert mér góða mynd af einstaka persónum í gegnum fundar- gerðabækurnar, sem ég hitti svo seinna, annaðhvort í formlegum við- tölum eða bara á götum úti,“ segir Margrét og heldur áfram. „En það er kannski ekki að undra því þessir menn voru mjög nánir og þekktust vel og því ekki erfitt fyrir þá að láta persónueinkenni hvers og eins koma fram í fundargerðunum." Margrét segir að eins og venjuleg fundarsköp kveði á um hafi allar fundargerðir verið lesnar upp til sam- þykktar á næstu fundum, en með misjöfnum árangri þó. „Það voru oft hávær mótmæli, þegar átti að sam- þykkja fundargerðir frá fundinum áður, sérstaklega þegar búið var að skrifa eitthvert níð um náungann,“ segir Margrét. „En þó að mótmæli hefðu verið höfð í frammi, breytti ritarinn oft ekki neinu. Hins vegar var tekið skýrt fram að það hafi ver- ið rifíst um fundargerðina og í mesta SÍÐUSTU íslensku Garðstúdentarnir árið 1918. Margrét Jónasdóttir sagnfræðingur. Mor?unblað,ð/*b(ilh lagi var eitt orð sett í sviga eða strik- að yfir það sem deilunni olli með einu striki, þannig að auðveldlega er hægt að sjá hvað stendur.“ Margrét segir að félagsmenn hafí nær eingöngu rætt íslensk málefni á fundum sínum. „Til dæmis fjölluðu þeir mikið um menningar-og stjórn- mál og hömuðust við að senda ályktanir heim til íslandi, til að hafa áhrif,“ segir hún. „Þeir höfðu í sjálfu sér lítil áhrif á meðan þeir voru náms- menn, en þó má færa rök fyrir því að Stúdentafélagið hafí skipt töluvert miklu máli, þegar til lengri tíma var litið, því þar voru menn, sem síðar áttu eftir að verða helstu mennta- og stjórnmálamenn landsins." Margrét segir að eftir því sem nær dregur í tíma sé erfiðara að lesa í gegnum fundargerðabækurnar og um og eftir 1970 séu umfjöllunarefn- in ekki eins spennandi og áður. „Þá eru fundargerðabækurnar komnar í þann stíl, sem þær eru enn þann dag í dag. Aðalumræðuefnin eru málefni eins og til dæmis hvenær næsta árshátíð eigi að vera og hver eigi að panta húsnæði og hvaða hljóm- sveit eigi að spila.“ Garftstyrkurinn kostaði þjóðfrelsisbaráttuna Að sögn Margrétar höfðu íslenskir stúdentar í Kaupmannahöfn rétt á svokölluðum Garðstyrk, samkvæmt tilskipun frá Danakonungi, og gátu gengið að honum vísum allt til árs- ins 1918 eða þar til íslendingar fengu fullveldi. Með því misstu stúd- entar forréttindi sín innan veggja Hafnarháskóla. „Garðstyrkur var veittur stúdentum til fjögurra ára og sá Garðprófastur um að greiða hann út mánaðarlega. Séra Bjarni Jónsson dómkirkjuprestur var í Höfn á árunum 1902-1907. Hann sagði Garð hafa verið miðstöð allra ís- lenskra stúdenta sem þar dvöldu og þangað hafí flestir komið fyrsta dag hvers mánaðar til að fá styrkinn útborgaðan og svo aftur 16. dag hvers mánaðar, til að fá fyrirfram- greiðslu af honum.“ Margrét segir að Garðstyrkur þessi hafi verið ómetanlegur ís- lenskri menningu. „Það var í raun hann sem kostaði þjóðfrelsisbaráttu íslendinga og gerði það að verkum að þjóðin hafði á að skipa mennta- mönnum til að taka við stjórnar- taumunum þegar sjálfstæði fékkst. Án hans er óvíst hve margir íslend- ingar hefðu haft tækifæri til að sigla utan og komast í snertingu við um- heiminn," segir hún. Margrét segir að saga íslenskra Hafnarstúdenta hljóti að snerta strengi í hjörtum allra íslendinga sem láti fortíð þjóðarinnar sig ein- hveiju skipta. „Hafnarlífið fyrr á öldinni var mjög heillandi að mínu mati. Þegar ég geng hinar þröngu götur í Kaupmannahöfn umhverfís Frúarkirkjuna og Háskólann finn ég fyrir hlýjum straumum, enda er þar varla til sú gangstéttarhella sem ekki hefur verið troðin íslenskum fótum," segir hún að síðustu. ■ as

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.