Morgunblaðið - 25.02.1997, Qupperneq 1
■f
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1997
■ ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR
BLAD
Geir líklega ekki
með gegn Egyptum
Það er tvísýnt að Geir Sveinsson
komi í leikina við Egypta og
eins mál standa nú eru líkumar minni
en meiri á þvi að hann verði með,“
sagði Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálf-
ari í handknattleik. Hann tilkynnti í
gær 16 manna landsliðshóp sem
mætir landsliði Egyptlands í Laugar-
dalshöll kl. 20.15 annað kvöld og í
Smáranum í Kópavogi á fimmtudags-
kvöldið.
„Frakkamir standa fast á sínu,“
segir Om Magnússon, framkvæmda-
stjóri HSÍ, en hann hitti forráðamenn
Montpellier um síðustu helgi. „Málið
er núna hjá handknattleikssambandi
Evrópu og það eina sem það getur
gert er að sekta Montpellier en við
emm ekkert betur settir með það,“
bætir Öm við. „Okkar „vandi“ er sá
að við lögðum Danina í haust í und-
ankeppni HM og þurftum því ekki
að taka þátt í undankeppni Evrópu-
mótsins eins og við gerðum ráð fýrir
í haust er við sendum Frökkunum
beiðni um að Geir yrði laus vegna
landsleikja og æfínga."
HSÍ gat aðeins fengið tvo leikmenn
sem leika á erlendri gmnd lausa í
landsleikina við Egypta. Dagur Sig-
urðsson og Ólafur Stefánsson hjá
Wuppertal koma og þriðji „útlending-
urinn" verður Geir fari svo að forráða-
menn Montpellier skipti um skoðun.
Reynir Þór Reyninsson, markvörð-
ur Fram, er eini nýliðinn í hópnum
þrátt fyrir þessar breytingar en auk
hans koma inn Sigurður Sveinsson,
UMFA, Njörður Amason, Fram,
Rúnar Sigtyggsson, Haukum, Björg-
vin Björgvinsson, KA, og Ingi Rafn
Jónsson, Val. Þeir hafa allir klæðst
landsliðspeysunni fyrr.
„Mér fannst vera kominn tími til
að huga að framtíðinni og gefa
tveimur ungum markvörðum að
spreyta sig með Guðmundi Hrafn-
kelssyni að þessu sinni,“ sagði Þor-
björn en auk Reynis heldur Hlynur
Jóhannesson, HK, sæti sínu en
Bergsveinn Bergsveinsson, UMFA,
situr hjá garði. Um hópinn heild
sagði Þorbjöm; „Ég hef ekki lokað
neinum dyrum fyrir HM í Japan og
ég vona að með þessu vali sé ég að
ýta við mönnum að leika vei í úrslita-
keppninni. Frammistaða manna þar
ræður miklu um val mitt fyrir HM í
Japan.“
■ Landsliðið / B4
Sigurvegarar
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞAÐ var glatt á hjalla í herbúðum Hauka er b»ði karla- og kvennalið félagsins slgruðu í bikar-
keppnl HSÍ og í hófi um kvöidlð fögnuðu félagsmenn langþráðum áföngum. Meðal þeirra voru
Judlt Estergal og Petr Baumruk og að sjálfsögðu voru bikararnlr faðmaðir Innllega.
Bjami til Real Madrid
Bjarni Guðjónsson, knattspymu-
maður af Akranesi, heldur til
Spánar í dag þar sem hann mun
vera við æfíngar hjá Real Madrid
í fjóra daga. „Þetta er í einu orði
sagt frábært. Svona tækifæri fær
maður ekki nema einu sinni á
ævinni, ef maður er heppinn," sagði
Bjarni í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Bjami kemur aftur til Islands á
laugardaginn og eins og fram hefur
komið í fréttum hefur legið í loftinu
að Liverpool og, eða, Newcastle
geri tilboð í Bjarna en hann dvaldi
hjá félögunum ekki alls fyrir löngu.
„Real Madrid er miklu stærra félag
en bæði Liverpool og'Newcastle og
trúlega eitt af fjórum stærstu félög-
unum í Evrópu og ég hlakka mjög
til að fá að æfa með félaginu,“
sagði Bjarni.
Hann sagðist ekki hafa þekkt
mikið til félagsins en þegar hann
fékk að vita að hann ætti að fara
og æfa hjá því hefði hann aðeins
kynnt sér hverjir leika með því.
Real Madrid hefur sex stiga forystu
á Barcelona og um helgina vann
liðið 6:1 sigur á Oviedo að viðstödd-
um 95 þúsund áhorfendum og gerði
Davor Suker þijú marka liðsins.
HANDKNATTLEIKUR: TVÖFALT HJÁ HAUKUM / B2, B5, B6, B7, B8
Vertu viðbúin(n) vinningi
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
"| . 5 al 5 0 3.799.508
r\ 4 af 5 £ Z. plús ^ WT~ 185.080
3.4.15 52 12.270
4. 3af 5 2.215 670
Samtals: 2.272 6.291.758 |
Vinningar
Fjöldi
vlnnínga
Vinnings-
upphæð
20.315.000
5 at 6
■ + bónus
940.639
60.510
190
2.020
823
200
Samtals:
1.019
42.361.079
18.2.- 24.2. '97
fEnginn útdráttur,
24/j þar sem Kínóið er nú
/2I komið í hvíld!
UPPLYSINGAR
' i'íhfimr rrui/ iwmmvimiiiíinmiri íauun-
ÚJlUtíUitUÍtiu VíJ/t tjji ílaaiumfl
;»r t-.Ka/ l ituilKat/iUim.
J'JmuU .(muiUiiif: tti. •< itnm ..ntt/iutiuu
11111 'i-rn *;»aiiui ■. ?(ítf í f»i; miiiii
t'/in^imiMiitnini tmutt;
lirmnliutfu
Þrelaldur 1. vinningur
inikiis vinrt?
1. vinningur er áætlaður 40 milljónir kr.