Morgunblaðið - 20.12.1996, Page 4
4 B FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1996 B 5
DAGLEGT LÍF
DAGLEGT LÍF
Útsölustaðir: akranes. hjá allý
• AKUREYRI: ISABELLA • EGILSSTAÐIR:
OKKAR A MILLI • GARÐABÆR: SNYRTIHÖLLIN
• HAFNARFJÖRÐUR: HB-BÚÐIN • HÚSAVlK:
ESAR • HÖFN HORNAFJÖRÐUR: TVÍSKER •
ISAFJÖRÐUR: SNYRTIHÚS SÚLEYJAR •
KEFLAVÍK: SMART • KÓPAVOGUR: SNÓT •
REYKJAVlK: ÁRSÓL, DEKURHORNH), VERSL
FLIP, SNYRTIV. GLÆSIBÆ, SÓLBAÐST.
GRAFARVOGS, HELENA FAGRA • STÓRAR
STELPUR • SELFOSS: TlSKUHÚSIÐ •
SIGLUFJÖRÐUR: GALLERÍ HEBA •
STYKKISHÓLMUR: HEIMAHORNIÐ •
VESTMANNAEYJAR: NINJA
hvað átt er við. Plattarnir eru
handmálaðir og litnum úðað á og
hann þurrkaður af mörgum sinn-
um fyrir brennslu. Þannig kemur
blái liturinn fram í ýmsum blæ-
brigðum. Þar sem plattarnir eru
handgerðir eru engir tveir eins,
en þó er sagt að aðeins þrautþjálf-
að auga listamanns geti greint
muninn.
Þótt veturinn í Danmörku
sé alla jafna mildur og
snjólaus birtist snjór
með einhverjum
hætti á flestum
jólaplöttunum;
börn að leika sér
í snjó, fólk að
skauta á svelli
og fleira
mætti telja.
Akveðið þema
er valið sem
fyrirmynd á
hveiju ári og
er hægt að fá
bolla, skálar og
bjöllur í stíl við
plattana. Að undan-
skyldum elstu plöttun-
um með helgimyndunum,
eru fyrirmyndirnar jafnan sóttar
í danskt umhverfi. Jólaplatti Royal
Copenhagen í ár, Kveikt á götu-
ljósunum, sýnir gamla hluta Fá-
borgar á Fjóni, eyjunni þar sem
H.C. Andersen fæddist. Plattinn
er eftir Sven Vestergaard, sautj-
ánda listamann fyrirtækisins frá
upphafi, en hann hefur gert jóla-
plattana síðastliðin tólf ár.
Melra en tvær
milljónir safnara
Jorgen Sannung, markaðsstjóri
Royal Copenhagen, segir að þar
til fyrir tuttugu árum hafí starfs-
fólk fyrirtækisins komið með til-
lögur um þema plattanna. „Þá var
þetta nokkurs konar samkeppni
meðal starfsmanna. Núna eiga
listamenn og stjómendur hug-
myndirnar og sérstök nefnd þarf
að samþykkja listræna þáttinn,“
segir markaðsstjórinn, sem full-
FYRSTU
jólaplattarnir, t.v.
Bak við frosinn glugga
frá Bing & Grondahl 1895 og
María mey og barnið frá Royal Copenhagen 1908. Á hinni síðunni
eru jólaplattamir í ár, sá efri frá Royal Copenhagen og fyrir neðan
frá Bing & Grondahl. Þar má líka sjá Sven Vestergaard
sem hefur hannað jólaplatta Royal Copenhagen
síðastliðin tólf ár og konu handmála plattana.
yrðir að flestir jólaplattasafnar-
arnir séu Bandaríkjamenn. Annars
áætlar hann að meira en tvær
milljónir manna safni plöttunum.
Hann segir að þótt Japanir haldi
jólin ekki hátíðleg sé Japan stærsti
markaðurinn erlendis. „Japanir
eru afar hrifnir af kóbalbláa litn-
um og tileinka plattana árinu en
ekki jólunum.“
Forsvarsmenn Royal Copenhag-
en ábyrgjast takmarkað upp-
lag plattana. Þeir segjast
stöðva framleiðslu í árs-
lok og eyðileggja mót-
in. Upplagstölur eru
leyndarmál fyrirtæk-
isins. Sannung telur
að fólk safni plött-
unum ekki ein-
göngu vegna þess
að verðmæti þeirra
aukist eftir því sem
þeir verða eldri,
heldur sé ástæðan
einfaldlega sú að fólki
þyki þeir fallegir og
hentugar tækifærisgjaf-
ír. Þótt jólaplattarnir séu
ef til vill ekki efstir á lista
hjá snjöllustu fjárfestum ætti
enginn að vera svikinn af að safna
þeim. Fyrsti jólaplatti Royal Co-
penhagen fór á sem svarar tæpar
fjögur hundruð þúsund krónur á
uppboði í fyrra. ■
Heimild/Scanorama, des.96/jan.97
"Engin konaer ems
Þess vegna framleioir
BAU mikid úrval at
undirfatnaði.
