Morgunblaðið - 22.11.1996, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.11.1996, Qupperneq 4
4 B FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF I j Kaupæði er oft hluti af stærri vandamálum Kaupæði virðist hrjá sífellt fleiri einstaklinga í því neyslusamfélagi sem við búum við í dag. En hvenær er kaupæði orðið vandamál og hvað er til ráða? Arna Schram kynnti sér einkennin og ræddi við stúlku sem á við kaupvandamál að stríða. Taliðeraö 1,1% til 5,9% mannkyns sé með kaupsýki FLESTIR hafa vafalaust heyrt minnst á kaupæði eða kaupáráttu, þótt færri viti sannanlega þýðingu og alvarleika þessa orðs. Þrátt fyrir það eru margir sammála um fánýti og tilgangsleysi þess að láta lífið ganga út á veraldleg gæði. Um það höfum við bæði heyrt og lesið, til dæmis í sögunni um prinsessuna sem átti 365 kjóla. Hún var á góðri leið með að setja föður sinn, kónginn, á hausinn því hún heimtaði nýjan kjól daglega og ef það gekk ekki eftir grét hún svo hátt að allir í höll- inni heyrðu. Ævintýrið um prinsessuna endaði þó vel því í lokin komst hún að því að gamlir kjólar gætu líka verið fallegir og að þeir breyttu engu um það hvernig hún sjálf liti út. En enda kaupæðisævintýrin alltaf svona vel? Og hvaða hvatir liggja að baki kaupæðinu? Er kaupæði eitthvað sem hefur dýpri og alvarlegri merkingu en það að missa stjórn á sér í einni verslunarferð til útlanda? Ekki hefur verið fjallað ítarlega um kaupæði eða kaupáráttu í fræðiritum um geðsjúkdóma- eða sálarfræði. Kaupárátt- an hefur oft verið flokkuð samhliða ann- arri þráhyggju, eins og ofáti, hreinlætisár- áttu eða spilafíkn og álitin hijá um 1,1% til 5,9% mannkyns. Grundvallarskilgrein- ing á kaupsýki er sú að einstaklingurinn sé stjórnlaus í kaupum sínum, þau séu farin að taka hug hans allan og orðin það umfangsmikil að þau valdi viðkomandi verulegum persónulegum þjáningum og fjárhagslegum vanda. Einkennin Af þeim fáu rannsóknum sem hafa verið gerðar á einstaklingum með kaup- æði hafa ýmis sameiginleg einkenni kom- ið fram, sem vert er að huga að. í rann- sókn sem birtist í geðlæknistímariti að nafni Clin Psychiatry, 1994 kemur til dæmis fram að dæmigerður einstaklingur með kaupæði sé menntuð kona hátt á fertugsaldrinum. Kaupæðið hefur haft þær afleiðingar fyrir hana að hún á við ýmis persónuleg vandamál að stríða eins og erfiðleika í félags-, fjárhags-, og fjöl- skyldulífinu. Einkenni kaupæðisins byija venjulega seint á táningsárunum, en oft líður áratugur áður en viðkomandi gerir sér grein fyrir umfangi vandamálsins. í annarri rannsókn sem birtist í sama tímariti kemur fram að einstaklingar með kaupæði kaupa yfirleitt hluti sem hafa áhrif á útlit þeirra, til dæmis föt, skó, skartgripi og snyrtivörur. Þar er sagt að einstaklingar með kaupæði séu afar með- vitaðir um það hvernig þeir koma fyrir, en hafi veika sjálfsímynd sem byggist mikið til á áliti annarra. Fatnaður, skart- gripir og fleiri fylgihlutir eigi því að þjóna þeim tilgangi að auka álit annarra og þar með viðkomandi á sjálfum sér. Því hefur KAUPÁRÁTTA er yfirleitt hluti af stærri vandam Morgunblaðið/Golli STEINUNN í jólaherberginu þar sem sjá mátti úrval jólaskrauts sem hún hefur útbúið á undanförnum árum. I gardínunum hanga jólatrésdúkar og dúkar á borð. Jólasokkar og sitthvað fleira fallegt HÚN vísar veginn inn í herbergi þar sem jólin eru komin. Jólasokkar, jóladúkar, englar, jólatrésdúkar og ýmislegt fleira. Fallegt skraut og lit- ríkt og umfram allt jólalegt. Hjá Steinunni Ó. Thorlacius hefur verið jólastemmning frá því í janúar. Þá fór hún að undirbúa jólagjafir handa fjölskyldunni, en þær gjafir hafa oftar en ekki verið forláta hand- verk eftir hana og undanfarin ár tengst jólunum. Það eru orð að sönnu að fjölskyldan nýtur góðs af, eins og Kristín dóttir Steinunnar, segir, en hún var í heimsókn þegar blaða- mann og ljósmyndara bar að garði. Þau höfðu frétt af jólaherberginu og gátu ekki látið hjá líða að fá að skoða. Jólagjöfin í ár DÚKKUR í tískukjólum sem Steinunn saumaði. . Fyrir nokkrum árum gaf Steinunn allri fjölskyldunni vatteruð teppi sem hún hafði unnið að allt árið. Svo sneri hún við blaðinu. „Svona er ég, hvolfi mér niður í viðfangsefnið og svo þegar ég er komin með nóg, vil ég prófa eitthvað allt annað.“ Nú tengist viðfangsefnið jólunum. „í ár fá allir jólasokka," segir Steinunn og sýnir úrvalið. Og það er ekkert smáræði, sautján sokkar og þó eru ekki allir taldir. „Ég hef 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.