Morgunblaðið - 12.12.1996, Blaðsíða 4
4 C FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur Fransk-
íslenska verslunarráðsins
AÐALFUNDUR Fransk-íslenska
verslunarráðsins var haldinn þann
5. desember sl. hjá Verslunarráði
íslands, en ráðið hefur það mark-
mið að treysta og efla viðskipti á
milli ísiands og Frakklands. Á síð-
asta starfsári bar hæst heimsókn
til íslands frá fulltrúum franskra
fyrirtækja, sem ýmist eru nú þegar
í viðskiptum við íslensk fyrirtæki
eða hafa áhuga á slíkum viðskipt-
um. Dagskrá heimsóknarinnar fólst
í almennri kynningu á íslensku
efnahags- og atvinnulífi, kynningu
á viðskiptatækifærum á afmörkuð-
um sviðum, kynningu á lögfræði-
legum atriðum varðandi samninga
milli fyrirtækja í löndunum tveimur
og að síðustu var efnt til viðræðna
milli einstakra fyrirtækja. Á kom-
andi starfsári er áhugi á því að
endurgjalda heimsóknina og. efna
til ferðar aðila úr íslensku við-
skiptalífi til Frakklands.
I stjórn Fransk-íslenska verslun-
arráðsins voru kjörin: Brynjólfur
Helgason, formaður, Pétur J. Ei-
ríksson, Jón Sigurðarson, Pétur
Einarsson, Rósa Matthíasdóttir,
Jón Páil Haraldsson og Pétur Har-
aldsson. Að auki starfar Dominique
Pledel Jónsson, viðskiptafulltrúi
Franska sendiráðsins, með stjórn-
inni.
Navís hf. óskar eftirfárandi fyrirtækjum
til hamingju með NAVISION Financials
- tímamótalausn í fjármálastjórn
Alþjóðleg miðlun
Dominos Pizza
FÍB-trygging
Hátækni hf.
Hótel Saga
Vörður - Vátryggingafélag
Öryggismiðstöð íslands
Þessir aðilar völdu gullverðlauna-
kerfið NAVISION Financials sem
á erindi við öll metnaðarfull fyrirtæki
sem vilja ná árangri í rekstri og
stefna á sigur í samkeppni.
NAVISION Financials er Office-
samhaeft hugbúnaðarkerfi, hannað
fyrir Windows 95. Það býður upp
á fullkomin samskipti við Word og
Excel - mest útbreiddu skrifstofu-
kerfi heims.
Fyrirtæki skapa sér ekki orðstír fýrir
gæði með tilviljunarkenndum vinnu-
brögðum. Navís hf. setur mjög
stranga staðla við þjónustu og þróun
hugbúnaðarlausna og fer eftir fast-
mótuðum verklagsreglum til að
gæðin verði sem best tryggð.
Starfsmenn og eigendur Navís hf.
hafa margra ára reynslu í aðlögun og
uppsetningu NAVISION-kerfa fýrir
íslenska og erlenda aðila.
Designedfor
Mlcrosoft
Microsoft
OFFICE
O
(/)
VIÐSKIPTI_______________
Náttúruauðlindir nýtt-
arhjá Kísiliðjunni
Ekki hefur alltaf blásið byrlega fyrir Kísil-
iðjuna þau þijátíu ár sem hún hefur starf-
að. Á undanförnum árum hefur reksturinn
verið endurskipulagður og ströngum að-
haldsaðgerðum beitt sem hafa skilað sér
í bættri afkomu fyrirtækisins. Guðrún
Hálfdánardóttir hitti Bjama Bjarnason,
framkvæmdastjóra Kísiliðjunnar, að máli
og ræddi við hann um fyrirtækið og þátt
-------------------------^-------1--------
þess í gullleit á Islandi.
VERSLUNARRÁÐ íslands
kynnti í síðustu viku skýrslu
um einkavæðingu opinberra
fyrirtækja þar sem meðal annars er
mælt með því að ríkið selji hlut sinn
í Kísiliðjunni hf. við Mývatn. Bjarni
Bjarnason, framkvæmdastjóri Kísil-
iðjunnar, telur að þær aðstæður sem
félagið býr við útiloki sölu á eignar-
hluta ríkisins.
Kísiliðjan hf. var stofnuð 13. ág-
úst 1966 og hefur verið rekin sem
hlutafélag frá upphafí._ Aðalstofn-
endur voru ríkissjóður Íslands með
51% hlut og bandaríska fyrirtækið
Johns-Manville með 48,56%. Auk
þess eiga 18 sveitatfélög á Norður-
landi 0,44% hlut í fyrirtækinu. Árið
1991 keypti Celite, sem er í eigu
bandaríska fyrirtækisins World Min-
erals, hlut Johns-Manville í Kísiliðj-
unni og sér Celite um sölu kísil-
gúrsins en fyrirtækið rekur tíu kís-
ilgúrverksmiðjur í fjórum heimsálf-
um.
Að sögn Bjarna er reynsla Kísiliðj-
unnar af erlendu samstarfí mjög
góð. „Þrír meginkostir samstarfsins
í upphafí voru aðgangur að
áhættufé, tækniþekkingu og mark-
aði og ólíklegt er að Kísiliðjan hefði
komist á legg án slíks samstarfs."
Kísilgúr er gerður úr skeljum
dauðra kísilþörunga en skeljarnar
mynda nokkurra metra þykkt setlag
á botni Mývatns. Skeljarnar eru að
mestu úr kísilsýru en hún kemur
úr jarðhitavatni sem streymir neð-
anjarðar í Mývatn frá jarðhitakerfí
Kröflueldstöðvarinnar. Bjarni segir
að nýmyndun kísilgúrs í Mývatni sé
talin nema 11-15 þúsund tonnum á
ári hveiju en verksmiðjan nýtir um
35 þúsund tonn af kísilgúr á ári.