sínum áfengi segir Bergur: „Ég held
að það sé sjaldgæft að foreldrar
kaupi áfengi fyrir krakka á okkar
aldri, kannski gera þeir það þegar
krakkarnir eru orðnir átján ára.“
Árdís segist halda að það séu frekar
eldri vinir eða systkini sem útvegi
þeim yngri áfengi.
Ætlast ekki til að foreldrarnir
séu fullkomnir
Þau eru spurð að því hvernig
þeim finnist foreldrarnir sem fyrir-
mynd? Á svörum þeirra má heyra
að almennt eru þau ánægð með for-
eldra sína. Ebbi segir að foreldrar
hans reyki en hann ætli að láta sér
það að kenningu verða og ætli aldr-
ei að reykja sjálfur.
Ef foreldrarnir reykja og drekka
finnst ykkur þið mega það líka?
„Ef krakkar eru óþroskaðir þá
er líklegt að þeir nciti það sem afsök-
un,“ segir Ósk. „Ég ætlast ekki til
þess að foreldrar séu fullkomnir.
Þeir geta gert mistök eins og aðr-
ir,“ bætir hún við.
Fylgjast foreldrarnir með hvað
þið horfa á í sjónvarpinu?
„Þeim er alveg nákvæmlega sama
hvað ég horfi á. Þau vita að ég
hermi ekki eftir því sem ég sé,“
segir Ebbi.
„Ég má horfa á nánast allt nema
ógeðslegar, sálrænar kvikmyndir,"
segir Ósk.
„Mér er ekki bannað að horfa á
neitt enda hef ég skynsemi til að
velja sjálf," segir Árdís.
„Þegar ég var yngri höfðu ógeðs-
legar myndir engin áhrif á mig.
Nú þegar ég er orðinn eldri finn
ég til viðbjóðs ef myndirnar eru
mjög ógeðslegar eins og mér fannst
til dæmis um sum atriðin í kvik-
myndinni Trainspotting," segir
Bergur.
Það er komið að lokum þessa
samtals og margt búið að ræða en
mörgu hefur þó verið sleppt enda
umtalsefnið óþijótandi. Við spyijum
í lokin hvernig góðir foreldrar eigi
að vera að þeirra mati?
„Góðir foreldrar eiga að vera opn-
ir fýrir skoðunum barna sinna. Geta
talað við þau af umburðarlyndi og
svarað án þess að blöskra," segir
Ebbi.
„Þeim á að þykja vænt um börnin
sín,“ segir Ósk.
„Þeir eiga fyrst og fremst að vera
umburðarlyndir," segir Bergur.
„Ég vil hafa þá eins og mömmu
og pabba. Það er gott að tala við
þau og þau styðja mig í því sem ég
er að gera,“ segir Árdís. g
Morgunblaðið/Gollí
SIGRÍÐUR Krístjánsdóttir og Gyða Einarsdóttir.
Gott samband
við foreldrana er
það sem skiptir mestu máli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Góðir foreldrar eru umburðarlyndir," segja þau Ósk, Bergur, Ebbi og Árdís Björk.
„Ef það koma gestir sem reykja
rek ég þá bara út til að reykja. Ég
reyki ekki sjálf og finnst það sjálf-
sögð kurteisi að ekki sé reykt fram-
an í mig,“ segir Árdís ákveðin.
„Mér finnst fólki í sjálfsvald sett
hvork það reykir eða ekki og skipti
mér ekki af því,“ segir Bergur.
Sumir sofa hjá í partíum
Ræða foreldrarnir um kynlífið við
ykkur og þá ábyrgð sem þvi fylgir?
„Við mamma tölum mjög eðlilega
um þessa h!uti,“ segir Árdís og Ósk
tekur í sama streng. Ebbi og Bergur
segja þetta mál lítið rætt heima hjá
þeim. „Ef ég væri stelpa væri örugg-
lega meira talað um þetta,“ bætir
Bergur við.
„Já, örygglega er það rétt hjá
þér, það er meira í húfi hjá okkur
stelpunum. Ef við
eignumst börn
getum við ekki
hlaupið frá þeim,“ segir Árdís.
