Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1996
■ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER
BLAÐ
Arsenal
vill skoða
Árna Gaut
Arason
ÁRNI Gautur Arason, hetja
ungmennaliðs íslands í 1:0
sigri á írum í Evrópukeppni
IJ-21 liða í knattspyrnu á dög-
unum, fékk í kjölfarið tilboð
um að æfa með tveimur ensk-
um liðum, Stoke og Arsenal,
og gerir ráð fyrir að fá nán-
ari upplýsingar frá Arsenal í
dag.
„Eftir leikinn við Ira talaði
einn af þjálfurum Arsenal við
Sigurð Jónsson og sagðist
hafa áhuga á að fá mig á
æfíngar þjá liðinu,“ sagði
Árni Gautur við Morgunblað-
ið í gærkvöldi, en sem kunn-
ugt er, er Sigurður fyrrum
leikmaður enska úrvalsdeild-
arliðsins. „Siggi sagði mér frá
þessu og áréttaði það eftir
að félagið hafði aftur haft
samband við hann. Talað hef-
ur verið um að ég æfi með
liðinu í tvær vikur og ég geri
ráð fyrir að það verði í byrjun
desember en mér stendur líka
til boða að æfa með Stoke,“
sagði markmaðurinn, sem
skipti nýlega úr ÍA í Stjöm-
una - gerði samningtil eins
árs - og æfði í fyrsta sinn
með Garðbæingum í gær-
kvöldi.
ISLANDSMOTIÐ I VAXTARRÆKT
Á hæsta þrepi
ÍSLANDSMÓTIÐ í vaxtarrækt
fór fram um hejgina og var keppt
í níu flokkum. Á myndinni að
ofan er Magnús Bess Júliusson,
íslandsmeistari í opnum flokki
karla, en á hinni myndinni eru
þrjár efstu í opnum flokki
kvenna. Nína Óskarsdóttir, ís-
landsmeistari, er í miðjunni, Mar-
grét Sigurðardóttir, sem varð í
2. sæti, er til hægri og til vinstri
er Björg Einarsdóttir, sem hafn-
aði í þriðja sæti.
KNATTSPYRNA
Tillaga um 12 lið í 1. deild
og breytta bikarkeppni
Um helgina sendi KSÍ út tillögur
um breytingar á lögum og
reglugerðum sem verða lagðar fyrir
ársþing sambandsins um aðra helgi.
Þar er ma. tillaga frá Breiðabliki,
Fylki og Þrótti um fjölgun liða í
1. og 2. deild karla úr 10 í 12.
Samkvæmt tillögunni er gert ráð
fyrir að eftir deildarkeppnina 1997
leiki liðið í 9. sæti í 1. deild við liðið
í 4. sæti 2. deildar og liðið í 10.
sæti 1. deildar við liðið í 3. sæti
2. deildar um tvö laus sæti í 1.
deild 1998. Leikið verði heima og
að heiman en tvö efstu liðin í 2.
deild færist upp í 1. deild.
í tillögunni kemur fram að fjögur
efstu lið 3. deildar færist í 2. deild
1998 og sigurvegarar fyrstu um-
ferðar átta liða úrslita 4. deildar
færist í 3. deild en leikið verði um
tvö sæti í 2. og 3. deild á sama
hátt og fyrr er nefnt varðandi 1.
deild.
Óbreyttur fjöldi hjá KSÍ
Stjórn KSÍ leggur fram tillögu
um breytingu á heiti deilda. Hún
gerir ráð fyrir fjórum deildum í
meistaraflokki karla og vill nefna
efstu deild 0. deild, sem verði skip-
uð 10 liðum, en stjórnin ákveði á
hveiju ári nafn hennar. Síðan komi
1. deild með 10 liðum, 2. deild með
10 liðum og 3. deild með liðum sem
ekki eiga sæti í fyrrnefndum deild-
um. Samsvarandi breyting er lögð
til í meistaraflokki kvenna en í
greinargerð með tillögunni kemur
fram að breytingin sé sett fram til
að styrkja stöðu KSÍ og samtaka
1. deildar félaga karla og kvenna
í samningum við aðalstyrktaraðila
deildanna og tryggja sem unnt er
að niðurstaðan verði virt af öllum.
Bikarkeppni í fyrra horf
Knattspyrnufélag ÍA leggur til
að í aðalkeppni bikarkeppni karla
verði 16 lið, liðin í 1. deild og þau
sex lið sem komast áfram úr svæða-
skiptri undankeppni en slíkt fyrir-
komulag var við lýði til 1993.
■ STALDUR/D2
HANDKIMATTLEIKUR: KA í ÁTTA LIÐA ÚRSUT EM / D3
Fjöldi
vinninga
Vinnings-
upphæð
Vinningar
Samtals:
Vinnings-
upphæð
Vinningar
vinninga
'FjiirtiilíRir
1. vinnlRiguir
Vertu viöbtiin(n) vinningi
1. vinningur er áætiaður 40 miiljónir kr.