Kísilgúrinn sé því endurnýtanleg
auðlind þó nýmyndun í vatninu hald-
ist ekki í hendur við efnistöku verk-
smiðjunnar. Heildarmagn gúrs í
vatninu sé gríðarlegt og einungis sé
búið að vinna um 5% af gúrnum á
þeim 30 árum sem verksmiðjan hef-
ur starfað.
Tæknilegir örðugleikar
í byrjun
Kísilgúr er einkum notaður til
síunar á vökva, sem slípiefni og
fylliefni. Þann-
ig er bjór síað-
ur í gegnum
kísilgúr fyrir
átöppun en
kísilgúr er
einnig notaður
til síunar á -
sykurvökva,
matarolíu,
flugvélabens-
íni og blóði í
blóðbönkum.
Sem slípiefni
er kísilgúrinn
notaður í tannkrem og bón og sem
felliefni í málningu, snyrtiefni og
lyf. Að sögn Bjarna mættu Kísiliðj-
unni verulegir erfiðleikar í upphafi
enda um frumraun að ræða bæði í
vinnslu námunnar og við nýtingu
jarðgufu til iðnaðar en jarðgufa er
Bjarni Bjarnason
Borgarráð samþykkir stefnumörkun á sviði ígildisviðskipta
Beitt við innkaup vegna
Nesjavallavirkjunar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
stefnumörkun vegna ígildisvið-
skipta og telur að ákveðin tæki-
færi til atvinnu- og verðmæta-
sköpunar geti falist í þeim sé rétt
að málum staðið. Að því skuli
stefnt að við ígildisviðskipti nemi
viðskiptaígildi a.m.k. 30-50% af
viðkomandi innkaupasamningum
og þau geti eftir atvikum falist í
íjárfestingu hérlendis, innlendri
þátttöku eða öðrum virðisauka-
skapandi tækifærum.
Fram kemur að í samvinnu við
Aflvaka hf. hefur verið tekin sam-
an skýrsla um kosti og möguleika
ígildisviðskipta við íslenskar að-
stæður. I henni kemur fram að
ígildisviðskiptum er víða beitt,
m.a. í nágrannalöndum, af hálfu
ríkisvalds, sveitarfélaga og opin-
berra fyrirtækja.
ígildisviðskiptum er einkum
beitt í tengslum við kaup á fjár-
festingarvörum, svo sem tækjum
og búnaði, frá útlöndum, til þess
að örva staðbundna þróun með
kröfum til seljenda um hámörkun
innlends virðisauka, framsal á
tækni og þekkingu, fjárfestingu í
landinu, stofnun samstarfsfyrir-
tækja með innlendum aðilum eða
sambærilegum kröfum.
Af hálfu kaupanda er þess
krafist af seljanda að hann felli
inn í tilboð sitt að tiltekin hrá-
efni, hlutir eða samsetning komi
frá eða fari fram í landi kaupand-
ans, eða að hann skapi á annan
hátt virðisauka, framleiðslu eða
þjónustu á atvinnusvæði kaup-
anda upp að fyrirfram ákveðinni
prósentu af upprunalegri sölu.
í fyrrnefndri skýrslu er bent á
nokkra möguleika sem Reykjavík-
urborg getur nýtt sér í ígildisvið-
skiptum, einkum í tengslum við
fjárfestingar í búnaði fyrir orku-
fyrirtækin og á almenningsfarar-
tækjum.
„Borgarráð Reykjavíkur telur
að ákveðin tækifæri til atvinnu-
og verðmætasköpunar geti falist
í ígildisviðskiptum, ef rétt er að
málum staðið, bæði fyrir atvinnu-
líf á höfuðborgarsvæðinu sem og
á landsvísu. Mörg fyrirtæki sýn-
ast eiga ígildistækifæri, sem nýst
gætu þeim beint eða öðrum aðil-
um. Nauðsynlegt er að í hveiju
tilfelli sé litið heildstætt á mögu-
leika til ígildisviðskipta, frekar en
út frá þrengri forsendum og að
eðlileg miðlun ígildistækifæra eigi
sér stað milli fyrirtækja hérlendis.
Borgarráð hvetur opinber fyrir-
tæki og einkafyrirtæki til að
kynna sér möguleika ígildisvið-
skipta, með það að markmiði (a)
að breikka atvinnustarfsemi og
örva útflutning, (b) skapa aukna
atvinnu og innlenda verðmæta-
sköpun, (c) efla rannsóknar- og
þróunarstarfsemi, (d) auka fjár-
festingu erlendra fyrirtækja hér-
lendis þar sem það á við, (e) efla
samstarf innlendra fyrirtækja og
erlendra t.d. með stofnun sam-
starfsfyrirtækja, (f) auka tækni-
þekkingu í atvinnustarfsemi hér-
lendis, og (g) jafna út sveifluáhrif
vegna stóríjárfestinga,“ segir í
stefnumörkun borgarráðs.
Því er einnig beint til allra fyrir-
tækja í eigu borgarinnar að þau
kynni sér möguleika ígildisvið-
skipta við ákvarðanir um stærri
innkaup og kaup á fjárfestingar-
vörum frá útlöndum. Kannaðir
verði strax möguleikar á ígildi-
sviðskiptum í tengslum við kaup
á búnaði vegna stækkunar Nesja-
vallakirkjunar.
Lotus Noíss
Póstgsttun
Veíþjonusta
Öryggisgátt
UNIX
Víðnet
Leiðstjórar
fölvupóstur
Internetráðgjof
www.nyherji.is
NÝHERJI
Skaftahlíð 24 - Sími 5BS 7700
http://www.nyharji.is