„í sjöunda og níunda bekk feng-
um við ágætis fræðslu um þessi
mál,“ segir Bergur.
„Við erum einmitt núna í kynlífs-
fræðslu í skólanum. Kennarinn
heimtar að við notum orðið getnað-
arlimur í umræðunni og verður pirr-
uð ef við segjum tippi,“ segir Ébbi
og finnst þetta greinilega fáranlegt.
Má kærasti eða kærasta sofa
heima hjá ykkur?
„Ég hef aldrei beðið um það en
foreldrum mínum fyndist ég örugg-
lega of ung og það finnst mér líka,“
segir Ósk. „Annars held ég að ef
krakkar á þessum aldri ætla að sofa
saman geri þau það ekki heima hjá
sér heldur í partíum.“
„Ég hef aldrei spurt foreldra mína
að þessu,“ segir Ebbi. „Ég hef held-
ur aldrei sofið hjá stelpu nema einu
sinni þá svaf ég hjá frænku minni
í tjaldi og þá gerðist ekkert!"
„Annars held ég að krakkar spytji
ekki foreldrana hvort þau megi sofa
hjá þau labba bara inn með kær-
ustuna eða kærastann," segir Berg-
ur.
Þau eru spurð að því hvort rætt
sé um siðferðileg gildi á heimili
þeirra eins og heiðarleika, virðingu,
umburðarlyndi og ábyrgð? Þau segja
ákveðin að svo sé. Þessi mál séu þó
ekki rædd sérstaklega en komi upp
í umræðunni öðru hvoru. „Ef ein-
hver á heimilinu hefur upplifað nei-
kvæða hegðun er tækifærið notað
til að ræða þá hluti,“ segir Árdís.
Mega ekki drekka
heima hjá sér
Verðið þið verða vör við upplausn
á fjölskyldum í kringum ykkur?
„Ég hef ekki orðið vör við það í
minni fjölskyldu. Samt sér maður
þetta töluvert í kringum sig. Mér
finnst til dæmis skrýtið þegar ungl-
ingar eru reknir að heiman án þess
að reynt sé að finna betri lausn á
vandanum,“ segir Árdís.
„Stundum virðist vera allt í lagi
heima hjá krökkunum, svo kemur
bara annað í ljós,“ segir Ósk.
„Mér finnst verst
þegar hjón eru að
halda framhjá, ég
held að það sé tölu-
vert um það,“ segir
Árdís.
„Já, ég hef líka
heyrt talað um það,“
segir Ebbi.
„Mér finnst verst
ef það er engin mein-
ing á bak við slíkt,
menn stundi þetta
bara eins og ein-
hvern leik. Ef fólk
er virkilega ástfang-
ið af einhveijum öðr-
um ætti það að gera
eitthvað í sínum mál-
um,“ segir Ósk.
„Auðvitað geta hjón
orðið leið hvort á
öðru en þá eiga þau
að rækta sambandið.
Það á ekki að skipta
um maka þó eitthvað
bjáti á. Ef.allt hefur
verið reynt og hjóna-
bandið gengur ekki
upp þrátt fyrir það á
fólk auðvitað að
skilja,“ segir Árdís.
Megið þið neyta
áfengis heima hjá
ykkur?
„Nei, það þætti
ekki eðlilegt að ég
væri fullur heima hjá
mér enda hef ég aldr-
ei verið það,“ segir Ebbi.
„Ég hef ekki neytt áfengis heima
fyrir en það kemur fyrir að ég
smakki áfengi,“ segir Bergur.
„Það þýðir ekkert að banna
krökkum að neyta áfengis, það þarf
að ræða um þessa hluti. Heima hjá
mér er mælt með því að áfengi sé
drukkið í hófi og ekki sé byijað
snemma á því,“ segir Ósk.
„Mér finnst alveg fáránlegt að
vera í skóla til að auka við þekking-
una og þroskann og drekka svo frá
sér allt vit þess á milli,“ segir Árdís
áköf en bætir svo við: Sumir krakka
mega drekka heima hjá sér, það er
bara sagt við þá; viltu bjór?“
„Ég þekki stelpu sem fékk að
fara til Akureyrar um verslunar-
mannahelgina. Foreldrar hennar
gáfu henni tvær kippur af bjór í
nesti. Hugsið ykkur sjálfsblekking-
una að halda að stelpan hafi bara
drukkið þetta,“ segir Ebbi dálítið
hissa.
Þegar krakkarnir eru spurðir að
því hvort að foreldrar útvegi börnum
Skreytum skólann
greinum grænum
—» JÓLASKRAUT er af ýms-
35? um stærðum og gerðum,
innflutt og heimagert.
