Morgunblaðið - 11.10.1996, Side 7
I
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996 C 7
DAGLEGT LÍF
i
.1
4
KRISTJANÍUHJÓL með farþega. í KRISTJANÍU þrífst smáiðnaður og handverk ýmiskonar. Hér
er frægt hjólaverkstæði staðarins.
Ljósmyndir/Lauri Dammert
KJÖRBÚÐ staðarins er hlýleg og blátt áfram. Stúlkan á myndinni heitir Salvör Aradóttir.
Flöskuhús úr
tómum flöskum
Margir freistuðust til að búa í
Stínu, ekki síst vegna þess að þar
var ódýrt að búa, kostaði jafnvel
ekki neitt ef viðkomandi hafði
sambönd, og handlagnir gátu
byggt sér hús úr þeim efnivið sem
hendi var næstur, til að mynda
var þar reist flöskuhús úr tómum
flöskum. Eins og svo margar
Kristjaníuhugmyndir varð þó aldr-
ei lokið við það hús, vantaði á það
þakið alla tíð, þó eitt sumarið hafi
íslenskir drykkjumenn haldist þar
við í nokkrar vikur. Ef í harðbakk-
■ ann sló mátti hafast við í gömlum
neðanjarðarbyrgjum, þó þar væri
hvorki loftræsting eða hiti, og eitt
haustið bjó íslendingur með félaga
sínum og kærustu beggja í einu
loftvamabyrgi skammt frá Ljóna-
húsinu. Þangað var vitavonlaust
að koma, ekki síst þegar þau voru
að elda ofan í sig á gamalli olíu-
vél, því þá bættist sótmökkur við
slagann og súrefnisþurrðina.
Eftir dvöl í Stínu haustið 1974
hvarf ég þaðan og kom ekki aftur
fyrr en átta árum síðar. Þar hafði
ekkert breyst; fjölmörg gömul
andlit mættu mér við hliðið, aðeins
teknari og fötin druslulegri, en í
fælled-eldhúsinu fagnaði af-
greiðslustúlkan mér, Hej, Islænd-
ing, eins og ég hefði aðeins skropp-
ið út á Amager.
Eimir eftir af hippisma
og anarkisma
í upphafí níunda áratugarins
ákváðu yfn’völd að láta Kristjaníu
eiga sig, að minnsta kosti um sinn,
þó með aukinni áhersku á að „lög-
leiða“ staðinn, þ.e. að fylgjast með
því að dönsk lög giltu einnig innan
veggja Kristjaníu. Þá loks sýndist
símafyrirtækinu ástæða til að
grafa símastrengi í jörðu og íbúar
vörpuðu öndinni léttar. Við
stjórnarskipti í Danmörku harðn-
aði aftur á móti á dalnum á ný,
því ný hægristjórn kærði sig ekki
um „hipparíki“ og lögregla herti
aðgerðir sem nú beindust einnig
gegn vertshúsunum. Þær aðgerðir
náðu hámarki 1989 þegar rutt var
úr öllum krám á staðnum og í kjöl-
farið gerðust þær allar löglegar.
Segja má að á þessum áratug
hafi verið stefnt að því að koma
Kristjaníu smám saman inn í eðli-
legt Kaupmannahafnarlíf. Þar
eimir enn eftir af hippismanum
og anarkismanum sem var kveikj-
an að staðnum en umhverfi er
allt orðið viðkunnanlegra, hörðu
dópistamir hafa fært sig um set,
meðal annars fyrir þrýsting frá
íbúum hverfisins, sem margir hafa
búið þar allt frá því í upphafi átt-
unda áratugarins, og þó Stína
verði seint eins og hvert annað
hverfi í Kaupmannahöfn er ljóst
að hún á eftir að færast nær því
með hveiju árinu. Að vissu leyti
hefur samfélagstilraunin heppn-
ast; íbúar Kristjaníu hafa sannað
að hæg+ er að byggja upp annað
samfélagsmunstur en það sem al-
mennt var viðurkennt þegar farið
var af stað, en heimurinn og við-
horf utan Stínu hafa líka breyst
og kannski var fórnarkostnaður-
inn of hár; fjölmargir urðu eitur-
lyfjum að bráð, óteljandi missu
sjónar á lífinu í hassmóðu, bísar
og bófar áttu griðland til að vinna
enn frekari illvirki og svo mætti
lengi telja. í ljósi sögunnar er þó
óhætt að reikna með því að Kristj-
anía eigi eftir að lifa lengi enn og
jafnvel aldarfjórðung í viðbót.
S
nægjanlega, þrífur hvorki sjálf-
an sig né híbýli sín sem skyldi,
setur sér ekki nauðsynleg mörk
í tóbaksfíkn og fleira mætti
nefna.
Fyrir skömmu eignaðist Jón
heimili, þ.e. góðan fastan sama-
stað, í sambýli með fólki sem
svipað er ástatt um. Þar fær
hann nauðsynlega aðstoð og að-
hald og lifir loks viðunandi lífí.
„Litlu bræðurnir" búa í útlöndum
þannig að ég og systir mín erum
þau einu sem heimsækjum Jón
og bjóðum honum heim. Börnin
í fjölskyldunni taka honum vel,
enda er hann mikið góðmenni.
Þeim finnst margt fyndið sem
hann segir, en gera hvorki grín
að honum né skammast sín fyrir
hann.
Eg vona að Jón bróðir geti átt
fastan samastað á sambýlinu í
framtíðinni ogþurfi ekki að
þvælast á milli staða á meðan
„kerfið“ er ekki búið að ákveða
hvort fólk eins og Jón bróðir eigi
að vera skjólstæðingar félags-
legu þjónustunnar eða heilbrigð-
isþjónustunnar." ■
NÝR MYNDALISTI
HAUST OG VETUR.
GÓÐ HÖNNUN
OG HAGKVÆMNI.
habitat
Laugavegi 1 3 Sími 562 S870
Opið lau. 10-16