Morgunblaðið - 11.12.1996, Blaðsíða 1
c
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1996
BLAD
Ráðstefnur
3 Alþjóðlega sjáv-
arútvegsráð-
stefnan Ground-
fish Forum
Afiabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Markaðsmál
e Hollendingar
„fjárfesta“ í
íslenska fiskiðn
aðinum
Greinar
7 Kristján Elíasson,
stýrimaður á Sigli
KATIR KARLAR
• KARLARNIR á Jóni Sigurðs-
syni GK hafa verið að betja á
loðnunni eins og margir aðrir í
haust, reyndar með mismiklum
árangri. Loðnan hefur staðið
Morgunblaðið/Þorsteinn Rristjánsson
djúpt, verið stygg og erfitt að
eiga við hana. Það eru helzt skip
eins og Jón Sigurðsson, sem eru
með flottroll, sem hafa náð ein-
hverju að undanförnu.
Stefnir í metframleiðslu
hjá Sölumiðstöðinni í ár
67% aukning í framleiðslu
síldar- og loðnuafurða
UTLIT er fyrir að fram-
leiðsla fyrir sölukerfi
SH aukist um 15-20%
á þessu ári í samanburði
við árið í fyrra sem var
annað besta ár í sögu SH með tilliti til framleiðslu. Fari svo verður framleiðslan
meiri en nokkru sinni áður eða um 120.000 tonn. Mest hefur framleiðslan orð-
ið 117.000 tonn árið 1994. Velta síðasta árs vcar um 22,6 milljarðar króna, en
23,5 milljarðar árið áður. Loðna og síld eru uppistaða aúkningarinnr nú, en lík-
legt má telja að veltan verði engu að síður ekki minni en á síðasta ári, líklega
meiri, þar sem framleiðsla á rækju hefur aukizt mikið.
Heildarframleiðsla í lok október var
rúmlega 103.000 tonn en heildarfram-
leiðsla allt síðasta ár var 109.000 tonn.
Mikil aukning er í framleiðslu síldar
og loðnuafurða eða um 67% og er
heildarframleiðsla þessara afurða nú
komin í 30.000 tonn. Finnig eykst
framleiðsla á skelfiskafurðum veru-
lega eða um 43%. Munar þar mestu
um aukna rækjuframleiðslu en fram-
loiðslan fer úr 7.100 tonnum í 10.150
tonn sem'er rúmlega 40% aukning á
milli ára. Innlend framleiðsla á botn-
fiski dregst saman um 5%, var á síð-
asta ári u.þ.b. 50.000 tonn en er nú
tæplega 47.500 tonn. Þessum sam-
drætti er að nokkru mætt með auk-
inni eríendri framleiðslu.
Helmingur magnsins til Asíu
Ef litið er á tölur yfir útflutning og
sölu til dótturfyrirtækja kemur í ljós
að söluskrifstofa SH í Tókýó eykur enn
eitt árið hlutdeild sína í heildarsölu,
en það sem af er þessu ári hefur um
46% af heildarútflutningi SH farið í
gegnum Tókýó eða um 47 þúsund tonn.
Rúnúega 17.000 tonn hafa farið til
Söluskrifstofa SH i Hamborg eða um
17% af heildarútflutningnum og um
15.000 tonn hafa verið flutt út til
Coldwater í Bandaríkjunum. Til Bret-
lands og Frakklands hafa farið um
10.000 tonn á hvora skrifstofu fyrir
sig.
Minna til Bandaríkjanna
Ef miðað er við verðmæti eykst sala
til Tókýó um 22% á milli ára, sala til
Þýskalandsskrifstofu SH eykst lítil-
lega, heildarsala til Bretlands stendur
því sem næst í stað en rúmlega 5%
samdráttur er í sölu til Bandaríkjanna.
Söluskrifstofa SH á Spáni sem opnuð
var nú í sumar er ekki enn inni í þessu
yfirliti en þær afurðir sem seldar eru
í gegnum skrifstofuna eru inni í tölum
Frakklandsskrifstofu SH.
Fréttir Markaðir
Vill koma í veg
fyrir kvótahopp
• TONY Baldry, sjávarút-
vegsráðherra Bretlands,
segir að koma verði í veg
fyrir kvótahoppið og
tryggja, að breskir kvótar
verði í höndunum á breskum
sjómönnum. Segir hann, að
um þetta sé verið að ræða
við framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins, ESB, og
leggur áherslu á, að takist
henni ekki að leysa þennan
hnút verði að gera það með
því að breyta Rómarsáttmál-
anum./3
Þörf er á
uppbyggingu
• SAMKVÆMT mælingu á
rækjustofninum á Flæm-
ingjagrunni virðist nýliðun
á tveggja ára rækju núna í
meðallagi. Það skilar sér í
framtíðinni einkum árið
1998 nema veiðar hvíli mjög
á þessum árgangi strax árið
1997 sem þriggja ára karl-
dýrum. Eftir stendur að
þörf er á að byggja upp
kvendýrahlutann og munu
óheftar veiðar duga skammt
í því efni./5
Sjávarútvegur
á alnetinu
• ÍSLENZKA internetþjón-
ustan hefur undanfarna 6
mánuði verið nieð vefinn
Fish Industry Net á alnet-
inu. Ljóst er að rekja má
viðskipti upp á marga tugi
milljóna til sambanda sem
hafa myndazt á vefnum./8
Helstu innflytjendur á
fiskimjöli sept’95-okt.’96
Samtals 3.830.000 tonn
ESB-ríki (15)
Kína
Japan
Taiwan
Önnur Asíuríki
3,9 A-Európuríki
3,4 íran
3,2 V-Evr.ríki, önnur
Önnur ríki 1—- 2,5 S-Afrika
Minna keypt
af fiskimjöli
• HELZTU kaupendur
fiskimjöls hafa keypt minna
af mjöli undanfarna mánuði
en á sama tíma í fyrra. Nem-
ur samdrátturinn um 13%
miðað við sama tímabil fyrir
ári síðan. Evrópusambandið
keypti um 840.000 tonn af
fiskimjöli frá október í fyrra
til loka september í ár. Þar
er samdráttur um 131.000
tonn. Kína keypti þetta tíma-
bil um 800.000 tonn, örlitlu
meira en á sama tínia í fyrra.
Aðrir stórir mjölkaupendur
eru Suður-Afríka, Norður-,
Mið- og Suður-Ameríka, Jap-
an og Tævan. Þá tvöfölduðu
Iranir mjölkaupin milli ára.
Verð á fiskimjöli hefur verið
framur stöðugt og sömu
sögu er að segja af fiskilýsi.
Mjölið hefur verið að seljast
á um 42.000 krónur tonnið
á mjölmarkaðnum í Ham-
borg í Þýzkalandi, en lýsið
á um 32.000 krónur tonnið
á helztu evrópsku mörk-
uðunum./6
Lyftir allt að 46 tonnum
y~w-s ■, ingvar
í ff ; jHelgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000
Véladeild