■ Flestir sjá um að skreyta
heimili sín sjálfir og al-
SS gengt er að stofnanir og
œœg fyrirtæki kaupi sér jóla-
UJ skreytingarþjónustu. Svo
er ekki í Seljaskóla í Breið-
holtinu og hefur skreytingar-
nefndin þar vakið athygli fyrir
fjölbreytt og fallegt skraut.
Fjórir starfsmenn skipa
nefndina: Sigríður Kristjáns-
dóttir, Gyða Einarsdóttir, Sig-
rún Stefánsdóttir og Kristín
Gunnarsdóttir, og hafa þær
smíðað, brætt gler, endurunnið
pappír, klippt og skorið. Árang-
urinn er kennarastofa með jóla-
ilm. Sigríður Kristjánsdóttir er
myndmenntakennari við skól-
ann og hefur þar af leiðandi
borið hitann og þungan af
skreytingunum. Nemendur
hennar keppast líka við að búa
til jólakort og kertastjaka úr
gleri, en lítill leirbrennsluofn
er í skólanum. Sigríður hefur
sótt um að vera með listiðju í
skólanum, og vonast til að geta
veitt sköpunargleði nemenda
betur útrás í framtíðinni.
Jól geta kostað lítið
Skreytingarnefndin vann í
þrjár vikur í sjálfboðavinnu við
að hanna skrautið og nú eru á
borðum glerskál-
ar og stjakar, í
gluggum gler-
sljörnur, í lofti
skreyttar grein-
ar, og hjörtu, og
á veggjum jóla-
pokar. Ekki kost-
aði þetta meira
en fjögur þúsund
krónur. Gleðileg
jól kosta lítið.
GLERSTJARNA í glugga,
gerð úr bræddu rúðugleri.
ÞEGAR rætt er um málefni unglinga
vill brenna við að umræðan sé á
neikvæðum nótum og síður dregið
fram það sem vel er gert. Það gleym-
ist að það er tiltölulega lítill hluti
unglinga sem á við erfiðleika að etja.
Langflestir eru þeir hæfíleikarík,
myndarleg og góð ungmenni sem
mega ekki vamm sitt vita. Sömu
sögu er að segja um foreldrana.
Flestir sinna þeir uppeldisskyldum
sínum af kostgæfni og alúð, oft við
erfiðar aðstæður. Til að varpa örlitlu
Ijósi á samskipti unglinga og foreldra
var rætt við nokkur ungmenni, með-
al annars um þær reglur sem gilda
inni á heimilum þeirra. Þau sem tóku
þátt í umræðunni voru Ósk Dags-
dóttir Thoroddsen úr áttunda bekk
Hagaskóla. Eðvarð Atli Birgisson,
kallaður Ebbi, úr níunda bekk Rima-
skóla. Árdís Björk Ármannsdóttir og
Bergur Benediktsson sem eru í tí-
unda bekk. Árdís er í Gagnfræðaskó-
lanum í Mosfellsbæ og Bergur er í
Hlíðaskóla.
Við byijum á því að tala um hvað
þau geri sameiginlega með fjöl-
skyldunni? Þau segjast öll fara með
í heimsóknir til fjölskyldu og vina
og stundum fari fjölskyldan saman
í bíó. „Við ferðumst Iíka saman á
sumrin,“ segir Árdís. Svo er ég í
fótbolta og mamma styður þar vel
við bakið á mér, kemur á leikina
og er í stjórn foreldrafélagsins.“
Fylgjast foreldrar ykkar með
náminu og hjálpa ykkur með heima-
námið?
„Foreldrar mínir fylgjast ekki
með náminu dag frá degi en ég bið
annað hvort þeirra að hlýða mér
yfir fyrir próf,“ segir Bergur.
„Pabbi er soldið góður í stærð-
fræði og aðstoðar mig stundum ef
á þarf að halda,“ segir Ebbi.
„Foreldrar mínir hjálpuðu mér
Til að varpa örlitlu ljósi
á samskipti unglinga við
foreldra sína ræddi
Hildur Einarsdóttir við
nokkra krakka í átt-
unda, níunda og tíunda
bekk um reglur sem
gilda á heimilum þeirra
og sitthvað fleira.
þegar ég var yngri en nú gengur
mér svo vel að þeir þurfa þess ekki
lengur. Og þó þeir vildu hjálpa mér
er svo langt síðan þeir voru í námi
að þeir eru stundum lengur en ég
að skilja hlutina," segir Árdís.
„Mamma og fósturfaðir minn eru
bæði kennarar svo ég get alltaf
spurt þau ef ég skil ekki eitthvað,"
segir Ósk.
Gott aö elga foreldra
sem hægt er að tala við
Eru foreldrarnir trúnaðarvinir
ykkar?
„Ég get sagt mömmu allt sem
ég segi bestu vinkonu minni,“ segir
Ósk.
„Ég segi mömmu meira,“ segir
Árdís. „Mér finnst ég eiga svo gott
að eiga mömmu sem ég get talað
við. Það er ekki allir svo heppnir."
„Það er sérstaklega pabbi sem
ég ræði við. Við getum talað um
allt mögulegt, hann er svo mikill
strákur í sér,“ segir Ebbi.“
„Mér finnst ég geta talað við
báða foreldra mína, þannig sé ég
oftast fleiri hliðar á málunum,“ seg-
ir Bergur.
Ræða foreldrarnir stundum við
ykkur um hvað það kostar að reka
heimili?
„Ekki nema ég hafi talað lengi í
símann,“ segir Osk.
„Ég setti einu sinni sautján krón-
ur við símann þegar mamma og
pabbi kvörtuðu undan því hvað ég
talaði lengi. Þau hafa ekki minnst
á þetta síðan. Annars hefur mamma
talað um að hún vildi setja mig á
fjármálanámskeið," segir Ébbi.
„Ég er nú alltaf í símanum og
er komin með legusár við eyrað,“
segir Árdís, sposk. „Það er þó oft
hringt í mig.“
„Einu sinni tók mamma saman
matarreikninginn yfir ákveðið tíma-
bil og sýndi mér. Mér blöskraði hvað
hann var hár,“ segir Bergur.
Það kemur í ljós þegar þau eru
spurð að því hvaða skyldur þau
hafi á heimilinu að flest þurfa þau
að taka til heima hjá sér og passa
yngri systkini. Árdís segist hins veg-
ar hafa svo mikið að gera í félagslíf-
inu að hún megi varla vera að því
að hjálpa til heima. Árdís er formað-
ur nemendaráðs Gagnfræðaskólans
í Mosfellsbæ. „Ég held þó herberg-
inu mínu hreinu," segir hún.
Við spyijum hvort þau viti hvern-
ig þetta gangi fyrir sig hjá öðrum
krökkum? Ebbi telur að flestir þurfi
að hjálpa til heima fyrir. En Bergur
segir að sumir krakkar þurfi ekkert
að gera heima hjá sér.
Mega vinirnir reykja heima hjá
ykkur?
„Engir af mínum vinum reykja,“
segir Ebbi. „Ég fékk þó einu
sinni vin í heimsókn sem
reykti, hann varð
að fara út á sval-
ir til að
svæla.“
Hjúin fengu
viðarplatta með
ýmsu góðgæti í jólagjöf
tte. TALIÐ er að sá siður að
ggg safna jólaplöttum eigi rætur
að rekja til Danmerkur.
al™ Snemma á nítjándu öld tíðk-
aðist að danskir auðmenn
n gæfu hjúum sínum útskorna
viðarplatta með kökum,
| súkkulaði og ávöxtum í jóla-
,Q gjöf. Þegar þjónustufólkið
■I hafði gætt sér á góðgætinu
hengdi það oft plattana á veggi
til skrauts í híbýlum sínum. Platt-
arnir þóttu hin mesta prýði og
árið 1895 sáu talsmenn Bing &
Grondahl fyrirtækisins sér leik á
borði og framleiddu fyrstu postul-
ínsplattana í takmörkuðu upplagi.
Jólaplattinn það árið, Bak við fros-
inn glugga, sýnir frostrósir í for-
grunni og nokkrar byggingar
Kaupmannahafnar bera við himin
í baksýn.
Þrettán árum síðar fylgdi elsta
postulínsverksmiðja heims, Royal
Copenhagen, fordæminu og fram-
leiddi jólaplattann, María mey og
barnið. Árið 1987, eftir næstum
átta áratuga samkeppni, sam-
einuðust fyrirtækin undir nafni
Royal Copenhagen. Þá voru jóla-
plattar beggja löngu búnir að
hasla sér völl og orðnir mjög eftir-
sóttir af lærðum sem leikum.
Kóbalblái llturinn
engum líkur
Upphleyptu myndirnar á
plöttunum eru sérkennilega kóbal-
bláar. Liturinn var þróaður með
sérstakri aðferð seint á nítjándu
öld og þykir hann aðgreina dönsku
plattana frá öllum öðrum, enda
er litnum stundum lýst sem Kaup-
mannahafnar-bláum og flestir vita